Morgunblaðið - 17.10.1961, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 17.10.1961, Qupperneq 1
24 síður 48. árgangur 235. tbl. — Þriðjudagur 17. október 1961 Prentsmiðja Morgiíflblaðsina U Thant tekur sæti Hammarskjölds En ekkert samkomulag um fjölda aðstoðarframkvæmd astjóra New York, 16. október. SAMKOMULAG hefur náðst milli stórveldanna um að U U Thant, aðalfulltrúi Burma hjá Sameinuðu þjóðunum, setjist í sæti Hammarskjölds og gegni framkvæmdastjóra- störfum til loka kjörtímabils hins látna framkvæmda- stjóra. Hefur þessum fregnum al- mennt verið fagnað, enda þótt heyrzt hafi raddir um að nýi framkvæmdastjórinn hafi gert einhverja baksamninga við Bússa. Stevenson, aðalfulltrúi Bandaríkjanna, neitaði í kvöld að trúa öllum slíkum söguburði. Hann sagðist hafa rætt við U Thant hvað eftir annað og vera Jpess fullviss, að þetta væri heil- steyptur maður, sem gegna mundi embættinu af samvizku- semi. Samkomulagið um skipan framkvæmdastjórans felur í sér að sett verði á laggirnar ráð að- stoðarframkvæmdastjóra, en ekk ert endanlegt samkomulag mun enn hafa náðst um valdsvið þeirra og enn er allt á huldu um það hve margir þeir verða. Margar tölur hafa verið nefnd- ar í því sambandi, en engin end anleg. Almennt er álitið, að í þessu ráði muni á endanum sitja „full trúar“ þeirra ríkjahópa, sem mega sín mest. í því sambandi hafa fulltrúar Bandaríkjamanna lýst því yfir, að þeir krefjist þess, að Vestur-Evrópa fái þar sinn fulltrúa. Enda þótt Banda- ríkin og Vestur-Evrópuþjóðir séu bandamenn, telur Banda- ríkjastjórn, að hún geti ekki komið fram sem fulltrúi Vestur- Evrópu á sama hátt og Rússar geta mælt fyrir munn Austur- Evrópu. Bak við tjöldin er þetta mál nú rætt af kappi og hinir and- stæðu hagsmunahópar halda með sér langa fundi. Nýi fram- kvæmdastjórinn, U Than, hefur ekki tekið formlega við em- bætti, en búizt er við að það verði fljótlega, jafnskjótt og ör- yggisráðið hefur tilnefnt hann í stöðuna. „Menderes vann kosningarnar ANKARA, 16. október — Mend- eres vann kosningarnar, segja fréttaritarar í Ankara. Menn hans, sem myndað hafa réttlæt- Landsfundur Sjálfstæðisflokksins LANDSFUNDUR Sjálfstæðisflokksins verður settur í Gamla Bíó fimmtudaginn 19. þ. m. kl. 20.30. Á dagskrá þessa fyrsta fundar verður ræða vara- formanns Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktsson- ar forsætisráðherra. Landsfundarfulltrúar eru beðnir að vitja fulltrúa- skírteina sinna í skrifstofu flokksins í Sjálfstæðis- húsinu á morgun, miðvikudag, og verður þeim þá afhent dagskrá fundarins. Rafmagns girðingar í Berlín Berlín, 16. óktóber. KOMMÚNISTAR hafa nú sett upp rafmagnsgirðingu innan við tvöfalda gaddavírs girðingu á mörkum Austur- og Vestur-Berlínar. Þetta er gulur vír, sem búið er að strengja meðfram gaddavírs- girðingunum við bandaríska hernámssvæðið. — Hingað til hafa tvöfaldar gaddavírsgirð- ingar og meira en mannhæð- ar hár múr ekki nægt til þess að stöðva flóttamanna- strauminn og er rafmagns- isflokkinn, bafa fengið flesta þingmenn kjörna, en lýðveldis- flokkurinn, sem studdur er af Gursel hershöfðingja og öðrum! byltingarforingjum, varð undir í| baráttunni. Eru menn á einu máli I þráðurinn síðasta ráð komm- s5“i® únista. — í dag flúðu þrír Austur-Berlínarbúar með því að kasta sér af annarri hæð á Gursel eftir að stjórn hans lét taka Menderes af lífi. Talningu atkvæða var ekki lokið, þegar siðast fréttist, en ljóst var, að réttlætisflokkurinn hafði fengið mjög styrka aðstöðu á þingi. Hins vegar er ljóst, að ffrh. á bls. 23 húsi, sem stendur á marka- línunni, niður á bifreið, sem ók framhjá hinum megin lín Krúsjeff flytur 7-8 klukkustunda ræðu MOSKVU, 16. október — Á morg un hefst 22. flokksþing kommún Glæsilegt skyndihapp- drætti Sjálfst.flokksins Vlnningar eru tveir TAUIMtJS Station bílar t D A G hefst glæsilegt skyndihappdrætti Sjálf- ■tæðisflokksins. Eru vinn- ingarnir hvorki meira né minna en 2 TAUNUS Station fjölskyldubílar — og fer dráttur fram eftir aðeins einn mánuð. Mið- ar kosta 100 krónur. Að öðrum nýjum bílategund nm ólöstuðum, er óhætt að fullyrða, að ekki séu nú á markaðnum skemmtilegri bíl- ar en TAUNUS Station-bílarn- ir. — Það er því einstætt tæki færi, sem menn skapa sér, með því a|í kaupa miðh í skyndihappdrætti Sjálfstæðis- flokksins. DREGIÐ EFTIR MÁNUÐ Það er einnig mikili kostur við happdrættið, að því verð- ur lokið á einum mánuði — aöeins 31 degi. Mun dráttur fara fram 15. nóvember. Þeir, sem verða svo heppnir að hreppa hirra glæsilegu vinn- inga, þurfa því ekki að bíða lengi eftir þeim. SKAMMUR TfMl TIL STEFNU Vegna þess, hve skamman tima happdrættið stendur yf- ir, er fólk eindregið hvatt til að fá sér miða strax við fyrstu hentugleika. Miðarnir kosta, eins og fyrr segir, aðeins 100 krónur hver — en samanlagt verðmæti happdrættisbílanna er hins vegar 360 þúsund kr. SAMSTILLT ÁTAK Stuðningsmenn Sjálfstæðis- flokksins um land allt eru sérstaklega hvattir til að taka höndum samait um sölu happ- drættismiða. Með samstilltu átaki munu þeir enn sem fyrr fá þvi áorkað, að miðarnir seljist upp, en það er að sjálf- sögðu takmarkið. Þess er því vænzt, að allir þeir, sem miða fá senda, bregðist vel við og geri skil svo fljótt sem þeir geta. GRIPIÐ TÆKIFÆRIÐ Allir vilja eignast nýjan TAUNUS Station bíl — en hverjum verður að ósk sinni hinn 15. nóvember? — Ekki þeim, sem engan miða kaupir í skyndihappdrætti Sjálfstæð- isflokksins. — KAUPIÐ ÞVl MIÐA STRAX. istaflokksins. Verður mikið um dýrðir í Moskvu og er búizt við, að Krúsjeff flytji 7—8 klst. ræðu við opnunina þar sem hann gerir ■grein fyrir gangi málana síðan flokksþingið var haldið 1956. — ★ — Mun Krúsjeff síðan biðja um samþykki við hinni nýju áætlun kommúnistaflokksins, sem birt var fyrir rúmum tveimur mán- uðum. Frol Kozlov mun þá leggja fram tillögur um ný flokkslög. Þingið verður haldið í nýjum samkomusal í Kreml, sem tekur 6 þús. manns í sæti, en fulltrú- arnir verða hálft fimmta þúsund frá flokksdeildum, sem samtals hafa 8 millj. félaga. — Frétta- menn fá aðgang opnunardaginn, en síðan ekki söguna meir. — ★ — Margt erlendra gesta er komið til Moskvu, en það vekur athygli að kommúnistaflokki Albaníu hefur ekki verið boðið að senda fulltrúa. — Mikill ágreiningur hefur verið með forystunni í Kreml og leiðtogum albanska kommúnistaflokksins og sauð upp úr á Moskvufundinum í Framh. á bls 2 Kekkonen hjá Kennedy WASHINGTON, 16. okt. — Kekk onen, Finnlandsforseti, kom til Washington í dag og tóku Kenne dy og frú hans, Dean Rusk og fleiri bandarískir leiðtogar á móti forsetanum á flugvellinum. Kekkonen dvelur aðeins tvo daga í Washington. Hann er að koma úr opinberri heimsókn til Kanada

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.