Morgunblaðið - 08.08.1962, Qupperneq 2
2
MOHGUISBLAÐIÐ
Miðvikudagur 8. ágúst 1962.
jT
íslendingar reknir úr hóp-
Balling Ieikstjóri og Kristbjörg Kjeld drekka kveðjuskál
gðngu í Helsinki
í FREGN, sem Morgun-
blaðinu barst í gærkveldi frá
Helsinki, segir, að til átaka
hafi komið milli fulltrúa á
heimsmóti æskunnar, er far-
in var hópganga í lok móts-
ins. —
^ Hundrað fulltrúar tíu
þjóða, er þátt tóku í mót-
inu ákváðu að ganga þeirra
skyldi jafnframt vera mót-
mælaganga gegn kjarnorku-
sprengingum í Austri og
Vestri. í fregninni segir, að
meðal mótmælenda hafi ver-
Lokið við að kvikmynda
„79 af stööinni"
ið níu þeirra íslendinga, sem
tóku þátt í mótinu. Báru þeir
kröfuspjöld og komust eina
tvö hundruð metra áður en
þeir voru stöðvaðir, reknir
úr göngunnni og kröfuspjöld
þeirra rifin í tætlur.
Fregnin um að Rússar hefðu
hafið kjarnorkutilraunir að
nýju á sunnudagsmorgun komu
verulegu róti á æskufólkið í
Helsinki. Þátttakendur í mótinu,
er vildu mótmæla kjarnorku-
vopnatilraununum, settu þegar á
laggirnar nefnd, er falið var að
koma mötmælum á framfæri
við mótstjórnina. Þeim mótmæl-
um var vísað á bug og engin
yfirlýsing gefin af hálfu móts-
ins um kjarnorkusprengingu
Rússa. Áður hafði verið óskað
leyfis mótstjórnarinnar til mót-
mælafundar í Helsinki, en því
var neitað. Hins vegar var mót-
inu lokið í dag með hópgöngu
til minningar um, að 17 ár eru
liðin frá því sprengjunni var
varpað á Hiroshima.
Hundrað þátttakendur frá tíu
þjóðum ákváðu engu að síður,
undir forystu Steffens Larsens,
19 ára dansks stúdents, að bera
kröfuspjöld í göngunni — mót-
mæla kjamorkusprengingum
Austurs og Vesturs.
Jean Garoia, einn af stjórn-
endum mótsins, franskur komm-
únisti, krafðist þess að mótmæl-
endur létu frá sér spjöld sín,
þar sem óleyfilegt væri að bera
önnur spjöld, en mótstjórnin
hefði samþykkt. Meðan Garcia
og Larsen ræddust við um þetta
gengu fslendingarnir níu um
tvö hundruð metra leið með
kröfuspjöld, en þá voru þeir
stöðvaðir og þeim þröngvað úr
hópgöngunni. Garcia tók sjálfur
kröfuspjöld þeirra og reif þau 1
tætlur.
Sjóstangaveiðiför
Heimdallar
HEIMDALLUR, F.U.S. efnir til
sjóstangaveiðiferðar í Faxaflóa
í kvöld. Lagt verður af stað kl. 6
e.h. frá Loftsbryggju og komið
um miðnætti. Farkostur verður
báturinn „Nói“. Þátttaka er mjög
takmörkuð og eru væntanlegir
þátttakendur beðnir að hafa sam
band við skrifstofuna í Valhöll
sem fyrst. (Sími 17102).
Ferðanefnd.
Rakst á þrfá Ijósastaura
f 6ÆR var haldið kveffjuhóf
í Glaumbæ fyrir kvikmynda-
:menr.ina * leikar----- er
síð ta mánuðinn hafa unnið
að töku kvik „ ndarinnar „79
a. stöul. ú“. Dönsku kvik-
. nd_t'ikumennirnir, tíu tals
ins, héldu helmlei^as í -org-
un, eftir að hafa teuið 1* þúu-
„_____ a af myndum. Leúna
' 'jur þeirra mikil vinna við
-ff -11. pa, skera og skeyta
i yndimar saman á nv, l
ia a<. ræman verði 2CC3 netra
löng. Búizt e. við að því verði
lokið í okt^ber; J_. v .ður
kvikmyndin frumsýnd hér í
Reykjavik — og e.t.v. sam-
tímis í Kaupmannc’ ".'a — cg
ir hundrað mínútur að
sýna myndina.
Góður árangur
I upphafi hófsins . ar sam-
„ . ‘ kt, v. ósk Ballings -iik-
stjóra, að sleppa öll_. há-
tíðar. Tum og urðu menn við
þeim tilmæ’vm. E.n i e.r.’ _-
samtölum töluðu allir í há-
stigi um það hve allt hefði
gengið greiðlega, samvinnu-
lipurðina, veðurguðina o. s.
frv. Sagði Balling í viðtali
við blaðamann Morguntolaðs-
ins, að hann myndi að-
eins eftir einni eða tveim-
ur kvikmyndum af þeim
,----1 hann hefti unn,j að,
sem hefði gengið jafn vel. —
’-S hefð: h._fn. íslenzku
leikaranna verið meiri en
hann þorði að vona í i _._ :.fi;
bann hefði fyrirfram ekkert
þekkt til vinnubragða þeirra
né .u.
— Og þér eruð ánægðir
með árangurinn?
— Ég hugsa að þetta verði
góð kvikmyr.d, en annars er
- h illa við að rí_t_ u.n þá
hlið málsins.
— Við höfum heyrt að kom
ið 'hafi til mála að sýna mynd
ina á kvikmyndahátíðinni í
Cannes, ef hún heppnast vel?
Balling leikstjóri skellihló:
— Við skulum ekki tala um
hvað v .rður í framtiðinni. í
augum okkar kvikmynda-
inanna er Cannes-hátíðin hé-
gómi einn og ég legg enga
sérstaka áherzlu á að kvik
myndin verði sýnd þar. En ég
vona að þetta verði góð
mynd ....
Leikstjórinn kvaðst hafa
orðið sérstaklega hrifinn af
kvifcmyr.dahæfileikum Krist-
bjargar Kjeld, leikkonu, þeg-
ar tekið væri it til I ..s að
hún hefði aldrei áður staðið
fyrir framan fcvikmyndavél.
Hvort hann teldi að hún ætti
framtíð fyrir sér á þessu
sviði erlendis? „Tja,“ sagði
Balling, „ég sé ekkert sem
mælir á móti því að svo geti
orðið.“
Þeysisprettur
— E: eitthvað, sem þér er
sérstaklega minnisstætt úr
kviamyndatökunni? si yrjum
við Gunnar Eyjólfsson (R<agn
ar bílstjóra), þar sem hann
st_- or í hrókasamræðum
við hiifhnd skáldsögunnar
„79 af stöðinni“, Indriða G.
Þorsteinsson.
— Minnisstætt? hváir Cunn
ar. Eftir andartaks umhugsun
segir hann: — Jú, en ég er
nú ekki viss um að Balling
leikstjóri verði ánægður, ef
ég segi frá bví — en ætli ég
hætti ekki á það. Við vorum
stödd upp í Mosfellssveit og
kvikrr./ndataka í þann v_j-
inn að hefjast. AIR í einu
bregður leikstjórinn sér á
bak nálægu hrossi, og s.ijm
við á eftir honum á þeysi-
_ retti upp allar héiðar. Þá
er hrópað í ofboði: „Stanzið
hann, stanzið hann, -ar.n
ekki með neinar bremsur.“
Þess skal getið að Balling
slapp ómeiddur — sem betur
fór — úr þessu ferðalagi.
★
Krist/björg Kjeld (Gógó)
sagði að þessi mánuður hefði
verið ævintýri líkastur, allt
hefði verið svo nýtt og fram-
andi. Aðspurð kvaðst hún
halda, að til lengdar vaari
kemmtilegra að leika á leik-
sviði en í kvikmynd, en
fjrsta kvikmyndin byggi -.8
„Jílfsögðu yfir ólýsandi töfr-
um.
íslenzkt mál og fuglagarg
— Það voru engir tækni-
legir meinbugir á hljóðupp-
tökunni, sagði Sörensen, hljóð
upptöku maður. En skrítið
var í byrjun að hljóðrita
tungumól, sem við skildum
ekki neitt í. Við komumst þó
fljótt upp á iagið. Við höfð-
um sérstaka hljómupptöku
með aðalleikurunum, en yfir-
leitt tókum við hljóðin upp
um leið og kvikmyndaupp-
takan fór fram, t. d. þegar
bíllinn fór í ána. Einnig tók-
um við hljóð úr íslenzkri
náttúru, sem verður fellt inn
í myndina, svo sem fugla-
gargið við Skúlagötu o. s. frv.
★
Guðlaugur Rósinkranz, þjóð
leikhússtjóri, var í sjöunda
himni yfir því, hversu allt
hefði gengið vel; sagði að eng
irm dagur hefði farið til ónýt-
is af þeim 31, sem kvikmynda
takan stóð yfir. Einnig hefði
fjárhagsáætlunin, sem nam
tveimur milljónum, staðizt
svoöia nokkurn veginn. Það
væri almenn skoðun, að kvik
myndin hefði heppnazt vel og
væri listræn að uppbyggingu.
Hún yrði með íslenzku tali,
en danskur neðanmálstexti.
Ef kvikmyndin yrði eftirsótt,
væri í ráði að fella enskan
texta í myndina.
Kvennaflangs
Á leiðinni út rákumst við á
Ómar Ragnarsson, en hann
komst ,,beint í kvikmyndirn-
ar“, eins og sagt er, þ.e.a.s.
hann er sá eini sem ekki hef-
ur langa leiksviðsþjálfun að
baki.
— Hvemig líkar þér að
vera orðinn kvikmyndaleik-
ari?
— Já, hlutverkið var nú
svona og svona, sagði Ómar
mæðulega. Ég þurfti alltaf að
vera að hanga utan i stelpum,
og það er hlu-tur sem ég hef
alla tíð verið ákaflega feim-
inn við. Ekki veit ég hvað
konan mín segir, þegar hún
’horfir á þetta flangs í mér.
Hugsið ykkur: að þurfa að
eltast svona við kvenmenn
fyrir framan augun á öllum
sam/borgurunum .... en vera
frábitinn í sálinni.
Á SJÖTTA tímanum síffdegis á
sunnudag varð þaff óhapp á
Hringbraut aff jeppabíli rakst á
þrjá ljósastaura og umferffar-
merki. Voru árekstrar þessir
liarffir og má telja furðulegt aff
fólkiff, sem í bílnum var, maffur
og stúlka, skyldi ekki slasast
meira en raun varff á.
Nánari atvik voru þau að jepp
anum var ekið austur Hring-
braut á 60—65 km hraða að því
er ökumaðurinn telur. Skammt
vestan Njarðargötu lenti bíllinn
upp á gangstétt og á ljósastaur,
hélt þaðan áfram og rakst á
næsta staur, sem brotnaði við
höggið og enn áfram yfir Njarð-
argötu og lenti þar á þriðja
ljósastaurnum og umferðar-
merki, sem sýnir stöðvunar-
skyldu á gatnamótunum. Við
síðasta áreksturinn féll stúlka,
sem sat í framsæti hjá öku-
manni, út úr bílnum. Hlaut hún
nokkrar skrámur. Bílstjórinn
slapp með minniháttar skrámur,
en bíllinn er stórskemmdur.
Bilstjórinn telur orsökina til
slyssins hafa verið þá að hann
var að kveikja í sígarettu fyrir
stúlkuna, og missti þá stjórn á
ökutækinu.
Fimmtarþraut
meistaramótsins
í kvöld
MEISTARAMÓT íslands í frjáls-
um íþróttum heldur áfram á
Laugardalsvellinum í kvöld kl. 7.
Verður þá keppt í fimmtarþraut
og 4x100 og 4x400 m hlaupum.
Aðalhluti meistaramótsins fer
svo fram á laugardag og sunnu-
dag.
NA /5 hnútor / SV 50 hnútor ¥ SnjóJromo f OSi \7 Skúrir S Þrumur wes, KMoM HlUtkit H Hmt í *■ 1***1
HÆÐ yfir Grænlandshafi og
Austur-Grænland en grunn
lægð milli íslands og Noregs.
Hér á landi er N-átt og kalt
í veðri norðanlands, jafnvel
snjókoma í fjallabyggðum.
Sunnanlands var bjartviðri
og 10—12 st. hiti. Yfir suiin-
anverðum Norðursjó er all
djúp lægð, allhvasst og mikil
rigning með 10—14 st. hita
á þeim slóðum. Um síðustu
mánaðamót var íshrafl 30—
40 km út af Straumnesi, og
er ísjaðarinn merktur á kort-
ið frá 65,5 ’ til 70,5“ N.
Veffurhorfur kl. 22 í gær-
kvöldi: Suðvesturland og SV-
mið: N-stinningskaldi fram
eftir nóttu, gola eða kaldi á
morgun, léttskýjað. Faxaflói
og miðin: NA-kaldi og breyti-
leg átt, léttskýjað að mestu.
Breiðafjörður og Vestfirðir,
og miðin: Hægviðri, úrkomu-
laust og sumsstaðar léttskýj-
að. Norðurland til Austfjarða
og miðin: N-kaldi og skúrir
víða í nótt. lægir og léttir til
á morgun. Suðausturland og
miðin: N-kaldi, léttskýjað.
Horfur á fimmtudag: Hæg
A- og NA-átt, þurrt veður
víðast hvar á landinu, létt-
skýjað vestanlands.