Morgunblaðið - 28.04.1962, Side 23

Morgunblaðið - 28.04.1962, Side 23
tiáugardagur 28. aprll 1962 MORGVNBIAÐIÐ 23 MW WmMm M»| — Ognarstjóm unum af liberalismanum", og er ]>ar átt við þann anda, sem upp kom eftir XX. flokks- þingið“. „Þora vart að setja nokkra sjálfstæða skoðun fram“ Afleiðingin af þessum vinnubrögðum er auðvitað sú, að félagar bætta að koma til dyranna, eins og þeir eru klæddir, taka á sig sérstakt gerfi, þá þeir fara á fundi, og skipta um, er þeir koma Iieim aftur. Kemur þetta oft ber- lega í Ijós í einkaviðræðum við félaga, þar láta þeir oft í Ijós aðrar skoðanir, stund- um algerlega andstæðar þeim, sem þeir hafa varið eða sam þykkt á flokksfundum. I>ar sem þeir hafa varið eða samþykkt á flokksfundum. Þar sem ástandið er verst má segja, að menn þori vart að setja nokkra sjálfstæða skoð- un fram af ótta við, að hún verði röng fundin, flokks- fjandsamleg o.s.frv., viðkom- andi verði síðan refsað með einhverjum hætti. Það má nærri segja, að Þjóðverji á fundi sé alveg sérstök mann- tegund, sem ekki er að finna annars staðar. Það mun óþarfi að undir- strika það, að eftir að flokk urinn komst hér í valdaað- stöðu, hefur orðið á honum eðlisbreyting. Nú streyma inn í hann allt aðrir en áður. Þeir sem áður stóðu álengdar, s.s. millistéttarmenn, skrif- finnar, menntamenn, jafnvel trúað fólk knýr nú dyra og sækir um upptöku. Þetta set- ur flokkinn í töluverða hættu. Enda þótt ýmsir nýir kraftar komi þannig inn, mun þó hinn hópurinn ekki minni, sem eingöngu gerir það í eig inhagsmunaskyni, í von um stöður og hlunnindi. Slíkir menn eru verkalýðsflokki hættulegri en nokkrir aðrir. Skki er heldur rétt að van- meta þann arf, sem „ideo- logía“ nazismans skildi eftir í hugum fjölda manna, og enda þótt þeir séu engir, sem verja málstað nazismans, munu þeir ófáir, sem enn þá búa að fyrra uppeldi. Flokkurinn hefur ríkisvald ið í höndum, og ríkisbáknið er þungt í vöfum hér eins og í flestum öðrum ríkjum sósial ismans. Fyrir utan þann fjölda manna, sem vinnur í ríkisvélinni opinberlega, eru aðrir þjóna, sem minna ber á, en munu þó vera álitlegur hópur, en það er leynilögregl an. Um starfshætti hennar og valdsvið er bezt að tala sem minnst, enda okkur að litlu kunnir“. „Ritstjórum er ekki heimilt að birta neitt án leyfis“ „Blöð og támarit Um blöð og tímarit hér í landi er hægt að vera fáorð- ur. Þau eru öll undirgefin ritstjórn flokksins, og hinum opinberu ritstjórum er ekki heimilt að birta neitt án leyf is þar til kjörinna flokks- starfsmarvna. Fréttaflutning- ur þeirra er ónákvæmur og áróðurskenndur, enda ekkert birt, sem illa kemur stjórnar völdum hérlendis eða vina- landanna. Svipuðu máli gegn i um ýmsar bókmenntir, sem hér eru gefnar út. Frágangur og útlit bóka er hér yfirleitt hið vandaðasta og margt ágætra bóka um tæknileg og vísindaleg efni kemur út ár- lega. Rithöfundum innlend- um er hins vegar skorinn all- þröngur stakkur, sumpart af skiljanlegum ástæðum. Á menningarþingi SED var lögð rík áherzla á það, að skáld og rithöfundar yrðu að beygja sig undir stefnu flokks og ríkis og skrifa í anda þeirrar stefnu, sem mótuð er af flokknum hverju sinni. Ann- ars er hér fátt stórmenna í skáldastétt síðan Bertold Breoht leið. Á Vesturlöndum er af and- stæðingum okkar mikið gert úr eftiröpun og dýrfcun á Sovétríkjunum í alþýðuveld- um Austur-Evrópu. Ekki þarf að rœða það, að margt í þeim frásögnum er orðum aukið og annað tómur uppspuni. Því ber samt ekki að neita, að und- irlægjuháttur og eftiröpun á ýmsum sviðum hefur verið fyrir hendi allt fram á þenna dag og í mörgu tilliti skaðað þessi lönd og lamað þjóðlega menningu þeirra og stolt. Á Stalínstímanum var ástandið i þessum efnum þó sýnu verra en í dag. Stalínsdýrk- unin sjálf var mikill liður í þessu, en hún hvarf eftir XX. flokksþingið. í dag kemur þetta einkum fram í ýmsu er varðar rekst- ur og skipulag fyrirtækja, stíl og aðferðir við húsabygging- ar og síðast en ekki sízt óþörf um og barnalegum áróðri fyrir Sovétríkjunum. Þetta veldur því, að hugmyndir félaga og almennings um hið raunverulega ástand í Sovét- ríkjunum, lífskjör og lifnaðar háttu, eru mjög rangfærðar og óraunverulegar“ „Aldrei reynt að segja fólki sannleikann“ „Ferðafrelsi Það er kunnara en frá þurfi að segja, að mjög miklar hömlur eru á ferðalögum frá alþýðuveldunum til Vestur- landa. Að sjálfsögðu má nokk uð kenna þetta því, að al- þýðuveldin hafa átt mjög í vök að verjast vegna vest- ræns áróðurs og beinnar skemmdarstarfsemi. Er því skiljanlegt, að strangar regl- ur giltu um ferðalög inn og út úr þessum löndum á fyrstu árum hinnar sósíalísku upp- byggingar, meðan hin borg- aralegu öfl voru enn þá sterk — og hin fasistísku jafnvel líka. Að sjálfsögðu háfa gjald eyrisörðugleikar einnig átt sinn þátt í þessu efni. Þýzka alþýðuveldið hefur þó fram til þessa haft sérstöðu í þessu efni. Allt fram til ársins 1956 var tiltölulega auðvelt að ferð ast til V-Þýzkalands og öf- ugt, enda litið á það sem sjálfsagðan og eðlilegan hlut, að ættingjar og vinir í sitt hvorum landshluta heim- sæktu hvern annan gagn- kvæmt. Árið 1956 og þó eink- um 1957 var tekin upp sú stefna að hindra ferðalög frá DDR til V-Þýzkalands eftir því sem unnt væri. Voru ráðamenn hér þá komnir á þá skoðun, að þessar heim- sóknir yrðu síður en svo til að stöðva flóttamannastraum inn. Okkur finnst rétt að geta hér eins atriðis, er sýnir hinn óheppilega og óskynsamlega áróður, sem hér er beitt á flestum sviðum — og þá ekki sízt í þessu sambandi. öllum mun kunnugt, hve vel Vest- urþjóðverjum hefur tekizt að reisa efnahag landsins úr rúst um á fáum árum, og eru flestum sennilega kunnar orsakir þessa í stórum drátt- um. Vestur-Þýzkaland er aft ur orðið stóriðnaðarland með öllum ytri glæsibrag háþró- aðs auðvaldsríkis — lítt hindr að af kreppufyrirboðum og atvinnuleysi enn sem komið er. Þrátt fyrir þetta er stöð- ugt hamrað á því í áróðri hér, að kjör fólks fari stöðugt versnandi fyrir vestan, þjóð- félagið standi á gjábarmi kreppunnar og við dyr fas- ismans. Það er rétt, að skil- yrðin fyrir upphafi alls þessa eru svo að segja uppfyllt í V-Þýzkalandi, en hafa ekki verið það hingað til. Af þessu leiddi, að fólk heyrði og sá allt annað en því hafði verið talin trú um hér, þegar það kom til V-Þýzkalands. Óhætt er að fullyrða, að þetta hafi haft þau áhrif, að fjöldi manna fluttist þangað. Það var aldrei reynt að segja þessu fólki sannleikann, né skýra fyrir því, hvers vegna V-Þýzkalandi gekk svo vel í upppbyggingu efnahagslífs- ins. Og þegar fólk sér, að „sannleikans menn“ hafa blekkt það, missir það auð- veldlega traustið til þeirra, — fær jafnvel trú á sína eigin fjendur." „ ... elur fólk upp í því að ljúga“ „Til að stöðva þennan straum flóttafólks til V- Þýzkalands, hefur nú verið ákveðið, að til þessara ferða- laga þurfi fólk vegabréf, eins og til annarra erlendra rikja. Þessi ráðstöfun hefu valdið mjög miklum ugg meðal fólks þar sem það óttast, að með þessu eigi að loka fyrir öll ferðalög til V-Þýzkalands, sem einnig mun ætlunin, og hefur straumurinn vestur aldrei verið örari en núna af þessum sökum m.a. Ber því allt mjög að sama brunni: Ráðamenn reyna fyrst og fremst með valdi að hindra fólkið I að komast til V- Þýzkalands án þess að leita orsakanna, hvers vegna fólk ið leitar héðan brott. Er því við að búast, að starfshættir þesisir auki lítt ástsæld og traust til yfirvalda. Stórum furðulegri eru þó þær hömlur, sem eru á ferða- lögum milli alþýðuveldanna sj'álfra. Að vísu er allmiikið um skipulagðar gagnkvæmar hópferðir (skólar, verkalýðs- félög, starfsfólk frá verksmiðj- um O.s.frv.), en einstaklingum, sem ferðast vilja á eigin spýt- ur er það svo að segja ðbleift. Kemur þar fyrst til, að mjög erfitt er fyrir einstalklinga að verða sér úti um vegabréf, en jafnvel þótt það takist er við- bomandi gert ómögulegt að notfæra sér það með því að neita honum um gjaldeyri. Só skerfur, sem ferðamanni er ætlaður tiil sinna þarfa, mundi vart nægja sem skotsilfur einn dag. Þetta hefur skiljanlega mjög ill áhrif á fólik, einkum unga fólkið og stúdenta, sem hlíta sérlega ströngum. reglum í þessu tilliti. Liáti fólik í ljós óánægju sína á þessum málum eðá" öðrum er það fljótlega „sannfært“ og viökomandi síð ann látinn gefa gagnstæða yfir lýsingu. Þykir ok'kur rétt að nefna dæmi um þetta: Á síðast Iiðnu vöri var á- kveðið af flökknum og há- skólayfirvöldum að koma í veg fyrir ferðalög stúdenta til V-Þýzkalands. Þessi skipun var send til flokksdeilda í skól unurn og skyldu þær fá stúd- enta til að gefa yfirlýsingu um, að þeir vildu ékki fara til V-Þýzkalands. Sem vænta mátti urðu um þetta miklar deilur meðal htúdenta, þar sem f jöldi þeirra ekki einungds vildi, heldur ætlaði að fara til V-Þýzkalands að heimsækjia vandamenn þar — eða ann- arra erinda. Svo mikil áherzla var þó lögð á þetta, að hótað var brottvísun úr skóla ef menn ekki hlýðnuðust þessu. Bkiki þótti þó hlýða að slá þessu upp sem banni stjórnar- valda á ferðalögum stúdenta vestur þangað, og var því fundið upp á því snjallræði að láta stúdenta gefa „að eigin frumkvæði" yfirlýsingar um, að þeir vildu ekki fara til V- Þýzkalands — í fjölda mörg- urn tilfellum þvert gegn vilja þeirra. Þeim, sem í móti mæltu, var núið um nasir fylgispekt við Adenauer og kapítalisma, en andstöðu við sósialisma. Það er noikkuð, sem fæstir hér kæra sig um af skiljanlegum ástæðum. Og svo var „yfiriýsingu stúd- enta“ slegið upp um þil og veggi, dagblöð og timarit með pompi og pragt. — Þetta er orðhengilsháttur, sem elur fólk upp í því að ljúga bæði að sér og öðrum.“ „Óviðurkvæmileg af- skipti af einkalífi manna“ „Stúdentar og háskólinn Nokikur orð um málefni stúd emta. Skólamál eru hér um margt til fyrirmiyndar, og þó eimkum sú hdið, sem gerir öll- um efnilegum námsmönnum fært að leggja út á mertnta- veginn, það er mieð styikveit- ingu, enda hefur þetta haft þau áhrif, að böm verka- manna og bænda eru nú í mikl um meirihluta I háskólum, sem annars staðar við nám (rúm 70% stúdenta, meðan hlutur verkamanna- og bænda barna er hverfandi lítili í V- Þýzkalandi sem og í öðrum vestrænum ríikjum). Félagaaamtök stúdenta eru ekki önnur en FDJ. Langflest- ir stúdentar (yfir 90%) em meðlimir í samtökunum, enda annað illa séð. Félagsskapur þessi hefur mjög víðtækt vald um ýmis skólamálefni, t.d. hef ur hann mikil áhrif á veitingu styrkja, — þó einkum svo nefnd ,,Leistungsstipendium“, einnig hefur FDJ nokkurt á- hrifavald við skipulagningu námsskrár og námsefnis, hverj ir eru teknir í háskóla og hverjir ekki. Aðalstarf FDJ innan háskólans er eftirlit með nómi og þó einkum fé- lagslegu starfi stúdenta (hugs unarhætti eftir því sem unnt er), m.ö.o. að haida uppi só- síaliskum aga innan háskól- ans. í sumum tilfellum gengur þetta svo langt, að hafin eru viðurkvæmileg afskipti af einkaláfi manna, ýmist af FDJ eða flokknum, — og er félagi okkar Eysteinn Þorvaldsson manna beztur til frásagnar um það. Frá fyrstu tíð hefur FDJ raunverulega lotið stjóm SED, þannig að fllökkuriníi hefur frá fyrstu tíð tryggt sér ör- uggan meiriihhita í stjórn sam takanna og hefur þvi ávallt verið fær um að koma málum flokksins í fraamkvæmd þar. Á síðasta ári fékk flokkurkm ennþá betri aðstöðu tiil að nota samtökin, sem áður voru köll- uð- ópólitísk f jöldasamtök æsk unnar, í sína þágu, en var á miðstjómarfundi FDJ í surnar breytt í sósialísk (þ.e. póli- tísk) æskulýðssamtök. Þrátt fyrir það er FDJ einu sam- tökin, sem opiniberlega eni leyfð meðal stúdenta“. íslenzkir stúdentar við heræfingar „ört vaxandi þáttur í starfi FDJ er skipulagning Og fram- kvæmd „sjálfboðavimnu“. Er nú svo komið, að stúdentum er gert að skyildu að vinna í fríum sínum sumar og vetur í brúnkolum eða við önnur knýjandi framleiðslustörf viku eða hiálfan mánuð í hvort skipti. Auk þessa eiga stúdent ar að viruna við uppskeruna á haustin í vikutíma Og einn dag á semestri í byggingarvinnu eða rústhreinsun. Nú erum við síður en svo gegn því, að stúd- entar vinni að framleiðslu- störfum og séu jafnvel skyld- aðir til þess, — þverf á móti teljum við það mjög æskilegt, að stúdentar kynnist kjörum vinnandi fólfcs, enda tökum við þátt í þessu sjálfir. En það sem otokur finnst forkastan- legt, eru þær aðferðir, sem hafðar eru til þess að fá menn í þetta. Látið er heita og það básúnað út um allan toeim, að þetta sé sjáilfboðavinna og ötl- um frjálst að fara eða vera. Hins vegar er þetta í rauninni skylda stúdenta, því sá, sem ekki býður sig fram í vinnu þessa án gildrar afsökunar á yfir höfði sér refsiaðgerðir. Áliit ofckar er, að mótsagnir þær, sem þarna koma fram, hafi slæm áhrif á hugi stúd- enta. Eitt fyrirbrigði, sem stend- ur í sambandi við FDJ, þótt það kallist sjálfstætt félag, er GST (Gellesohaft fiir Sport und Technik). Svo er sagt, að félag þetta sé tekniskt sportfélag, þar sem hægt sé að stunda flestar tegundir slíks sports, allt frá reiðmennsku og kapp- akstri niður í skotfimi. En í framikvæmd, a.m.k. meðal stúdenta, eru í félagi þessu næstum eingöngu iðkaðar her- ælingar. Töluverður þrýsting- ur er á stúdenta að ganga í flé- lag þetta og taka þátt í æfing- um. Mjög er mismunandi eftir skólum og deildum, hversu mikil áherzla er lögð á starf- semi þessa. Sums staðar fara fllestir stúdentar í langa æf- ingu vikulega (4—6 tíma), eti eru auk þess þrjár vikur á sumri hverju í tjaldbúðum flé- lagsskapar þessa að æfingum. Annans staðar láta menn sér nægja þriggja viitona tjaldibúða æfingar. „Herseta Rússa er eigi vinsæl“ f lokakafla skýrslunnar segir m.a.: „Btoki þarf að tafca það fram að herseta Rússa ei eigi vin- sæl, enda þjóðirnar ólíkar. Etoki heyrast þó neinar slíkar raddir opinberlega, heldur hið gagnstæða. Bkki þarf heldur að fjölyrða um það, að megin- stefna stjómarvalda hér er mótuð af þeim sjónarmiðum, sem uppi eru í Sovét hverju sinni, enda eiga Kremlverjar hauk í homi, þar sem er Wált- her Ulbriciht. Köldu andar í garð pólskra stjómarvalda eftir þær breytingar, sem þar voru gerðar í fyrra. Kemur þetta m.a. fram í kurteislegri þögn opinberlega um þá ný- breytni, sem orðið hefm- á mörgum sviðum austur þar.“ Og að lokum segja þeir: „Það má margt læra af dvöl hér í landi, og við erum þakk- látir fyrir að hafa fengið tæki- færi til að nema hér. Jafn- framt erum við áfcveðnir að nýta okkur þennan tíma sem allra bezt, flotoki otokar og þjóð til gagns í framtíðinnL“ { Samkomui Kristilegar samkomur Sunnudag kl. 5 í Betaniu, Mánudag í Keflavík og þriðju- dag í Vogunum. „Kristur lifir“. — Komið. Velkomin. Nona Johnson, Mary Nesbitt, Helmut L. og Rasmus Biering P. tala í íslenzku, Kristniboðssambandið. Síðasta laugardagssamveran á þessu vori í Kristniboðshúsinu Betaníu, Laufásvegi 13, kl. 8.30 í kvöld. Ólafur Ólafsson kristni- boði talar. Allir velkomnir. Á morgun: Sunnudagskólinn kl. 2 e.h. Öll börn velkomin. Síðasta sinn.. Samkomuhúsið ZÍON Óðinsgötu 6 A. Á morgun almenn samkoma kl. 20.30. Allir velkomnir. Heimatrúboð leikmanna. Boðun fagnaðarerindisins Almennar samkomur Á morgun, sunnudag, Austurg. 6, Hafnarf. kl. 10 f.h. Hörgshlíð 12, Rvík kl. 4 e. h. Barnasam- koma. Kl. 8 e.h. Álmenn sam koma.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.