Morgunblaðið - 15.09.1962, Blaðsíða 22
22
1UC RGVNBL AÐ1Ð
Laugardagur 15. sept. 1962
Hefur starfað þar í 47 ár af 50
ÍÞRÓTTAÞING ÍSÍ var sett í
húsakynnum SVFÍ á Grandagarði
Meðal gesta á þessu þingi sem
haldið er í tiiefni 50 áira afmæli
ÍSÍ voru forseti fslands Ásgeir
Ásgeirsson, vemdari ÍSÍ, Gylfi
Þ. Gíslason menntamálaráð-
herra, Gunnlaugur Pétursson
borgarritari í fjarveru borgar-
stjóra, Eiríkur Eiriksson form.
UMFf o.fl. Benedikt G. Waage
forseti fSf setti þingið og bauð
þessa gesti sérstaklega velkomna.
Setning
í setningarræðu sinni ræddi
Benedikt G. Waage um starf ÍSÍ
ó breiðum grundvelli, drap á
erfiðan fjárhag þess og leiðir til
úrbóta. Hann vék að því nyt-
semdarstarfi sem ÍSÍ ynni meðal
æskulýðsins og lét í Jjós vonir
um að draumar frumherjanna
um 'starf þess og gang mættu
rætast. Hvað vöxt snerti hefði
ÍSá dafnað vel. Innan samtak-
anna væru 25000 félagar í 235
félögum og 27 sérsamböndum.
í ræðu sinni tilkynnti Ben.
G. Waage að hann myndi
ekki taka endurkjöri i stjórn
fSÍ, en forseti sambandsins
hefur hann verið í 36 ár og
setið í stjóm þess í 47 ár af
50 starfsámm sarmbandsins.
Er slíkt einstæð þjónusta í
félagsmálum.
Ávarp forseta fslands
Forseti íslands Ásgeir Ásgeirs-
son flutti ÍSÍ árnaðar óskir. Hann
vék sérstaklega að starfi Bene-
dikts Waage innan samtakanna
og sagði að það að vera svo
lengi í forystu frjálsra samtaka
bæri vott um einstæða samivinnu
lipurð, félagsanda og mannkosti
Þakkaði hann Benedikt öll hans
störf i þágu ísl. æsku og ÍSÍ
fyrir giftudrjúgt starf.
Eiríkur Eiríksson form. UMSÍ
flutti ávarp og færði kveðjur
frá UMSÍ. Skúli Norðdal flutti
kveðjur frá Æskulýðssambandi
íslands og Skúli Þorsteinsson
flutti einnig kveðjur og árnaðar
óskir.
í upphafi þingstarfa minntist
Benedikt G. Waage látinna sam-
herja þeirra Gunnars Halldórs-
sonar fulltrúa, Kjartans Ólafs-
sonar rakarameistara og Sig.
Finnssonar skólastjóra. Risu
þingfulltrúar úr sætum í virðing
arskyni við minningu hinna
látnu.
Þingstörf
Kjörbréfanefnd tók til neð-
ferðar kjörbréf og voru mættir
fulltrúar 22 aðila samlbandsins
með 51 atkvæði en í sambandinu
eru 32 sambönd og aðilar.
Þingforseti var kjörinn Baldur
Möller ráðuneytisstjóri ag til
vara Guðjón Ingimundarsón. Rit
arar eru Guðlaugur Guðjóns-
son og Sveinn Jónsson Eyjafirði.
Benedikt G. Waage flutti
skýrslu stjórnar sem var ýtar-
leg og lá prentuð fyrir. Var þar
rakið starf liðins árs, afmælis-
hátíðahöldin, erfið fjármál og
leiðir til úrbóta og fleira
Gunnlaugur Briem gjald-
keri flutti reikninga sambands-
ins.
Skýrslurnar voru samþykktar
umræðulaust. Kosið var í fasta-
nefndir sem starfa á morgun
og málum visað til þeirra. í gær
kvöldi sátu fulltrúar kvöldverð,a
boð menntamálaráðherra í Þjóð-
leikhúskj allaranum.
Brigthwell sfeinlá lengi
eftir sigur í 400 m hlaupi
Ove Jonsson heztur í 200 m
IHorale vakti mesta athygli
HIÐ glæsilega 400 m grindahlaup
Italans Metcalfe var hápunktur
Evrópumótsins í gær. Hann jafn-
aði heimsmetið og hljóp svo tign-
arlega og glæsilega að allir dáð-
ust að og undruðust. Hann átti
hugi allra þær sekúndur sem
hann var að hlaupa.
Nokkrir Norðurlandabúar kom
ust í úrslit í undanrásum gær-
dagsins, en mesta athygli þeirra
vakti þó frábær frammistaða
Finnanna í langstökki. Þeir tóku
silfur og brons í langstökkinu.
Bikarkeppni
LEIKUR Í.B.H. og Breiðablik í
Bikarkeppni K.S.Í. fer fram á
þriðjudag kl. 6,30 í Hafnarfirði
en ekki í dag eins og áður hefur
yerið skýrt frá.
Þeir eru báðir kornungir menn
Stenius, sem varð annar, er að-
eins 19 ára gamall og því enn
drengur.
Ógleymanlegur var 400 m
spretturinn í úrslitahlaupinu,
Brightwell Englandi sigraði
örugglega, en keppnin var geysi-
lega hörð og tími sigurvegarans
nýtt mótsmet. Brightwell var ger
samlega útkeyrður og það tók
margar mínútur að fá hann á
fætur aftur eftir hlaupið en hann
steinlá eftir það.
Svíinn Ove Jonsson náði bezt-
um tíma í undanrásum 200 m
hlaupsins 20.8 sek. og hljóp lang
glæsilegast allra hlauparanna.
Hann er talinn sigurstrangleg-
astur í þessari grein. En nú lát-
um við tölurnar tala sinu máli.
Úrslit í gær:
400 m grindahlaup EM-meist-
ari S. Morale Ítalíu 49.2 (heims-
metsjöfnun). 2. Neumann Þýzka-
land 50.3. . 3. Janz Þýzkaland
50.5. 4. Rintamæki Finnland 50.8.
5. Krimov Rússl. 51.3. 6. Anissi-
mov Rússl. 54.2.
50 km ganga EM-meistari
Pamich Ítalíu 4:18.46.6 klst. 2.
Pamitsjkin Rússl. 4:24.35.6.
Kúluvarp karla EM-meistari
Varju Ungverjalandi 19.02 m.
2.Lipsnis Rússl. 18.30. 3. Sosgor-
nik Póllandi 18.26. 4. Komar
Póllandi 18.00. 5. Nagy Ungverja
landi 17.97. 6 Skobla Tékkósló-
vakíu 17.87.
Hástökk kvenna EM-meistari
Balas Ungverjalandi 1.83 m. 2.
Gere Júgóslavíu 1.76. 3. Kvow-
les England 1.73. 4. Shirley Eng-
land 1.67. 5—6. Tsjenksjik Rúss-
landi og Dam Ealter Þýzkal. 1.67.
400 m hlaup karla EM-meistari
Brightwell England 45.9 nýtt
mótsmet) 2. Kinder Þýzkalandi
Framhald á bls. 23.
Valbjörn hlaut
6790stigígær
Hann var ekki meðal 6 fyrstu
ÞAÐ var þreyttur Valbjörn sem
lauk tugþrautarkeppninni á EM
í gær. Hann hlaut 6790 stig —
eða aðeins 193 stigum minna en
þegar hann setti metið hér á
Melavellinum á dögunum og
tókst betur upp en nokkru sinni.
Valbjöm var heldur óheppinn
fyrri daginn, en vann það veru-
lega upp þann síðari. Hann vakti
mikla athygli í stönginni er hann
flaug hátt yfir 4.30. Það nægði
þó aðeins í 2. sætið. Júgóslavinn
Kolnik stökk 4.45 m. Við vitum
ekki um endanlega röð Valbjarn-
ar en hann hefur staðið sig eins
vel og við mátti búast. Keppnin
á slíkum mótum er afskaplega
þreytandi. Hún tók 12 tíma fyrri
daginn og 11 tíma þann síðari.
Árangur Valbjarnar í einstök-
m grein var sem hér segir:
100 m 11.0 908 stig
langst. 6.47 632 —
kúluv. 11.77 561 —
hástökk 1.80 770 —
400 m 51.1 765 —
Fyrri dagur 3636 stig
110 m grhl. 15.6 673 stig
kringla 39.62 616 —
stöng 4.30 915 —
spjótk. 56.01 646 —
1550 m 4.54 304 —
Síðari dagur 3154 stig
Samtals 6790 stig
Valbjörns var oftast getið síð-
ari daginn í fréttastofufregnum.
Hann varð sem fyrr segir annar
í stangarstökki. Hann var 10. í
kringlukasti. Hann var 5. í spjót-
kasti og hann var 12. í 1500 m
hlaupinu.
Blaðið fékk aðeins upplýsing-
ar um 6 efstu menn í tugþraut-
inni í gær.
EM-meistari Kuznetzov Rúss-
land 8026 stig
2. Moltke Þýzkanld 8022 —
3. Bock Þýzkaland 7835 —
4. Kamerbeek Holland 7724 —
5. Holdorf Þýzkaland 7526 —
6. Diatsjov Rússland 7400 —
Eins og sézt af stigatölu og
árangri Valbjarnar var rangt frá
skýrt í blaðinu í gær. Stafaði það
af misheyrn í síma og röngura
útreikningi í 400 m hlaupi. En
nú er allt rétt — vonandi.
Kristleifur rak lestina
í hindrunarhlaupiiu
KRISTLEIFUR Guðbjörnsson
sótti ekki gull eða græna skóga
til Evrópumcistaramótsins. I gær
tók hann þátt í undanúrslitum
hlaupsins og hafði það þunga
hlutverk að reka Iestina hvað
tima snertir. Hann hljóp á 9.30.8
og var all langt á eftir næsta
manni í hlaupinu.
Fréttamaður Mbl. í Belgrad
segir að riðillinn sem Krist-
leifur hljóp í hafi verið mjög
erfiður og keppnin þar ákaf-
lega hörð og einkennileg.
Kristleifur ætlaði að fylgja
lAllir mót-
mæltu
FRÉTTAMAÐUR Mbl. í
Belgrad segir að árangur þrí
stökkvaranna allra í gær sé
að minnsta kosti 30 sm lak-
ari en ætti að vera fyrst
og fremst vegna slæmrar
brautar og í öðru lagi vegna
mótvinds. Þeir höfðu allir
beðið um að brautinni yrði
snúið svo að vindurinn
væri í bakið — en því var
neitað.
I dag henti það sama í
langstökkinu. En nú voru
keppendurnir ákveðhari.
Þeir neituðu hreinlega að
keppa ef brautinni yrði ekki
snúið og höfðu sitt fram.
Árangurinn kom líka í ljós
8.19 er glæsilegt stökk.
hópnum, en það varð honum
að falli. Hann hreinlega
sprakk og er á leið hlaupið
var hann útkeyrður og hafði
varla kraft til að stökkva yfir
hindranirnar og lenti hvað
eftir annað ofan í vatnsgryfj-
unni og varð að vaða upp úr.
Er það ólíkt hans fyrri hlaup-
um hér heima.
En það voru fleiri en hann
í þessum riðli sem sprungu.
Heimsmethafinn Krykowiak,
Olympíumeistari og EM-meist
ari var sleginn út. Hann hafn-
aði í 5. sæti í riðlinum á góð-
um tíma en aðeins 4 komust
í úrslit úr hverjum riðli.
Hér koma tímar riðlanna.
1. riðill: 1. Buhl Þýzkalandi
8:42.2. 2. Texereau Frakkl. 8:48.8.
3. Evdokimov Rússl. 8:49.2. 4.
Herriot Englandi 8:49.2. 5. Kryz-
kowiak Póll. 8:49.2. 6. Fazekas
Ungverjal. 8:57.6. 7. Ellefsæter
Noregi 8:59.8. 8. Papavassiliou
Grikkland 9.05.8. 9. Ganzl Aust-
urríki 9.14.4. 10. Kristleifur Guð-
björnsson 9:30.8.
2. riðill: 1. Roelants Belgxa
8:42.0. 2. Skoolov Rússl. 8:46.8.
3. Dorner Þýzkal. 8:46.8. 4. Simon
Ungverjal. 8:50.0 5. Zhanal Tékk.
8:51.6. 6. Hafner Júgóslav. 8:54.2.
7. Motyl Póll. 8:55.8. 8. Hall Eng-
landi 8:57.0. 9. Sommaggio Ítalíu
9:16.8.
3. riðill: 1. Konov Rússl. 8:43.4.
2. Vamos Rúmenía 8:44.6. 3. Span
Júgóslav. 8:45.0. 4. Siren Finn-
land 8:46.4. 5. Onel Tyrkl. 8:47.2.
6. Capman England 8:50.4. 7.
Chromik Pólland 8:54.0. 8. Muller
Þýzkal. 9:00.4. 9. Ferreira Portú-
gal 9:01.8. 10 Maear Ungverjal.
9:04.6.