Morgunblaðið - 13.12.1960, Page 22
22
MORCVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 13. des. 1960
SPARID og baupift
[DiGLISH ELECTRIC
Sjálfvirku þvottavélarnar og þurrkar-
arnir eru ENGLISH ELECTRIC sem
byggð eru eftir amerískum sérleyfum.
Berið saman verð á English Eleetric og öðrum gerðum
og komist að raun um að þér sparið yður allt að kr.
8.500,00 per samstæðu.
English Electric
Liberator Þvottavél
kr. 15.903,75
Gerið kaupin þar sem verðin eru hagstæðust!
Hagkvæmir greiðsluskiimálar.
kr. 8.508,35.
Reykjavíkurmeistarar Fram (Myndirnar tók Sv. Þormóðsson)
Fram vann í karlaflokki
- KR í meistarafl. kvenna
Langavegi 178, Reykjavík.
Hrærivéiar
Ný sending af þessum góðkunnu hrærivélum er komin
Auk hakkavélar fylgja tvær skálar úr riðfríu stáli.
Heistu kostir DORMEYER hrærivélanna eru:
Gangvissar — Endingargóðar
Smekklegar í útliti
Auðvelt að halda þeim hreinum
,,Eilífðar“ skálar —
Verð mjög hagstætt.
Eeildsölubirgðir :
Ólafur Gíslason & Co. h.f.
Hafnarstræti 10—12 — Sími 18370
LIÐIÐ sem kom upp úr 2.
deild á íslandsmótinu í vor
hreppti titilinn Reykjavíkur-
meistari í handknattleik. í
úrslitaleik í fyrrakvöld sigr-
aði Fram lið KR með 9 mörk
um gegn 8 og varð því eitt
liða taplaust í mótinu. Hlaut
Fram að launum forkunnar-
fagran bikar, farandgrip, sem
gefinn er af Almennum
tryggingum.
Úrslitaleikur Fram og ÍR
var eins spennandi og leikur
getur orðið. Yfirleitt stóðu lið
in jöí'n eða munaði einu
marki. Fyrst hafði ÍR frum-
kvæðið en Fram tókst alltaf
að jafna, en síðan náði Fram
2 marka forskoti. Það tókst ÍR
að vinna upp og 4 sinnum í
síðari hálfleik stóðu leikar
jafnir. Á síðustu mínútu
tryggði Fram sigur sinn með
marki skoruöu úr vítakasti.
★ Sigurvegarar
Við mótslok afhenti form.
ÍBR Gíslj Halldórsson verðlaun.
Sigurvegarar urðu þessi:
M.fl. kvenna KR
1 11. kvenna KR
2. fl. kvenna A Víkingur
2. fl. kvenna B Víkingur
1. fl. karla ÍR ^
2. fl. karla A Ármann
2. fl. karla B Fram
3. fl. karla A Valur
3. fl. karla B Valur
★ Undanleikir
Leikirnir í fyrrakvöld voru
þrír. Fyrst léku KR og Ármann
í kvennaflokki. Leikurinn bar
þess nokkur merki að hann hafði
engin áhrif á úrslit mótsins —
KR hafði fyrirfram tryggt sér
sigur. Hafði KR alltaf frum-
kvæði leiksins bæði um samleik
og mörk utan það að rétt fyrir
lok fyrri hálfleikl tókst Ármanni
að jafna og stóð 3—3 í hléi. í síð-
ari hálfleik skoruðu KR-stúlk-
Gólfslípunln
Barmanlið 33. — Sínii 13657.
Sigurður Olason
Hæstarcttarlöigmaður
Þorvaldur Lúðvíksson
HéraHsdómslögniaSur
Málflutningsskrifstofa
Auslurstræti 14. Sími 155-35
urnar tvö mörk gegn engu og
unnu mótið án þess að tapa leik.
Þá kepptu Ármann og Þróttur
í m.fl. karla. Sá leikur var
ósköp tilþrifalítill og tilviljanir
réðu meira um gang hans en upp
María Guðmundsdóttir fyrir
liði KR tekur við meistara-
verðlaunum af form. IBR. —
byggt spil. Með góðum loka-
spretti tókst Ármanni að sigra
með 14 mörkum gegn 11.
★ Úrslitaleikurinn
Það var nokkur taugaspenna í
báðum liðum er úrslitaleikurinn
milli Fram og ÍR hófst. Það var
lítill hraði í leiknum í upphafi,
hvorugt liðið vildi tefla á nokkra
tvísýnu. Gunnlaugur skoraði
fyrsta markið en Ágúst jafnaði.
Hermann náði aftur forystu fyrir
ÍR en er 5 min. voru af leik jafn-
aði Ingólfur úr vítakasti. Úr víti
2 mín. siðar skorar Gunnlaugur
fyrir ÍR en Ágúst fær jafnað fyr-
ir Fram. Dálítil heppni því varn-
armaður ÍR breyttj stefnu knatt-
arins í markhornið. Og nú tók
Fram forystuna. Ágúst skoraði
aftur og er 10 mín. voru af leik
bætti Sig. Einarsson 5. marki
Fram við.
Er 13 mín. voru af leik hafði
ÍR jafnað, Gunnlaugur skoraði úr
víti og Matthías Ásgeirsson skor
aði glæsilegt mark. En rétt fyrir
lok hálfleiks tók Ingólfur foryst-
una fyrir Fram (úr vítakasti).
Á fystu rpín. síðari hálfleiks
jafna ÍR-ingar (Gunnlaugur) og
taka énn forystu (einnig Gunn-
laugur). Spennan í leiknum varð
gífurleg. Ingólfur nær að jafna
fyrir Fram og Hilmar skorar 8.
markið. ÍR-ingum tekst að jafna
er 3 mín. eru til leiksloka (Her-
mann) og hófst nú mikið og hart
stríð. Fram nægði jafntefli og
undu ÍR-ingar illa hægagangi og
töfum, Framara. Þustu þeir fram
maður gegn manni, en öryggi
þeirra í þeirri leikaðferð var ekki
mikið og lyktaði með því að
Fram fékk vítakast sem nægði til
sigurmarksins.
★ Mismunandi aðferð
Leikaðferð ÍR-inga var
skemmtilegri en Fram. Þeir
reyndu á skemmtilegan hátt
oft að tengja línuspil og lang-
skot. Tefldu þeir oft á tvísýnu
í þeim efnum gagnstætt því
sem Fram gerði. Það byggði
allt á traustri vörn og síðan
hægum leik, stundum leiðin-
legum og án takmarks, unz
veiian opnaðist í ÍR-vörninni,
oftar fyrir öryggisleysi ÍR-
varnarinnar en i'yrir góðan
leik Fram.
Bezti maður vallarins var
Gunnlaugur Hjálmarsson og er
kannski bezti handknattleiksmað
ur lanjlsins í dag.
— A. St.
Aðalfundur í skíða
skálanum
SKÍÐAFÉLAG Reykjavíkur
hyggst nú taka upp þá nýbreytni
að halda aðalfund sinn í sínu
eigin skíðaheimili, Skíðaskálan-
um í Hveradölum, og verður
væntanlega þannig eftirleiðis.
Samkvæmt fundarboði í blöð-
um og útvarpi verður fundurinn
að kvöldi 13. desember og verður
farið frá BSR kl. 19:30 í boði fé.
lagsins.
Að aðalfundi loknum verður
sýnd skemmtileg norsk skíða-
kvikmynd og síðan verður sam-
eiginleg kaffidrykkja
í tilefni 25 ára vígsluafmælis
skíðaskálans, sem var 15. sept-
ember s.l., býður félagið þangað
nokkrum eldri forystumönnum
félagsins og skíðaíþróttarinnar.
Skíðaferð verður á sama tíma
og verður brekkan upplýst og
skíðalyftan í gangi, ef snjór
verður nægur.