Morgunblaðið - 15.09.1962, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.09.1962, Blaðsíða 23
Laugardagur 15. sept. 1962 MOUGVNBLAÐIÐ 23 Sex grnlir opncðnr í kirkjngnrði í Noregi Osló, 13. sept. (NTB). NOSRKA lögreglan opnaði í dag sex grafir í kirkjugarð-, inum í Verran í N.-Þrænda lögum og sannaði með því, að rógburður um fjölskyldu eina í héraðinu átti ekki við rök að styðjast. 1 Sú saga var í hámælum höfð' héraðinu, að f jölskyldan hefði fundið fallhlífahermann,' látinn eða á lífi, í síðari heims' styrjöldinni og rænt pening- unum, scm hann bar á sér. Síðar kom í ljós, að fiugmað- urinn hafði verið með 20 þús.! norskra króna í fórum sínum ' og þá hófst rógburðurinn um fjölskylduna. Átti hún að hafa grafið lík flugmannsins í, gamalli gröf í kirkjugarðinum í Verran, en í dag kom í ljós., að engin af þeim gröfum, sem til greina gátu komið, hafði verið opnuð áður. - Allsherjarverkfall í Brazilíu Rio de Janeiro, 14. sept. _ NTB-AP — BROCHADO da Rochas, for- sætisráðherra Brazilíu, hefur sagt af sér embætti og talið er að Goulart forseti muni fela fyrrverandi varnamála- ráðherra landsins, Nelson de Mello, hershöfðingja, emh- ætti forsætisráðherra. Verkalýðssamtök Brazilíu boðuðu í dag allsherjarverk- fall til að undirstrika stjórn- málalegar og efnahagslegar kröfur sínar. f fyrsta lagi er það krafa um, að þjóðaratkvæði skuli skera úr því hvort áfram verður þing- ræði í landinu eða hvort eigi að veita forsetanum aukin völd. — Einnig krefjast verkalýðssam- tökin 100% kauphækkunar. — Verkfallið hófst strax og það hafði verið boðað. Allt var með kyrrum kjörum í Brazilíu í dag, en herinn var á verði, ef til óeirða skyldi koma vegna verkfallsins. Skarni deilum veldur í borg- arstjórn Varafulltrúi ins, BJÖRN Framsóknarflokks- GUÐMUNDSSON, veitti mönnum góða skemmtun á fundi borgarstjórnar hinn 6. sept., sl. með kátlegum tilraun- um sínum til að sanna, að áburð urinn SKARNI sé stórhættulegur heiisufari manna vegna ólyktar- innar, sem af honum stafar tíð- um. Tók Björn engum sönsum, þó að Gunnlaugur Pétursson borg arritari læsi upp á fundinum yfirlýsingu frá borgarlækni þess efnis, að við rannsókn á áburð- inum hefðu ekki fundizt neinir hætulegir sýklar, enda nægði það hitastig, sem áburðurinn er — íþróttir Framh. af bls. 22 46.1. 3. Reske Þýzkalandi 46.4. 4. Metcalfe Englandi 46.4 5. Jack son Englandi 46.6. 6. Badenski Pólland 47.4. Langstökk EM-meistari Ter- Ovensjan Rússland 8.19. 2. Sten- ius Finnland 7.85. 3. Eskola Finn- land 7.85. 4. Budarenko Rússl 7.83. 5. Ga'vron Pólland 7.73. 6. Kalocsai Ungverjaland 7.66. 7. Beer Þýzkaland 7.52. 8. Brakhi 7.41. Fimmtarþraut kvenna EM- meistari Bystrova Rússland 4833 st. 2. Gueanard Frakkland 4735 st.3. Hoffman Þýzkaland 4676 st. 4. Becker Þýzkaland 4663 st. 5. Peters England 4586 st. framleiddur við, til þess að drepa alla slíka sýkla. Ennfremur kom það fram í vottorði borgarlækn- is, að lykt sú, sem af Skarna staf ar, bendi ekki til óhollustu, enda hverfi hún, þegar áburðurinn kólnar. Skarni kom til umræðu í bong arstjórn vegna tillögu sem fyrir fundinum lá frá Birni Guðmunds syni, á þessa leið: „Borgarstjórnin samþykkir, að á meðan, að ekki tekst að losa áburð sorpeyðingarstöðvarinnar við þá óþverra lykt, sem veldur grunsemd um óhollustu, skuli hætt að selja eða afhenda Skarna til áburðarnotkunar í borginni." Eftir að BG hafði mælt fyrir Ceysilegur spenn- inffurá un danrásum I GÆR fóru fram undanrásir í nokkrum greinum á EM. í spjótkasti kastaði lengst Eievore Ítalíu 80.20 m og var eini maður sem fór yfir 80 metra. Margir þeir beztu köstuðu aðeins eitt kast en lágmarkið var 70 m. Fara þurfti niður fyrir það. 20 komust í úrslit, sá síðasti með 69,22. Meðal þeirra eru Norðmað- urinn Rasmussen sem kastaði fimmta bezta kasti 76,80 og tveir Finnar, Kuisima 73,25 og Nevali 71,87 m. í spjótkasti kvenna kastaði Osolina Rússlandi lengst 54,93 en 12 komust í úrslit sú 12. frá Finnlandi með 44,56. í langstökki kvenna stökk Tsjelkanova Rússl. 6,38 m en 12 komust í úrslit, þar af ein nor- fæn, Oddrun Lange, Noregi sem stökk 5,87 m. í 1500 m hlaupi karla varð geysihörð keppni. Til marks um það er að í einum riðlanna nægði 3.45.5 ekki til úrsiita. 1 úrsUt komust: 1. riðill. Bothiing Þýzkalandi 3.47.4, Snopvamgers Holland 3.47.5, Berisford England 3.47.6. 2. riðill: Baran Póll. 3.44.1, 2 Savinkov Rússl. 3.44.4 og Krause Þýzkaland 3.44.8 (Visic Júgóslavíu var sleginn út á 3.45.5). Úr þriðja riðli: Jazy Frakkl. 3.47.7 Norpoth Þýzkal. 3.48.0 og Salinger Tékkóslóvakíu 3.480 í 4x100 m boðhlaupi komust þessi lönd í úrslit. Frakkland 40.0 Ungverjaland 40.5 Ítalía 40.6 (Rússland slegið út á 40.8) í riðli 2. England 39.8 (nýtt móts- met) Þýzkaland 39.9 Pólland 39.9 og Svíþjóð slegin út á 40.1 f 200 m hlaupi kvenna komust þessar í úrslit. Sobota Póllandi 23.8 Maslovskaia Rússl. 24.0 Packer Englandi 24.2 og í riðli 2. Jutta Þýzkalandi 23.6 Hyman England 23.7. í 800 m hlaupi karla komust þessir í úrslit. Salonen Finnland 1.50.6 Matuohewski Þýzkalandi 1.51.6 Bulysjev Rússl. 1.52.1 í riðli 2. komust áfram Schmidt Þýzkal. 1.50.1 Mac Lea írland 1.50.1 Krivosjev Rússland 1.50.1 (Harris Englandi var sleginn út á 1. 50.2) Aðalfundur Presta félags Suðurlands AÐALFUNDUR Prestafélags Suðurlands var haldinn að Múla koti í Fljótshlíð um síðustu helgi. f sambandi við fundinn messuðu aðkomuprestar á nær- liggjandi kirkjum. Umræðuefni fundarins voru: 1) Islenzka kirkjan sem lifandi starfsheild, framsögumaður sr. Sveinn ögmundsson, og 2) Ferm ingarundirbúningur, framsögu- menn próf. Jóhann Hannesson, sr. Magnús Guðjónsson og sr. Gunnar Árnason. Fundinum lauk á mánudegin- um með guðsþjónustu á Stór- ólfshvoli. Stjórn félagsins var endurkjörin, en hana skipa Sr. Sigurður Pálsson, foran. sr. Sveinn Ögmundsson, ritari, og sr. Garðar Svavarsson gjaldkeri. Aðalfundur kirkj- unnar í Hólastifti Sauðárkróki 1. Og 2. sept. UM helgina var haldinn á Sauð- árkróki 3. aðalfundur kirkjunn- ar í Hólastifti. í sambandinu eru 8 æskulýðsfélög, sem starfa í um sjá viðkomandi presta. Mættir voru á fundinum 14 prestar auk nokkurra unglinga úr stjórnum æskulýðsfélaganna. Aðalumræðuefni fundarins var bygging og rekstur sumarbúð- anna við Vestmannsvatn í Aðal- dal. f stjórn sambandsins eru: Séra Pétur Sigurgeirsson Akur- eyri formaður, séra Sigurður Haukur Guðjónsson Hálsi, séra Sigurður Guðmundsson Grenjað- arstað auk tveggja unglinga frá Akureyri. M. a. voru staddir á fundinum fjórir bandarískir unglingar, sem dveljast hér á vegum þjóðkirkj- unnar sem skipti-nemendur. í stað þeirra dveljast 14 íslenzkir unglingar í Bandaríkjunum á veg um kirkjudeilda þar. — j. tillögu sinni tók Gunnlaugur Pétursson borgarritari til máls og gerði grein fyrir efni vottorðs borgarlaeknis, sem áður er minnzt á. Kom þar m.a. fram, eins og áður segir, að lyktin af Skarna hverfur, þegar áburður- inn kólnar, en vegna mikillar eftirspurnar nær hann sjaldan að kólna eins og skyldi áður en hann er seldur. Vegna þeirra um mæla Björns Guðmundssonar, að áburðargildi Skarna væri sára- lítið, benti borgarritari á þann vitnisburð dr. Björns Sigurbjörns sonar, er framkvæmt hefur rann sóknir á áburðargildi Skarna, að það sé mjög mikið. Úlfar Þórðarson (S) kvaddi sér hljóðs, þar sem BG hafði látið í ljós ósk um að „fá að heyra álit læknisins.“ Kvað hann auðvelt að finna bakteríur í Skarna og tók undir álit borgar- læknis. Taldi hann það mikinn misskilning hjá BG, að lyktar- mestu bakteríurnar væru endi- lega hinar hættulegustu, þvi að hættulegustu bakteríumar væru einmitt lyktarlausar. Eftir allmargar umræður um málið, einkum af hálfu Björns Guðmundssonar, var tillaga hans felld með 9 atkvæðum gegn 2. Snjór á Hólssandi ÞANNIG var útlit á veginum frá Hólsfjöllum niður í Axar- fjörð, er fréttamaður blaðsins var þar á ferð s. 1. mánudag. Þarna heitir á Hólssandi og J sér suðvestur yfir Jökulsá allt til Herðubreiðar er . djarfar fyrir í blámóðunni. Nær til vinstri er Hrosixborg, sean er skammt frá vegicum austur yfir Mývatnsfjöll. Heyskapur hefir gengið illa í Norður-Þingeyjarsýslu og telja bændur á Fjöllum hanai að minnsta kosti 1/3 minni að vöxtum en í meðalári, auk þess sem hey eru talsvert hrakin. í Axarfirði frétti blaðamaðurinn að þess værn dæmi að fyrir viku hefði einn bóndi ekki verið búinn að hirða eina einustu tuggu. Bændur gera ráð fyrir að þurfa að kaupa talsvert hey í haust, ef þeir eiga að halda óskertum bústofni sínum. Kiikjudogui Lungholtssufnuður Á ÞESSU ári eru liðin tíu ár, síðan Langholtsprestakall í Reykjavík var stofnað. Þar er nú vaxinn upp einn stærsti söfn- uður landsins. Strax á fyrstu árum varð það eitt af starfsaðferðum þessa safn- aðar að hafa svonefndan kirkju- dag einu sinni á ári. Helga sér- stakan dag málefnum safn- aðarins sérstaklega hvetja til aukinna átaka, safna fé til kirkju byggingar og safnaðarheimilis, minna á nýja starfshætti, vekja og efla safnaðarvitund og sam- takamátt auka kynni safnaðar- fólks og samstarfs þess. Þetta tókst oft myndarlega og eru til kvikmyndir, sem sýna að svo var. En vegna erfiðra að- stæðna hefur stundum fallið nið ur að hafa þennan dag hátíðleg- an. En nú eru ástæðurnar breytt- ar, hvað húsnæði snertir og allt í framför. Næsta sunnudag hinn 16. Sept. verður því kirkjudagur Lang- holtssafnaðar í fyrsta sinni í safn aðarheimilinu, og hefjast hátíða höldin með messu klukkan tvö í kirkjusalnum stóra. Síðdegis eða klukkan 5 hefst barnasam- koma, og um kvöldið verður sam koma fyrir fullorðna fólkið, með ræðum, hljómlist, og kvikmynda sýningu. Kvenfélag safnaðarins mun sjá um veitingar allan daginn frá því að messunni lýkur. Merki verða seld og gjöfum til kirkju- byggingarinnar veitt móttaka. Nú hefst síðasti áfanginn í bygg- ingaranálinu, en það er kirkju- salurinn sjálfur, sem þarf að koma sem fyrst handa þessum fjölmenna söfnuði. Það tók aðeins finrvm ár að byggja safnaðarheimilið eins og það er orðið nú. Þá var fóikið færra og aðstaðan öll erfiðari. Nú verðum við öll samtaka un\ að kirkjan öll verði byggð á næstu 5 árum. Kirkjudagurinn að þessu sinni er helgaður því, að sú hugsjón komizt í framkvæmd. Það er sýnilegt, að kirkja hér hefur all* af nóg að starfa og þarf aldrei að standa auð. Það er svo ótal- margt, sem þar er hægt að gera til framfara og menningar á guðsríkisbraut. Kirkjan verður okkur annað heimili. Til þes að svo verði fjöi menna Reykvíkingar á kirkju- dagshátíð Langholtssafnaðar á sunnudaginn kemur. (Frá safnaðarnefnd) Styrkur úr Minn- ingarsjóði Olavs Brunborgs BLAÐINU hefur borizt eftirtar- andi frétt frá Háskóla íslanda um Minningarsjóði Olavs Bruiv- borgs stud. oecons: Úr sjóðnum verður íslenzkum stúdent eða kandídat veittur styrkur árið 1963 til náms við norskan háskóla. Styrkurinn er að þessu sinni 1100 norskar krónur. Umsóknir skulu sendar skrif- stofu Háskóla íslands fyrir 1. október 1962. Æskilegt er, að umsækjendur sendi með umsókn skilríki um námsferil sinn og ástundun Bað um aðstoð í GÆRKVÖLDI bað mótorbát- urinn Flosi um aðstoð þar sem hann var staddur 20—25 sjó- mílur út af Akranesi. Hafði vél bilað. Varðskipið Gautur fór þegar á vettvang. Gott veður var á Faxaflóa í gærkvöldi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.