Morgunblaðið - 28.03.1962, Qupperneq 8
MORGViyrtr 401»
Miðvikudagur 28. marz 1962
Heimilt sé að bæta
úr jöfnunarsjóði halla
vegna landsútsvara
Biskupssetur í Skálholti
TiSlago fjögurra þingmanna á Alþingi
'Á FUNDI neðri deildar Alþingis
íj gær var frumvarp ríkisstjórnar
innar um ráðstafanir vegna á-
kvörðunar um nýtt gengi sam-
'þykkt við 3. umræðu með þeim
breytingum, er meirihluti fjár-
hagsniefndar hafði lagt til. Þá
urðu og nokkrar umræður um
tekjustofna sveitarfélaga. Tókst
ekká að ljúka þeim á venjulegum
fundartíma deildarinnar, svo að
fundi var fram haldið síðdegls í
gær. Umræðunni var þó ekki lok
ið, er fundinum var slitið, og var
henni því frestað.
Unnt að hlaupa undir bagga
Birgir Finnsson (A) mælti með
breytingartillögum meirihluta
heilbrigðis- og félagsmálanefndar
við frumvarpið. Kvað hann fyr-
irtæki þau, sem ætlað er að
greiða landsútsvör, samkvæmt
frumvarpinu, hafa að vísu flest
greitt nokkur gjöld áður til
jþeirra sveitarfélaga, þar sem þau
hafa starfrækslu, t. d. Áfengis-
og tóbaksverzlun ríkisins. Af því
leiði svo það, að mestur ávinn-
ingur verður að landsútsvörum
fyrir sveitarfélöig, þar sem eng-
in slíik starfræksla hefur áður
verið, en það eru flest hinna
minni sveitarfélaga í landinu.
Hins vegar er
augljóst, að
nokkur sveitarfé
lög geta tapað á
breytingunni til
að byrja með,
a. m. k. Siglu-
fjörður Raufar-
höfn og Patreks-
fjörður. Þar sem
þannig stendur
á, þarf að vera möguleiki fyrir
jöfnunarsjóð að hlaupa undir
bagga. Þess vegna flytji nefndin
•breytingartillögu þess efnis, að
til bráðabirgða bætist inn nýr
starfsliður þess efnis, að heimiilt
sé að bæta úr jöfnunarsjóði að
nokkru þann halla, er sveitarfé-
lög kunni að bíða vegna ákvæð-
anna um landsútsvör á árunum
fró 1963—65 Lagt sé til, að heim
ildin sé tímabundin við 1965, svo
að reynslan geti úr því skorið,
hvort þá verði nauðsynlegt að
framlengja heimildina.
i Ekki af hærri upphæð en
nemi brúttósölu
í tilefni af þeirri gagnrýni, sem
aðstöðugjaldið hefur orðið fyrir,
kvaðst þingmaðurinn vilja taka
fram, að alls ekki hefði verið til-
ætlunin, að aðstöðugjaldinu sé
sérstaklega beitt til þess að
Iþyngja þeim, sem fyrir óhöppum
verða í rekstri sínum. Sveitar-
stjórnirnar hafi aðeins heimild
til að leggja gjaldið á eins og er
um veltuútsvörin en reynsla er
fyrir því, að þegar örðugleikar
hafi steðjað að einhverri atvinnu
grein, hefur heimild þessi ekki
verið notuð nema mjög vægilega,
þar eð flestir sveitarstjórnar-
menn eru nátengdir atvinnulíf-
inu Og vita, hvar skórinn kreppir.
Fundið hefur verið að því í
erindi til nefndarinnar, að sam-
krvæmt orðalagi 9. gr. muni verða
hægt að leggja aðstöðugjald á
eigin fjárfestingu og birgðaaukn-
ingu. Kvað hann slíkum aðfinnsl
um eytt með breytingartillögu
nefndarinnur þess efnis, að 9.
gr. orðist svo:
„Aðstöðugjald skal miðað við
samanlögð rekstrarútgjöld næst-
liðið almanaksár, þar með taldar
fyrningarafskriftir samikvæmt á-
fevæðum skattalaga, svo og vöru-
feaup verzlana og efniskaup
vegna framieiðslu iðnaðarfyrir-
tækja. Aldrei skal reikna að-
stöðugjald af hærri upphæð, en
sem nemi brúttósölu.“
Þá komu við 1. umræðu fram
tilmæli í sambandi við gjalddaga
fasteignaskatta og aðstöðugjalds
þess efnis, að sveitarstjórnum
yrði heimilað að haga innheimtu
þessara gjalda á sama hátt Og
innheimtu útsvara. Hafa þessi til-
mæli verið tekin til greina af
nefndinni með breytingartillögu
þess efnis, að sveitarstjórnum sé
heimilt að breyta gjalddögum
þeirra gjalda, sem renna í sveit-
arsjóð, tii samræmis við gjald-
daga útsvara.
Enn fremur leggur nefndin til,
að stærð þeirra sveitarfélaga, er
heimilað er, að leggja á útsvör
án milligöngu skattstjóra, miðist
við 500 íbúa í stað 300.
Mundi torvelda greiff viðskipti
Löks Skýrði alþingismaðurinn
frá því, að heilbrigðis- og félags-
málanefnd hefði borizt bréf frá
LÍÚ, þar sem m. a. er tekið
fram, að í 51. gr. frumvarpsins
sé þeim, er kaupa fisk eða fram-
leiðsluvörur eða annast sölu henn
ar, gert að skyldu að viðlagðri
ábyrgð að halda eftir 2,5—10%
af söluverði vöru til greiðslu
gjalda, sem lögð eru á samkvæmt
frumvarpi á framleiðenda eða
seljanda vöru.
Hér væri um að ræða ákvæði,
sem gæti orðið til að torvelda
greið viðskipti milili aðilja, t. d„
þegar um er að ræða aflakaup af
fiskiskipi. Þegar slífc viðskipti
fara fram, er reglan, að fyrir liggi
krafa frá viðskiptabanka, sem
lánað hefur út á óveiddan afla,
að fá greidd 35% af aflanum upp
í Skuld. Jafnframt er fyrir hendi,
t. d. á síldveiðum, að um 55% af
aflanum er kaup skipShafnarinn-
ar og, af þeim hluta er skips-
höfnum greitt upp í kaup sitt og
aflahlut. Framan af vertíð er því
©kki nema um 10% af aflanum
að ræða, sem hægt er að ráð-
stafa til að standa straum af
ýmsum útgerðarfcostnaði, svo
sem ölíu, greiðslu veiðarfæra og
viðhaldi þeirra, viðgerðarkostn-
aður á skipi og vél, hafnargjöld-
um o. fl. Með frumvarpinu á að
taka verulegan hluta eða jafn-
vel öll þessi 10%, sem útvegsmað
urinn hefur h£ift til að halda út-
gerðinni gangandi yfir vertíðina
og gæti það leitt til ófyrirsjáan-
legra truflana.
Kvað alþingismaðurinn því
nefndina leggja til, að grein þessi
yrði niður felld úr frumvarpinu.
Skipting útsvara millt
sveitarfélaga falli niður
Hannibal Valdimarsson (K),
framsögumaður 1. minnihluta
nefndarinnar, skýrði frá þvi, að
hann stæði að breytingartillögum
þess efnis, að aðstöðugjald verði,
að því er útgerðar og fiskiðnaðar-
fyrirtæki varðar, aldrei miðað við
hærri rekstrarútgjöld en brúttó-
tekjum rokstrarins nemi og að að
stöðugjald verði efcki frádráttar-
bært. Þá er og gert ráð fyrir, að
landsútsvör verði ekki frádrátt-
arbært. Þá er og
gert ráð fyrir, að
landsútsvör
verði látin ná til
fleiri aðila, eða
yfirleitt á hvers
konar fyrirtæki
og stofnanir, er
ná til landsins
al'ls. Enn fremur
að öll skipting
útsvara mitli sveitarfélaga falli
niður, þar sem slík skipting sé í
flestum tilfelium óeðlileg, stund-
um með öllu ranglát. Auk þess
sé lagt til, að útsvar á einstak-
linga verði eigi lagt á hærri
tekjur en 30 þús. kr. í stað 15
þúsunda, þótt enn sé þar stað-
næmst við lægri upphæð, enr
í GÆR var lögð fram á Al-
þingi tillaga til þingsálykt-
unar um biskupssetur í Skál-
holti. — Eru flutningsmenn
hennar þeir Sigurður Bjarna
son, Ágúst Þorvaldsson, Sig-
Frá málum
á Alþingi
Á FUNDI efri deildar Alþingis
í gær gerði Gylfi Þ. Gíslason,
menntamálaráffherra, grein fyr-
ir frumvarpi þess efnis, að 55.
gr. laga nr. 29, 9. apríl 1947, um
vernd barna og unglinga, orðist
svo: „Um rannsókn og meðferð
brota, sem refsing er lögð við í
lögum þessum, fer að hætti op-
inberra mála“. En eins og grein-
in er orðuð nú, tekur hún að-
eins til mála samkvæmt 44., 45.
og 46. gr. laganna, en engin
ástæða er sýnileg til þess, að
ekki sé farið að sama hætti með
Öll brot gegn ákvæðum þessara
laga. Þá gerði ráðherrann og
grein fyrir frumvarpi ríkis-
stjórnarinnar til staðfestingar
bráðabirgðalögum um Seðla-
banka íslands. Ólafur Jóhannes
son (F) tók einnig til máls um
það frumvarp, en honum gafst
ekki tími til að ljúka ræðu
sinni.
Þá var frumvarp um verka-
mannabústaði samþykkt við 3.
umræðu og sent neðri deild til
afgreiðslu. Bjartmar Guffmunds-
son (S) skýrði frá því, að meiri
h 1 u t i samgöngumálanefndar
legði til, að frumvarpi um vega
gerð á Vestfjörðum og Austur-
landi yrði vísað til ríkisstjóm-
arinnar, þar sem vegalög eru nú
í endurskoðun á breiðum grund-
velli hjá stjórnskipaðri nefnd,
sem skila mun áliti og tillögum
á næsta fundi. Var samþykkt að
vísa frumvarpinu til ríkisstjórn-
arinnar, en áður höfðu Sigurvin
Einarsson (F) og Hermann Jón-
asson (F) talað gegn því.
í neðri deild var frumvarpi
um Fiskimálasjóð vísað til 2.
umræðu og nefndar. Þá skýrði
Björn Fr. Björnsson (F), fram-
sögumaður allsherjarnefndar,
frá því, að nefndin legði til, að
frumvörp um eftirlit með skip-
um, prentrétti og birtingu laga
og stjórnvaldaerinda yrði sam-
þykkt, sem og var gert.
æskilegt hefði verið. Þá hækki
útsvarsfrádráttur vegna ómegðar
nökkuð í breytingartillögunum
og enn fremur, að um álagningu
útsvara gildi áfram þær reglur,
er nú eru í giildi.
Landsútsvörin til fleiri affila
Jón Skaftason (F), gerði grein
fyrir breytingartillögum 2. minni
•hlutans, en hann stóð jafnframt
að breytingartillögum meirihlut-
ans. Kvað hann fyrstu breyting-
artillögu sína eiga að girða fyrir,
að til þess komi,
að unnt sé að
hæfcka álögur á
fyrirtæki sjávar
útvegsins frá því
sem var, þegar
veltuútsvörin
voru í gildi. Þá
kvaðst hann
fylgjandi hug-
myndinni um
landsútsvör. en teldi, að þau ættu
að taka ti'l fleiri aðila og flutti
breytingartillögu þess efnis. Enn
fremur flutti hann breytingartil-
lögu um hækkun persónufrádrátt
ar frá og með 4. barni, en þar
væri um mikið sanngirnismál
að ræða.
Alþingisrnaðurinn hafði ekki
lökið máli sínu, ei' fundinum
var slitið.
urður Ó. Ólafsson og Gísli
Guðmundsson.
Tillagan er svohljóðandi:
Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjórnina að láta fram
fara í samráði við biskupinn
yfir íslandi nauðsynlegan
undirbúning að flutningi
biskupsseturs að Skálholti,
að lokinni þeirri uppbygg-
ingu staðarins, ' sem nú
stendur yfir.
í greinargerð, er fylgir tillög-
unni, er komist að orði á þessa
leið:
Hið forna biskupssetur, Skál-
holt í Biskupstungum, hefur nú
verið endurreist með byggingu
nýrrar og reisulegrar dóm-
kirkju, ásamt myndarlegum
íbúðarhúsum. Land staðarins
hefur verið ræktað, gömul og
hrörleg hús rifin og nýr vegur
lagður heim á staðinn. Um þess-
ar framkvæmdir hefur almenn-
ingur í landinu og ríkisvaldið
sameinazt. Um allt ísland hefur
ríkt almennur áhugi fyrir end-
urreisn Skálholts úr langri og
niðurlægjandi niðumíðslu. í
Skálholti var biskupssetur, frá
þvi er biskupsdæmi var fyrst
sett'hér á stofn 1056 fram und-
ir aldamótin 1800, er biskups-
stóllinn var fluttur til Reykja-
víkur, þegar ófrelsi og fátækt
svarf sem fastast að íslenzku
þjóðinni.
Sögufrægasti staffur
kirkjusögunnar
Það virðist nú tímabært að
gera sér ljóst, hvort ekki sé
rétt að fá biskupnum yfir Is-
landi að nýju búsetu í Skál-
holti, sögufrægasta staðnum í
kirkjusögu þjóðarinnar. Staður-
inn hefur verið endurreistur og
húsaður þannig, að hann getur
innan fárra ára tekið við æðsta
kirkjuhöfðingja þjóðarinnar til
búsetu. Samgöngur við staðinn
í FYRRASUMAR fékk Ferða-
málafélagið hingað þrjá menn
frá Þýzkalandi, þar á meðal
Alfred Erhart frá Hamborg,
sem tók hér kvikmyndir. Mbl.
fregnaði að kvikmyndir hans
væru nú tilbúnar í Þýzkalandi
og spurðist fyrir um málið hjá
Gísla Sigurbjömssyni. Höfðu
Gísli og kona hans einmitt séð
þessar myndir í Hamborg sl.
fimmtudag, ásamt fulltrúum
flugfélaganna íslenzku, sem
veittu aðstoð við að fá þessa
menn hingað, og fleiri gestum.
Gísli sagði, að myndirnar
væru ákaflega góðar. Er um að
ræða fjórar stuttar kvikmyndir
er nefnast á þýzku: Inselflug,
eru svo góðar, að þangað er að-
eins 1% klst. ferð frá Reykja-
vík. Símasamband við staðinn
er einnig öruggt. Biskup íslands
gæti því auðveldlega unnið þar
öll störf sín í þágu kirkjunnar
og embættis síns. Ýmis um-
boðsstörf, sem biskup og skrif-
stofa hans vinna nú, væri sjálf-
sagt að fela kirkjumálaráðu-
neytinu. Auk þess mundi biskup
eins og áður hafa skrifstofu á-
fram í höfuðborginni.
Raddir hafa verið uppi um
það undanfarið, að nauðsynlegt
sé, að biskupar séu tveir. Hef-
ur þá jafnframt verið rætt um,
að annar þeirra hafi búsetu á
Hólum í Hjaltadal, hinu forna
biskupssetri Norðlendinga.
Mjög líklegt er, að þegar
þjóðinni hefur fjölgað verulega,
verði talið nauðsynlegt að hafa
biskupana tvo. Mundi þá einnig
eðlilegt, að biskup sæti á Hól-
um. En um sinn virðist nægi-
legt, að einn aðalbiskup sé yfir
íslandi og tveir vígslubiskupar,
eins og nú er.
Þjóffaratkvæffagreiffsla
kemur til greina
Flutningsmenn þessarar til-
lögu telja einnig koma til
greina, að þjóðaratkvæða-
greiðsla verði látin fara fram
um það, hvar biskupssetur eigi
að vera. Virðist sanngjarnt, að
þjóðin ákveði það með almennri
atkvæðagreiðslu. Það er skoðun
flutningsmanna, að vel fari á
því, að æðsti kirkjuhöfðingi
þjóðarinnar sé búsettur á hinu
forna biskupssetri. Með slikri
ráðstöfun væru tengslin á ný
treyst milli fortíðar og nútíðar,
fom arfleifð sögu og hefðar
hafin til nýs vegs og virðingar.
Biskupsembættið fengi nýjan
og traustari grundvöll í skjóli
minninga merkilegrar sögu
Skálholtsstaðar. Þjóðlegasta og
elzta embætti landsins fengi
nýtt gildi og aukið sjálfstæði í
hugum íslendinga.
Vulkanische Antlitz, Gletscher
und ihre Strume, og Kampfende
Erde. Þetta eru litmyndir og er
sýningartími 10—20 mín.
Þessar myndir þykja ákaflega
vel gerðar og verður ein send
frá Þýzkalandi í keppni menn-
ingarkvikmynda í Stokkhólmi i
aprílmánuði. Er búið að biðja
um þessar myndir til sýningar
víða um heim, og verið að gera
af þeim fjölda eintaka með
ensku, þýzku og frönsku tali.
til að hægt verði að mæta
þeirri eftirspum.
Myndimar verða frumsýndar
í þýzkum bíóum 15. mai, ei»
Gísli sagði, að þær mundu senni
lega sýndar hér áður.
FATABREYTIIMGAR
Breytinj>adeild okkar
tekur að sér breytingar
á dömu- og herra-
fatnaði
Setjum skinn á
olnboga og framan á
ermar.
Austurstræti 14, n.
Fjórar afbragðs kvilc-
myndir frá Islandi