Forvitin rauð - 08.03.1979, Side 25

Forvitin rauð - 08.03.1979, Side 25
25 HVERNIG ER Aö VERA SKOLABARN ? Skólinn er mótaður af þvl samfélagi sem við lifum I.Við veitum honum ábyrgð S fræðslu og félagslegu uppeldi barna I a.m.k. 9 ár af ævi þeirra.Það er því mikil- ragt að umræður um markmið og skyldur þess- ara stofnanna séu stöðugt lifandi I þjóð- félaginu. 1 grunnskólalögunurm (nr.63/1974) er kveðið S um hlutverk grunnskólans.Önnur grein laganna hljóðar svo: "Hlutverk grunnskólans er,í samvinnu við heimilin,að búa nemendur undir llf og starf I lýðræðisþjóðfélagi,sem er I sífelldri þróun.Starfshættir skólans skulu þvl mótast af umburðarlyndi,kristi- legu siðgæði og lýðræðislegu samstarfi. Skólinn skal temja nemendum vlðsýni og efla skilning þeirra á mannlegum kjörum og umhverfi,á íslensku þjóðfélagi,sögu þess og sérkennum og skyldum einstakl- ingsins við samfélagið. Grunnskólinn skal leitast við að haga störfum sínum I sem fyllstu samræmi við eðli og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska,heilbrigði og menntun hvers og eins. Grunnskólinn skal veita nemendum tæki- færi til að afla sér þekkingar ogleikni og temja sér vinnubrögð,sem stuðli að stöðugri viðleytni til menntunar og þroska.Skólastarfið skal því leggja grundvöll að sjálfstæðri hugsun nemenda og þjálfa hæfni þeirra til samstarfs við aðra." Við vildum gjarnan kanna viðhorf skóla- barna sjálfra til skólans og hvað þeim findist um þessi markmið grunnskólalag- anna.Eftirfarandi viðtal er tekið við Reyk- vískan dreng I 12 ára bekk.Hann er s.k. "lykilbarn" og sér um sig sjálfur á daginn meðan foreldrar eru I vinnu.Hann vill ekki koma fram undir nafni,svo við skulum kalla hann A. -Eru aðstæður þlnar ðvenjulegar? Nei,nei.Við erum sjö af strákunum I bekkn- um,sem erum mikið saman,mömmur tveggja eru heima á daginn,en hinir eru eins og ég. -Geturðu lýst deginum hjá þér? Já,ég er I skólanum frá tíu mlnútum yfir átta til korter yfir tólf á daginn.Þá fer ég heim I hádegismat og síðan I auka- tlma eftir hádegi flesta dagana.Svo þarf ég að læra heima. -Lagarðu þá mat sjálfur I hádeginu? Nei,það tekur þvl ekki að búa til mat.Ég kem ekki heim fyrr en hálf eitt og þarf oftast að vera kominn aftur I tlma klukkan eitt.Ég borða bara eitthvað,sem til er heima. -Hvernig líður svo eftirmiðdagurinn? Ég fer I aukatímana.Þeir eru oft með bili á milli,en samt ekki svo löngu bili,að það taki þvl að byrja að læra heima.Ég læri þvl oftast á kvöldin. -Mundirðu vilja breyta einhverju I skól- anum? Já,mörgu,en við krakkarnir höfum bara eingin áhrif.Hver heldurðu að hlusti á okkur.Ef maður stingur upp á breytingu og kennarinn segir bara nei,það gengur ekki,eða það er ekkert gert,þá hættir maður bara að stinga upp á.Það er öðru vlsi með ykkur fullorðnu.Ef þið viljið breyta einhverju I vinnunni og éruð sam- mála,þá verður þvl breytt.Annars getið þið hætt og þá yrði að leggja niður vinnu- staðinn.Þetta geta kennarar líka gert en ekki við. -Ef þú gætir breytt stundaskránni,hvernig mundi hún þá líta út? Ég vildi hafa tímana I röð,ekki aukatlm- ana sér og hlé á milli eins og nú er.Ég mundi líka vilja sleppa við að fara I leikfimi I annan skóla langt frá.Þá væri ég búinn klukkan tvö eða þrjú á daginn, en ekki klukkan sex eins og stundum núna. En þá þyrfti að vera matur I skólanum.

x

Forvitin rauð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.