Morgunblaðið - 15.09.1962, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.09.1962, Blaðsíða 6
6 MORGVNBLAÐIÐ Laugardagur 15. sept. 1962 Steinunn Jónsdóttir frá Arngerðareyri f DAG íer fram frá dómkirkj- unni í Reykjavík jarðarför Steinunnar Jónsdóttur, hús- freyju frá Arngerðareyri við ísa fjarðardjúp. Hún andáðist að heimili sínu hér í borginni 7. þ. m. — Steinunn Jónsdóttur fæddist að Auðshaugi í Barðastrandar- sýslu 5. marz 1894. Foreldrar hennar voru Jón Þórðarson, síð- ar bóndi á Skálmarnes-múla í Barðastrandasýslu og kona hans, Hólmfríður Ebeneserdóttir. Að þeim hjónum stóðu góðir stofn- ar vestfirzkra og breiðfirzkra ætta. Steinunn ólst upp í foreldra- garði til þess tíma er hún gift- ist Halldóri Jónssyni. Hann er Vestfirðingur að ætt, fæddur á Þingeyri, en hafði alizt upp á stórbýlinu Laugabóli í ísafirði, frá tveggja ára aldri, hjá Guð- rúnu Þórðardóttur frænku sinni og Jóni bónda Halldórssyni. Steinunn og Halldór giftust 6. marz 1915 og hafa því staðið saman í blíðu og stríðu í rúm fjörutíu og sjö ár. Fyrstu bú- skaparár sín bjuggu þau á Skálm arnesmúla, en harða vorið 1920 fluttu þau frá Breiðafirði norð- ur yfir heiðar að Arngerðareyri við ísafjarðardjúp. Þar bjuggu þau til ársins 1957 að þau hættu búskap og fluttust til Reykja- víkur. Alls eignuðust þau hjónin 11 börn. Þau eru: Guðrún gift Samúel Samúelssyni, bakara- meistara á Húsavík, Hólmfríður, gift Erlingi Hestnes, húsgagna- smið í Reykjavík, Jón trésmíða- meistari í Reykjavík, kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur, bæjar- stjóra á ísafirði, Þórhallur, bif- reiðastjóri á Suðureyri í Súg- andafirði, kvæntur Sigrúnu Sturludóttur, hreppsstjóra þar, Ragna, gift Kristni Sigurjóns- syni, byggingameistara í Reykja vík, Inga Lára, lézt 18 ára, Bald- vin, leikstjóri í Reykjavík, kvæntur Vigdísi Pálsdóttur, Zophoníassonar, fyrrv. búnaðar- málastjóra, Theodór, garðyrkju- stjóri í Reykjavík, kvæntur Steinunni Jóhannesdóttur, bú- fræðings í Hveragerði, Erlingur stúdent, kvæntur Jóhönnu G. Kristjánsdóttur, stúdent frá Flateyri og Hjördís, gift Birni Eiríkssyni, bankamanni í Reykjavík, Björnssonar læknis í Hafnarfirði. Einn son misstu þau nýfæddan. Barnabörn þeirra eru nú 25. Búskaparár þeirra Arngerðar- eyrarhjóna ná yfir mestu bylt- ingaár í sögu þjóðarinnar. Saga þeirra er baráttusaga íslenzkra bænda á þessum árum. Skin og skúrir þessara ára, kreppur og góðæri, margvíslegar afleiðing- ar tveggja heimsstyrjalda, tæknibylting á flestum sviðum, stórkostleg jafnvægisröskun í byggðum landsins, ör þróun nýrra atvinnugreina og gjör- breyting lífsviðhorfa með nýrri kynslóð setja sundurleitan svip á þjóðlifið og grípa alls staðar inn í líf og störf einstaklinga og heimila. Þrátt fyrir viðburðaríka og um margt heillandi sögu sam tíðarkynslóðar, unnin afrek í sameiginlegu lífsstríði heillar þjóðar, verður lífssaga einstakl inga og einstakra heimila per sónulegri og gengur okkur hjarta nær. Frá starfsárum mínum í Reykjanesi við ísafjarðardjúp er margs að minnast. Hugstæð er mér fegurð Djúpsins, blíð- viðrin þar, lognkyrrðin og und- ursamleg litadýrð, þegar veður- guðir léku þá á strengi hörpu sinnar. Enn hugstæðari og kær- ari eru þó kynnin við góða menn og ágæt heimili. Þar birt- ist fegurð, fórnfýsi og kærleik- ur, sem hátt ber og á sér djúp- ar og traustar rætur í hug og hjarta. Þar í fremstu röð, margra ágætra heimila og margra góðra manna í Djúpinu, er heimilið á Arngerðareyri, og þau hjónin Steinunn og Halldór og börn þeirra. Á þessum árum var Arn- gerðareyrarheimilið eitt stærsta og glæsilegasta heimilið í Djúp- inu. Þar bar margt til. Arn- gerðareyri var í þjóðbraui. Þar var afgreiðsla Djúpbátsins og þar var símstöð. Halldór Jóns- son var harðduglegur og at- hafnasamur bóndi, mikill ferða- garpur, greiddi götu margra suður og austur yfir heiðar um langa og torsótta vegu, og hafði með höndum umsvifamiklar fyrirgreiðslur á fleiri sviðum. Þessu öllu fylgdi mikil gesta- nauð. Heimilið var fjölmennt meðan öll börnin voru heima. Þar dvaldist löngum móðir hús- freyju, Hólmfríður Ebeneser- dóttir, vitur kona og göfug. Frá Skálmarnesmúla fluttust með þeim hjónum þrjú gamalmenni að Arngerðareyri og dvöldust þar í skjóli þeirra unz ævi þraut. Talar það sínu máli. Þessu stóra og umsvifamikla heimili sínu stjórnaði Steinunn húsfreyja af miklum myndar- skap og glæsibrag. Þar var gest- um gott að koma og nutu þar rausnar og alúðar. Við uppeldi barnanna, fræðslu þeirra heima fyrir var lögð mikil alúð. Hvar sem þau komu, til náms eða starfa, báru þau fagurt vitni foreldrum og heimili. Steinunn Jónsdóttir var ágæt- um gáfum búin. Hún var kona fríð sýnum og allt yfirbragð hennar bar vott um göfgan hug og sannan góðleik. Hún var mild í dómum, mikill manna- sættir og bar klæði á vopnin. í orustu myndi það hafa verið henni sjálfgert hlutverk, að gera að sárum manna úr hvorra liði sem voru. Jafnframt var hún hinu stóra heimili sínu sá verndarengill, sem aldrei brást, mild og sterk í senn. Það fór ekki dult, hve mikla virðingu hinn skörulegi og ágæti bóndi hennar bar fyrir konu sinni. Börnin elskuðu, dáðu og virtu móður sína — og þau gætu með miklum sannind- um beint til hennar sömu játn- ingar- og þakkarorðum sem þau þjóðskáldin Matthías og Einar béindu til sinna mæðra í ódauðlegum kvæðum. Og það eru fleiri en nánustu ástvinir hennar sem hafa ríka ástæðu til að minnast þessarar afbragðskonu. Hún var ná- grönnum sínum, umhverfi og héraði hinn góði, göfugi andi. Áhrif hennar voru allsstaðar og ævinlega til góðs. Henni var það sjálfrátt og eðlilegt að lifa og starfa í þjónustu kær'ieikans og fegurðar mannlegs lífs, en það er stærst og fegurst mannlegt hlutskipti. Hjónin frá Arngerðareyri, Steinunn og Halldór, bundust tryggðum ung að árum. Ham- ingjan hefur jafnan verið í fylgd með þeim. Manndómur þeirra, hæfileikar og góðir mannkostir voru þeirra vegar- nesti. Ástrík sambúð og sam- staða í öllu því sem mestu skipti, þegar á reyndi, var kjöl- festan í lífsstarfi þeirra. Örugg trú á guðlega forsjón veitti huggun og þrek í raunum. Og þótt sól hamingjunnar hafi oft- ast varpað birtu sinni á langa og farsæla samferð þeirra, dró ský fyrir sólu, þegar þau misstu dóttur sína, Ingu Láru, glæsi- lega og gáfaða, átján ára að aldri. Sá sári harmur var bor- inn í hljóði og æðrulaust. Að lokinni langri og farsælli sambúð skila þau hjónin þjóð sinni kostamiklum arfi. Hin glæsilegu og vel gerðu börn þeirra eru hvert og eitt hinir ágætustu þjóðfélagsþegnar. — Mannkostir og áhrif ágætra for- eldra er þeirra heimanfylgja. Hér er lokið jarðnesku lífi göfugrar, mikilhæfrar og góðr- ar konu. Þegar hún er kvödd hinztu kveðju er efst í huga þökk og söknuður í hjarta. Heiman úr ísafjarðardjúpi og frá fjölmörgum vinum annars- staðar, beinast samúðarhugir til manns hennar, barna þeirra, tengdabarna og barnabarna. Jafnframt eru hér færðar ein- lægar þakkir fyrir allt það, sem hin látna sæmdarkona var í lífi sínu og starfi, fyrir fagurt for- dæmi hennar, fyrir mildi henn- ar og kærleika í garð samferða- fólksins. í hugum þess og hjörtum er minningin um Steinunni frá Arngerðareyri umvafin birtu og hlýju. Aðalsteinn Eiríksson. ★ Margar minningar Djúpmanna eru tengdar við Arngerðareyr- arheimilið, frú Steinunni og Halldór og hinn fjölmenna og mannvænlega barnahóp þeirra. Þetta heimili var eitt af stærstu og þróttmestu heimilum héraðs- ins. Fjöldi fólks átti þar leið um, ekki sízt fyrr á árum. Frú Steinunn stýrði þessu heimili af mildum og hljóðlát- um skörungsskap. Hún hafði tíma til alls, sem var nauðsyn- legt, hversu rík, sem önn dags- ins var, hversu langur sem vinnudagurinn var orðinn. Hlýtt viðmót, fölskvaleysi og dreng- skapur mótuðu jafnan fram-' • 10 kr. í fundarlaun Eftirfarandi frásögn sá ég 1 sænska blaðinu Dagens nyheter sl. laugardag: „Kristina Olsson frá Hjort- hagen ætlar að bjóða tveimur vinkonum í bíó í kvöld. Það var hún, sem fann skjalamöppu íslenzkra fararstjórans með 1200 sænskum krónum í á bekknum í eftirlætis biðskýlinu sínu á Hjorthagen. Talstöðvar- bílar, sporvagnastarfsmenn og lögreglumenn járnbrautarstöðv- arinnar leituðu í ákafa að skjala moppunm, seom r -Kristina hafði Íþegar skilað í leina afgreiðsl- iuna. Mikil varð Sgleðin, þegar Imálið leysist á Isíðustu mínútum |áður en íslenzki Jleiðsögumaður- linn átti áð fara að halda á brott á rússneska skemmtiferðaskipinu. Og í fund arlaun fékk Kristina — 10 krón- ur. Það dugði nokkurn veginn fyrir bíómiðunum. • Ferðaskjölin og ferðafé týnf Ég fór að forvitnast um hvaða íslenzkir höfðingjar hefðu verið á ferð í Svíþjóð, og fann í sama blaði daginn áður frásögn af því að forstjóri ís- lenzks ferðahóps, sem átti að fara með rússneska skemmti- ferðaskipinu Kalinin til Austur- Evrópulanda, hefði týnt skjala- möppu með 1200 sænskum / 3 rj rn, (-, < ÍV Vrr'M Cl Ci j-OOC-Ofji1 .6 ty poo fý bOO on o o r? K v"b éO/.. -— o ° c ’Z’sSÆknl komu hennar. Manndómur og kjarkur voru grunntónar skap- gerðar hennar. Þessi merka kona er nú horf- in. Hún hefur lokið sínu mikla dagsverki með sæmd. Fjöl- mennur hópur ástvina syrgir hana og mikill fjöldi vina minn- ist hennar með djúpu þakklæti og virðingu. Heiman úr Isa- fjarðardjúpi, þar sem heimili hennar stóð lengstum við fjörð- inn norðan heiðanna streymir hljóðlát samúð með þökkum fvr- ir liðinn dag. S. Bj. Sjálfstæðisfélag Eyrarlireppp stofnað ÞRIÐJUDAGINN 7. þ.m. var haldinn stofnfundur Sjálfstæðis- félags fyrir Eyrarhrepp í Norð- ur-ísafjarðarsýslu. Fundurinn var haldinn í samkomuhúsinu í Hnífsdal og hófst kl. 9 .e.h. Sigurður Bjarnason, ritstjóri, setti fundinn og skýrði tildrög hans. Fundarstjóri var kjörinn Einar Steindórsson, oddviti, Hnífsdal og fundarritari var Ólafur Ólafsson, sýsluskrifari, Hnífsdal. Þorvaldur Garðar Kristjáns- son, framikvæmdastjóri Sjálfstæð isflokksins, flutti ræðu um skipu lag Sjálfstæðisflokksins og lagði fram frumvarp að lögum fyrir félagið, sem síðan var samiþykkt. Stofnendur félagsins voru 42. í stjórn félagsins voru kosnir Sigurður Sveins Guðmundsson, formaður, Stefán Björnsson, skrif stofumaður, Þórður Sigurðsson, verkstjóri, Halldór Magnússon, húsgagnasmiður og Ólafur Ólafs son, sýsluskrifari. Ennfremur var kjörið í fulltrúaráð Sjálfstæð isfélaganna í Norður-ísafjarðar- sýslu og í kjördæmisráð Sjálf- stæðisflokksins í Yestfjarðar- kjördæmi. Þá tóku til máls á fundinum Einar Steindórsson, Sigurður Sveins Guðmundsson og Sigurð- ur Bjarnason, ritstjóri, sem árn- aði félaginu heilla og mælti hvatningarorð til félagsmanna. New York, 12. september NTB Ár er liðið þann 17. sept- ember frá því að Dag Hamm- arskjöld fórst. Sérstök minn- ingarhátíð verður haldin í því tilefni í Leopoldville. krónum og þeim skjölum sem hann þurfti til að allur hópur- inn kæmist með skipinu, og talið trúlegt að hann hefði gert það er hann var á leið um borg- ina í sporvagni nr. 52. Er farar stjórinn tilkynnti um hina týndu skjalamöppu og það með að ef hún ekki fyndist á stund- inni mundi ferðahópur frá heilli ferðaskrifstofu ekki komast í sína siglingu til Austur-Evrópu, hófst æðisgengin leit í öllum sporvögnum, sem aka á leið 52 og öllum biðstöðvum. Og eftir að tilkynnt hafði ver- ið að hún væri fundin óku lög- reglumenn í talstöðvarbíl með íslendinginn innanborðs á stað- inn og tókst að komast með manninn og töskuna að skips- hlið þremur mínútum áður en skipið átti að fara. Og íslendingarnir urðu feikna fegnir og sendu skilvísu litlu stúlkunni fundarlaun 10 krónur, sem þeir skildu eftir hjá lögreglunni. Svona er sagan, sem Svíarnir lásu í blöðun? S'ni'iD á sunnu- daginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.