Morgunblaðið - 15.09.1962, Side 5
T Laugardagur 15. sept. 1962
M0RCUNBT.AÐ1Ð
5
htMM
I
Á HINU íomfræga höfu'ð-
bóli Löngumýri í Skagafirði
verður í vetur starfræ-ktur
auk húsmæðraskólans þar
heimavistarskóli fyrir stúlk-
ur á vegum þjóðkirkjunnar.
Skóli þessi, sem verður
tveggja vetra nám, mun verða
með nýju sniði og ætlaður
stúlkum, sem orðnar eru 15
ára og eldri og hafa lokið
skyldunámi.
Kirkjuráð þjóðkirkjunnar
samþykkti á fundi sínum í
júní sl. að sam,þykkja tilboð
sem þá hafði borizt frá Ingi-
björgu Jóhannsdóttur að
Löngumýri um að skólinn
skyldi starfræktur þar og gef
ur Ingibjörg kirkjunni nú
jörðina til eignar. Er blaða-
maður Mbl. átti leið um Skaga
Geta má þess, hélt Ingi-
björg áfram, að við viljum
helzt ná unglingunum áður
en þeir vérða spilltir og
byrgja þannig brunninn áður
en barnið er dottið ofan í
hann. Þetta er því skóli, en
ekki sjúkraheimili fyrir vand
ræðastúlkur, eins og sumir
kunna að halda, en auðvitað
þurfa slíkar stofnanir ekki
síður að vera til og eiga að
öllu leyti fullan rétt á sér.
— Hvað starfa margir kenn
arar hér í vetur?
— Þeir verða fjórir auk
stundakennara. Fröken Lilja
Kristjánsdóttir, sem nú tekur
við skólastjórn, kennir að
mestu leyti bókleg fræði. Þó
verða saumakennari og mat-
reiðslukennari og sænskur
Heimavistarskóli með nýju
sniði að Lóngumýri í
Skagafirði
fjöfð nú fyrir skömrmu og
leit inn hjá Ingibjörgu fyrr-
verandi skólastjóra og hús-
freyju þar, sagði hún, að
slíkur skóli hefði verið draum
ur sinn um rúmlega 8 ára
skeið. Mér hefur fundizt slík-
an skóla vanta tilfinnanlega
hér í þjóðfélaginu, sagði hún
og ég verð fyrir vonbrigðum,
ef hann getur ekki orðið til
blessunar, ef vel er á haldið.
— í hverju verður nám
stúlknanna einkum fólgið?
— Þeim verða kenndar bók
legar og verklégar námsgrein-
ar eins og í venjulegum hús-
mæðraskóla og einnig eiga
þær völ á því að læra erlend
tungumiál. Þá verður þeim
kenndur hagnýtur reikning-
ur og ætlunin er að halda
margar bókmenntakynning-
ar. Að sjálfsögðu verða einn-
ig kennd við kristin fræði og
mikil áherzla verður lögð á
kristilegt siðgæði hjá stúlkun
um og að leiða þær til mann-
legs þroska.
kennari hefur verið ráðinn til
þess að kenna vefnað, prjón
og íþróttir, og stundakennar-
ar munu kenna þvott, ræst-
ingu og sennilega annast söng-
kennslu. Mikillar hlýðni og
siðfágunar verður krafist í
Skólanum í hvívetna, sagði
Ingibjörg. Við hugsum okkur
einnig, að skólinn verði sem
mest heimur út af fyrir sig og
heimilislífið verði sem ánægju
legast og komi að sem bezt-
um notum.
Þá stofnaði ég ásamt vin-
konu minni sjóð til minningar
um móður mina. Sjóðurinn
verður notaður til þess að verð
launa ungar og efnilegar stúlk
ur hér við skólann fyrir sið-
prýði og fallega framlkomu
og verða þeim hvatning í
náminu.
— Hvað verða margar stúlk
ur hér við nám í vetur?
— Þær verða milli 20 og 30,
það fer dálítið eftir því, hvern
Langamýri í Skagafirði
Ingibjörg Jóhannsdóttir
ig heimturnar verða í haust.
Annars var húsmæðraskólinn
nærri fullsetinn, þegar þetta
var ákveðið og starfar hann
því áfram í vetur.
— Hvað. hefur verið lengi
húsmæðraskóli hér á Löngu-
mýri?
— Hann hefur nú starfað
hér í 18 ár og alltaf verið að
smábyggjast upp. Húsrými
hefur aukizt mikið, einkum
eftir að aðalhúsið var byggt
hér árið 1047. Síðan skólinn
tók til starfa hefur verið lagð
ur hingað góður vegur, leitt
hingað heitt og kalt vatn, auk
þess sem við höfum fengið
bæði síma og rafmagn.
— Hafa ekki verið reknar
hér sumarbúðir í mörg ár?
— Jú, hér hafa verið starf-
ræktar sumarbúðir á vegum
þjóðkirkjunnar síðan 1054 og
einnig hefur verið hér sum-
arstarf á vegum Rauðakross-
ins. Og nú kemur kirkjan
einnig á veturna í staðinn fyr
ir mig og tekur við rnínu
hlutskipti. Það var ekki til
þess að losa mig við neina
byrði, að ég ákvað að gera
þetta, heldur treysti ég kirkj
unni miklu betur en sjálfri
mér til þess að bera hugsjón-
ina fram til sigurs, sagði Ingi
björg að lokum.
Læknar fiarveiandi
Arinbjörn Kolbeinsson til 24/9
(Bjarm Konráðsson).
Bjarni Jónsson til septemberloka).
(Björn Þ. Þórðarson).
Bergsveinn Ólafsson um óákveðinn
tima (Pétur Traustason augnlæknir,
Þórður Þórðarson heimilislækmr).
Björn Guðbrandsson til 1 okt. (Úlf-
ar Þóröarson).
Gunniaugur Snædal frá 20/8 i
snánuð.
Hannes Þórarinsson til 3 okt. (Ragn
ar Arinbjarnar).
Karl S. Jónasson óákveðið. (Ólafur
Helgason).
Kristján Þorvarðsson tL 25/9. (ófeig
ur Ófeigsson).
Kristin Jónsdóttir til 1 okt. (Ólaf-
ur Jónsson).
Stefán Bogason 27/8 til 27/9. (Jón
Hannesson).
Sveinn Péturson um óákveðinn
tima. (Úlfar Þórðarson).
Valtýr Aibertsson til 25/9.
Valtýr Bjarnason '17/7 til 17/9.
Staðgengill: Hannes Finnbogason
Gunnarsson).
Víkingur Arnórsson 4 þm. í 1 til
2 vikur. (Halldór Arinbjarnar).
Loftleiðir: Laugardaginn 15. sept-
ember er Leifur Eiríksson væntan-
legur frá New York kl. 09.00. Fer
til Luxemborgar kl. 10.30. Kemur til
baka frá Luxemborg kl. 24.00 Fer til
New York kl. 01.30. Eiríkur rauði er
væntanlegur frá New York kl. 11.00
Fer til Luxemborgar kl. 12.30
Hafskip: Laxá fór frá Scrabster 14.
þ.m. til Akraness, Rangá er í Riga.
Eimskipafélag Reykjavíkur: Katla
er á Raufarhöfn, Askja er í Reykja-
vík.
17. þ.m. frá Arshangelsk til Limerick
Arnarfell kemur til Helsingfors 15 þ.m
Jökulfell kemur til Riga 15. þ.m., Dís-
arfell er c Kópaskeri, Litlafell kemur
til Reykjavíkur í dag, Helgafell er í
Reykjavík, Hamrafell er í Batumi.
Flugfélag íslands: Millilandaflug —
Millilandaflugvélin Hrímfaxi fer
til Glasgow og Kaupmannahafnar kl.
08:00 í dag. Væntanleg aftur til
Reykjavíkur kl. 22:40 í kvöld. Flug-
vélin fer til Glasgow og Kaupmanna-
hafnar kl. 08:00 í fyrramálið. Milli-
landaflugvélin Gullfaxi fer til Bergen
Oslo, Kaupmannahafnar og Hamborg-
ar kl. 10:30 í dag. Væntanleg aftur
til Reykjavíkur kl. 17:20 á morgun.
Innanlandsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egils-
staða, Hornafjarðar, ísafjarðar, Sauð-
árkróks, Skógasands og Vestmanna-
eyja (2 ferðir). Á morgun er áætlað
að fljúga til Akureyrar (2 ferðir),
Egilsstaða, Húsavíkur, ísafjarðar og
Vestmannaeyja.
Tekið á móti
tilkynningum
trá kl. 10-12 f.h.
Til sölu
Samansaumingarvél
með borði og mótor, prjóna
vél nr. 7 á járnstelli og
prjónavél nr. 10. Selst sam
an á kr. 25 þúsund.
Nánari uppl. í síma 14959.
Hentugt húsnæði
fyrir smjörbrauðstofu ósk-
ast nú þegar. Á góðum
stað í bænum. Tilboð
merkt: „S 66 — 7859“, send
ist MJbl. sem fyrst.
Til leigu
4ra herb. íbúð á hitaveitu-
svæði. Sími fylgir. Fyrir-
framgreiðsla í 1 ár. Tilboð
merkt „Austurhverfi 7850“
sendist Mbl. fyrir 20 sept.
Smábamakennsla
Smábarnaskóli minn tekur
til starfa í október n.k.
Uppl. í síma 34440.
Una Sveinsdóttir
Kamibsvegi 13.
2—3 herb. íbúð
óskast strax eða 1. okt. fyr-
ir starfsmann hjá oss,
Ford umboðið
Sveinn Egilsson h.í.
Laugavegi 105. Sími 22409.
Eldhús
innrétting til sölu
með tækifærisverði að
Rauðarárstíg 3, 2. hæð til
vinstri.
Læknanemi,
barnlaus, óskar eftir 2—3
herbergja íbúð í byrjun
október. Upplýsingar í
síma 13970.
Ráðskona
óskast strax á heimili á
Akranesi. Má hafa barn
með sér. Uppl. í síma 12299
Reykjavík.
BARNLAUS
miðaldra hjón óska eftir 2
herb. íbúð. Helst í Austur-
bænum. Tilb. sendist Mbl.
merkt 7864.
Óska eftir 2—3 herb.
íbúð til leigu í Hlíðunum
eða Norðurmýri. Fyrir-
framgreiðsla. Tilb. merkt
„7857“, sendist Mbl.
Athugið!
að borið saman við útbreiðs'.i'
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu, en öðrum
blöðum.
Herbergi óskast
Ung menntuð stúlka óskar
eftir góðu herb. helst í
Laugarfieshverfi. Gæti
látið í tje kennslu í ensku
eða þýzku. Uppl. í síma
34730.
Aukavinna
Skrifstofustúlka óskar eft-
ir aukavinnu eftir kl. 5 á
kvöldin eða um helgar. —
Tilboð sendist Mbl. merkt:
„Aukavinna — 7861“.
Til leigu
er verzlunarpláss við <-
Laugaveginn. Umsækjend-
ur leggi nafn sitt inn á
afgreiðslu Mbls. merkt:
„PLASS — 7855“.
Óska eftir
ráðskonustöðu eða léttri
vist. Er með 3 ára barn.
Tilboð sendist afgr. Mþl.
fyrir 19. þ. m. merkt:
„Október 7858“.
Fyrirtæki
Vil kaupa lítið fyrirtæki
eða gerast meðeigandi í
öðru stærra. Tilboð leggist
inn hjá blaðinu merkt.
„Iðnaður 7703“.
Til sölu
Farþegaskýli á vörubíl fyr
ir 20 farþega. Svampsæti
og opnanlegir gluggar. Nán
ari uppl. í síma 10912.
Til sölu
Skoda Ochtavia 61. Enn-
fremur tvær saumavélar
Nechi og Elna.
Uppl. í síma 19015.
Húsráðendur
Ung hjón utan af landi
óska eftir lítilli íibúð. Fyrir
framgreiðsla ef óskað er.
Uppl. í síma 16519.
Tveir miðstöðvarkatlar
Wa ferm. og 2 ferm. Einnig
tveir hitadunkar og setu-
baðker til sölu. Uppl. í
síma 1759, Keflavík.
Kjötsög og kæliborð
Vegna breytinga er til sölu
Kjötsög og kæliborð. Sann-
gjarnt verð. Uppl. í síma
35520.
Óska eftir herbergi
Til leigu. Núna eða sem
fyrst. Hafið samband við
Jón Bjamason í síma 15014
eftir kl. 7 á kvöldin.
Trésmiðir
Hljómlistin lýsir því, sem maður
getur hvorki sagt né þagað yfir.
— V. Hugo
Ef einhver bregður upp spegli og
sýnir þér, að þinum innra manni veit-
ir ekki af hreingerningu, og þó að
hann verði ekki alveg hvítur, þá er *
engin ástæða til þess að brjóta speg-
ilinn. Það er skynsamlegra að herða
be ur i baðinu.
— B. Shaw
Umsóknir um fasteignaveðslán úr lífeyrissjóðnum
þurfa að hafa borizt skrifstofu' sjóðsins fyrir 20. þ. m.
Lífeyrissjóður húsasmiða.
Laganemar!
Viðskiptafræðiiietnar!
I tilefni aðskilnaðar laga- og viðskiptadeildar í dag,
1. þ.m., eru að tilhlutan stjórna Orators og félags
viðskiptafræðinema, allir meðlimir þessara félaga
boðnir velkomnir á sameiginlegan fund, haldinn
í Nausti (uppi) kl. 4—7 síðdegis í dag.
Viðeigandi að sem flestir mæti.
Oratorafélag laganema,
Félag viðskiptafræðinema.