Morgunblaðið - 15.12.1960, Page 11

Morgunblaðið - 15.12.1960, Page 11
Timmtudagur 15. des. 1960 MORGUNBLABIB 11 Guðríður Eiríksdóttir frá Þjórsártúni Fædd 24. ágúst 1869. , Dáin 4. desember 1960. SAMTÍMAHEIMILDIR greina frá því, að þegar Þjórsárbrúin var vígð, hinn 28. júlí 1895, hafi óvenjumargt manna sótt þangað hvaðanæva af Suðurlandsuridir- lendi og einnig úr sveitum og bæjum vestanfjalls, við Faxa- flóa. Á þessum síðasta áratug aldarinnar höfðu tvö stórfljót Suðurlands verið brúuð, Ölfusá árið 1891 og nú Þjórsá. Fögnuð- ur manna var ríkur við þessa samgöngubót, enda var smíði þessara brúa hið mesta framtak þjóðarinnar til þess dags í verk- legum framkvæmdum. Og nú, sem austanmenn komu í hópum til vígslunnar, var þeim beint vestur yfir brúna, því að þar skyldi vígslan fara fram í landi Þjótanda. Að vígsluræðu lokinni gekk landshöfðingjafrúin með sín silf- urskæri út á brúna og klippti sundur silkiband, sem strengt var yfir brúarendann, gekk síð- an vestan úr Árnessýslu austur í íand Rangárvallasýslu. Síðan gekk mannfjöldinn austur yfir og tók sú ganga fulla klukku- stund. En þar austan brúarinnar var „ekkert tún og enginn bær", þar var óræktarmói kargaþýfð- ur, svo langt sem sá upp og austur a hæðina og fram með fljótinu norðan og sunnan brú- ar. —. „En ásirin beið“. Og nokkrum missirum síðar komu landnem- arnir, Ólafur ísleifsson læknir og Guðríður Eiríksdóttir. Það var árið; 1897, að Ólafur fékk þar landsvæði og byggði dálítið hús á hæðinni. Vorið eftir, hinn 31. maí 1898, kvæntist hann heitmey si'rini, Guðríði frá Minni-Völlum á Landi, og þau kölluðu hið litla býli sitt Þjórs- ártún. Það var mikill gróandi í því nafni. Ólafur var fæddur árið 1859. Hann hafði verið í Kanada um 6 ára skeið og lesið læknisfræði, og eftir heimkamuna verið að- stoðarmaður Ásgeirs héraðs- læknis Blöndal á Eyrarbakka. Guðríður var fædd á Minni- Völlum 24. ágúst 1869. Foreldr- ar hennar voru Ingveldur Eiríks dóttir og Eiríkur Eyjólfsson, er þar bjuggu. Þau Minni-Valla- hjón eignuðust 14 börn. Var Guðríður næst elzt þeirra syst- kina. Það kom snemma í Ijós, að Guðríður var tápmikil og atorkusöm í hvívetna. Þegar hún var 16 ára féll faðir bennar frá, en við það kom mjög í hennar hlut að annast búreksturinn, ásamt eldri bróður. Var á orði haft, hversu vel hún hefði stutt móður sína við uppeldi yngri bamanna. Þau Guðríður og Ólafur hófu þegar margháttuð störf í Þjórs- ártúni. Jafnframt ræktun lands- ins hófu þau brátt greiðasölu og smáverzlun, en Ólafur stundaði einnig almennar lækningar. — Varð Þjórsártún irinan tíðar án- ingarstaður hinna mörgu, er leið áttu um þjóðbrautina fyrir r.eðan túnfótinri, hvort heldur var vestur eða austur. Er ekki að orðlengja það, að þarna gerð- ist eitt af hinum undraverðu ævintýrum hinn næsta áratug. Húsið var stækkað og aftur stækkað og enn þurfti viðbótar- byggingar. Það var alltaf vérið að smíoe og byggja og rækta í Þjórsártúni. Það voru ekki einungis rekstramenn eða lestafólk, sem fylltu húsakynni í Þjórsártúni. Húsráðendur stofnuðu brátt til ýmis konar menningarlegra kynna innan héraðs, og þau kynni náðu raunar um allt Suð urland. Var boðað til funda, fé- lagsstofnana og námskeiða í ýmsum greinum. Þar voru haldin bændanámskeið, söng- námskeið, íþróttanámskeið. Þar var Búnaðarfélag Suðurlands sett á laggirnar, einnig Slátur- félag Suðurlands. Ungmenna- sambandið Skarphéðinn var stofnað þar, fyrsta stúka Rang- árvallasýslu einnig, og mætti fleira nefna. Þá komu þangað tíðum ferðamannaflokkar, er- lendir fræðimenn og vísinda- menn, auk skemmtiferðafólks úr ýmsum áttum. 1 þessu sam- bandi má geta þess, að Þjórsár- tún var valið sem áningarstað- ur fyrir Friðrik 8. Danakon- ung árið 1907, og gisti konung- ur þar ásamt Hannesi Hafstein ráðherra og fylgdarliði. Svo sem að líkum lætur mæddi mjög á Guðríði sem hús- móður á þessu gestkvæma heimili. En hún var í flestu vaxin því hlutverki, er hún hafði valið sér. Hún var hin mesta athafnamanneskja og fyr- irhyggjusöm. Hún hlifði sér í engu, og þeim er sáu umsvif hennar, þegar nokkuð lá við, mun gjarnan hafá komið í hug, að flest hlyti að stækka og verða meira en ella, sem hún færi höndum um. Guðríður var heit í lund og dró ógjarnan dul á skoðanir sínar. — Það fylgdi henni manndómur. En svo sem hún var stór í störf- um og forsjál, þá var hún rausnarkona. Það var ekki allt- af seldur biti og sopi i Þjórsár- túni, þeim, sem um þjóðbraut- ina fóru. Guðríður og Ólafur eignuðust fimm börn, misstu tvö þeirra smábörn, en þrjú lifa foreldra sína: Ingveldur, gift Lofti Lofts- syni útgerðarmanni, er lézt rúmri viku fyrr en Guðríður, — Huxley forstjói’i í Keflavík, kvæntur Vilborgu Ámundadótt- ur, og Eggert, oddviti í Höfn- um, kvæntur Sigríði Ásbjarn- ardóttur. Þau bjuggu í Þjórsártúni nær hálfan fimmta áratug og höfðu snemma gert garðinn frægan sem menningarmiðstöð mikils héraðs. Ólafur lézt árið 1943. Eftir það var Guðríður hjá börn um sínum og naut þar góðrar umönnunar í Lárri elli. Hún hafði mísst sjónina og átt við líkamlegan þunga að stríða hin síðari ár, en hugur hennar var opinn og vakandi fyrir líðandi stund og framförum nýrra tíma. Guðríður andaðist í Keflavík hinn 4. des. sl. og verður jarð- sett í dag við hlið Ólafs í Foss- vogskirkjugarði. Ævistarf þeirra hjóna var mikið og glæsilegt. Þau settu svip á umhverfi sitt og skiluðu drjúgum menningar- arfi til þjóðarinnar. Guðríður var mikilhæf kona og gleymist ógjarnan þeim, er kynntust henni. Hennar rúm var veglega skipað meðal samferðamann- anna. G. M. M. Húsnæði Stórt skrifstofuhúsnæði óskast í miðbænum. Stór íbúð kæmi til greina. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 19. þ.m. merkt: „Áramót — 1448“. Voigtlander VITESSA L með Color-Skopar 1:3.5/50 og sambyggðum fjar- lægðamæli og stilli loki: Synchro-Compur 1 sek. 1/500 sek. B og sjálftakari, samtengdur hraði og ljósop (Ljósgildisstillir), Með vélinni, sem er sem ný, fylgja: 4 filterar, sólskyggni, 2 nærlinsur (fyrir 20—100 cm). Glæsileg jólagjöf fyrir áhugamenn. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: „1443“. Allt á sarna stað CHAMPION KRAFTKERTIN Heimsins mest i •• s Oruggari ræsting V i i S S i s s s s s s s \ s s s V s s s s s \ s y s s s s s s s s s s s s s \ seldu rafkerti Það er sama hvaða tegund bifreiðatr þér eigið, það borgar sig að nota CHAMPION rafkerfi, því það bezta er aldrei of gott fyrir bifreið yðaa*. Stórkostlegt úrval af varahlutum í flesta bíla. EGILL VILHJÁLMSSOI H.F. Laupmtu) 118 Síuti ZZZ40 i i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.