Morgunblaðið - 15.09.1963, Qupperneq 1
^4 síður og Lesbök
áO árgangur 199. tbl. — Sunnudagur 15. september 1963 PrentsmiSja Morgunbiaðsins
Dagskrá heim-
sóknarinnar
HÉR FER á eftir dagskrá
heimsóknar varaforseta
Bandaríkjanna, Lyndon
B. Johnson, frú Johnson
og dóttur þeirra hjóna, á
morgun, mánudaginn 16.
september:
9:30 Komlð 'til Kcflavíkurflug-
vallar frá Danmörku. Þar
taka á móti varaforsetanum
utanríkisráðherra og frú,
fyi-ir hönd íslenzku ríkis-
stjórnarinnar.
9:50 Flogið frá Keflavík til Bessa-
staða með þyrlum.
10:15 Komið til Bessastaða.
10:40 Varaforsetinn fer frá Bessa-
stöðum í bifreið til Reykja-
víkur og ekur beint í
Stjórnarráðið. Kona varafor-
setans ekur í ameríska
sendiráðið, og dóttirin ekur
að Hótel Sögu.
11:00 Varaforsetinn kemur í Stjórn
arráðið og heilsar þar for-
sætisráðherra og öðrum ráð-
herrum.
11:45 Heimsókninni í Stjórnar-
ráðið lokið. Að heimsókn-
inni í Stjórnarráðið lokinni
er gert ráð fyrir, að vara-
forsetinn aki fram hjá Leifs-
styttunni, á leið sinni að
Hótel Sögu.
12:30 -Hádegisverður í boði for-
setáhjónanna í Hótel Sögu.
14:30 Hádegisverði lokið.
14:45 Lagt af stað til Þingvalla
með þyrlu frá Melavellinum.
15:00 Komið til Þingvalla. Á Þing-
völlum flytur dr. Kristján
Eldjárn stutt ávarp.
15:15 Flogið frá Þingvöllum með
þyrlu.
15:30 Lent á Melavellinum.
15:35 Komið til Hótei Sögu.
15:35—16:25 Hvíld.
16:50 Heimsókn í Háskóla íslands.
17:10 Komið í Háskólabíó.
17:15 Varaforsetinn flytur ávarp í
Háskólabíó.
17:45—18:00 Viðtöl við fundarmenn
í Háskólabió.
18j00 Komið að Hótel Sögu.
19:25 Frá Hótel Sögu.
19:30 Kvöldverður forsætisráð-
herra að Hótel Borg.
21:30—22:00 Kvöldverðarboðd lýk-
ur.
22:00 Brottför frá Reykjavíkur-
ílugvelli.
FRÚ JOHNSON:
10:40—11:00 Þegar varaforsetinn
fer í Stjórnarráðið frá Bessa-
stöðum, er gert ráð fyrir, að
frúin aki beint í ameríska
sendiráðið frá Bessastöðum,
þar sem ambassadorsfrúin
hefur kaffidrykkju kl. 11:00.
11:45 Frá ameríska sendiráðinu að
Hótel Sögu.
14:30 Frá Hótel Sögu að Árbæjar-
safni.
14:40 Komið að Árbæ.
15:15 Frá Árbæ að Blikastöðum.
15:30 Komið til Blikastaða. Að
Blikastöðum verður drukkið
kaffi og bærinn skoðaður.
16:40 Frá Blikastöðum.
17:10 Komið í Háskólabíó
Að öðru leyti sama áætlun
og hjá varaforsetanum.
10:40
•
11:25
12:15
12:50
13:00
14:30
14:40
15:15
18:30
19:30
UNGFRÚ LYNDA BIRD
JOHNSON.
Ungfrú Lynda Bird Johnson
ekur frá Bessastöðum að
Hótel Sögu.
Farið að Sundlaug Vestur-
bæjar frá Hótel Sögu.
Frá Sundlaug Vesturbæjar
að Hótel Sögu.
Frá Hótel Sögu.
Heldur ungfrú Johnson há-
degisverð í Þjóðleikhúskjall-
aranum fyrir hina svonefndu
„Field stúdenta.**
Frá Þjóðleikhúsi að Árbæj-
arsafni.
Komið að Árbæ.
Frá Árbæ. Síðan ökuferð um
Reykjavík og nágrenni.
Viðt' -’ið stúdenta í Háskóla
ísl; <s.
Ko. .i*> að Hótel Sögu.
Kvöldverður í Nausti á veg-
um Varðbergs.
Að öðru leyti sama áætlun
og hjá varaforsetanum.
Bandarísk kona ól
fimmbura í ndtt
— önnur fimmbuxafæðingin á viku
Aberdeen, Mississippi,
14. september. — AP.
* BANDARÍSK kona, fæddi
í nótt fimmbura, fjórar telp-
ur og einn dreng. Fæddust
börnin tveim mánuðum fyrir
tímann, en samkvæmt upp-
lýsingum lækna sjúkrahúss-
Mikill meiri hluti í N-Borneo
og 6 af hverium 10 i Sarowak
fylgjandi aðild að Hialaysíurikjasambandinu
14. september. — AP
MIKILL meirihluti íbúa
brezku nýlendunnar Norður-
Borneo og u.þ.b. sex af hverj-
um tíu íbúum nýlendunnar
Sarawak eru fylgjandi sam-
vinnu við Malaya og Singa-
pore um myndun ríkjasam-
bandsins Malaysíu — að því
er segir í skýrslu sendinefnd-
ar Sameinuðu þjóðanna, sem
birt var í aðalstöðvum sam-
takanna í New York í dag.
ins í borginni, þar sem börn-
in fæddust, líður þeim og
móðurinni vel. Þetta er önn-
ur fimmburafæðingin á einni
viku — hin varð sem kunn-
ugt er í Venezuela í S-
Ameríku.
Móðirin bandaríska, frú And-
rew Fischer, á fyrir fimm börn
með manni sinum. Haft er eftir
þeim, að fæðing fimmburanna
komi til með að skapa þeim
ýmis vandamál.
Að sögn lækna gekk fæðingin
með eðlilegum hætti og tók að-
eins hálfa aðra klukkustund.
— O —
Fimmburar fæddust síðast í
Bandaríkjunum 20. október 1959,
allt telpur, en þær létust allar
innan sólarhrings frá fæðing-
unni. Þar áður höfðu tvívegis
fæðzt fimmburar í Bandaríkj-
unum, í báðum tilfellum dreng-
ir en þeir lifðu aðeins skamma
hríð.
Varaforsetahjón Bandaríkj-
anna Lady Bird og Lyndon
B. Johnson ásamt dætrum sín
um Lyndu Bird og Lucy
Baines, við búgarð fjölskyld-
unnar í Texas. Eins og kunn-
ugt er, eru hjónin væntan-
leg hingað til lands á morg-
un. (Sjá grein á bls. 10).
1.
■
Fundur-
inn í Há-
skólabíói
Á MÁNUDAG kl. 17.10 mun
varaforseti Bandaríkjanna,
Xyndon B. Johnson, halda
ræðu í Háskólabíói.
Fundurinn er haldinn á veg
um þriggja félaga. Þau eru:
Varðberg, Samtök um vest-
ræna samvinnu og íslenzk-
ameríska félagið. í upphafi
fundarins mun Ármann Snæv
arr, rektor Háskóla íslands,
Íkynna varaforsetann.
Allir eru velkomnir á fund
inn, meðan húsrúm leyfir, en
fólki er ráðlagt að koma tínr
anlega, ef það ætlar að fá
sæti. Gjallarhornum verður
komið fyrir utan hússins.
‘
4 gegn 0
B R ET A R unnu íslendinga í
knattspyrnu í Lundúnum í
gær með 4—0. Eru þá Xslend-
I ingar úr Olympíukeppninni
| með 10 mörkum gegn 0.
— Við verðum að sætta okk
ur við að knattspyrnumenn
i okkar eru bara ekki betri en
þetta, sagði Helgi Eysteins-
J son í viðtali við Mbl.
Bretarnir léku lengst af 10
| á vellinum og um tíma 9. H.
| innh. Lindsay brotnaði á fæti
I snemma í leiknum og enginn
I varamaður má koma inn á. —
Eftir hálftíma meiddist ann-
ar, en kom inn á aftur í leik-
hléi, en meiddist síðar aftur
og voru Bretar þá 9.
Bvriunin var bezti kafli ísl.
liðsins og aftasta vörnin stóð
sig bezt. Framlínan var afar
slöpp en þar var Axel Axels-
son bezti maðurinn.
f hálfleik stóð 2—0. Fyrsta
markið kom nokkuð snemma
úr hornspyrnu. Síðan fengu
Bretar vítaspyrnu, sem var
harður og vafasamur dómur
á Hörð Felixsson. í síðari hálf
leik kom klaufalegt mark og
lokin urðu 4—0.
Skýrsla nefndarinnar er mjög
ýtarleg, 98 bls. í 246 liðum.
Kveðst nefndin hafa komizt
að þeirri niðurstöðu eftir víð-
tækar og mjög nákvæmar yfir-
heyrzlur, að kosningarnar hafi
farið réttilega fram að öllu leyti,
svo og talning atkvæða. í Norð-
ur Borneo hafi mikill meirihluti
kjósenda verið fylgjandi aðild
að ríkjasambandinu, enda hafi sú
afstaða komið mjög glögglega
fram við skoðanakönnun nefnd-
arinnar. í Sarawak sé stuðning-
ur við ríkjasambandið heldur
minni, eða um það bil 61%.
22,2% íbúanna munu vera aðild-
inni andvígir en óvííú er um
afstöðu 16,8%.
Páfi vill efla einingu
við játendur annarra trúarbragða
Páfagarði, 14. sept. AP.
PÁLL páfi VI hefur ákve'ðið, að
sú nefnd Páfastóls, sem hefur á
hendi undirbúning viðræðna á
kirkjuþinginu, — sem hefst að
nýju 27. sept., — um sameiningu
kristinna trúarhreyfinga, skuli
víkka út starfssvið sitt með það
fyrir augum, að sameiningin nái
einnig til trúarhreyfinga er ek'ki
játa kristna trú.
Ákvörðun páfa var tilkynnt
opinberlega í Páfagarði í dag
og jafnframt birt bréf frá Páfa
til franska kardinálans, Eguenc
Tisserant. Þar segir páfi m. a
að sér virðist tímabært, að „eir
ingarráð kristinna manna“, sen
er undir forsæti Bea, kardmála
hafi einnig í huga að efla ein
ingu með kristnum mönnum o|
játendum annarra trúarbragðr
Er skilið af tilkynningu páfa
garðs, að páfi muni einkur
ætlast til þess, að komið verí
á nánari tengzlum við játendu
Múhameðstrúar, Búddatrúar o
Gyðingatrúar.