Morgunblaðið - 13.12.1960, Blaðsíða 2
2
MORCVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 13. des. 1960
Búna&ariéiag
Hvolhrepps 75 ára
ELZTA búnaðarféiagið í
Rangárvallasýslu og eitt af
elztu búnaðarfélögum lands-
ins er 75 ára í dag. Er það
Búnaðarfélag Hvolhrepps. —
Að því tilefni átti blaðið stutt
samtal við núverandi for-
mann þess og gjaldkera, Lár-
us Ág. Gíslason bónda í Mið-
húsum.
Aðalfrumkvöðull að stofnun
félagsins er fyrsti formaður þess
var Þorsteinn Thorarensen á
Móeiðarhvoli. Fyrsti ritari var
Jón Árnason í Vestri-Garðsauka,
en gjaldkeri Magnús Guðmunds
son, Kotvelli.
— Dean Rusk
Frh. af bls. 1
ar: Friður, frelsi og réttlæti öll-
um til handa.
Þurfa ekki að óttast
Dean Rusk ræddi einnig við
blaðamenn og sagði m.a, að hann
gerði sér fyllilega ljósa þá miklu
ábyrgð, sem hann nú tækist á
hendur. — Okkar tímar einkenn-
ast af byltingarkenndum breyt-
ingum, sagði hann. En Bandarík-
in þurfa ekki að óttast þær breyt
ingar — þau eiga ekki að vera
eins og korktappi, sem berst til
fyrir hverri smábylgju. —• Hin
mikla geta okkar leggur okkur
þær skyldur á herðar að hafa
heillavænleg áhrif á þróun mála
í heiminum, sagði Rusk. Hann
fór miklum viðurkenningarorð-
um um Kennedy — taldi hann í
hópi mikilmenna Bandaríkjanna.
★
Dean Rusk er maður stór vexti,
— nær 2 mtr. — þéttur á velli og
aðsópsmikill. — Hann er 52 ára
gamall, fæddur í Georgíu, einu
af Suðurríkjunum. Hann hlaut
menntun sína m. a. í Oxford í
Englandi og Berlínarháskóla. Um |
tíma var hann prófessor við
Mills College í Kaliforníu. Eftir
heimsstyrjöldina síðari gekk
hann í utanríkisþjónustuna, og
1949 útnefndi Truman hann að-
stoðar-utanríkisráðherra. Var
hann um skeið aðalsérfræðingur
stjórnarinnar í Asíumálum.
Ræktunarmálin efst á baugi.
Búnaðarfélag Hvolhreppps hef
ur komið mörgum framfaramál-
um áleiðis í sveitinni. Aðalverk
Lárus Ág. Gíslason, Miðhúsum,
formaður Búnaðarféiags Hvol-
hrepps.
efni þess hafa verið ræktunar-
málin. Árið 1928 keypti félagið
dráttarvél í félagi við búnaðar-
félagið í Fljótshlíð og ráku þessi
félög vélina í sameiningu með-
an hún entist. Þá stofnuðu þessi
félög ásamt með búnaðarfélag-
inu á Rangárvöllum ræktunar-
samband áið 1947. Þá hafði bún-
aðarfélagið forgöngu um stofn-
un nautgriparæktarfélags í
hreppnum. Ýmis fleiri mál hef-
ur félagið láið sig skipta. Aðal
eign félagsins er hlutur þess í
ræktunarsambandinu.
Búnaðarfélagið hefur látið
smíða steypumót fyrir votheys-
túrna og einnig flekamót til
húsbygginga. Á þessu ári keypti
félagið stórvirka úðadælu fyrir
garðrækt.
Þorrablót og ferðalög.
Félagið hefur árlega að und-
aftförnu gengig fyrir þorrablót-
um. Síðasliðið sumar stofnaði
félagið til skemmtiferðar um
Borgarf j arðarhérað.
Félagið hefur ýmis mál á
prjónunum, en Lárus kvaðst
ekki á þessu stigi geta skýrt frá ^
þeim, þar sem almennur fundur^
hefði ekki tekið afstöðu til
þeirra ennþá.
Bowles og Stevenson
Chester Bowles, hinn nýi utan-
ríkisráðherra, er 59 ára gamall.
Hann var um skeið ríkisstjóri í
Connecticut, gegndi ýmsum mik-
ilvægum stöðum á valdatímum
þeirra Roosevelts og Trumans,
en kunnastur varð hann sem
sendiherra í Indlandi (frá 1951).
Hann er, eins og Rusk, mjög
fróður um Asíumál. — Adlai
Stevenson er sextugur að aldri
og hefur lengi verið einn mesti
áhrifamaður Demókrataflokksins
— enda forsetaefni 1952 og 1956.
Hann hefir áður verið fulltrúi
lands síns hjá SÞ — í London
1945 og næstu tvö árin í New
York. Stevenson var ríkisstjóri í
Illinois árin 1949—1953.
★
Af meiri háttar ráðherra-
embættum á Kennedy nú að-
eins eftir að skipa í embætti
fjármálaráðherra og varnar-
málaráðherra.
Dagskrá Alþingis
DAGSKRÁ Alþingis í dag: Efri deild:
1. Heimild tii að veita Friedrich Karl
Liider atvinnurekstrarleyfi, frv. 2.
umr. 2. Söluskattur, frv. Frh. 2 umr.
Neðri deild: 1. Almannatryggingar,
frv. 1. umr. 2 .Efnahagsmál, frv. 1.
umr. 3. Ríkisreikningurinn 1958, frv.
2. umr. 4. Bráðabirgðabreyting og
framlenging nokkurra laga, frv. 1.
umr. Ef leyft verður. 5. Fræðslumynda
safn ríkisins, frv. Frh. 2. umr. 6. Mat-
reiðslumenn á skipum, frv. 1. umr. 7.
Sala lands jarðanna Stokkseyri I.-HI.f
frv. 1. umr. Ef deiidin leyiir.
Aukning mjólkur og garð-
ávaxta.
Lárus lét þess getið, að fram-
leiðsla bænda í Hvolhreppi hefði j
mjög aukizt á sl. ári, einkum ij
mjólk og garðávöxum. Sauðfjár
— Laos
Framh. af bls. 1
milligöngu samtakanna til að
reyna sættir með hinum stríð-
andi aðilum.
Á meðan þessu fór fram í
Vientiane, sagði útvarpið í Sav-
annakhet í Suður-Laos (en þar
ræður Nosavan), að þjóðþingið
hefði samþykkt vantraust á rík-
isstjórnina. Meiri hluti þing-
manna hefir flúið suður til
Savannakhet — aðeins fjórir eru
nú I Vienfiane, en ekki er þó
vitað, hvort hinir 55 eru allir
í Savannakhet. — Það er álit
margra hér, að sá hluti þings-
ins, sem er hliðhollur Nosavan,
muni setja á fót nýja ríkisstjórn
þar syðra.
AFP-fréttastofan segir, að
Souvannavong prins, leiðtogi
Pathet-Lao-kommúnistanna, hafi
lýst því yfir í útvarpi sínu, að
liðsmenn hans muni aðstoða við
vörn Vientiane gegn her Phoumi
Nosavans — og „bægja frá í-
hlutun bandarískra heimsvalda-
sinna" í Laos, eins og komizt
var að orði.
★
t síðari fregnum segir, að síð-
degis hafi komið aðrar sjö,
rússneskar flugvéiar til Vient-
iane, sennilega með vopn og
skotfseri.
GREINARSTÚF þann, sem myndin er af, ritaði Erlendur V
Einnrsson, forstj. SÍS, í Tímann sl. sunnudag í tilefni af V,
siðlausum rógskrifum Timans um Jónas Haralz fyrir 7,
skemmstu. Sú grein var ekki skrifuð undir nafni eins og 7.
menn kynnu að ætla af orðum Erlendar, heldur á ábyrgð h
ritstjórnar, enda er hún í fullu samræmi við skrif blaðs- h
ins síðan Þórarinn kom heim. — En ljóst er, að sumum A
Framsóknarmönnum er farið að ofbjóða siðleysi Timans A
og er það ekki vonum fyrr. \
Yfirlýsing frá
Búnaðarbanka íslands
eign manna stæði hins vegar
í stað. Stafaði það af skorti á
afréttarlöndum Kartöflur voru
settar niður í 14,7 ha. lands á
síðasta sumri og aukning sölu-
mjólkur varð hát á annað hundr
að þúsund lítra.
Afmælis búnaðarfélags Hvol-
hrepps verður minnzt í félags-
heimili sveitarinnar í kvöld og
munu sitja það hóf ýmsir af for-
ystumönnum búnaðarmála, svo
sem landbúnaðarmálaráðherra,
búnaðarmálastjóri o. fl.
Lárus Ág. Gíslason hefur átt
sæti í stjórn félagsins í samfeUt
25 ár. Auk hans eru í sjórn Páll
Björgvinsson, Efra-Hvoli, ritari
og Hermann Sveinsson, Kotvelli.
meðstjórnandi.
Sendiherra full-
trúi við brúðkaup
FORSETA íslands barst fyrir
nokkru boð frá Baudouin Belgíu-
konungi um að koma til brúð-
kaups konungs í Briissel í þess-
ari viku eða senda fulltrúa i sinn
stað. Forseti fslands hefur falið
Agnari Kl. Jónssyni, sendiherra
íslands í Frakklandi og Belgíu,
að vera viðstaddur brúðkaup
konungs í sinn stað.
Reykjavik, 12. des. 1960
Skrifstofa Forseta íslands.
* r
— Fundur L.I.U.
Framh. af bls. 24.
hugana og undirbúningsvinnu
við og væru til frekari athugun-
ar. Ræddi Sverrir í þessu sam-
bandi allmikið um möguleika á
að fá lán til langs tíma með hag
stæðum vöxtu.n út á verulegan
hluta matsverðs fiskvinnslufyr-
irtækja og fiskiskipa. Kvaðst
hann gera sér vonir um lausn
þessa máls og að ríkisstjórnin
mundi oeita sér fyrir henni,
kvaðst vænta lagasetningar ura
það á næstunni.
Um vaxtalækkun á afurða- og
rekstrarlánum gat Sverrir þess
að það atriði mætti allmikilli
mótspyrnu. Hins vegar sagðist
hann hafa sannfrétt að almenn
vaxtalækkun nú á næstúnni
væri í athugun og jafnvel undir
búningi.
Störf verðlagsráðs
Þegar hér var komið var fundi
frestað til kl. 8,30 í gærkvöldi,
en þá hófst hann að nýju og urðu
allmiklar umræður um skýrslu
frrmanns.
Næst skýrði formaður frá störf
um verðlagsráðs og sagði að
störf þess hefðu verið mjög tíma
frek. Lagði hann fram og skýrði
verðflokkun sem ráðið hefði sam
ið sem umræðugrundvöll fyrir
fundinn.
Miklar umræður urðu um
þessi mál í gærkvöldi.
Á ALÞINGI var í gær lagt fram
stjórnarfrumvarp um breytingu
á lögunum um efnahagsmál, sem
sett voru snemma á þessu ári,
þ. e. því ákvæði laganna, er fjall-
ar um útflutningsskatt.
1 athugasemdum við frumvarp
ið er gerð grein fyrir þeim breyt
ingum, sem i því felast. Athuga-
semdirnar hljóð<a svo:
Innheimtur til áramóta
„Efnisbreytingar þær, sem
frumvarp þetta ráðgerir á 8. gr.
laganna um efnahagsmál, nr. 4
20. febrúar 1960, sbr. 1. gr. laga
nr. 53/1960, eru, að útflutnings-
skattur skuli innheimtur af vör-
um, sem framleiddar eru fyrir
1. janúar 1961, en falla niður af
vörum, sem framleiddar verða
eftir þann tíma. Þá er útflutnings
f „REYKJAVKURBRÉFI“, sem
birtist í Morgunblaðinu 11. des-
ember s.l., er skýrt frá þvi, að
hr. Magnús Jónsson, alþm., hafi
verið ráðinn meðbankastjóri við
Búnaðarbanka slands. í greininni
segir svo: „Bankastjóri þar er
mikilhæfur maður. Engu að síð-
ur er nú svo komið fyrir bank-
anum, að fjárfestingarsjóðir hans
eru gjaldþrota“.
Þar eð áminnzt setning kann
að valda misskilningi, óskast
þetta tekið fram:
Hér mun vera átt við Ræktun-
arsjóð og Byggingarsjóð. Hvorug
ur þessara sjóða er eign bank-
ans, heldur eru þetta sjálfstæðir
sjóðir, sem bankanum hefir ver-
ið falið að hafa á hendi takmark-
aða stjórn á.
Bankastjórn Búnaðarbankans
ákveður þannig, hvaða einstakl-
ingar skuli fá lán úr sjóðnum,
en lánsupphæð, lánstími og vaxta
kjör er bundin af reglugjörðum
og fyrirmælum ríkisstjórna, sem
sitja' á hverjum tíma.
Sama er að segja um öflun
rekstrarfjár til sjóðanna. Hún
hefur farið ram á vegum ríkis-
stjórnanna.
Fyrstu árin störfuðu sjóðirnir
eingöngu með innlent rekstrarfé,
en síðar útveguðu hinar ýmsu
ríkisstjórnir erlent lánsfé handa
skattur af niðursuðuvörum lækk
aður í %% af fob. verði, bæði
vegna verðlækkunar þessara
vara erlendis og svo vegna þess,
að hér er um að ræða mikið
unná vöru í dýrum umbúðum.
Ennfremur er heimilað að verja
eftirstöðvum útflutningssjóðs,
þegar allar skuldir hafa verið
greiddar, til greiðslu vátrygging-
ariðgjalda fiskiskipa fyrir árið
1960.
Fé útvegsins sjálfs
Aðalfundur Landssambands ís-
lenzkra útvegsmanna, sem hald
inn var í fyrra mánuði, lét í ljós
þá ósk um þetta síðastnefnda
atriði og verður að telja eðlilegt,
að sú ósk verði tekin til greina,
að því leyti sem um er að ræða
fé, sem útvegurinn hefur sjálfur
la@t til“.
sjóðunum, með þeim kjörum,
sem hver rikisstjórn ákvað í
hvert sinn, og hefur svo verið ár„
lega.
Þar sem sjóðunum hefir ekkl
verið heimilað að setja gengis-
klásúlur í skuldabréf þau, sem
þeir hafa fengið til endurútláns
þessa fjár, hefur komið fram
verulegt gengistap við undan-
farnar tVær gengisfellingar. Við
þetta hefir stjóm Búnaðarbank-
ans ekki getað ráðið, þar sem
sjóðirnir eru ekki eigh bankans,
heldur verið á valdi hinna ýmsu
ríkisstjórna að ákveða þau kjör,
er sjóðirnir störfuðu eftir.
Hagur sjóðanna hefur engin
áhrif á hag Búnaðarbankans
sjálfs, enda er reikningshald
þeirra algjörlega aðskilið.
Búnaðarbanki íslands.
— Skip brennur
Framh af bls. 24.
s.vo flugvallarslökkviliðið einnig
til starfa. Var sjó úr höfninni
dælt í skipið, um sex slöngu-
stúta. Þá var Askur dregin upp
með bryggjunni, út úr skipa-
þvögunni, svo næstu skipum væri
ekki hætta búin.
Það var erfitt að fást við eld
inn í bátnum, enda eru skips
brúnar erfiðastir alls þess
sem brunaverðir fást við. Svo
stóð á sjávarföllum að sjór
var að falla út. Báturinn var
orðinn bálffullur af sjó, og
stóð þá orðið „í hælinn“ er
hann valt á hliðina, lagðist
frá bryggjunni. Var hann þá
orðinn mjög brunninn, yfir
byggingin skemmd, brunnið
gat á þilfar. Eftjr að svo var
komið, skapaðist nýtt hættu-
ástand, því frá Aski myndað
ist olíubrák. Kviknaði tvisvar
í olíunni þar sem hún flaut
ofan á. En slökkviliðsmenn
sprautuðu kvoðu á og
slökkti hún eldinn fljótlega.
Sökk báturjnn að mestu.
★ Tekinn upp
Það munu nú verða gerðar ráð
stafanir til þess að ná bátnum
á flot aftur. Láta fram fara at-
hugun á því, hvort skemmdirnar
séu svo miklar, t. d. á skrokki
bátsins, að viðgérð þyki ekki
borga sig.
Angantýr Guðmundsson skip-
stjóri er jafnframt eigandi Asks.
Er Angantýr viðurkenndur skip
stjóri og nú í haust hefur honum
gengið ágætlega á síldinni. Bát.
ur hans var byggður í Svíþjóð að
lokinni styrjöldinni 79 tonna
skip Eldsupptök eru ókunn.
— HSJ.
Vátryggingariogjöld
fiskiskipa greidd
— af eftirstöðvum útflutningssjóðs