Forvitin rauð - 08.03.1979, Page 11
11
verkafólksins sjálfs, og það úr atvinnuleys-
istryggingasjóðum verkalýðsins. Þetta er
ófremdarástand, sem ætti að breyta hið snar-
asta Atvinnuleysissjóðir verkalýðsfélag-
anna hafa aldrei feitir verió og óhæft að
þessir sjóðir skulu tæmdir jafnóðum I fæð-
ingarorlofsgreiðslur. Þær raddir hafa
heyrst, að eðlilegt sé, að atvinnurekendur
greiði slnum verkakonum fullt fæðingarorlof.
Væri ekki eðlilegra, að atvinnurekendur-þar
með talið ríkið borguðu gjald 1 sameigin-
legan sjóð I þessu skyni, sem tryggingar-
stofnun ríkisins sæi siðan um úthlutun úr.
Ýmis rök mæla með þessari tilhögun. Að
sjálfsögðu mundu allir fá greitt úr þessum
sjóði - sömu laun fyrir sömu vinnu -.
þetta stuðlar einnig að því,aó jafna skyldur.
atvinnurekenda. Eins og málum er háttað nú,
eru dæmi um, að atvinnurekendur ofsæki
barnshafandi konur og hreinlega segi þeim
upp, til þess að losna við þessar kvaðir.
Þá veldur þessi tilhögun því, að konur eru
enn óvinsælla vinnuafl en ella.
Krafan I dag ætti að vera 6 mánaða fæð-
ingarorlof, sem skiptist milli foreldra,
samkvæmt ákvörðun þeirra. Böm eiga rétt á
samveru við foreldra sína fyrstu mánuði llfs
ins, frekar en nokkru sinni seinna. Mæður
eiga rétt á hvíld og samveru við barn sitt
fyrstu mánuðina eftir fæðingu og foreldrar
ættu að hafa rétt á meiri tlma til f jölskyldú-
llfs I tilefni af komu nýs einstaklings.
Réttur föður til að að umgangast böm sln
hefur verið mjög fyrir borð borinn hingað
til- yfirleitt réttur láglaunamanna til
fjölskyldullfs. Þrlr mánuðir eru það
minnsta frl sem móðirin getur látið sér
nægja eftir bamsburð vegna llkamlegra orsaka
neilsufars, brjóstgje.far o.fl. Eigi fað-
irinn að koma inn I dæmið, verður rétturinn
til fæðingarorlofs að vera lengri .
Og að lokum:
Skyldi svona fjárfesting ekki skila sér I
betra sambandi milli foreldra og barna og
þar með heilbrigðarieinstaklingum yfirleitt.
Hallgerður Glsladórrir
Ingibjörg Hafstað
persónulýsing med áfastri spurningu
Marilyn Monroe framdi ekki sjálfsmorð af þvl hún
frétti af leggjunum á mér.
Richard Burton skildi ekki við Elizabet Taylor af
þvl hann rakst á passamynd af mér.
Það er farið úr tlzku að hafa liljuhvíta húð svo ég
er bara eins og kviðurinn á dauðum fiski.
Tlzkuklæðnaóur nær ekki utan um bogadregnar bugður
bylgjulagaðra breiðhliða minna.
Ég er gangandi inntak hryllingsins I rómantlskri
skáldsögu: lítil, feit, rauðhærð með gleraugu.
Og bráðum verð ég svo hrukkótt að hrukkurnar mínar
fá hrukkur.
Þá verð ég ekki lengur gjaldgeng kona.
En ég er ekki hrædd við það ef ég bara gæti fengið
að vera manneskja ?
auiur haralds