Forvitin rauð - 01.01.1974, Qupperneq 28
En það eru fleiri en foreldrarnir, sem leggja
hömlur á kynlxf, og þessar hömlur ná einnig til
þeirra, sem fullorðnir eru. Hver getur það verið
sem sér hag sinn í því að halda okkur í kynferðis
legri bælingu og hvers vegna?
A miðöldum, sem miðað er við að ljúki ur.i 1500,
var kynlíí með allt öðru sniði, en við
þekkjum nú. Og andi liðinna alda lifir helst í
blautlegum sögum um konu malarans. Þó þekkjum
við, að fólkið svaf saman nakið í íslenskum
baðstofum allt til síðustu aldamóta. Fyrr á
öldum svaf fólkið ekki einungis nakið heldur í
einni flatsæng, og þótti sjálfsagt að hafa kynmök
innan um annað fólk, síðar urðu rúmin til og að
lokum náttfötin og sérherbergin. Hinn kjarnyrti
orðaforði miðalda er að lang mestu leyti glataður
úr vestrænum málum og leifar hans kallaðar klám.
Flest allir eru x sárustu vandræðum með að túlka
kynferðislega reynslu sína, löngun eða tilætlun
i orðum. Og minnist ég nú Orðabókarnefndar
Háskólans, sem oft hefur látið slík vandræði
í öðrum greinum til sin taka.
Við lok miðalda komu fram borgararnir, menn
sem sáu opnast fyrir sér auðæfi annarra heimsálfa
og vissu, að þeim auðæfum yrði aðeins náð með
samstilltu athæfi. A miðöldum var sérhæfing
vinnu lítt þekkt, en síðan hefur hún aukist
hröðum skrefum uns sálfræðilegar truflanir sökum
firringar á vinnustað eru nú í hvers manns vit-
und. Miðaldamaðurinn var, þrátt fyrir takmark-
aðri ytri lífsgæði meiri einstaklingur, því hann
var meiri kynferðisvera og hugtök eins og
alþjóðahyggja, sameiginlegt átak, fastur vinnu-
tími, að vera of seinn í vinnuna, rétt klukka,
þjóðarvitund, sérfræðingur voru þá ekki til, en
öll eru þau nauðsynleg til að auðsöfnun sú, sem
farið hefur fram siðan, fyrst í formi nýlendu-
stefnu og síðar í formi iðnreksturs og markaðs-
sölu samfara áframhaldandi nýlendusteínu, gæti
átt sér stað.
Meðvitað og ómeðvitað réðust borgararnir gegn
gömlum hefðum með prentkunnáttuna, mælistikuna
og guðsótta fólksins að vopni. Siðbótin miðað-
ist einkum gegn spillingu og prjáli katólsku
kirkjunnar, og með henni urðu miklar fjártil-
færslur. Hér á landi komst til að mynda fjöldi
jarða úr eigu kirkjunnar og undir konung og því
í hendur erlendra manna, en fyrst og fremst
varð siðbótin til að afnema ýmsar fornar sið-
venjur og hegðunarmunstur fólks, sem stóð í vegi
fyrir því, sem æ síðan hefur verið kallað fram-
farir. Hreintrúarstefnur eins og Kalvinistar
Puritanar og Pietistar sigldu i kjölfarið.
Reynt var að útrýma gleðileikjum og dönsum og
öðrum alþýðlegum skemmtunum. Sendimaður
Kristjáns 6., Harboe, fékk þvi til leiðar komið
rétt fyrir miðja 18. öld, að lagðar voru niður
samkomur á jólanótt, fyrsta sumardag og fyrsta
vetrardag. Við þekkjum tómleikann við árstiða-
skiptin, en verst hefur gengið að útrýma jóla-
gleðinni, því hennar geta flestar þjóðsögurnar
eins og sagan af dansinum í Hruna. En með
dönsum hurfu lika allir vikivakarnir okkar og
efalaust sægur af kátum kveðskap. Af hinum
mestu hreintrúarmönnum var sjálf gleðin yfir-
lýst sem syndsamleg. En að lokum dugði ekkert
annað en beinar hótanir til að útrýma eðli-
legri og því meðfæddri leti mannskepnunnar og
skilningsleysi hennar á þvi, hvers vegna hún
ætti að fara að beygja sig undir hið ennþá
fjarræna hugtak atvinnulíf, þegar hún hélt sig
vera að rétta úr kútnum eftir svipu lénsherranna
7tt var undir allslags hjátrú, djöflatrú og
hindurvitnatrú hjá almenningi og hinar hrylli-
legu galdrabrennur magnaðar upp uns hundruðum
þúsunda, ef ekki milljónum kvenna hafði verið
hrint á bálið. Líkamlegar refsingar og
pyntingar á sakamönnum jukust og náðu hámarki
sínu hér á Islandi á síðari hluta 17. aldar.
Eftir það fór mesta ofstækið að dvína enda
almenningur farinn að temjast og tilbúinn að
líta á kynlif sitt, sem illan og skammarlegan
hlut óverðugan vitsmunaveru.
I Sóleyjarkvæði Jóhannesar úr Kötlum finnum við
þessar vísur:
„Marskálkur lét sporana klingja,
harla svipþungur var:
Veit ég göldrótt er kindin sú
og eina ráðið þar
að brenna flagðið á báli
- það er mitt svar.
Tóku þá taugar hins
af náðarkrafti að nötra:
Væri ekki göfugra að gefa frúnni
gyllta samúðarfjötra
og breyta þeim siðan smátt og smátt
í tötra?"