Forvitin rauð - 08.03.1979, Qupperneq 17

Forvitin rauð - 08.03.1979, Qupperneq 17
17 jafnt sem félagsleg gerð þessara stofn- ana stuóla að þvl að viðhalda einstakl-. ingunum, fullorðnum jafnt sem börnum, varnarlausum innan þessa lokaða kerfis (1). Sé reynt að kæra mál af þessu tagi, afgreiða verðir laganna þau oft sem heimilis- eða hjónabandserjur. Flestum er kunnugt um kraft þeirrar hugmynda- fræði semaftrar konu frá því að upplýsa ástandið og "bregðast skyldum sínum". RÉTTARSTAÐA BARNA. Ti1 eru svokölluð barnaverndarlög eða lög um vernd barna og ungmenna. Þvl miður hefur mér virst þessi löggjöf og framkvæmd hennar miðast mest við hagsmuni og verndun foreldravaldsins, sem eins konar eignaréttarsjðnarmið. 1 þeim örfáu misþyrmingarmálum, sem hin lögskipaða barnavernd fæst við, hefur gengið mikið á áður en gripið er fram fyrir hendur foreldra. Oft upphefst þá mikil tilraunastarfsemi þar sem börn eru ýmist rifin af heimilum eða send þangað aftur til að þrautreyna óhæfni foreldranna. Um raunverulegan stuðning við foreldrana I formi aðhalds og fræó- slu er allt of sjaldan að ræða. Börn virðast hér oft verða eins konar hlut- gerð eign foreldranna. Réttarstaða þeirra er afar veik, þau eiga sér engan beinan málsvara og sjálf eru þau ekki I aóstöðu (félagslega eða þroskalega) til að geta varið sig sjálf. Sænski pró- fessorinn Ulla Jacobson bendir á 4 goðsagnir sem þurfi að uppræta til að hægt sé að mæta þörfum barna á þann hátt, að velferð þeirra og réttarörygg- is sé gætt. Þær eru: "Mamma og pabbi eru alltaf best". "Mamma og pabbi hafa alltaf mest til slns máls." "Mamma er betri en pabbi, að minnsta kosti fyrir lltil börn". "Barninu llður alltaf best þar sem það er niðurkomið". (2) Ulla Jacobson hefur líka sett fram hugmyndir um barnaverndarlöggjöf sem tekur mið af hagsmunum barna. Þar hef- ur hún meðal annars að leiðarljósi hin norsku "barnalög" frá 1977. Þessi lög eru einstæð I því, að þar eru hagsmunir barnsins I öndvegi og skýrt kveðið á um skyldur forráðamanna jafnt sem þjóðfél- agsins gagnvart þvl. Þessi sjónarmið eiga ekki hvað slst við I meðferð skiln' aðarmála og forræðisdeilna þar sem eigingirni og siðleysi ásamt eignarétt- ar og vöruskiptasjónarmiði fullorðinna genqur hvað lengst gagnvart börnum. Á norðurlöndum hafa á undanförnum árum heyrst háværar raddir um nauðsyn þessað gæta hagsmuna og réttarstöðu barna I einmitt þessum málum. Þannig verði ekki aðeins spornað við þeim órétti heldur llka andlegum misþyrmingum sem börn eru oft beitt við þessar aóstæður. 1 þessu augnamiði hafa verið stofnuð samtök I Svlþjóð sem kalla sig BRIS (Barnens rátt i samhSllet). Þau vilja stuðla að bættri réttarstöðu barna þegar dómsmál eru annars vegar. Þau benda þó jafnframt á mikilvægi þess að hjálpa einstaklingunum til að vinna saman að lausn frekar en að hjálpa þeim til að vinna hver gegn öðrum I hörðu réttarstríði. (3) I sama anda hafa líka róttækir fjölskylduráógjafar sett fram hugmyndir um réttmæti og nausyn þess að fjölskyldur I upplausn fái hjálp við að vinna úr tilfinningatog- streitum slnum og að nálgast eins við- unandi ákvarðanir um skipan fjölskyldu- mála sinna á slnum eigin forsendum og unnt er. Slíkt forðar foreldrum frá þvl að þurfa að bltast eins og úlfar um eigna/forráðarétt yfir börnunum. Nota þau sem tálbeitu eða vopn til að fá útrás fyrir hefnd eða særðar tilfinn- ingar en þurfa svo jafnvel að gefast upp I mið ju strlðinu og veróa þá að vlsa málinu til úrskurðar dómsmálaráðuneytis að fenginni oft illa unninni umsögn barnaverndarnefndar. I stað þess er fjölskyldunni hér hjálpað til að ljúka slnu óuppgerða strlði á upp- byggilegan hátt þar sem báðum foreldrum er gert kleift að láta umhyggju fyrir velferð barna sinna stýra ferðinni I stað niðurrifs- aflanna gagnvart hvort öðru, sem oft er grunnt á við þessar aðstæður. Það síðara biður oft upp á meiri útgjöld, kostnað og aukna neyslu þar sem einstaklingar I til- finningalegu ójafnvægi dansa eins og kíkh? strengjabrúður eftir lögmálinu um hið al- gilda efnislega verðmætamat - að börnunum jafnframt meðtöldum. Það er t.d. algengt að annar aðilinn greiði hinum eins konar sekt, eða bæti upp tilfinningaskaða I bein- hörðum peningum. Tvö heimili fullorðinna eru dýrari en eitt. Börnin oq fjölskyldan Foreldrar sem lemja börnin sln eða beita þau öðru ofbeldi, gera það ekki af þvl að þau séu svo slæmt fólk, eða börn þeirra slæm böm. Það sama gildir um eiginmenn sem beita konur sínar ofbeldi,(barsmlðar og andleg eða félagslega kúgun). Þessir

x

Forvitin rauð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.