Morgunblaðið - 15.09.1963, Qupperneq 6
6
MORCUN BLAÐIÐ
Sunnudagur 15. sept. 1963
..með kvöldkaffinu
ÞEGAR ÞÉR gistið i Kaup-
mannahöfn, getið þér lesið
Morgunblaðið samdægUrs, —
með kvöldkaffinu í stórborg-
inní.
FAXAR Flugfélags íslands
flytja blaðið daglega cg það
er komið samdægurs i blaða-
söluturninn í aðaljárabrautar-
stöðinni við Ráðhústorgið —
Ifovedbanegardens Aviskiosk.
FÁTT er ánægjule.gra en að
lesa nýtt Morgunblað, þegar
verið er á ferðalagi vtra eða
dvalizt þar.
ÞESSI fallega mynd birtist af
Geraldine Chaplin í brezku blaði
nýlega, en hún stundar ballett-
nám í London eins og kunnugt
er. í blaðinu var rætt um hina
sérkennilegu hárgreiðslu ung-
frúarinnar og smekklega andlits-
snyrtingu. Geraldine er með
mittissítt slétt hár, sem hún vef-
ur í hnút í skólanum og heima,
en lætur falla niður um herð-
arnar, þegar hún sýnir sig á
mannamótum. Samkvæmt upp-
lýsingum blaðsins notar hún eng-
in snyrtilyf nema sápu og vatn,
og ber stundum fölan varalit á
varir sér að kvöldlagi.
Ljósmyndarinn var ánægður,
þegar ríkasti maður Frakklands,
Rothsohild barón, fór allt í einu
að dansa skringilega, nýtízku
dans sem nefnist Hull-Gully, á
dansleik í Deauville. Að sjálf-
sögðu tók hann margar myndir
af baróninum undir þessum kring
umstæðum, sem síðast birtist í
fjölmörgum blöðum víða um
heim. Dansfélagi barónsins er
ónafngreindur danskennari.
★
JOHN Profumo, fyrrverandi
varnarmálaráðherra Englands,
hugðist kaupa sér landsetur á ír-
landi, skammt frá Dublin. Hann
fór þangað til að semja um
kaupverðið. Eigandinn vildi fá
um 600 þúsund krónur
en Profumo bauð 550. En það
spurðist fljótlega hver þarna
væri á ferð. Eigandinn var þá
ekki lertgi að hækka verðið um
50 þús. krónur. — Það er ekki
sama Jón og sr. Jón.
★
f FYRRADAG var barnabarni
Svan Engwall, hins þekkta kaffi
kóngi í Svíþjóð, rænt en skilað
aftur eftir átta klukkustundir
gegn um 120 þús. kr. lausnar-
gjaldi.
Þetta er í fyrsta skipti sem
jafn alvarlegt barnsrán er fram-
ið í Svíþjóð og leitar nú lög-
reglan að þeim seku. Málsatvik
eru þessi í stuttu máli:
— Marie Engwall, 8 ára göm-
ul, var á leið í skóki í heimabæ
sinum Gavle. Hún er dóttir
Jacobs Engwall, forstjóra, ein
af fjórum börnum. Jacob er son-
ur Svan Engwall, sem gengur
undir nafninu „kaffikóngur Sví-
þjóðar."
Skammt frá heimili Marie
stanzaði hvítur SAAB-fólksbif-
reið. Við stýrið sat maður um
þrítugt og ljóshærð stúlka við
hlið hans. Þau buðu Marie að
ganga inn í bílinn. Það hafði
áður verið ákveðið, að bekkur
Marie færi í skógarferð umrædd-
an dag, og skötuhjúin kváðust
vera að sækja alla skólafélag-
ana. a
Eftir að Marie var komin upp
í bílinn, kölluðu þau faðir henn-
ar upp í talstöð og sögðu honum
að skilja eftir áðurnefnda upp-
hæð á salerni í litlu veitingahúsi
í Gávle. Hann hélt fyrst að þetta
væri spaug og komst fljótlega
að raun um að alvara var á
ferðum. Hann afhenti lausnar-
féð um 6-leytið um kvöldið og
stuttu seinna kom Marie heim
í leigubifreið. Lögreglunni var
gert viðvart, en leitin hefur enn
ekki borið árangur.
Marie getur aðeins gefið óljósa
lýsingu á skötuhjúunum í bíln-
um, en segir að þau hafi verið
sér góð, og sýnt henni dýragarð
í nærliggjandi borg.
í fréttunum
^ Birting á nöfnum
afbrotamanna
„Áhyggjufull móðir“ skrif
ar:
„Kæri Velvakandi!
Eg hugsa, að flesta hafi hryllt
við að lesa um þessa svívirði-
legu árás, sem gerð var á 15
ára telpu í Hljómskálagarðin-
um fyrir skömmu. Það var á-
gætt, hve fljótt tókst að hafa
upp á afbrotamönnunum, en
ég á ekki orð til að lýsa undr
un minni yfir því, að eklá
skyldi einu sinni birt nöfn
þeirra og heimilisföng. Mér
finnst það lágmarkskrafa, og
veit ég, að ég mæli þar fyrir
munn margra foreldra. Eins
ætti tafarlaust að birta myndir
af þeim, svo að ungar stúlkur
gætu varað sig á þessum glæpa
mönnum. Eg veit, að t.d. 1
Bandaríkjunum er svona glæp-
ur talinn næst morði, en hér
virðist þessum mönnum hlift
af einhverjum óskiljanlegum á
stæðurti, enda virðist fólk varla
óhult á götum úti að kvöldlagi
fyrir árásum og öðru verra.
Eg vona, Velvakandi góður,
að þú birtir þessi orð mín, ef
það skyldi verða til þess, að
viðkomandi yfirvöid áttuðu
sig á því að með þessu er verið
að stofna lífshamingju dætra
okkar í voða.
— Áhyggjufull móðir“.
♦ Föðurætt
Benedikts Gröndals
„Forvitinn“ skrifar: —
Velvakandi.
Eg beið með nokkurri eftir-
væntingu eftir erindi Óskars
Clausens í útvarpinu um snilii
gáfu Benedikts Gröndals. En
það verð ég að segja, að ég
varð fyrir nokkrum vonbrigð-
um. Clausen rakti vandlega ætt
erni móður hans og sagði frá
öllum snillingum þeirrar ættar
af mikilli nákvæmni, og mætti
kannski segja, að Benedikt
hefði nægt þær erfðir. Aðeins
lauslega minntist Clausen á
föður Gröndals, Sveinbjörn, og
nefndi hann mikinn snilling,
og um það eru víst allir sam-
mála, að hann var mæta vel
gáfaður. En eftir kenningum
Clausens hefur hann naumast
orðið mikið snilldarmenni af
sjálfum sér. Það efni taldi
Clausen þó ekki ástæðu til að
ræða um, enda varla að vænta
þess, svo starsýnt hefur honum
Bjarni
Þóroddsson
sextugur
60 ÁRA er í dag (15. sept.) Bjarni
Þóroddsson, póstafgreiðslumaður.
Bjarni er fæddur í Reykjavík
sonur hjónanna Guðjóníu Bjarna
dóttur og Þórodds Bjarnasonar,
sem var einn af fyrstu bréfberum
Reykjavíkurbæjar.
Flestir Reykvíkingar kannast
við Bjarna póst, og þekkja hann
sem góðan og ráðvandan mann.
Hann er uppalinn í Guðhræðslu
og góðum siðum. Á bernskuheim-
ili hans var orð Guðs í hávegum
haft og þar lærðu börnin að
spenna greipar til bæna og þeg-
ar í æsku að treysa Drottni. Á
unga aldri komst hann svo til lif
andi trúar og gerðist hermaður
í Hjálpræðishernum.
Bjarni er söngelskur maður og
hefur í mörg ár verið lúðrasveit
arstjóri í Hjálpræðishernum og
það starf hefur hann unnið með
mikilli prýði.
Bjarni er kvæntur Kristínu
Bjarnadóttur ágætiskonu og eiga
þau indælt heimili að Blönduhlíð
3. Þau eiga tvö uppkomin börn
og barnabörn, sem eru augastein
arnir hans afa. Eg sem þessar
línur rita óska Bjarna hjartan-
lega til hamingju með 60 ára af
mælið og óska honum Guðs bless
unar í framtíðinni, vitandi að. náð
Guðs er ný á degi hverjum og
nægir allt til hinnstu stundar.
Samherji.
Nœr öll
verkin seld
Málverkasýning Jes Einars Þor
steinssonar, sem staðið hefur i
Ásmundarsal undanfarna daga,
lýkur á sunnudagskvöld.
Aðsókn hefur verið góð, og eru
flest verkin þegar seld.
Alls eru á sýningu Jes Einars
um 20 olíumálverk, og eru 16
þeirra seld. Allar vatnslitamynd
:r eru einnig seldar, svo og teikn
ingar.
Sýningin er opin frá kl. 14:00
til 22:00 daglega.
orðið á hina ættina. Uppeldi
minntist hann ekki á, nema að
litlu lej* og þá óbeint. En
hvaðan var Sveinbjörn Egils-
son og hvernig voru forfeður
hans gefnir? Clausen ætti nú
að taka sig til og rannsaka það
mál, því að naumast er það ó-
merkilegra viðfangsefni en það,
sem hann hefur þegar gert skiL
Og mér virðist að spurning-
unni sé ekki svarað fyrri en
rannsakaðar hafa verið erfðir
úr báðum ættum.
í Dægradvöl segir Benedikt
um Ólaf, frænda sinn í Innri
Njarðvík, — þeir voru að öðr
um og þriðja, — afkomendur
bræðranna Egils og Ásbjörns i
Njarðvík, að hann hafi verið
drátthagur maður. Það væri þvi
ekki ósennilegt, að eitthvert
brot af handlagni Benedikts
hefði verið úr föðurættinni.
— Forvitinn“.
— Velvakandi birtir bréfið,
án þess að dæma um réttmæti
þess, en heimilt er Oskari
Clausen, hinum margfróða
fræðaþuli, að svara „forvitn-
um“.