Morgunblaðið - 13.02.1962, Síða 8

Morgunblaðið - 13.02.1962, Síða 8
8 MORGV N BL AÐIÐ Þriðjudagur 13. febr. 1962 Umbætur í skattamálum atvinnulífs- ins eru kjarabót fyrir allan almenning Á FUNDI efri deildar Alþingis í gær var tekið fyrir frumvarp rikisstjórnarinnar um tekju- og eignaskatt. Töluverðar un’.ræður urðu um frumvarpið og var þeim ekki lokið, er venjulegur fund- artimi rann út, svo að umræðun- Um var frestað. DRÓ ÚR AUKNINGU ÞJÖÐARTEKNANNA Gunnar Thoroddsen, fjármála- ráðherra gat þess í upphafi ræðu sinnar, að fyrir síðustu alþingis- kosningar hefðu báðir núverandi stjórnarflokkar haft endurskoð- Un skattamálanna á stefnuskrá Sinni og m. a. og fyrst og fremst með það fyrir augum að lækka hina beinu skatta. í stjórnarsátt- málanum var komizt svo að órði, að til þess að tryggja, að þær heildarráðstafanir, sem gjöra þarf, verði sem réttlátastar gagn- vart öllum almenningi, hefur ríkissfjórnin ákveðið m. a. að endurskoða skattakerfið. Ástæð- ur þessa er augljósar því að það ástand í skatta og útsvarsmálum, sem hér hafði rikt um langan aldur. var ekki aðeins óviðun- andi, heldur beinlínis hágkalegt fyrir velmegun og lífskjör þess- arar þjóðar. f>að hefði meinað at- vinnufyrirtækjum að endurnýja sig, efla og auka starfsemi sína Og afköst eins og æskilegt og nauðsynlegt hefði verið. Jafn- framt hefur það dregið úr dugn- aði og vinnusemi einstakling- anna. Þetta hefur svo, ásarnt fleiri orsökum, orðið til þess að draga úr aukningu þjóðartekn- anna, sem hér hefði átt að verða og orðið hefur í stórum stíl með öðrum frjálsum, vestrænum ríkj- um. En jafnframt því sem skatta- áþjánin hefur dregið úr eflingu atvinnulífsins og framtaki manna, hefur hún einnig haft þau á'hrif. að skattsvik hafa orð- ið almennari hér á landi en í ná- grannalöndum okkar. 1 rauninni var svo komið að þorri manna taldi það eðlilegt og réttlætan- legt að draga undan skatti, sem skapaði svo hið mesta misrétti og ranglæti. Og það er orðið þjóðf élagsvandamál, þj óðf élags- böl, þegar inn í almenningsálit- ið er komið, að sjálfsagt sé að svíkja undan skatti. — Varðandi bæjar- og sveitarfélögin var ástandið þannig að þau höfðu að eins einn tekjustofn, sem nokkru skipti, þ. e. útsvörin. Um 90% af tekjum sínum urðu þau að afla með útsvörum. Og um leið og bæjar- og sveitarfélögunum var meinað ár eftir ár að fá nýja tekjustofna. var hrúgað á þau nýjum útgjöldum með nýjurn lögum. 20% ÚTSVARSUÆKKUN Þegar eftir stjórnarmyndun- ina var því hafizt handa um gagngerða endurskoðun skatta- laga. Sérstök nefnd fékk það verkefni að endurskoða tekju- og eignaskattslögin, öðrum var fal- ið að endurskoða útsvarslögin og imdirbúa nýja löggjöf um tekju stofna sveitafé- laga. Og hin þriðja var sett til að endur- skoða tollskrána og allt tollkerf- ið. Þegar á þing | inu 1960 var skatta og út- svarslögum breytt. Var þá stórlega lækkað- ur skattur á almenningi, þannig að tekjuskattur var afnuminn af almennum launatekjum, hjón, sem höfðu 70 þús. kr. tekjur, þurftu ekki að borga skatt og síðan bættust tíu þúsund við skattfrjálsar fyrir hvert barn. En jafnframt þessu voru gerðar xnargvíslegar endurbætur á út- svarslögum og félagsmálum sveitafélaganna. Var það m. a. fólgið í því, að i stað þess að jafnað hafði verið niður eftir efn ; um og ástæðum. voru ákveðnir j þrír lögfestir útsvarsstigar. En ! jafnframt var ákveðið, að fimmt- ungur söluskatts skyldi renna í jöfnunarsjoð sveitafélaga og f skipt eftir íbúatölu. Þessar ráð- stafanir gerðu það að verkum, | að þegar á þessu sama ári var unnt að lækka útsvörin verulega og mun sú lækkun í höfúðborg- inni hafa numið 20% til jafnað- ar. BEINT FRAMHALD Segja má, að frumvarp þetta sé beint framhald og óaðskiljanleg- ur þáttur af þeim breytingum á skattalöggjöfinni, sem gerðar voru árið 1960, en þá var aðeins um að ræða fyrsta þátt endur bótanna, það sem ekki mátti draga, en það var hin mikla skattalækkun á almenningi. Ann- ar þátturinn var svo skattalög- gjöf atvinnureksturins í landinu og fyrst og fremst félaganna. Það var ljóst. að sú endurskoðun hlaut að taka nokkuð langan tíma, enda er það svo, að heild- arendurskoðun skattalaga í öðr- um löndum tekur venjulega mörg ár og jafnvel áratug eða meir. Formaður nefndar þeirrar, sem skipuð var til að undirbúa þessi mál, var Björn Ólafsson fyrrum fjármálaráðherra, en aðrir í nefndinni voru alþingismennirn- ir Gísli Jónsson, Jón Þorsteins- son, Ólafur Björnsson, Sigurður Ingimundarson og Svavar Páls- son endurskoðandi. Auk þess tók Sigtryggur Klemenzson ráðuneyt isstjóri sæti í nefndinni, þegar fjallað var um þá þætti frum- varpsins er varða framkvæmd skattamála. JÖFNUNARHLUTABRÉF Ráðherrann gerði því næst grein fyrir þeim efnisbreyting- um, sem í frumvarpinu felast, m. a. þau nýmæli um jöfnunar- hlutabréf, sem í 9. gr. felast. Um það komst hann svo að orði, að víðast hvar væri nú heimilað, að hlutafélög geti gefið út jöfnun- arhlutabréf til hluthafa, án þess að þau bréf eða sú lækkun, sem um er að ræða, sé talið skatt- skyld hjá félögum eða hluthöf- um. Þetta byggist á því, _að hér er raunverulega um leiðréttingu að ræða vegna breytinga á gildi peninga. Með þessu er ekki ver- ið að gefa hluthöfum nein ný ver.Jmætá. Sérhver hluthafi a nákvæmlega jafnmikinn hlut í fyrirtækinu eftir sem áður. 1 stuttu máli sagt, felur þetta ný- mæli í sér, að leyft er að leið- rétta nafnbréf hluthafa til sam- ræmis við þær verðbreytingar, sem orðið hafa síðan félagið var stofnað. NÁMSSKULDIR FRÁDRÁTTARBÆRAR Þá er sú breyting gerð, að heim ilt er að flytja tap af atvinnu- rekstri milli ára. Hér á landi er ýmiss atvinnurekstur mjög áhættusamur. Utgerðarfyrirtæki hefur e.t.v. góða afkomu eitt ár- ið. en verður fyrir mikilu tapi annað árið vegna aflabrests, verðfalls eða annarra orsaka. Það er eðlilegt, að skattalögin taki tillit til þessa og þess einnig, að atvinnurekstur er að_ ýmsu leyti áhættusamari hér á landi og meiri áraskipti um afkomu hans heldur en víða annars staðar, t.d í háþróuðum iðnaðarlöndum, þar sem afkoma iðnaðarfyrir- tækjanna er að jafnaði svipuc frá ári til árs. Enn fremur segir, að draga skuli frá tekjum, áður en skatt- ur á lagður, afborganir náms- skulda sem stofnað er til efli 20 ára aldur, næstu fimm ár ef+ * ir að námi er lokið, enda sé full- nægjandi grein gerð fyrir skuld- unum. Með þessu er verið aí reyna að létta undir með náms- mönnum, sem oft koma skuld- um hlaðmr eftir langt og dýrí nám og eiga, sérstaklega fyrstu árin eftir að þeir taka við starfi fullt í fangi með að standa und- ir vöxtum og afborgunum náms- skuldanna. í þessu sambandi minntist ráðherrann á, að einn- ig hefði létt mjög undir með námsmönnum annars vegar hin stórauknu framlög í fjarlögum til styrkja og lána og hinsvegar sú nýja iöggjöf, sem sett hefur verið um Lánasjóð íslenzkrafrjálsa framlag hækkar úr 20 í namsmanna. HAGSMUNAMÁL ÞJÓÐARINNAR Þau nýmæli eru um fyrningar- afskriftir að í stað þess að miða fyrningarprósentu við upphaf- legt kaupverð, sé nú miðað við endurnýj unarverð, þ. e. við mat á því hvað kostar að endurnýja sams konar tæki eða kaupa nú. En vegna hinnar öru verðbólgu, er hér hefur verið síðustu árin. standa atvinnufyrirtæki, ekki sízt iðnfyrirtæki, mjög illa að vígi vegna fyrningarafskrift- ■anna, sem reiknaðar hafa verið af hinu upphaflega kaupverði, en það hefur í mörgum tilfellum verið aðeins örlítill hluti af því sem kostnaðurinn er nú við að endurnýja þessi tæki. Þá eru ákvæði um, hvernig finna skuli hæfilegt endurnýjun- arverð. Um það komst ráðherr- ann svo að orði: „A því er enginn vafi, að um leið og hér er um eðlilegt sann- girnismál að ræða þá muni þessi nýja regla verða mjög til þess að skapa atvinnutækjunum möguleika til þess að fylgjast betur með aukinni og nýrri tækni, að endurnýja sín tæki miklu fyrr heldur en ella, en vit- anlega er það þjóðhagslegt hags- munamál. — það er hagsmuna- mál þjóðarinnar allrar, að at- vinnureksturinn sé á hverjum tíma sem bezt rekinn með sem fullkomnustum tækjum, en sé ekki að burðast með gömul og úrelt tæki, sem ekki afkasta því sama og ný tæki, en eru e.t.v. hinsvegar enn dýrari í rekstri. SETT VIÐ SAMA BORÐ Lagt er til, að sama reglan skuli gilda um almenn hiutafé- lög, félög með takmarkaðri ábyrgð og samvinnufélög hvað varasjóð snertir og skal almenna reglan verða sú, að hið skatt- 25%. Um leið er afnumið það ákvæði í nýbyggingarsjóði út- gerðarmanna, sem verið hefur dauður bókstafur og enga raun- hæfa þýðingu haft. Ekki þykir heldur ástæða til að halda sér- reglu um samvinnufélögin, held- ur eru þau að þessu leyti sett við sama borð og aðrir, enda erfitt að færa fullgild rök fyrir því, að samvinnufélögin eigi að njóta þarna sérstöðu. Þá er lagt til, að kaupfélög, pöntunarfélög og önnur sam- vinnufélög megi draga frá tekj- um sínum það, sem þau greiða félagsmönnum í árslok eða færa þeim til séreignar í stofnsjóði i hlutfalli við vörukaup þeirra árinu og ennfremur vexti á stofn sjóði, og telst það eigi til skatt- skyldra tekna. Sú breyting er gerð á tekju- skattstiganum, að skattur félaga skal vera 20% af skattskyldum tekjum í stað 25%. Um eignaskatt er svo ákveðið, að húsgögn, aðrir húsmunir, svo og persónulegir gripir skuli und- anþegnir eignaskatti. Einnig skal skattfrjáls eign. sem samkv. gilck andi lögum er 30 þús., verða 100 þús. kr. Þá er í stað níu mismun- andi skattstiga hafðir þrír, en hins vegar ekki gert ráð fyrir, að það vaidi breytingum á tekj- um ríkissjóðs af eignaskattinum. Þá skal skattþegn eða umiboðs- manni hans heimilt að flytja mál sitt munnlega eða skriflega fyrir ríkisskattanefnd, ef hann kærir skatt sinn. Þótt hefur misbrestur á því, að kærandi hafi tök á að flytja mál sitt fyrir nefndinni og er það hér lögboðið, að það sé honum heimilt. Enn fremur, að úrskurður yfirskattanefndar skuli vera rökstuddur. BETRA EFTIRLIT Loks er lagt til, undirskatta- nefndir og yfirskattanefndir verði afnumdar, en landinu í þess Öll síldarleit lúti einni stjórn Á FUNDI neðri deildar Alþingis í gær fylgdi Jónas Rafnar úr hlaði frumvarpi um síldarleit, sem hann ásamt Einari Ingi- mundarsyni er flutningsmaður að. Frumvarpið gerir m. a. ráð fyrir því, að starfssvið síldarieit- arnefndar verði aukið þan,nig, að hún hafi cinnig með höndum yfir stjórn síldarleitar á sjó. Lúti einni stjóm Jónas G. Rafnar (S) gat þess m. a, að um margra ára skeið hefði ver.ö haldið uppi síldar- leit úr !oft. fyrir Norður- og Aust urlandi un, síldveiðitímann og hin síðari ár hefði í vaxandi mæli verið stunduð síldarleit á sjó á sömu miðum og sama tíma. Eng- inn ágreimngur sé um, að báð- ir þessir þættir sildarleitarinnar hefðu ver:ð til hins mesta hag- ræðis fyrir síldveiðiflotann og alla þá, sem þar eiga hagsmuna að gæta, þar á meðal er þjóðar- búið í heild. Um síldarleit úr lofti séu til sérstök lög, þar sem m. a. sé á- kveðið, hverjir síjórna skuli leit inni, hverjir skuli bera kostn- að af henni o. s. frv.; um síldar- leit á sjó séu hins vegar engin bein lagaákvæði til. En leitinm hefur að undan- förnu verið haldið uppi af varð- skipinu Ægi og m.s. Fanney. Því fari fjarri, að flutningsmenn telji ástæðu til að finna á nokkurn hátt að starfsemi og stjórn þess- ara skipa, sem fiskifræðingar, starfsmenn atvinnudeildar Há- skólans og aðstoðarmenn þeirra hafa hafc með höndum, enda er hér um uð ræða hina lærðustu menn á sínu sviði og nauðsynlegt, að þeir afli upplýsinga um háttu og göngur síldarinnar. Hins vegar sé eðlilegt, að síldarleitin fyrir Norður- og Austurlandi lúti einni og sömu stjórn, hvort sem urn er að ræða leit úr lofti eða sjó, enda hljóta þessar tvær greinar leitarinnar að vera svo samtvinn aðar, að þar verður ekki skilið á milli. Síldarieitarskipum fjölgi Ríkissjóður hefur frá upphafi greitt kostnað af síldarleit á sjó og er ekki gert ráð fyrir neinni breytingu á því, hins vegar þyk- ir eðlilegt, að í síldarleitarnefnd verði fjölgað um þrjá, er starfs- svið hennar verður aukið sem að framan greimr. Þá er augljóst, að sUdarleit á sjó verður ekki haldið uppi á tveim skipum, eins og verið hef- ur, og ónjákvæmilegt að fjölga þeim. Ekki er fjöldi leitarskip- anna bundinn með frumvarpinu, hins vegar gert ráð fyrir, að það verði verkefni síldarleitarnefnd- ar að samræma leit úr lofti og á sjó og akveða tölu þeirra flug- véla og skipa, sem leitina eiga að stunda. Samþyukt var að vísa frum- varpinu til 2. umræðu og sjávar- útvegsnefndar. stað sikipt í átta skattumdæmi, sem falli saman við núverandi kjördæmi við Alþingiskosning- ar. Fyrir hverju skattumdæmi er skattstjóri, sem ákvarðar skatta og úrskurðar kærur út af ska-tta- ákvörðunum, en þeim úrskurð- um má svo skjóta beint til yfir- skattanefndar og síðan til ríkis- skattanefndar. Er gert ráð fyrir, að skattstjóri hafi umboðsmann í hverju sveitarfélagi og bæjar- félagi utan aðseturs. Hins vegar er gert ráð fyrir, að ríkisskatta- nefnd starfi áfram og skipaður skuli ríkisskattstjóri, sem verð- ur formaður ríkisskattanefndar. I frumvarpinu er og gert ráð fyr- i, að ýmsar þekkingar og hæfi- leikakröfur séu gerðar til skatt- stjóra. Er ætlunin að koma þeirri skipan á, að á skattstofunum starfi menn, sem eru menntaðir og þaulvanir þessum skattamál- um, og að með þessari skipan komist á meira samræmi, be.ra eftirlit ,heldur en hingað til hef- ur verið i skattamálum. HAGSMUNAMÁL FÓLKSINS Máli sínu lauk ráðherrann á þessa leið: „Það er væntanlega tízka hér, að þegar einhverjar lagfæring- ar á að gera í skattamálum fyr- ir atvinnureksturinn í landinu, þá er hrópað upp, að nú sé verið að lækka skatta á auðfélögum og auðkýfingum á kostnað almenn- ings í landinu. En hvers vegna eru endurbætur í skattamálum atvinnulífsins nauðsynlegar? Því er fljótsvarað. Það er ekki vegna einhverra auðfélaga eða auðkýf- inga ,heldur vegna almennings í landi. Endurbæturnar eru vegna almennings, en ekki auðmanna. Þeir skattar, sem atvinnurekstur. inn hefur orðið við að búa, eru að dómi allra hlutlausra og sér- fróðra manna með þeim hætti, að þeir larna atvinnufyrirtæki, draga úr eðlilegri endurnýjun og aukningu véla, tækja og húsa, minnka afköstin og draga þar mcð úr þjóðartekjunum. Þess vegna kemur minna til skipta á milli landsins barna, þess vegna kemur minna í hlut. Velmegun almennings byggist á blómlegu atvinnulífi. Umbætur í skatta- málum atvinnulífsins eru hags- munamál og kjarabót fyrir all- an almenning. Hóflegir skattar atvinnulífsins eru því hagsmuna- mál fólksins. Þetta frv. beinist að því, að reyna að búa atvinnu- rekstrinum í landinu þau skil- yrði, að hann geti dafnað og blómgazt, bæði fylgzt með tím- anum, bæði eflzt og aukizt til hagsbóta fyrir öll landsins börn.“ Að lokinni ræð ufjármálaráð- herrans tók Hermann Jónasson (F) til máls. Taldi hann að frum varpið þyrfti mjög ítarlegrar at- hugunar við og varhugavert væri að ganga lengra en aðrar þjóðir í skattaívilnunum til félaga; einn ig ættu menn að geta orðið sam- mála um, að samvinnufélög ættu að fá að búa hér við svipuð kjör og meðal annarra þjóða, en með frumvarpinu væru þau verr sett en hlutafélög. Björn Jónsson (K) fann frum- varpinu margt til foráttu og taldi, að skattastefna ríkisstjórnarinn- ar væri. að skattleggja almenn- ing æ meir en minna gróðamynd- unina. Jón Þorsteinsson (A) taldi tví- mælalaust, að þjóðinni væri mik. il þörf á heilbrigðum skattalög- um og stefni þetta frumvarp þvi í rétta átt Þá fannst honum vel koma til greina að þyngja við- urlög við því, að svíkja undan skatti, svo að jafnvel varaði varð haldsvist fyrir mikið og ítrekað brot. Árni Guðjónssonj hæstaréttarlögmaður Garðastræti 17

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.