Morgunblaðið - 15.09.1962, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.09.1962, Blaðsíða 1
24 $í5tic árgangur 204. tbl. — Laugardagur 15. september 1962 Prentsmiðja Morgunblaðsins Peking stjórnin ásakar U.S.A. íyri': ílug U-2 þotunnar frá Formösu inn yfir kínverskt landsvæði Peking, 14. sept. (NTB—AP). PEKIN GST J ÓRNIN mótmælti harðlega í dag flugi U-2 þotunn- ar frá Formósu, sem skotin var niður fyrir skömmu yfir megin- landi Kína. Sakar Pekingstjórn In Bandaríkin um að bera ábyrgð á flugi þotunnar inn yfir kínverskt land og beinir þar af leiðandi hörðustu mótmælunum að Bandaríkjastjórn. ★ Segir Pekingstjórnin, að flug U-2 þotunnar hafi verið skref, af hálfu Bandaríkjamanna, í þá átt að hvetja stjórn Chiang Kai Sjek é Formósu til þess að gera inn- rás á meginland Kína. Réðst Pekingstjórnin á Bandaríkja- stjórn fyrir stefnu hennar í Asíu ©g Berlín og ákvörðun Kenne- dys forseta um að kalla út 150 þús. manna varalið. Segir Pe- kingstjórnin, að allt þetta sanni að Bandaríkin reki árásar- og styrjaldarstefnu í öllum heimin- um og heimsveldisstefna Banda- ríkjanna sé hættulegasti óvinur mannkynsins. Pekingstjórnin segist hafa skotið niður þrjár njósnarflugvélar Bandaríkja- manna yfir kínversku landssvæði frá 1959. Sem kunnugt er var U-2 þotan, sem skotin var niður yfir megin- landi Kína 9. sept. s.l. í eigu Formósustjórnar. Hefur þetta verið staðfest bæði af Formósu- stjórn og Bandaríkjastjórn, sem seldi Formósu 2 flugvélar af gerðinni U-2 1960. Stjórnarskipti í SýrKandi Damaskus, 14. sept. (NTB—AP). FORSÆTISRÁÐHERRA Sýr- lands Bashir Azmehs baðst lausn ar í gær fyrir sig og ráðuneyti sitt. í dag var Kjaled el Azm, sem er meðlimur ihaldsflokks Sýrlands, falið að mynda nýja stjórn. Veitti þingið honum stuðn Ing sinn með 156 atkvæðum gegn einu. E1 Azm hefur fimm sinnum áður verið forsætisráðherra Sýr- lands og er hann álitinn einn fremsti stjórnmálamaður lands- ins. Hann hefur tvisvar sinnum verið í framboði við forsetakosn- ingar i landinu, en í hvorugt skiptið náð kosningu. Þegar her- inn tók völdin í Sýrlandi í marz s.l. var E1 Azm handtekinn, en honum var sleppt úr haldi tveim ur vikum síðar. E1 Azem er 60 ára að aldri, hann er mjög efnaður og áður en hann gekk í íhaldsflokk Sýr- lands, var hann álitinn kommún- isti og kallaður rauði milljóna- mæringurinn. Madrid, 18. septem'ber, NTB. Marokke hefur nýlega á- kveðið að stækka Iandlielgi sina um helming. Hefur þetta valdið óánægju á Spáni enda hefur stjórn Marokko nú senit spænskum yfirvöldum mót- mæli vegna siglinga spænskra herskipa á því svæði, sem Marokko telur nú til land- helgi sinnar. E1 Azm sagði, eftir að þingið hafði veitt honum stuðning sinn til stjórnarmyndunar, að stefna hans myndi byggjast á algeru hlutieysi Sýrlands, virðingu fyrir Sameinuðu þjóðunum og því, að landið gerði viðskiptasamn- inga við hvaða þjóð sem væri. Forseti Pakistan vill að ríki utan Evrópu fái aðild að E.B.E. London, 14. sept. — NTB FORSETl Pakistan, Ayub Khan, lagði það til í ræðu, sem hann hélt í hádegisverð- arboði í London í dag, að hafnar yrðu viðræður milli fulltrúa landa, sem aðild eiga að Efnahagsbandalagi Evrópu og landanna í brezka samveldinu um það, að Efna- hagsbandalagið næði einnig til þjóða utan Evrópu. Ayub Khan mun halda til Parísar á morgun til fundar við de Gaulle Frakklandsfor- seta og kvaðst hann ætla ræða tillögu sína við hann. Samkvæmt fregnum frönsku IViest útflutningsaukning hjá aðildarríkjum E.B.E. 1 Genf, 14 sept. (NTB) ír.eira á sl. ári, á árinu 1961, 4 EFNAHAGSirlÁLANEFND en útflutningur annara ríkja 4 Sameinuðu þjóðanna fyrir í V-Evrópu. Samtals jókst út Evrópu birti í dag skýrslu flutningur V-Evrópuríkja sína i Genf. meira á árinu, en útflutning- t skýrslu nefndarinnar ko*n ur annarra ríkja það fram, að útflutningur Útflutningur Sovétrikjanna hinna sex aðildarríkja Efna- til Kína minnkaði um 55% hagsbandalags Evrópu jókst frá 1959 til 1961. fréttastofunnar AFP hefur til- lögu forseta Pakistans um fund fulltrúa Efnahagsbandalagsins og samveldislandanna, verið tek- ið heldur fálega af leiðtogum samveldisins og segir fréttastof- an, að þeir telji hana ekki raun- hæfa. Ayub Khan ræddi tillögu sína óformlega við Macmillan, for- sætisráðherra Bretlands, og for- sætisráðherra Kanada og Ástral- íu, Diefenbaker og Menzies. ★ í Bretlandi er talið, að tillaga forseta Pakistans, muni ekki falla í góðan jarðveg, er hann ræðir hana við de Gaulle og einnig var talið ósennilegt, að Adenauer, kanzlari V-Þýzka- lands, myndi vilja, að aðild samveldislanda Breta að EBE fylgdi í kjölfar aðildar Breta. ★ Ayub Khan sagði í ræðu sinni í hádegisverðarboðinu, að hann liti á Efnahagsbandalagið, sem jurt, er ætti eftir að stækka og blómgast. Sagði hann, að upp- gangur í Evrópu myndi ekki leysa heimsvandamálin. — Ef stefna Evrópu kæmi til með að skaða lönd utan álfunnar, myndi hinn vestræni heimur eiga við meiri örðugleika að stríða en nú. ★ í gær og í dag hafa fulltrúar á fundi forsætisráðherra brezku samveldislandanna í London rætt ýmis atriði varðandi aðild Breta að EBE, í nefndum. Báða dagana hefur Macmillan for- sætisráðherra átt óformlegar viðræður við fundarmenn. Talið er að viðræðunum um aðild Breta að EBE verði ekki lokið fyrr en á þriðjudag og þá hefur fundurinn aðeins einn dag til þess að ræða önnur málefni. .Þetta er fánastöng, s«(n reist var hér fyrir lýðveldisstofn- unina 1944“, sagði Ólafur Thors við David Ben-Gurion, er forsætisráðherrarnir stóðu Lögbergi í gær. — Sjá greinar á bls. 3 og 8. Ljósm. Mbl.: ól. K. M. KAUPMANNAH., 13. sept. (NTB) — Ung sænsk stúlka, Christina Fogel fannst látin í rúmi sínu í gistihúsherbergi á Mallorca. Grunur leikur á því, að stúlkan hafi verið myrt og hafa nú tveir dansk- ir lögreglumenn og danskur teiknari verið kallaðir fyrir rétt í Palma, í sambandi við rannsóknina á dauða stúlk- unnar. Játar að hafa skotið úr vélbyssu á de Gaulle O.A,S.-menn handteknir í Belgíu París, 14. sept. (NTB) 1 G Æ R var handtekinn í Marsielle í Frakklandi Ger- ard Busines, hægrisinnaður öfgamaður og hefur hann játað, að hafa tekið þátt í tilræðinu við de Gaulle Frakklandsforseta 22. ágúst síðastliðinn. I dag voru 9 forsprakkar ieynihreyfingarinnar OAS handteknir í Belgíu og var sagt, að Argoud ofursti væri einn þeirra, en talið er að hann hafi verið meðal þeirra sem stóðu á bak við tilræðið við de Gaulle í ágúst. Gerard Busines var fluttur til Parísar, skömmu eftir að hann var handtekinn í Mar- sielle og þar játaði hann að hafa skotið úr vélbyssu á bif- reið de Gaulles Frakklands- forseta. Gaf hann þá skýr- ingu á þátttöku sinni í til- ræðinu, að vinur hans, Jac- ques Prevost hefði kvatt hann til þess. — Prevost er meðal þeirra fimm, sem handteknir höfðu verið á undan Busines, sakaðir um þátttöku í tilræðinu, en talið er að 11 menn hafi átt þátt í því.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.