Forvitin rauð - 08.03.1979, Síða 2
2
Otg.: Rauðsokkahreyfingin.
Þeir sem unnu að blaðinu voru:
Guðrún ögmundsdóttir,
Hildur Jónsdóttir,
Ingibjörg Haraldsdóttir,
Kristln Astgeirsdóttir,
Lls Sveinbjörnsdóttir,
Margrét Rún Guðmundsdóttir,
Sólrún Gísladóttir og
Steinunn H.Hafstað.
Merktar greinar eru á ábyrgó höfunda.
3 5 4 2 .<
IfiLANOS
Slðasta tbl.Forvitinnar rauðrar kom út
1-mal sl. vor.Þar var pistill um starfið
árið þar á undan og verður nú tekinn upp
þráðurinn þar sem frá var horfið.
Starf I hreyfingunni lá að mestu niðri
á sumarmánuðunum eins og venja er til þvl
miður.Vaktir voru I Sokkholti bara einu
sinni I viku,en á þær kcxnu að vísu ýmsir
góðir gestir,ekki síst frá útlöndum.Þar
kanu rauðsokkar frá Svíþjóö,Kanada,Hol-
landi og Noregi sem sögðu frá og spurðu
frétta.Auk þess má geta þess að húshópur
keypti málningu og flikkaði haldur betur
upp á stofuna I Sokkholti,málaði allt I
gulu og brúnu,hreinsaði gluggatjöldin og
teppið og tók vandlega til.Síðan hefur ekk-
ert fundist I þvl húsnæði.Sönghópur rauð-
sokka keypti forkunnarfagurt veggteppi af
félaga Hjördísi Bergsdóttur sem skartar nú
I nýmálaðri stofu.
Ársfjórðungsfundur var haldinn 20.sept.
Þar voru kosnir alls fimm nýir félagar I
miðstöð,þvl óvenjumargar gengu úr skaftinu,
ýmist : af þvl þeim bar að gera það éða þær
vildu fegnar losna.Á ársfjórðungsfundi var
skipulag hreyfingarinnar mjög til umræðu,
en þ.e. mönnum þótti ekki ráðlegt að taka
mikilvægar ákvarðanir varðandi það á einu
kvöldi var afráðið að stefna að þvl að halde
ráðstefnu um málið I október.Það var skip-
aður sérstakur hópur til að sjá um allar
framkvamdir varðandi hana sem starfaði bæði
fljótt og vel.Þrem vikum síðar,helgina 14.-
15. október,var ráðstefnan haldin að ölfus-
borgum við Hveragerði.
Ráðstefnuna sóttu 45-50 manns auk ara-
grúa af börnum á öllum aldri.Við höfðum
salinn I ölfusborgum til ráðstöfunar laugar-
dag og sunnudag,eldhúsið fengum við að ráðs-
kast með að vild og var framreiddur indæll
matur kvölds og morgna og miðjan dag.Gestir
skiptust á um að elda og gæta barnanna sem
lengst af léku sér á leikvöllum fyrir utan
bústaðina. Aðbúnaður allur var til fyrir-
myndar,og fólk hafði bæði gagn og skemmtan
af þessari tilbreytni.
Meginniðurstaða starfsins á ráðstefnunni
var sú að breyta skipulagi hreyfingarinnar:
fækka skyldi föstum hópum en mynda þess I
stað hóp fyrir hvert verkefni sem unnið
væri að hverju sinni.Ársfjórðungsfundur
skal ákveða á hvaða verkefni skuli lögð
áhersla næsta ársfjórðung og fólk hvatt ti]
að fylkja sér um þau I stað þess að dreifa
kröftunum of vlða.
Á ráðstefnunni var ákveðið að fram að
næsta ársfjórðungsfundi skyldi leggja aðal-
áherslu á kynningu og útbreiðslustarf.Þar
var ákveðið að stefna að því að halda
kvennahátíð,þá fyrstu hérlendis,helst I
byrjun nóvember ,í Reykjavík,! það skyldu
fara næstu vikurnar.Einnig var afráðið að
stofna hóp innan hreyfingarinnar til þess
að þýða dönsku bókina Kvinde kend din krop
sem Mál og menning vill gefa út.Það var
stofnaður þýðingarhópur sem starfar enn
af krafti þegar þetta er skrifað,tengill
er Silja Aðalsteinsdóttir.Fleiri hugmyndir
komu fram um útbreiðslustarf,m.a. að gera
útvarpsþætti,gefa út dagbók(sem hæfist 8.
mars),plaköt,plötu og söngbók.
Hátlðin var haldin 4.nóvember og var
sklrð Frá morgni til kvölds.Fyrir hana var
gefið út plakat eftir Hjöx'dídi Bergsdóttur
og söngbók sem félagar söfnuðu I og vélrit
uðu en Háskólafjölritun fjölritaði.Miðstöð
hafði veg og vanda af hátíðinni sem kostaði
ærna skipulagningu og mikið erfiði af ýmsu
tagi. Miðstöð sá um að útvega húsnæði,sem
fékkst I Tónabæ,skreyta það og funsa og
draga að vistir og skipuleggja dagskrá.Að
dagskránni stóðu þó fjöldamargir aðrir fél-
agar eins og lög gera ráð fyrir.
Frá morgni til kvölds hófst kl.10 um
morguninn á umræðum um ýmis málefni sem
einkum vörðuðu konur og börn.Eftir hádegið
hófst dagskrá kl.2 og var lesið upp,leikið
og sungið fram undir kl.sjö.M.a. flutti
Alþýðuleikhús leikritið Vatnsberana eftir
Herdisi Egilsdóttur við mikinn fögnuð hinna
yngri áhorfenda,sem voru fjölmargir.Um
kvöldið hófust skemmtiatriði enn á ný kl.
10 og stööu fram yfir ll.Eftir það var dans
a<^ til kl.2 efitir miðnætti .F jölmennt var
allan daginn og um kvöldið,og þótti mönnum
sem þessi tilraun til barna- og fjöskyldu-
hátiðar frá morgni til kvölds hefði tekist
vonum framar.