Morgunblaðið - 13.12.1960, Side 1
24 síður
47 árgangur
286. tbl. — Þriðjudagur 13. desember 1960
Prentsmiðia Morgui-blaðsins
■ Myndin er tekin, þegar de
Gaulle Frakklandsforseti
kom til borgarinnar Ain
Temouchent, á fyrsta degi
heimsóknar sinnar til Al-
sir. Hann gekk geiglaus inn
í mannhafið, þar sem flest-
ir hrópuðu að honum ógr-
unar og ókvæðisorðum. —
Vakti hin óttalausa fram-
koma forsetans slíka hrifn-
ingu, að brátt hrópaði meg
inhluti mannfjöidans: „Lifi
de Gaulle!“
Dean Rusk utanrík-
isráðh. Kennedys
Chester Bowlas varautanrikisrábherra
— og Stevenson aðalfulltrúi hjá SÞ
Óveður i USA
13 farast
NEW YORK, 12. des. — Hvass-
viðri með allmiklu frosti og
snjókomu gekk yfir austurströnd
Bandaríkjanna í dag. Var veðr
ið mjög hart allt sunnan frá
Texas og norður til Washington.
— í flestum borgum á þessu
svæði urðu miklar umferðar-
truflanir af völdum veðursins
— á götum New York sat t. d.
fjöldi bifreiða fastur í sköflum.
Skólum var lokað í Washington
og víðar, og fleiri truflanir hlut
ust af þessu fyrsta verulega
vetrarveðri í Bandaríkjunum.
Mikið hefir verið um slys í
sambandi við óveðrið, og vitað
er, að a.m.k. 13 manns hafa
beðið hana — flestir í bifreiða-
slysum, sem urðu úti á þjóð-
vegunum vegna hálku.
Pálm Beach, Florida, 12. des.
— John Kennedy, kjörinn
forseti Bandaríkjanna, skýrði
frá því hér í dag, að hann
hefði skipað Dean Rusk, for-
seta Rockefellerstofnunar-
innar, utanríkisráðherra í
stjórn sinni, sem tekur við
völdum í næsta mánuði. Þá
skýrði Kennedy einnig frá
því, að Chester Bowles, þing-
maður, hefði veAð skipaður
varautanríkisráðherra, og
Adlai Stevenson, fyrrum for
setaefni demókrata við tvenn
ar forsetakosningar, hefði
fallizt á að verða aðalfulltrúi
Bandaríkjanna á þingi Sam-
einuðu þjóðanna. — Þess má
geta, að Dean Rusk var ekki
í hópi þeirra ,sem oftast hafa
verið nefndir í sambandi við
utanríkisráðherraembættið í
stjórn Kennedys.
★
Kennedy gaf upplýsingar um
þetta á blaðamannafundi, sem
hann hélt á vetrarsetri sínu í
Florida. — Sagði hann m.a. við
fréttamenn af þessu tilefni, að
hann vonaði að allar þjóðir
heims mættu í framtíðinni kenna
utanríkisstefnu Bandaríkjanna
þannig, að hún væri ekki aðeins
andvíg kommúnismanum, heldur
stuðlaði að og berðist fyrir friði.
Yrði kjörorð utanríkisstefnunn-
Frh. a bls. 2.
dðug átök í
Algeirsborg
Tugir manna hafa falliS og a.m.k.
1500 sœrxt. —■ De Gaulle sagður ein-
beitfari en nokkru sinni — en tvœr
grímur renna á öfgamenn
Algeirsborg og Paris, 12 des. — (Reuter/NTB/AFP)
BLÓÐUG átök geisuðu í Algeirsborg um helgina, einkum
á sunnudag. Kom til harðra átaka með serkneskum þjóð-
ernissinrium og öfgamönnum úr hópi frönsku landnem-
anna. Bcittu háðir aðilar skotvopnum — svo og her og
lögregla sem reyndi að skakka leikinn og koma á reglu.
Fregnum ber ekki saman um mannfall — var talað um
70 til 80 fallna í gær og um 1500 særða. En þar sem ætla
má, að engan veginn séu öll kurl komin til grafar, er næsta
Jíklegt, að enn fleiri hafi heðið bana. — Einnig í dag
hefir komið til harðra árekstra, einkum í Algeirsborg, og
munu þar hafa fallið 8—10 manns. Miklu rólegra varð
þó, er á leið daginn. Allir hinir föllnu, nema sex, eru Serkir.
Dean Rusk, næsti utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna.
Kollo heim lið
frá Kongd
ENN FJÖLGAR þeim ríkjum,
sem hyggjast kalla heim !ið sitt
á vegum Sameinuðu þjóðanna í
Kongó. — í Reutersfregn frá
Leopoldville í gær var það hermt
eftir einu-m af talsmönnum sam-
takanna þar, að Malaya hefði í
hyggju að kalla heim 615 manna
lið sitt.
Þá hafði norska frétt.astofan
NTB þaö eftir hinni frönsku AFP
fréttastofu, að stjórn Gíneu hefði
sent Dag Hammarskjöld skeyti,
þar sem segi, að lið landsins und
ir stjóm SÞ í Kongó muni kall-
að heim án tafar.
1 síðari fréttum í gærkvöldi
sagði, að Marokkó ætlaði einnig
að kalla heim lið sitt — um 3 þús.
manns.
De Gaulle enn ákveðnari
De Gaulle forseti hefir nú
ákveðið að stytta Alsírheim-
sókn sína um einn dag, og
mun hann snúa heim til
Frakklands á morgun. — Har
old King, fréttamaður Reut-
ers í París, hefir það eftir
fulltrúum forsetans þar, að
ástandið, sem ríkt hefir í Al-
sir síðan hann fór þangað,
hafi aðeins styrkt hann í
þeirri fyrirætlan að veita Al-
sír einhvers konar heima-
Framh. af bls. 3
P
vopn til Laos
iÞar hafa nú setið 4 ríkissljórnStl
i
á 4 dögum. — Lið IVosavans j
stefnir að Vientiane
Vientiane, Laos, 12. des.
•— (Reuter) —.
ÁSTANDIÐ í Laos er sífellt
óljóst. Má nú segja, að fjór-
ar ríkisstjórnir hafi setið í
landinu á fjórum dögum. —
Fyrir fjórum dögum var
Souvanna Phouma enn við
stjórn, en þá fór hann úr
landi, til Kambodíu, og fól
sex manna herstjórnarnefnd
völdin. í gær var sú nefnd
leyst upp og við tók stjórn
fjögurra ráðherra Souvanna
Phouma — án þess forsætis-
ráðherra væri skipaður. 1
dag fóru tveir þessara ráð-
herra úr stjórninni og héldu
burt frá Vientiane — en hin-
ir tveir, Quinim Philsena,
sem var upplýsingamálaráð-
herra Souvanna ,og Khams-
ing Ngonvorath, sem var ráð
herra opinberra fram-
kvæmda, koma nú fram sem
stjórn landsins.
ý Rússnesk vopn
Hið s'pennta ástand í Vienti-
ane versnaði enn við fréttir um
það að sex sovézkar flugvélar
hefðu flutt hergögn til borgar-
innar í gær, m. a. fjórar 105
mm fallbyssur eða sprengju-
vörpur, sem staðsettar hafi ver-
ið á flugvellinum. Mun stjórn-
in hafa ákveðið að biðja Rússa
um vopn þcssi, eftir að fregnir
bárust um, að uppreisnarmenn
hins hægrisinnaða Phoumi Nosa
vans stefndi að borginni, m.a.
búnir sams konar vopnum og
að ofan getur. — Er árás þeirra
talin yfirvofandi.
Philsena ræddi við frétta-
menn í dag og sagði m. a., að
það væri á valdi Bandaríkja-
manna, hvort blóðug borgara-
styrjöld brytist út í Laos. Sagði
hann, að ef Bandaríkjamenn
skipuðu uppreisnarmönnum að
gera árás á Vientiane, mundi
hann m. a. mæla svo fyrir, að
stjórnarhersveitir hæfu skothríð
á Nonkhai, sem er Thailands-
megin Mekong-fljótsins. Stjórn
Thailands hefir ekki farið dult
með stuðning sinn við Phoumi
Nosavan.
Philsena sagði aðspurður um
það, hvort vog væri meiri
vopnasendinga frá Sovétríkjun-
um, að svo mundi verða, „ef
þörf gerðist". — Hann gekk í
dag á fund fulltrúa Sameinuðu
þjóðanna í Laos, en ekki er vit-
að, hvort hann hefir beðið um
Framh. á bis. 2
10 þús.
mörk
til höfuðs
SS-foringja
FRANKFURT, V.-Þýka-
landi, 12. des. (Reuter). —
Heitið hefir verið 10.000
marka verðlaunum (um 100
þús. kr.) hverjum þeim,
er gefið gæti upplýsingar,
sem leiddu til handtöku
SS-foringjans Richard Baer,
sem var fangabúðastjóri í
Auschwitz frá því í maí
1944 til janúar 1945. Millj-
ónir manna voru drepnar
í gasklefum þessara fanga-
búða á stríðsárunum.
Opinber saksóknari i
Frankfurt telur sig hafa
gilda ástæðu til að ætla, að
Baer sé á lífi og fari huldu
höfðu einhvers staðar. —
Hann er nú 49 ára, ef hann
er á lífi.
WASHINGTON, 12. des. — Tala
atvinnuleysingja í Bandarikjun-
um fór upp í 4.031.000 í nóvem-
ber, og hafði atvinnulaasum þá
fjölgað um 452.000 síðan í októ-
ber. — Hafa ekki jafnmargir at-
vinnuleysingjar verið skráðir i
Bandaríkjunum síðan á kreppuár
unum eftir 1930.