Morgunblaðið - 28.03.1962, Side 10
10
MORGVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 28. marz 1962
iUIUUIIi
ímsMj ..
..
:Æí!ÍÍÍÍÍÍÍÍ!ÍÍÍá^Í
*******
WW
y? •
(/-Jorain
ohhar
t HAUST og vetur hafa
borg-aryfirvöld Reykjavíkur
lokið við að úthluta þehn 108
íbúðum, sem byggjðar hafta
verið á vegum Reykjavikur-
borgar. Eru 48 íbúðir við
Skálagerði og 60 við Grenás-
veg. I»etta eru 33 tveggja her-
bergja íbúðir og 75 þriggja
herbergja.
Við úthlutunina höfðu þeir
forgangsrétt, sem þá bjuggu
í bröggum eða heilsuspiliandi
húsnæði. Nú verða á næst-
unni um 30 íbúðir, sem flutt
verður úr, hreinlega rifnar,
en gert verður við aðrar und-
ir eftirliti borgarlæknis, ef
nauðsynlegt reynist að taka
einhverjar þeirra í notkun
aftur.
• Litið inn í eina af nýju
íbúðunum.
>AÐ var eitt kvöldið ný-
lega að við hringdum á* einn
hnappinn við dyrasímann að
Skálagerði 13. Það er eitt af
nýju borgarlhiúsunjum og þar
býr m.a. Höskuldur Jónsson,
verkamaður, ásamt konu
sinni og fjórum ungfoörnum.
— Spyrjandi rödd kemur
úr hátalaranum, hver er þar?
— Það eru blaðamaður og
Ijósmyndari fná Mbl. Megum
við koma upp og líta á íbúð-
ina hjá þér, Höskuldur?
— Gjörið svo vel, segir hús
ráðandi, og sdðan kitlar suð-
andi rafstraumur skrána og
lýkur upp fyrir komumönn-
um.
íbúð Höskuldar er á ann-
arri hæð. Kona hans Elín
Gísladóttir býður okikur að
ganga í bæinn og börnin,
Guðný, 8 ára, Gísli, 7 ára,
Ragnar, 4 ára og Ármann 1
árs, þyrpast í kringum ljós-
myndarann og virða forvitnis-
lega fyrir sér tæki og mæla,
sem hanga um hálsinn á hon-
um.
sem á að greiðast með jötfn-
um afborgunum frá 1. júlí
n.k. Það eru 12.600 kr. á
ári, það þætti billega sloppið
með árshúsaleigu, myndi
varla duga fyrir einu her-
bergi.
• Þetta er allt annað.
NÚ er Elín húsfreyja búin
að hella upp á könnuna og
við sitjum stundarkorn yfir
kaffibolla með þeim hjónum.
Þau segja okkur frá reynslu
sinni af leiguhúsnæði. Þau
höfðu reynt fyrir sér með aug
lýsingum, en það gekk erfið-
lega vegna barnanna. Það er
erfitt fyrir barnmargar fjöl-
skyldur að fá leigt, svo kem-
ur til há húsaleiga og miikil
útborgun.
Við göngum út á avalirnar
úr stofunni og virðum fyrir
okkur hið dásamlega útsýni.
HöSkuldur bendir okkur á
heljarmikinn bita yfir svöl-
unum og spyr okkur, hvort
við getum ímyndað okkur til
hvers hann sé. Er þetta ekki
bara upp á stælinn, segir ljós
myndarinn og glottir.
Þegar við kveðjum, spyrjum
við hvort ekki sé munur að
búa í eigin íbúð.
— Blessaðir veriði, segir
frúin, þetta er allt annað.
J.R.
Höskuldur Jónsson, kona hans, Elín Gísladóttir, og böm þeirra.
Ör bragga í eigin íbúð
Hafði þó hresst upp á hann
fyrir 25 þúsund, sem ég fékk
lánaðar og ég vona að ég fái
þessa peninga endurgreidda,
ekki veitir af, þegar maður
stendur í þessu basli.
• Stærð og skilmálar.
ÍBÚÐ Höskuldar er 67 fer-
metrar, þrjú herbergi, eldhús
og baðherbergi, auk smá-
geymslu í kjallaranum. íbúð-
irnar eru afhentar tilbúnar
undir trévedk og málningu.
— Hvemig gengur með inn
réttinguna?
— Þetta mjakast, segir Hös
kuldur, ég stend mest í þessu
sjálfur, en vinir mínir hafa
einnig lagt gjörfa hönd á
verkið. Þetta er eiginlega
ekki annað en íkáparnir og
svo málning. Ég er búinn að
fá húsnæðismáilastjórnarlán
fyrir innréttingunni, 35 þús-
und og vonast til þess að fá
þetta 40 til 50 þúsund í við-
bót og þá er ég sloppinn.
Þessi lán eru til 25 ára.
— Á hvaða kjörum fékkstu
srvo íbúðina, spyr ég Höskuld.
— Við skulum sjá, við út-
hlutunina varð ég að greiða
rúmar 73 þúsund krónur, en
svo fylgir með 50 ára lán,
— Hvenær fluttirðu, Hösk-
uldur?
— Ég flutti inn viku fyrir
jól, sótti um íbúðina í júli.
Ég var eiginlega á götunni,
bjó . bragga s.l. fjögur ár.
Húsin við Skálagerði.
Jónas Pétursson alþm.
Frumvarpið um lausaskuldir
bænda orðið að lögum
Merkilegt nauðsynjamál bænaa-
stéttarinnar
HINN 23. marz s.l. var frurnv.
um lausaskuldir bænda afgreitt
*em lög frá Alþingi. Lögin eru
merkilegur þáttur í þeirri end
urreisn í efnahagskerfi landisins,
Sem nú fer fram. Undangengið
verðbólgutímabil markaði spor
«m allt þjóðlífið, líka meðal
bænda landsins. Lausaskuldir
þeirra voru orðnar meinsemd,
sem varð að lækna.
Nokkrir þeirra voru komnir í
vonlausa aðstöðu með að geta
haldiö áfram búskap. Nú hefir
Skapast nýtt viðhorf og nýir
möguleikar. Á naestu vikum
verða þær lánaumsóknir af-
greiddar, sem nú liggja fyrir í
Veðdeild Búnáðarbankans. Má
ætla að þannig verði allt að 80
millj. kr. af lausaskuldum um
1000 bænda færðar í fast horf í
20 ára lánum.
Sem betur fer reyndust lang
flestir af umsækjendum eiga
nægilegt veð að setja í jörð og
mannvirkjum. Þeir, sem áð-
ur sáu litla eða enga möguleika
að komast úr ógöngunum finna
nú fast land undir fótum, og sér
stakilega, ef það tekst, sem von
er tii, að fella í þennan farveg
svo til allar lausaskuMir hvers
þess bónda er lánið fær. En um
leið og ný öryggiskennd fer þann
ig um þá bændur, er lánanna
njóta, er mikil nauðsyn að þeir
gefi sér tóm tiil að kanna aðstöð
una. Treysta framleiðslu búsins
sem bezt, athuga hvar veilur eru
og hvar styrkur. Nema burt veil
urnar og efla hina betri þætti,
einkum það að auka afurðirnar
eftir þann bústofn, sem nú er.
Gera sér rólega grein fyrir
þeim framkvæmdum og umbót-
um, sem fyrir liggja, athuga fjár
hagsaðstöðuna til þeirra. Sækja
fram í umbótaviðleitninni og leit
ast við að tryggja fjárhagsað-
stöðuna * á grundvell þeirrar
auknu og bættu aðstöðu til stofn
lána, sem fram undan er á
næstu árum, ef frv. um stofn-
lánadeild landbúnaðarins sem nú
liggur fyrir Efri deild nær sam-
þykki Alþingis.
Þeir, sem að þessuan lausa-
skuldamálum hafa unnið og
þeirri lausn sem fengin er, hefðu
að vísu kosið að unnt hefði ver
ið að hafa vaxtakjörin nokkru
hagstæðari. Þess var ekki kost-
ur, ef ná átti því marki einnig
að koma svo til öllum lausa-
skuldunum í föst lán, með við-
unandi lánstíma.
Við samanburð á vaxtakjör-
um til sjávarútvegs og land-
búnaðar verður að hafa í huga
vaxtakjör af stofnlánum þess-
ara atvinnugreina í heild. í
grein Jóns Pálmasonar, formanns
bankaráðs Búnaðarbankans í
Mbl. 21. marz eru upplýsingar
um stofnlán og vaxtakjör í rækt
unar- og byggingarsjóði um síð
ustu áramót. Ef gert er ráð fyr
ir 80 millj. kr. lánum vegna
breytinga lausaskulda bænda í
föst lán verða meðalvextir af
stofnlánum landbúnaðarins, eins
og þau eru nú tæplega 5% ',ea.
4,8—4,9%). Eg hefi ekki aflað
mér hliðstæðra upplýsinga fyr
ir stofnlán sjávai'útvegsins, en
ég tel ekki líklegt að þeir með-
alvextir verði lægri. En þeir, sem
vilja hafa uppi meting milli þess
ara atvinnugreina, verða að gera
þennan smanaburð á þeim grund
velli, að bera saman vaxtakjör af
stofnlánum atvinnuveganna f
heild. Eg tel líklegt að vextir
af sjávarútvegslánum sóu frek-
ar hærri. Tel ég einnig eðlilegt
að fremur væri munur á þ4
hliðina en hina, samibvæimt eðli
þessara atvinnugreina.
Jónas Pétursson.
Söngkonur
Óskum eftir söngkonum, einkum sópranrðddum.
Uppl. gefa Páll Halldórsson organl., sími 17007, og
Gunnar Jóhannesson póstfltr., sími 17158.
Kór Hallgrímskirkju.
Flugfreyjur
Aðalfundur Flugfreyjufélags íslands verður
haldinn í Giaumbæ miðvikudaginn 28. marz kl. 4.
STJÓRNIN.
Verkfrœðing
Viljum róða nú þegar vélaverkfræðing tll starfa á
teiknistofu. Einnig kemur til greina vélfræðingur.
Upplýsingar um fyrri störf sendist blaðinu fyrir
föstudag merkt: „4246“. Þagmælsku heitið.