Forvitin rauð - 08.03.1979, Side 26
26
-Litist þér vel á að fá mötuneyti í skól-
ann?
Ég veit ekki alveg ,það fer eftir því hvern-
ig maturinn væri.Ég er hræddur um að ef
hann yrði lélegur,gætum við krakkarnir ekki
haft nein áhrif á að hann yrði betri.En ef
hann væri góður þá vildi ég helst hafa hann
I skólanum.
-En heimavinnanfhvað finnst þér um hana?
Ég hef verið I skóla þar sem ekki var nein
heimavinna,það er auðvitað best.En þaó
væri líka hægt að hafa heimavinnuna £ skðl-
anum eftir tímana.Þá mundu allir læra og
það yrði fljótt að vana.Síðan ætti maður
að fá frl eins og aðrir,þegar þeir koma
heim frá vinnu.
-Hvernig eru foreldrafundir I þínum skóla?
Við erum send heim með tilkynningu.I henni
stendur að 5 mlnútna viðtal sé tekið frá
fyrir foreldra hvers barns.Slðan fara for-
eldrarnir og tala um það sem við höfum
sagt þeim um kennarann og skólann,og kenn-
arinn segir það sem honum finnst um okkur.
Við komum ekkert inn I þetta,blðum bara
heima.Mér finnst rétt að við séum með,þegar
þau eru að tala um okkur og ef eitthvað
er að þá eigum við að geta fengið að segja
okkar skoðun á svona fundi.Eins finnst mér
að foreldrafundir geti verið með öllum
foreldrum,þar sem talað væri um það sem
skiptir allan bekkinn máli.Núna hittast
foreldrarnir aldrei,þó við krakkarnir séum
I sama bekk I mörg ár.
Mér finnst þetta vera alls staðar svona
skipt eftir aldri,ekki bara I skólanum.
Fullorðna fólkið er sér,ekki bara I vinn-
unni,heldur llka þegar það skemmtir sér.
Krakkarnir eru líka sér og unglingarnir
fyrir sig með sínar skemmtanir og áhuga-
mál.Það er eins og enginn vilji umgangast
hinn hópinni -
-Hvað viltu segj um tómstundastarfið £
skólanum?
Fyrir 12 ára bekk og yngri er það ekkert.
Við verðum að fara £ 1. bekk gagnfræðaskóla
til að fá að vera með I tómstundastarfinu.
Þá fáum við t.d. borðtennistlma,leðurvinnu
ljósmyndun og diskótek.Mér finnst þetta
mjög óréttlátt,auðvitað langar alla krakka
til að vera með I starfinu,löngu áður en
þeir fara I gagnfræðaskóla.
—Nú hefur þú lesió aóra grein grunnskóla-
laganna,hvað finnst þér um hana?
Mér finnst þessi lög alveg rétt,þau ættu
að vera svona.Og það er eitt sem ég vildi
að þú skrifaðir,þvi það er mikilvægt:
Ég vildi aó kennarar skildu að við veróum
að hafa áhuga á þvl sem við lærum,annars
gengur ekkert og tlmarnir verða leiðinleg-
ir og erfiðir fyrir alla.
Þannig lítur þessi skóladrengur á að-
stöðu sína I dag.Undirrituð tók sérstak-
lega eftir þeirri svartsýni,sem kemur
fram I viðtalinu,svartsýni um áhrifamátt
sinn,sem hann virðist deila með vlhum
slnum og bekkjarfélögum.Það vekur vonandi
einhvern til umhugsunar um hvernig raun-
veruleikinn kemur heim og saman við mark-
mið grunnskólalaganna sbr. upphaf grein-
arinnar.
í þágu hverra er skólinn?
Álfheióur Steinþórsdóttir.