Morgunblaðið - 28.03.1962, Blaðsíða 11
Miðvikud^gur 28. marz 1?62
MORCVNBLAÐ1Ð
Heiga Einarsdóttir
90 ára
ÞEIR KVISTIR sem festu rót á
íslandi laust eftir miðja 19. öld
voru vissulega engin stotfublóm.
Frekar meetti segja að þelr urðu
að bjargast á berangri við litla
aðhlynningu. Enda varð ævisaga
margra ekiki löng. En beir sprot-
ar, sem stóðu af sér hretviðri
bernskuáranna urðu margir
hverjir traustir meiðar, sem
urðu traustir og limiríkir meiðir .
20. aldarinnar. Nokkra slíka I
höfum við meðal okkar en í I
dag. Einn af þessum meið-
um er afmselisbamið, sem mig
langar að minnast nokkrum orð-
um í dag.
Ekki er ég svo kunnugur hin-
um langa starfs- og ævidegi
Helgu Einarsdóttur að ég treysti
mér að rekja hann til nokkurrar
hlitar, enda ekki ætlunin þó
vissulega væri í þeirri sögu
margt girnilegt til fróðleiks.
Jarðskjálfta-sumarið 1896, er
hún vinnukona austur í Elóa.
Fólkið flýr bæina. í 5 vikur
hefst það við úti undir vegg.
Teppum er tjaldað til skjóls, eng
in tjöld eða svefnpokar þekktust
í þann tíð. Fólkið óttaðist hina
lítt timbruðu torfbæi svo að varla
þorði neinn inn í þá að koma.
Og ógnirnar byrja einmitt á út
hailandi sumri. Hún man þá
tíma er bjargarleysið stóð við
flestar dyr etf nokkuð út af
bar, og hverjum bita og sopa
var tekið sem guðsgjötf, og
þakkað eftir þvá.
Hún gætir þess vandlega að
vinna sér sveitfesti, þ.e. vera 10
ár á vist í sama hrepp. Hana
fýsir ekki að fá þann lítt eftir
sótta titil að „Vera allra sveita
kvikind“.
Hún ræðst í það einstæða fyr-
irtæki að verða sér út um
„lausakonubréf". Það varð að
fá hjá viðkomandi yfirvaldi og
kostaði kr. 2,00.
Helga er fermingabarn hins
frjálslynda kennknanns séra
Páls Sigurðsisonar í Gaulverja-
bæ. Hún man þann hryggilega
atburð er séra Páll er að fara í
skinnsokka síina á bæjarhellu á
ferð um sókn sína, hrasar og
fótbrotnar, er borinn heim til
sín í teppi. Spyr fermingarbörn
sín í rúm-inu, en kraftar hans
leyfa ekki að hann geti fermt
þau.
eldrar hennar hjónin Guðlaug
Guðmundsdóittir frá Efri-Hömr-
um í Holtum og Einar Ingimund
arson frá Hárrlaugsstöðum. Eftir
skamma dvöl á Eyrarbakka
flytja þau hjón suður í Leiru,
byggja snotran bæ er þau
nefna Beruvík. Þau voru 7
systkinin. Býlið var þurra-
búð. Einar stundar sjó, en
er auk þess smiður góður og fer
um sveitir til smíða, og hefur
því nokkrar aukatekjur. Á 4. ári
miissir Helga móðir sína. Með
systkinabópnum í skjóli föður
síns elzt Helga upp í Bergvík
til 12 ára aildurs. Þá fer hún
úr föðurgarði og er í vistum á
ýmisum bæjum í Flóa í 14 ár. Ár
ið 1898, ræðst hún í vist að
Tortfastöðum í Biskupisitungum,
til hjónanna Steinunnar Thor-
arensen og séra Magnúsar Helga
sonar.
Minnig Helgu um veru sína
þar er björt og glöð, og með
verðugu þakklæti minnist hún
þeirra hjóna. Þau fella hugi sam
an ráðsmaður prestsins Ögmund
ur Gíslason og Helga, ganga í
hjónaband og byrja búskap að
Laugarási í sömu sveit. En skjótt
brá sól sumri, mann sinn missir
Helga mjög sviplega á fyrsta
hjúskaparári þeirra. Þau höfðu
þó eignaist eina dóttur, Stein-
unni.
Nú er úr vöndu að ráða, hinir
glöðu framtíðardraumar orðnir
að sárköldum harmleik. Hin
unga ekkja eyigir þá fá úrræði.
Hún ann starfi við mold oig gróð
ur, en sér litla möguleika til
framtfæris á þessum vettvangi.
Hún ákveður að flytjast til
Rvikur. Ræðst í vist til Siggeirs
Torfasonar kaupmanns og konu
hans.
Hjá þeim hjónum dvelst Helga
til 1911. í þeim hjónum eignað
ist Helga trausta og trúfasta
vini, er hjálpuðu henni vel og
direngilega, er hún hafði við
erfið leika að etja. Þeirra hjóna
minniist Helga ávallt sem beztu
velgerðarroanna sinna (vanda-
lausra), á lífsleiðinni. Og börn
þeirra halda enn tryggð við
vinnukonuna „að austan“. Trú-
lega hiefur hún ekki talið sporin
er hún hljóp fyrir þau ung í
föðurgarði.
1911 giftist Helga í annað sinn
Jóni Guðmiu ndssy ni kjötmats-
manni. Hinum traustasta dreng
skaparmanni. Enda var hjúskap
ur þeirra afarfarsæll og fagur í
þau rúm 40 ár er þau nutu sam
vista. Jón andaðist 1952. Þau
eignuðust einn son barna Ög-
mund verkfræðing.
Með einstakri elju og sam-
starfi tókst þeim Jóni og Heigu
að eignast heimili að Bergstaða
stræti 20. Þar býr Helga enn.
Hinir mörgu samtferðamenn og
vinir Helgu senda henni hlýjar
kveðjur og árnaðaróskir á þess
Um tímamótum. Langur dagur
er að baki. Og er hún nú lítur
yfir síðasta tug aldarlangrar ævi
mun hún vissulega hafa. margs
að minnast. Sorgar- og gleði-
stundir liðinna ára munu svífa
fyrir sjónum. Hún er alin á
timum krappra kjara, og fárra
úrræða 19. aldar og hetfur lifað
byltingakennda baráttu 20. ald
arinnar til betra og glaðara litfs.
En hennar vettvangur hefur
ekki verið að standa í straumi
stórviðburða þeirrar sögu.
Starfsþrek, en þá framar öl'lu
starfegleði Helgu er frábær. Lífe
taug hennar við mold og gróð
ur mun ekki slitna, unz hún er
öll. Með hækkandi sól og kom-
andi vöri mun hún hvería á
vit garðsins slins. Máske litfir hún
þar æfintýrið, sem átti að ger
ast í Lauganási fyrir rúmum 60
árum.
önn hins daglega lífe, heimilið
Og ástvinirnir hatfa átt hug henn
og hendur óskiptar. Starf og trú
mennska í hverju sem hún tókst
á hendur hafa se.tt gleggist merki
á ævistarf Helgu Einarsdóttur.
Munu ekki slíkar konur vera
traustasta bindietfni í þeirri
miklu byggingu er við nefnum
samfélag þjóða.
í dag dvelst Helga á heimili
dóttur sinnar frú Steinunnar Ög-
mundisdóttur í Drápuhilíð 24.
J. P.
Af þessari byltu lézt hann á
miðjum aldri. Henni er í barns
minni er þau systkin, ung að
árum stóðu á hleinunium suður
í Leiru og horfðu á ógnþunga út
hafsölduna brotna í vörinni, fað
ir þeirra var ókominn að landi,
þau spenntu greipar í þöguiii
bæn til himnaföðursns, að pabbi
mætti koma heill hekn. „Hann
kom, síðan er ég trúuð, og hefi
öll þessi ár trúað á handleiðslu
æðri máttar" segir . Helga. „En
það skaðar ekki að hjálpa hlít-
ið til“, bætir hún við: Og bjart,
öruggt bros, blikar í öldnum
eugum. Traust minni Helgu
rekur miyndir liðinnar ævi ]jós
lega og öruggt. Þó hér verði að
láta staðar numið að sinni.
Helga er fædd að Simbakoti
é Eyrarbakka 26. marz 1872. For
Ráðskona óskast
Dugleg ráðskona óskast við mötuneyti
að Álafossi frá 1. eða 14. maí n.k.
Upplýsingar á skrifstofu Álafoss, Þing-
holtstræti 2.
Samstarf óskast
við togaraeiganda, til þátttöku í fiskveiðum við
Grænland á komandi vertíð. Við höfum mannskap.
Þeir, sem hai'a áhuga eru vinsamlega beðnir að senda
svar strax merkt: „Slættaratind“.
Gaboon Teak H 16—19—22 og 25 m.m. 2“ arðtex 4x9’ y8“
NÝKOMIÐ
Hjálmar Þorsteinsson & Co. M.
Klapparstíg 28 — Sími 11956.
Feguið d
heimiiinu
í heimahúsum
FORMICA Plastplötur gera öll herbergi heimilisins
fallegri. Þér getið valið úr 100 mismunandi litum, mynstr-
um og fallegum litasamsetningum. FORMICA er ódýrt
þegar tillit er tekið til endingar. Það er endingarbetra
en nokkuð annað efni af líkri gerð. Til að halda FORMICA
hreinu þarf aðeins að strjúka yfir það með rökum klút,
þá er það aftur sem nýtt.
Biðjið um lita-sýnishorn.
Forðist ódýrari eftirlíkingar. Látið ekki
bjóða yður önnur efni í stað FORMICA,
þótt stælingin líti sæmilega út. — Ath.
að nafnið FORMICA er á hverri plötu.
G. Þorsteinsson & Johnson hf.
Grjótagötu 7 — Sími 24250
íbúðir til sölu
í sambýlishúsi við Kleppsveg eru til sölu mjög rúm.
góðar 3ja—4ra hérb. íbúðir. Eru seldar með full-
gerðri miðstoð, sem er komin nú þegar, með tvö-
földu gleri og sameign inni múrhúðaðri. Fullgerð
húsvarðaríbúð fylgír. Hægt er að fá íbúðirnar múr-
húðaðar á skömmum tíma, ef óskað er. íbúðirnar
eru í fullgerðu hverfi með verzlunum og öðrum
þægindum. Hitaveita væntanleg. Hagstætt verð, ef
samið er strax.
ÁRNI STEFÁNSSON, hrl.,
Málflutningur — Fasteignasala
Suðurgötu 4 — Sími 14314 og 34231.
Innheimtumaður
óskast
til starfa hálfan dsginn. Tilvalið fyrír mann, sem
vinnur vaktavinnu. Tilboð með upplýsingum, send-
ist afgr. Mbl. sem fyrst merkt: „Innheimta—123“.
íbúð til leigu
3 herb., bað, stór forstofa ný standsett nálægt Mið-
bænum til leigu nú þegar. Tilboð merkt: „Miðbær —
4170“ sendist afgr. Mbl.