Morgunblaðið - 15.09.1962, Qupperneq 13
Laugardagur 15. sept. 1932
MORCVTVfíL4ÐIB
13
úður fulltrúi
Islands í Israei
eftir Pétur Ottesen
í HÓPI margra erlendra gesta,
sem heimsótt hafa landið á þessu
sumri eru hér staddir nú tveir
aufúsugestir frá fjarlægu landi,
landinu helga hinu endurreista
Gyðingaríki í ísrael í austurálfu
iheims. Þessir veglegu gestir, vin-
ir lands vors og þjóðar, eru for-
sætisráðherra ísraels, David Ben-
Gurion og aðalræðismaður ís-
lendinga þar í landi Fritz
Naschits. Báðir eru þeir með
konur sínar auk þess sem nokk-
ur hirð fylgdarmanna er í för
forsætisráðherrans.
Þrátt fyrir þá órafjarlægð sem
skilur lönd vor hvort frá öðru,
og það regin djúp sem tvö heims-
höf, Miðjarðarhafið og Atlants-
hafið staðfesta á þessari leið, hef-
ir á þeim tæpum hálfum öðrum
Frltz Naschitz
áratug sem Gyðingar hafa ráðið
ríkjum í ísrael tekizt að tengja
lönd þessi traustum viðskipta-
og vináttúböndum. Hvor tveggja
(þessi tengsl hafa styrkzt með
hverju árinu sem liðið hefir og
á þessu ári hefst nýr þáttur í
viðskiptum landanna með sölu
saltsíldar til ísrael.
I»á rás viðburðanna sem orðið
hefir í kynnum og samskiptum
þessarra landa nú um skeið má
máske að einhverju leyti rekja
til þess að af sögnum frá dögum
frumkristninnar er landið helga
íslendingum hugstæðara en önn-
ur fjarlæg lönd. En megin
kjarni þessarrar farsælu þróun-
«r er örugglega sá hve heppnir
vér íslendingar vorum þegar í
öndverðu um val á aðalræðis-
manni vorum í ísrael. Fritz
Naschits er sannur íslandsvinur
fram í fingurgóma. Hann hefir
á þessum árum mörgum sinnum
tekizt ferð á hendur til íslands,
Iþessa löngu leið. Hefir hann með
aðlaðandi framkomu sinni komizt
í náin kynni víð margt manna
bér á landi. Og það er næstum
undravert hversu miklum og
staðgóðum fróðleik honum hefir
tekizt að afla sér um land og
Þjóð, menningu vora að fornu og
nýju, atvinnuhætti og auðlindir
vorar bæði í sjó og á landi.
Þennan fróðleik hefir aðalræðis-
maðurinn af mikilli kostgæfni
og alúð kynnt þjóð sinni og notað
til þess hvert tækifæri, meðal
ennars í fjölmennum félagasam-
kvæmum, jafnframt sem hann af
frábærum áhuga og dugnaði
vinnur þrotlaust að auknum við-
ekiptum landanna. í hinum stóru
og vistlegu skrifstofum hans í
Tel-Aviv skipar ísland öndvegi
eð því leyti að þar eru veggir
olsettir málverkum frá íslandi,
sem sum hver eru eftir vora
snjöllustu snillinga á listasviðinu.
Um þetta get ég gerst frá sagt
úr heimsókn minni til ísrael 1959.
Þessi Islandsvinátta aðalræðis-
maimsins, birtist mér þar per-
sónulega í hinni fegurstu mynd.
Ef satt skal segja hafði ég tæp-
ast getað vænzt af útlendingi
slíkrar fyrirgreiðslu sem aðal-
ræðismaðurinn lét mér í té í
þessari ferð minni. Mér mun
seint úr minni líða umhyggja
hans fyrir því og holl ráð að
mér nýttist sem bezt sá stutti
timi sem ég átti kost á að dvelja
í landinu. Hafði ræðismaðurinn
stillt svo til um ferðatilhögun
mína að ég gæti séð sem mest
af hinum fornhelgu stöðum og
byggingum, en jafnframt því
kynnzt nokkuð uppbyggingar-
starfi því sem Gyðingarnir hófu
strax eftir valdatöku sína í
ísrael. Voru þau kynni ærið
lærdómsrík og skír og fagur vott-
ur þess hvers orka má þegar
allir leggjast á eitt.
Ég vil um leið og ég fagna
heimsókn hinna göfugu gesta
vorra frá ísrael, nota tækifærið
og færa aðalræðismanni vorum
í ísrael, Fritz Naschitz, mínar
beztu þakkir fyrir þá gestrisni
og höfðingslund sem hann sýndi
mér er ég var þar á ferð. Um
leið vil ég færa honum þakkir
fyrir allt sem hann, í ræðis-
mannsstarfi sínu, hefir gert og
afrekað fyrir þjóð vora. Þá vil
ég biðja aðalræðismanninn að
færa utanríkisráðherra ísraels,
Golda Meir beztu kveðju mína
og þökk fyrir þá vinsemd og
hugulsemi sem hún sýndi mér
með því að heimsækja mig á
sjúkrabeði mínu á Landsspítal-
anum, er hún var hér í heimsókn
á síðastliðnu sumri.
Línum þessum vil ég Ijúka
með því að óska ísraelsku þjóð-
inni allra heilla og blessunar og
að hún mætti sem fyrst verða
aðnjótandi þess, sem aðalræðis-
maðurinn, er hann kvaddi mig
í Tel-Aviv, sagði að mestu skipti
fyrir framtíð ísraels, það er að
geta samið varanlegan frið við
nágranna sína og öðlast ráð á
nógu vatni úr ánni Jórdan til
þess að breyta Negev eyðimörk-
inni í aldingarð.
Það er ánægjulegt hugðarefni
íslendingum að vita aJS David
Ben-Gurion forsætisráðherra set-
ur með heimsókn sinni innsigli
sitt á þau vináttubönd sem tengja
þjóðir vorar.
Pétur Ottesen.
Gróðurreitir * Fossvogsstöðinni.
Reykvíkingum geíst kostur á að
skoða skógræktar-
stöðina í Fossvogi
Þar eru nú framleiddax ruml, 3000
skógarplöntur árlega
í DAG og á morgun verður
Skógræktarstöð Skógræktar-
félags Reykjavíkur opin al-
menningi til sýnis og
gefst borgarbúum þá kostur
að kynna sér starfsemi stöðv-
arinnar og félagsmenn, sem
alls eru 1800 talsins, fá tæki-
færi til þess að sjá árangur
þann og starf er þessi af-
kastamikla skógræktarstöð
þeirra hefur náð.
Formaður Skógræktarfélags
Reykjavíkur er Guðmundur
Marteinsson, verkfræðingur.
Fréttamenn blaðsins gengu í
gær um skógræktarstöðina með
Einari G. E. Sæmundsen, skóg-
arverði og framkvæmdastjóra
stöðvarinnar. í stöðinni eru ár-
lega framleiddar talsvert á 4.
þúsund trjáplöntur til skóg-
ræktar, einnig er alið upp
nokkuð af garðplöntum, en þær
verða talsvert eidri í stöðinni.
Skógarplönturnar eru afhentar
4 ára gamlar. Það er ótrúlega
mil ið og margvíslegt starf, sem
vinna þarf áður en hægt er að
taka plönturna og flytja hana
til þess staðar er hún í framtíð-
inni á að vaxa upp sem skógar-
tré. Fyrst er sáð til hennar í
gróðurreiti, Sem klæddir eru gleri
fyrsta árið og annað árið einnig,
ef eitthvað er að veðri. Síðan
eru plönturnar teknar úr reit-
unum og þær dreifsettar í beð
þar sem þær alast upp næstu
tvö árin. Þá eru þær taldar
hafa fengið það fóstur, er til
þarf svo þær geti hafið barátt-
una fyrir tilverunni úti í skógi
eða gróðurreit, hvort sem það
heitir Heiðmörk, Þórdísarlund-
ur eða Vaglaskógur, svo dæmi
séu nefnd.
Mest fer í Heiðmörk
Meginhlutverk Skógræktar-
stöðvarinnar í Fossvogi hefur
verið framleiðsla plantna í
Heiðmörk. Auk þess selur stöð-
in nokkuð af plöntum í reiti og
skóga hér í nágrenninu og að
síðustu geta einstaklingar keypt
þarna tré í garðana sina.
Fyrst skoðum við reitina sem
eru undir gleri og fallegar stúlk-
ur ganga út í hann, svo við sjá-
um á mynd samanburðinn. Síð-
an höldum við áfram til annars
árgangs. í leiðinni fræðumst við
um hvernig skjólbelti verða til.
Þegar starf hófst í skógræktar-
stöðinni var þarna bérangurs-
mýri án alls ræktunargróðurs.
Fyrstu skjólbeltin voru gróður-
sett 1937, en frágangssök. var að
hefja plöntuuppeldi á þessum
stað fyrr en skjól var fengið.
Aðalskjólbeltin, sem eru kring-
um fyrsta-ársreitina nú, eru frá
1950.
— Hér hófst ekki stórfram-
leiðsla á plöntum fyrr en 1947.
Fyrir þann tíma gekk allt frem-
ur hægt hér í stöðinni sakir
fjárskorts og fátæktar, sagði
Einar.
— Hér vinna 25—30 stúlkur
á vorin í einn og hálfan mánuð
og 10 karlmenn sama tíma, en
aðra tíma ársins eru 6—8 stúlk-
ur og 2—3 karlmenn.
Við skoðum nú fallegt skjól-
belti, sem er komið vel á veg.
Það er gróðursett 1958, yzt í því
er viðja, sem er fljótsprottin og
harðgerð skjóljurt, sem hlífir
greninu meðan það er a.ð ná sér
á strik, en í framtíðinni er það
grenið, sem hið fullkomna skjól
á að veita. Innst er birki, en
notkun þess í skjólbelti fer
minnkandi, enda er það of dýr
jurt til slíks.
Uppruninn mikilsverður
Hér og hvar sjáum við greni-
tré á ýmsum aldri og heyrum
sögu þeirra. Mikilsvert er að
uppruni trjánna sé heppilegur
fyrir okkar aðstæður. Þau, sem
eru af suðlægum uppruna, þola
veruna hér mun ver, þau kelur I
toppinn og ná því seint þroska.
Athyglisvert er hve þessir inn-
flytjendur, sem af norðlægum
slóðum koma, una sér hér vel
og ná góðum og skjótum þroska.
Til samanburðar sáum við birki
úr Bæjarstaðaskógi, sem gróður-
sett var 1935 og var 10 árum
eldra en sitkagreni við hliðina.
Að vísu hafði það skýlt inn-
flytjar.danum, en hann var nú
orðinn miklum mun stærri og
meiri á allan veg. Að vísu hefur
birkiskógurinn sinn sjarma, sem
greniskógurinn aldrei fær.
En allt þetta gefst Reykvík-
ingum kostur að skoða í dag og
á morgun frá kl. 2—7 síðdegi3
báða dagana undir leiðsögn
þeirra, sem þarna erú kunnugir.
í Fossvogsstöðinni.
Handtekinn
fyrir njósnir
LONDON 13. sept. (NTB) wíuí-
am Vassel, 38 ára Breti, skrif-
stofumaður í brezka flotamála-
ráðuneytinu var í dag hand-
tekinn, grunaður um njósnir.
★
Kæran á hendur Vassel segir,
að hann hafi, á tímabilinu frá
18. ágúst til 11. sept sl. tekið
afrit af leynilegum upplýsingum
> sem gætu orðið gagnlegar fyrir