Morgunblaðið - 06.04.1963, Síða 3
MORCUIS BI. AÐIÐ
Laugardagur 6. ápríl 1963
HÉR birtum við 3 myndir af
h'afnarfra'mk.'væmduim á Reyð-
arfirði, sem nú eru í fullum
gangi. Myndirnar tók Aroþóir
Þórólfsson á Reyðarfirði og
hann veibti Mlbl. einnig eftir-
farandi upplýsingar:
Um mánaðamótin janúar—
febrúar var byrjað á hafnar-
framkvæimdum hér á Reyðar-
firði. Má með sanni segja að
þar með sé draumur Reyðfirð
inga að verða að veruleika,
en þetta hefur verið þeirra
aðaláihugaraái undanfarin ár.
Allt efni til hafnargerðarinn-
ar var löngu komið hingað
og búið að liggja hér um eitt
ár, en framikvsemdir gátu
ekiki hafizt fyrr vegna fjár-
Þeir byggja höfn á Reyðarfirði
Óhætt er að fullyrða að
verk þetta hefur gengið sér-
lega vel siðan það var hafið,
enda mun hin hagstæða veðr-
átta, sem hér hefur rikt, átt
sinn þátt í því. Framkvæmd-
ir þessar eru á vegum vita-
xnálaskrifstofunnar og hrepps-
ins hér. Við þær vinna yfir
20 manns, þar af 6 frá vita-
málaskrifstofunni. Yfirverk-
fræðingur er f»ór Aðalsteins-
son og yfirverkstjóri Sverrir
Bj arnason.
Oft hefur verið rætt og rit-
að urn umskipunarhöfn fyrir
vörur til Austurlands,
sem aðra fjórðunga, og kæmu
þá skipin beint frá útlöndum,
eins og algengt var hér áður
fyrr. Þetta er hagsmunarnál
allra sem ber að stefna að.
Reyðarfjörður hefur oft
verið þar til nefndur legu
sinnar vegna. Með tilkomu
þessarar nýju hafnar ættu
möguleikarnir á að það gæti
orðið, að aukast og yrði ekiki
eingöngu hagsmunamál okikar
Reyðfirðinga heldur og allra
Austfirðinga. — A.Þ.
Full aðild kom
aldrei til greina
skorts, sem nú hefur verið
séð borgið, eftir því sem ég
beat veit.
Verk þetta er allmikið og
er áætlaður kostnaður um 8
millj. krónur. Byrjað var á
uppgreftrinum í febrúar s.l.
og annast hann 40 lesta Lora-
in-krani frá vitamiáiaskrifstof-
uinni. Afkastar hann mjög
miklu, enda hefur reynzt sér-
lega gott að grafa og flýtir það
mjög fyrir verkinu. Áætlað
er að úppgröftur nemi um 45
þús. kúbimetrum. Skapar all-
ur þessi uppgröftux mikið
landsvæði og verður því mik
ið og gott athafnasvæði í kring
um nýju höfnina.
Aðalmannvirkið 1 þessari
nýju hafnargerð er sbáiþiil,
sem rarnmað er niður og hófst
vinna um miðjan marz sl. og
hefur hún gengið mjög vel.
Við niðurrömmunina er notað
ur 16 lesta H.P-krani, einnig
frá vitamálaskrifstofunni.
Hafnarbryggja sú, sem hér
er í smáðum er að lögun lík
stafnum L og viðlegupláss við
hana aJls 250 m. Óvist er hve-
naer þessum framikvæmdum
verður lokið, en allt bendir
til að það verði um mánaða-
mótin maí—júná.
Á FUNDI neðri deildar Alþingis
í gær vakti Eysteinn Jónsson enn
umræður um efnahagsbandalags-
málið. Kom þar ekkert nýtt fram,
aðeins endurtekið það, sem áður
hafði verið sagt.
Við umræðurnar hefur Þórar-
inn Þórarinsson vitnað til þess,
að í skýrslum Evrópuráðs hefði
staðið, að ýmislegt benti til, að
íslenzka ríkisstjórnin sækti um
fulla aðild að Efnahagsbandalag-
inu. Af þessu tilefni undirstrik-
aði Gylfi Þ. Gíslason viðskipta-
málaráðherra og lýsti yfir, að
ekki væri fótur fyrir þessum um
mælum, enda væru þau alröng.
Höfundur þeirra hefði hvorki
haft samband við neinn emhætt
ismenn hér á landi né við ríkis
stjórnina, enda væru þessar
skýrslur eins konar fréttabréf
Evrópuráðs og algengt erlendis,
að rangar fréttir birtust. Kvaðst
ráðherrann því furðulegt, að jafn
reyndur blaðamaður og ÞÞ skuli
vitna í ummæli erlendra blaða-
manna sem óyggjandi sönnun
þvert ofan í ítrekaðar yfirlýs
ingar ríkisstjórnarinnar.
í haustskógi“
Siglfirðingur, blað Sjálfstæðis-
manna á Siglufirði, birtir ný-
lega forystugrein um stjórnmála-
viðhorfin uhdir þessari fyrirsögn.
Lýkur henni með þessum orðum:
,t komandi .kosningum velur
þjóðin milli núverandi stjórnar-
stefnu eða samstjórnar Fram-
sóknarmanna og kommúnista.
Hvert atkvæði, sem Framsóknar-
flokknum er greitt, er því hlið-
hylli við kommúnista, viðleitni
í þá átt að þeir fái ráðherradóm
yfir velferðarmálum þjóðarinn-
ar. Það er vert að íhuga þesst
mál í ljósi þeirra staðreynda, að
kommúnistar gerðu nýlega_brott-
rækan úr flokki sínum mann,
eftir að hann hafði neitað að
taka að sér rússneskar njósnir
á fslandi, er beinast áttu að varn
arstöð NATO á Keflavíkurflug-
velli, Loranstöð varnarliðsins og
fl. Samstarf Framsóknar og
kommúnista innan verkalýðs-
féla,ga, í sveitarstjórnum og mál-
efnaieg samstaða Tímans og
Þjóðviljans, er hættumerki, vís-
ir þess sem að er stefnt, og það
er þjóðarinnar að fyrirbyggja
vá þá, sem augljós ætti að vera
hverjum manni.
íslenzka þjóðin verður að
setja metnað sinn í það að mæta
kommúnistaþjónkun Framsókn-
arflokksins með einu, láta fram-
bjóðendur hans verða sem „hrun
gjöm lauf í haustskógi," þó að
vori sé kosið. Það fer vel á því
að þjóðin glöggvi sig á þeim
afturhaldsfugli, sem er dæmi-
gerður í FramsóknarfIokknum.“
Framsókn ræðst
á sparifjáreigendur
Framsóknarflokkurinn hefur
undanfarin ár verið í stöðugu
stríði við sparifjáreigendur í
landinu. Árásir Framsóknar-
mann á sparifjáreigendur birtast
m. a. í baráttu flokks þeirra
fyrir verðbólgustefnunni, sem si-
fellt hefur verið að gera islenzka
krónu verðminni og skerða hags
muni þess fólks i Iandinu, sem
hefur viljað spara og leggja fyrir
af tekjum sínum. í öðru lagi hef-
ur fjandskapur Framsóknar-
flokksins við sparifjáreigendur
komið fram i því, að hann hefur
hamast gegn viðreisnarráðstöf-
unum núverandi ríkisstjómar,
sem allae hafa beinzt að því að
skapa jafnvægi í efnahagsmáium
Iandsmanna, tryggja grundvöll
íslenzkrar krónu og bæta þar
með aðstöðu sparifjáreigenda og
annarra landsmanna. Nú síðast
hafa Framsóknarmenn lagt á-
herzlu á það, að vextir verði
Iækkaðir.
FjÖregg Þjóðvarnar
Alþýðublaðið ræðir í gær í
forystugrein sinni samninga þá,
sem undanfarið hafa staðið yfir
milli Þjóðvamarflokksns og
kommúnista um sameiginlegt
framboð undir merki hins svo-
kallaða „Alþýðubandalags“. —
Bendir blaðið á, að mismunur-
inn á Þjóðvamarmönnum og
kommúnistum á undanfömum
árum hafi verið sá, að þótt báðir
hafi verið fylgjandi hlutleysi og
varnarleysi íslands, þá hafi þó
Þjóðvamarmenn talið sig lýð-
ræðissinna en kommúnistar séu
eins og kunnugt er hinir verstu
einræðisseggir. Síðan kemst
blaðið m. a. að orði á þessa leið:
„Nú gerast þau tíðindi, að
fjöreggið er brotið. Þjóðvarnar-
menn ganga til samstarfs við
eina flokkinn, sem þeir máttu
aldrei sameinast, ef þeir vildu
halda sjálfstæðri tilveru. Árang-
urinn getur aðeins orðið sá einn,
að mismunur milli Þjóðvarnar-
manna og kommúnista gleymist.
Þeir Gils og Bergur munu fest-
ast í neti kommúnista eins og
Hannibal og ekki framar geta
rekið sjálfstæða pólitík.“