Morgunblaðið - 28.03.1962, Side 3
Miðvikudagur 28. marz 1962
MORGUISUL AOÍÐ
BANDARNIR austast á suður-
strönd íslands hafa löngum
ihaft <xrð fyrir að vera ótrygg-
ir. í*eir láta ®ig ekki miuma um
að gleyixa á skömmum tíma
heil skip. Það er ekki að fuirða
I 'þó vegarstæði sé þar ótrygg,
A strandstaðnum 10. marz
Gráðugur sandurinn gleypir skip
jafnvel langt uppi á landd.
Hér á síðunni sjáum við eitt
dsemið um aðfarir þessa gráð- •
uga sands.
Véibáturinn Hafþór frá
Vestmannaeyjum strandaði á
Mýrdalssandi skammt frá
Hjörleifshöfða 17. febrúar.
Gekk mjög erfiðlega að ná
mönnunum vegna bleytu á
söndunum og lentu þeir og
björgunarmenn í miklum
hrankingum á ferðalaginu.
Báturinn stóð eftir á strand-
staðnum og nú tók sandur-
inn að búa sig undir að gleypa
hann.
Ekki vildi maðurinn þó láta
þetta verðmæti alveg laust við
hann, svona án þess að reyna
að malda í móinn. Pálmi Sig-
urðsson og Eggert Gunnars-
son í Vestmannaeyjum keyptu
bátinn og fóru austur með
j'arðýtu, dælur o. fl. til að
bjarga úr bamum Þeir kornu
austur 19. marz, skoðuðu allar
aðstæður, og tóku til við að
grafa sig niður í bátinn, því
nú bafði sandurinn haft tals-
Á strandstaðnum 24. marz
vert forskot og var búinn að
hlaða duglega að bátnum og
skríða ofan í hann. Eina mynd
ina hér á síðunni, þar sem
báturinii stendur mest upp úr,
tók Ari Þorgilsson 10. marz
og sýnir hún hvernig þá var
ástatt .
Veður var hagstætt meðan
unnið var að björguninni á
vélum og tækjum úr bátnum
og gekk það vel, þó mikill
sandur væri til trafala. Grófu
björgunarmenn sig niðúr með
vélinni, losuðu hana og lyftu
henni upp með tækjum. Einn-
ig björguðú þeir ijósavél, spil
um og öðru lauslegu sem verð
mæti er í. Eru myndimar á
síðunni, aðrar en sú sem þeg-
ar hefur verið nefnd, teknar
þann 24. marz og sýna vel
hvermig sandurinn var þá bú-
inn að leggja undir sig bátinn
og hvernig unnið var að því
að ná vélimmi. Ljósmyndari er
Finnur Bjamason.
Um helgina ætluðu björg-
unarmenmirnir svo að yfir-
gefa staðinn með það sem þeir
höfðu náð úr bátnum. En þá
var sandurinm af tur fiarinm að
síga eitthvað frá honum, svo
þeir töldu líklegt að þeim tæk
ist að grafa sig niður að skrúf-
umni og ná henni einnig.
í*annig er sandurinn þarna
austur frá óútreiknanlegur,
gleypir og gubbar á víxl.
Vélinni náð upp úr bátnum
Sandurinn skríður alls staðar ofan
Fangelsi fyrir fjársvik
UM síðustu helgi var kveðinn
upp dómur í sakadómi Reykja-
vikur af Þórði Björnssyni saka-
dómara í máli, seim böfðað hefir
verið af saksóknara ríkisins gegn
Sigurði Arnbjörnssyni, sjómanni,
bér í bórg, fyrir fjársvik.
í málinu sannaðist með játn
ingu ákærða og öðrum gögnum,
sem fram komu, að
1) í fjögur skipti seinni hluta
desember 1961 sveik ákærði út
ýmist peninga, úr eða vindlinga,
að verðmæti samtals um kr.
3,700.00, í einkahúsum og verzl-
unum, hér í borginni, með því
að látast vera stýrimaður á Gull-
fossi eða Dettifossi eða dyravörð-
ur í Stjörnubíói,
2) í janúar mánuði sl. sveik
hann út peninga o. fl., að verð-
mæti um kr. 500,00, austur á
Reyðarfirði, með því að látast
vera starfsmaður olíufélagsins
ESSO, og
3) í sama minuði sveik hann út
bifreiðardekk, sem kostaði um
kr.1.200,00 í verzlun einni hér
í borg, með því að látast vera
skipverji á Tröllafossi og greiddi
hann síðan ökugjald leigubifreið-
ar með dekkinu.
Atferli ákærða var talið varða
við 248. gr. hinna almennu hegn-
ingarlaga nr. 19, 1940 og með
tilliti til inargra eldri refsidóma
er hann hefir hlotið fyrir hegn-
ingarlagabrot, var hann dæmdur
í fangelsi í 10 mánuði, og gert
að greiða skaðabætur og allan
kostnað sakarinnar.
(Frétt frá Sakadómara).
Geir
STAKSTEIIVAR
Bætt aðstaða
*.v
reykvískrar æsku
Borgarmálaráðstefna Heiri*
dallar er athyglisverð nýjung f
félagslífi unga fólksins í höfuS-
borgiiuni. Ávarp það sem ráð-
stefnan sendi frá sér á vissulega
erindi til æskufólks borgarinnar.
Var þar m.a. komizt að orði á
þessa leið:
„Ráðstefnan fagnar sérstak-.
lega þeim ráðstöfunum, sem
þegar hafa verið gerðar og í
undárbúningi eru til að bæta
aðstöðu æskunn
ar í borginni.
Glæsileg skóla-
hús hafa risið i
hinum ýmsu
hverfum, barna
heimili og leik-
vellir. Myndar-
leg íþróttamann
virki hafa ver-
ið reist eða eru
í byggingu og
Hallgrímsson uefua
íþróttasvæði í
Laugardal, Sundlaug Vesturbæj
ar og íþrótta- og sýningarhúsið
við Suðurlandsbraut. Starfssemi
æskulýðsráðs Reykjavíkur hef-
ur verið stóraukin og starfa nú
þúsundir reykvískra ungmenna
innan vébanda þess að þroskandi
tómstundaiðja og vinnuskóli
Reykjavíkurborgar gefur skóla
æsku borgarinnar kost á hollum
og menntandi sumarstörfum.
Borgarstjórnarkosningar eru
nú framundan í Reykjavík. Ung
ir Sjálfstæðismenn ganga ótrauð
ir fram til þeirrar kosningabar-
áttu, búnir góðum baráttumál-
um og undir forystu hins unga
og. dugmikla borgarstjóra, Geirs
Hallgrímssonar.
I þessum kosningum verður
úr því skorið, hvort ósamhentir
og sundurleitir flokkar eiga að
taka við stjóm borgarinnar, eðá
hvort samhentur meirihluti Sjállf
stæðsmanna á að stýra áfram
málefnum Reykjavíkur. I»á
verður valið milli upplausnar og
óstjórnar eða aukinna framfara
og vaxandi velmegunar borgar-
búa“.
Vinstri glundroðinn
bessi ávarpsorð eru vissulega
tímabær. Aldrei hefur glundroð
inn verið meiri en nú í herbúð
um hinna svokölluðu vinstri
flokka. Þar er ekki aðeins hver
höndin upp á móti annarri á
milli flokka. Innan Framsóknar
flokksins og Kommúnist^flokks-
ins logar allt í sundrung og ó-
einingu.
Þjóðin hefur líka dýrkeypta
reynslu af vinstri stjórninni sál
ugu. Hún lofaði fólkinu gulli og
grænum skógum, útrýmingu dýr
tíðar og verðbólgu, auknum kaup
mætti launa og framförum og
uppbyggingu í landinu. En allt
þetta var svikið, og vinstri stjóm
in, sem flokkar hennar höfðu
svo lengi þráð og útmálað sem
hið fyrirheitna land, lagði upp
laupana á miðju kjörtímabili.
Spádómur
Sigurðar Jónassonar
Sigurður Jónasson, fyrrver-
andi forstjóri Tóbaksverzlunar
ríkisins, flutti s.l. mánudags-
kvöld þáttinn „Um daginn og veg
inn“ í útvarpið. Kenndi margra
grasa í máli hans og ekki munu
allir hafa verið sammála honum
um ýmsar staðhæfingar hans.
En þessi roskni vinstri maður
spáði því, að um næstu aldamót
myndi það sem hann kallaði
„Stór-Reykjavík“ ná með sam-
felldri byggð allt frá Kollafirða
að norðan til Hafnarfjarðar að
sunnan. Þar myndu þá búa um
fjórðungur úr milljón manna.
Var hann mjög bjartsýnn á fram
tíð hinnar íslenzku höfuðborgar
og íbúa henn.tr.