Morgunblaðið - 28.03.1962, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.03.1962, Blaðsíða 2
2 MOF.GUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 28. marz 1962 ■Mb Efling búnaðarsjóðanna: Leggur grundvöll aðáframhald- andi uppbyggingu sveitanna FRAMSÓKNARMENN hafa nú horfið frá þeirri kenningu sinni, að 1% gjald á búvörur, sem gert er ráð fyrir í stjórn- arfrumvarpinu um endurreisn búnaðarsjóðanna sé annars eðl is en útflutningsgjald á sjáv- arafurðir. Skúli Guðmunds- son lýsti því yfir í nefndar- áliti á Alþingi í gær, að hann teldi ekki rétt að leggja ný gjöld á útveginn í því skyni að afla fjár til lánastofnana hans. Eins og kunnugt er hefur sjávarútvegurinn byggt upp lánastofnanir sínar mörg und- anfarin ár með því að greiða útflutningsgjld af afurðum sin um. Framsóknarmenn hafa með þessu viðurkennt, að 1% gjaldið á búvörum er hlið- stsett útflutningsgjaldinu á sjávarafurðir, en hefur þó þá sérstöðu að landbúnaðurinn mun fá annars staðar frá marg falda þá upphæð, sem búvöru- gjaldinu nemur. f>að er eftir öðru hjá Fram sóknarmönnum, sem skildu við lánasjóði landibúnaðarins gjaldþrota, að berjast nú gegn uppbyggingu þeirra. JÞeir reyna eftir fremsta megni að ala á óánægju meðal bænda vegna 1% gjaldsins í lánasjóð- ina, en verður þar vitanlega litið ágengt. þar sem bændur gera sér ljóst, hvað í húfi er fyrir þá. Bændastéttin man forystu Framsóknar um skattlagning- una til bændahallarinnar í Reykjavík, sem bændur munu njóta lítils góðs af. Fólkið í sveitunum veit líka, að Framsóknarmenn hafa engar raunhæfar tillögur lagt fram um uppbyggingu búnað- arsjóðanna. Þeir láta við það sitja að húðskamma ríkis- stjórnina, sem flutt hefur frumvarp um nýjar leiðir, sem leggj a mimu grundvöll að eflingu búnaðarsjóðanna og áframhaldandi framförum og , uppbyggingu í sveitum lands- ins. Afstaða Fr amók n arf lokks- ins í þessu stórmáli sveitanna er þess vegna gersamlega nei- kvœð. Hann á engin úrræði í þessu stóra máli. Hershöföingi lýsir uppreisn í Argentínu Segir Frondizi landráðaraann — skorar á yíirmenn hersins að fylgja sér að málum Buenos Aires, 27. marz. — AP — FRANKLIN Rawson, einn yfir- manna Argentínuhers, lýsti í dag uppreisn á hendur Frondizi for- seta fyrir „landráð" en svo nefndi hershöfðinginn neitun Frondizi um að segja af sér em- bætti. Rawson hershöfðingi gaf út þessa yfirlýsingu skömmu eftir að Frondizi hafnaði þeirri tiliögu Aramburu hershöfðingja, fyrrum forseta, og málamiðlara í stjórn- miálakreppunni i landinu, að hann léti af forsetaembætti. — Skoraði hershöfðinginn á aðra yf irmenn hersins að fylgja sér að málum. Er Rawson gaf út yfirlýsingu sína voru aðrir yfirmenn hersins á fundi í landvarnaráðuneytinu og ræddu hvernig snúast skyldi gegn þrjózku Frondizi, sem sit- ur sem fastast eftir að Aramburu, fyrrum forseti, lýsti því yfir á sunnudagskvöldið að ef ekki ætti að koma til borgarastyrjald- ar í landinu, yrði Frondizi að segja af sér. 1 tilkynningu Rawson hershöfð ingja segir „að í ljósi þeirrar stað reyndar, að forseti landsins hef- Bændafundur í Skagafirði BÆ á Höfðaströnd, 27. marz: — Að tilhlutan Búnaðarsambands Skagafjarðar var almennur bændafundur haldinn á Stóru- Ökrum í Skagafirði í dag. f>ar mættu um 130 bændur víðs veg- ar að úr héraðinu. Sverrir Gíslason, form. Stéttar sambands bænda mætti á fund- inum fyrir hönd sambandsins. — Gunnar Oddsson, stjómamefnd- armaður í Búnaðarsambandi Skagafjarðar, hafði frumsögu um tillögur um verðlagsmál, er stjórnin lagði fram. Samþykktar voru ýtarlegar ályktanir í sex liðum: Mörg fleiri mál vom þarna til umræðu, svo sem raforku- mál, og samþ. áskorun um að hraða undirbúningsrannsóknum á virkjun Dettifoss. — Einnig voru samþykktar tillögur um að stoð við þau héruð, sem dregizt hafa aftur úr í landbúnaði, og þá sérstaklega um vegamál. —- Bjöm. ur gerzt sekur um landráð með því að hafna sáttatillögu Aram- buru hershöfðingja, skora ég á aðra yfirmenn hersins að beita valdi, sem eina ráðinu til þess að gæta heiðurs og virðingar lýð- veldisins “ Skömmu áður en Rawson gaf út þessa yfirlýsingu höfðu menn mjög óttazt að síðasta synjúh Frondizi á þeim tillögum hers- ins, að hann segði af sér, myndi endanlega hleypa af stað borg- arastyrjöld, sem hefur verið yf- irvofandi síðan Peronistar unnu sigur sinn í kosningunum fyrir rúmri viku. Aíli rýr í Sandgerði SANDGERÐI, 27. marz. — Á sunnudag lögðu 22 bátar hér upp 130,7 lestir.. Aflahæstir vcnru Pétur Jónsson með 21 lest, Smári með 18,2 lestir og Mummi með 11,1 lesit. Á mánudag komu 26 bátar með 141,6 lestir. Þorsteinn Gístason hafði 9,1 Muninn 8,4 og línubát- urinin Guðmumdur Þórðarson 8,3. — f»rír bátar stunda línuveiðar héðan. Afli er mjög rýr. — P.Ó.P. Þrír ölvaðir við akstur >RÍR bifreiðastjórar voru hand- teknir aðfaranótt þriðjudags fyr ir að sitja ölvaðir undir stýri. Einn þeirra náðist eftir árekst- ur, en tveir náðust, þegar lög- reglan athugaði bíla og bílstjóra, sem á ferli voru. Moskvu, 22. marz — (NTB-Reuter). • Tass-fréttastofan hefur skýrt frá því, að tónskáldið Dmitri Shjostakovitsj sé að semja músik við nýja kvikmynd sem byggð er á leikritinu Hamlet eftir Shakespeare. Kvikmyndastjóri er Grigorij Kozintsev. Tveir brunar i gær SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavik var tvávegis kvatt út fyrri bluta dags í gær, þriðjudag kl. 7:55 var því tilkynnt, að kviknað hefði í skúr á Bústaðavegi við Golfslkálann. Vatnsveita Reykjavíkur hefur umráð yfir skúrstun. Talsverð- ur eldur var í þaki hans, en var fljótlega slökktur. Kl. 12,39 fóru slökkviliðsmenn suður á Nýbýlaveg 49, þar sem kviknað hafði af Ókunnum or- sökum í geymUluSkúr. Logaði glatt í honum, þegar þrunaverðir komu á vettvang, en ekki mun íbúðarhúsið á staðnum hafa ver- ið í hættu. Brann skúrinn allur. Eldsvoðar hafa verið tíðir í Kópavögi að undanförnu. Seinni hluta síðustu viku varð eldur þar laus þrisvar. Eiturtafla tekin af stúlku ? ANNAÐ veifið hefur lögregl an afskipti af fólki, sem tal- ið hefur verið að neytt hafi eiturlyfja. Mun hér einkum vera um megrunarlyf að ræða. T.d. var ein lítil tafla, mulin í mjel, tekin af stúlku einni á veitingastað hér í bæ núna fyrst í vikunni. Ekki hafði taflan enn verið efna- greind í gær. Einnig voru teknar töflur af manni ein- um fyrir nokkru. — Mál þessi eru að venju send saka- dómaraembættinu til athug- unar. Gísli Jónsson. IMorræn stofn i Reykjavík Rætt við Gísla Jónsson um þing N orðurlandaráðs mennta n ns GÍS'LI Jónsson alþingismaður kom heim í gær úr för sinni á fund Norðurlandaráðs. Mbl. átti stutt tal við Gísla í gærkvöldi. Sagði hann, að þingstörfin hefðu fyrst og fremst mótazt af gerð Helsingforssáttmálans og undir- ritun hans. Þótti Finnum vænt um, að þessi norræni samningur um samvinnu Norðurlandarikja, skyldi undirritaður í landi þeirra og bera nafn höfuðborgar þeirra. I>á hefði afhending bókmennta verðlaunanna, sem EyvindJohn- son hlaut, verið hámark bátíða- haldanna. Við það tækifæri hélt dr. Steingrímur J. Þorsteinsson, prófessor, ágæta ræðu um skáld- Hveraleir til and- litssnyrtingar? NYLEGA fóru nofckur sýnishorn af hveraleir út til Þýzfkalandis, þar sem athugað verður í þýakri rannsóknarstofnun hvort ekki sé tilitækilegt að nota hann til and- litssnyrtingar. Það er Gísli Sigur björnsson, forstjóri á Elliheimil- inu, sem hefur tekið sig fram um að láta þessa rannsákn fara fram. Það er al'kunna, að konur setja gjarnan framan í sig leir, í þeim ti'lgangi að fá fína hiúð og er leirinn hér tali-nn hafa græðandi eiginleika. Því datt Gísla Sigur- björnssyni í hiug, að ef ti'l vill mætti blanda saman við hann ilmefnum og öðrum efnum, setja hann í krukfcur eða túbur og senda hann út um heim seim ís- lenzka snyrtivöru. Og því sendi Togarasölur Á MÁNUDAG seldi bv. Röðull í Hull 145 lestir fyrir 7.007 ster- lingspund. Á þriðjudag seldi Marz í Hull 170 lestir fyrir 7.235 sterlingspund. Ætlunin var sú, að Marz seldi á mánudag, en vegna mikils fisksframboðs á markaðn- um var hætt við það. I dag, miðvikudag, selur Jón forseti í Bretlandi og á föstudag Júpíter einnig í Bretlandi. Búizt er við, að fimm íslenzk- ir togarar selji erlendis í næstu viku, sennilega allir í Bretlandi. Að þeim söluferðum loknum munu þeir koma heim og verða lagt af völdum verkfallsins. Verða þá allir togarar bundnir við bryggjur. hann sýnishorn til Þýzkalandis til vísindalegrar rannsóknar. Hér á landi er fínn leir á nofckrum stöð um, svo sem í Hveragerði, Krýsu- vlk og víðar og væri þvi sýnilega ómetanlegit ef 1 ljóis kæmi að hægt væri að raota hann til fram- leiðslu á snyrtivörum, sem að jafnaði seljast fyrir gobt verð. ið, er vakti mikla athygli þing- gesta. Fundarmenn hrifust af einu gjöfinni, sem ráðinu barst nú á tíu ára afmælinu. Gáfu íslend- ingar fundarhamar, fagran og táknrænan grip. Ekki mætti svo segja frá þessu þingi, að ekki væri minnzt á nor- rænu menntastofnunina, sem nú er fastákveðið að verði reist í Reykjavík. Ætla frændlþjóðir okk ar að reisa hana og reka okkur að kostnaðarlausu. Greiða Svíar 40% kostnaðar, en Norðmenn, Danir og Svíar 20% hver Hafa menntamálaráðherrar Norður- 1-anda og aðrir aðilar, er afskipti hafa af málinu, hinn mesta áhuga á framgangi þess, og er þeim mest í mun, að Islendingur verði forstöðumaðuT stofnunarinnar. Vatnajökuls- myndir í kvöld f KVÖLD (ekki annað kvöld eins og missagt var í blaðinu í gær) efna Farfuglar til þriðju kvöldvöku sinnar að Bræðra/borg arstíg 9. Sýndar verða litskugga myndir frá Vatnajökli, leiðbeint verður um notkun áttavita, sýnd ir öryggishnútar og fleiira verð- ur til skemmtunar. Norðanáttin er setzt að og er nú köld. Um hádegið í gær var frost víðast 5—8 stig á lágledinu og meira til fjalla. —Lægðin austur af Nýfundna landi færist lítið úr stað, oig smálægðin fyrir sunnan ísland er á hreyfingu *SA, svo að hvorug þeirra mun þess megn ug að stöðva norðanáttina í bili. Veðurspáin kl. 10 i gær- kvöldi. — SV-land til Breiða- fjarðar og miðin: NA stinn- ingsfcaldi léttskýjað. Vestfirðir og mdðin: NA stinningiskaldi, él norðan til. SA-omiða: NA kaldi, sums stað ar stinningskal'di, éljaveður. SA-land: NA kaldi, bjartrviðri. Ilorfur á fimmtudag: Norðlæg átt, él norðan landis einkum austan til eft þurrt og bjart á SV-land, frost um land al'lt. v

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.