Morgunblaðið - 15.09.1963, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 15. sept. 1963
Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjariíason frá Vigur
Matthias Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arm Garðar Kristinsson.
Otbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Að^lstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 80.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 4.00 eintakib.
HEIMSÖKN
LYNDON B. JOHNSON
T yndon B. Johnson, varafor-
seti Bandaríkjanna, kem-
ur hingað til íslands í opin-
bera heimssókn á morgun
ásamt fjölskyldu sinni. Hann
hefur undanfarið heimsótt
hin Norðurlöndiin og hvar-
vetna verið ágætlega fagnað.
Varaforsetinn kemur í senn
sem persónulegur sendimað-
ur John F. Kennedys Banda-
ríkjaforseta og fulltrúi banda
rísku þjóðarinnar, fjölmenn-
ustu og þróttmestu lýðræðis-
þjóðar heimsins.
Lyndon B. Johnson hefur
um langt skeið verið einn af
þekktustu stjórnmálamönn-
um Bandaríkjanna. Hann hef-
ur verið leiðtogi Demókrata-
flokksins í öldungadeildinni
og átt þar sæti síðan árið 1948.
Aðeins 44 ára gamall varð
hann leiðtogi demókrata í
deildinni. Um hann hafa oft
staðið stríðir stormar, en
þrátt fyrir það nýtur hann al-
mennrar'viðurkenningar sem
mikilhæfur og hygginn stjórn
málamaður.
Það er vissulega mikils
virði að Bandaríkin, forystu-
ríki og brjóstvörn hins frjálsa
heims, skuli njóta forystu og
leiðsagnar mikilhæfra og
framsýnna stjórnmálamanna.
Það er á Bandaríkjunum, sem
öldur ofbeldis og einræðis
hafa brotnað um langan ald-
ur. Á tæpum 50 árum hafa
Bandaríki Norður-Ameríku
tvisvar bjargað Evrópu frá
því að verða einræði og of-
beldi að bráð. í dag eru það
.enn Bandaríkin, sem standa
trúan vörð um frelsi og mann
helgi í heiminum.
Þáttur Bandaríkjamanna í
uppbyggingu Evrópu eftir síð
ari heimsstyrjöldina er ekki
síður eftirminnilegur. Aldrei
hefur nokkur þjóð lagt önnur
eins ógrynni af fjármagni og
hvers konar verðmætum fram
til fjölþættrar uppbyggingar
og mannúðarstarfsemi og
bandaríska þjóðin sl. 18 ár.
Þetta óhemju fjármagn, sem
Bandaríkjamenn hafa veitt til
hjálpar Evrópu á ríkan þátt
í því að rjúkandi rústum var
á örskömmum tíma breytt á
ný í blómlega byggð, starf-
andi og hamingjusams fólks.
Það voru enn Bandaríkin,
sem stöðvuðu framsókn hins
alþjóðlega kommúnisma vest-
ur á bóginn með náinni sam-
vinnu við aðrar vestrænar
lýðræðisþjóðir.
Fyrir allt þetta standa Ev-
rópubúar, og raunar frjálsir
menn um allan heim í mikilli
þakkarskuld við bandarísku
þjóðina og leiðtoga hennar.
íslendingar fagna Lyndon
B. Johnson, varaforseta
Bandaríkjanna, og bjóða
hann velkominn til lands síns.
Milli íslands og Bandaríkj-
anna hefur jafnan ríkt góð
vinátta. Bandaríkin hafa sýnt
íslendingum margvíslega vel-
vild og veitt íslenzku þjóð-
inni ómetanlegan stuðning.
Bandaríkin urðu fyrst stór-
velda til þess að viðurkenna
hið nýstofnaða lýðveldi á ís-
landi og hafa síðan veitt ís-
landi stórfelldan stuðning í
baráttu þjóðar þess fyrir
efnahagslegu og pólitísku ör-
yggi og sjálfstæði. Yfirgnæf-
andi meirihluti íslenzku þjóð-
arinnar lítur á Bandaríkin
sem brjóstvörn frelsis og
mannhelgi í heiminum. Þess
vegna mætir varaforseti
Bandaríkjanna fyrst og
fremst vinum og bandamönn-
um, er hann kemur hingað
til íslands í opinbera heim-
sókn. íslendingar árna hon-
um, forseta Bandaríkjanna og
bandarísku þjóðinni blessun-
ar og farsældar í framtíðinni,
um leið og þeir láta þá ósk og
von í ljós, að barátta Banda-
ríkjanna fyrir öryggi og
mannhelgi í heiminum megi
bera þann árangur, að allar
þjóðir njóti friðar og frelsis
á komandi tímum.
BARÁTTAN
GEGN SKORTI
OG FÁTÆKT
jnn Bandaríki Norður-Amer-
^ íku hafa ekki aðeins átt
ríkan þátt í að reisa Evrópu
úr þeim rústum, sem hún var
í eftir síðari heimsstyrjöld-
ina. Þau virina nú stórkostlegt
uppbyggingarstarf um allan
heim. Bandaríkjamenn hafa
forystuna í hinni -miklu bar-
áttu gegn fátækt og skorti í
heiminum. Þeir veita gífur-
legu fjármagni til aðstoðar
við hin variþróuðu lönd í Af-
ríku og Asíu. Þeir veita þjóð-
um Suður-Ameríku öfluga að
stoð til fjölþættra fram-
kvæmda og framfara. Jafnvel
sum þeirra ríkja, sem hinu
kommúníska einræðisskipu-
lagi hefur verið þröngvað upp
á með ofbeldi, njóta nú stór-
felldrar efnahagslegrar að-
stoðar frá Bandaríkjunum.
Nægir þar til dæmis að nefna
lönd eins og Júgóslavíu og
Pólland.
Leiðtogar Bandaríkja-
manna gera sér ljóst, að skort
urinn og fátæktin eru verstu
óvinir friðar og öryggis í heim
■
Spanska goðið „El Cordobes"
F Y R I R þremur árum hafði
hann varla ofan í sig að éta
og var hvorki læs né skrif-
andi. I dag er hann með tekju-
hæstu mönnum á Spáni og er
orðinn stautandi og getur klór
að nafnið sitt. Og enginn er
meira dáður í landinu en
hann.
Hann er nautabani. í hinum
svalari löndum Evrópu er ein-
vígi við tryllt naut ekki vin-
sæl íþrótt, en á Spáni er hún
samgróin margra alda sögu og
tilfinningalífi þjóðarinnar. —
Nautabaninn er eins konar
Davíð, sem berst við Golíat.
Og þá viðureign vilja flestir
Spónverjar sjá. Þess vegna
standa langar biðraðir í
þröngu götunni Calle Victoria
í Madríd til þess að ná sér í
miða, hvenær sem nautaat er
auglýst. Og því frægari sem
nautabaninn er, því .lengri er
biðröðin. Og prangarar græða
stórfé á því að bíða lengi og
selja syo miðana á ný fyrir
•margfalt verð.
Aldrei er biðröðin jafn löng
og þegar síðasta uppáhalds-
goðið á að berjast við nautin.
Hann heitir Manuel Benitez
og er frá Cordova. Þess vegna
hefur hann tekið sér nafnið
„E1 Cordobes". Hann er að-
eins 25 ára, en er þó orðinn
svo frægur, að ævisaga hans
er komin á kvikmynd. Hann
er hæstlaunaði nautabani á
Spáni núna, og fær kringum
750.000 krónur fyrir hverja
sýningu, enda er hann orðinn
ríkur, hefur keypt sér dýran
bústað í Madríd og stóran bú-
garð skammt frá Cordova.
Vitanlega á hann marga lúx-
usbíla og ungir (og blankir)
aðalsmenn sveima kringum
hann eins og flugur kring um
sykurmola.
Þrátt fyrir upphefðina hef-
ur hann ekki gleymt ættingj-
um sínum. Hann hefur keypt
hús handa systur sinni og
fjórum bræðrum og hjálpað
þeim til áð komast í sjálf-
stæða atvinnu. Manuel var að
eins tveggja ára þegar hann
missti foreldra sína. Hann
svalt heilu hungri og stal
hænsnum og hnuplaði í búð-
um til þess að sjá sér far-
borða. Það eru ekki nema
þrjú ár siðan hann flakkaði
atvinnulaus milli bæja I Anda
lúsíu. En þá varð tilviljunin
honum. til happs. Hann var á
nautaati í Cordova og nautið
hafði haft banann undir og
þeytti honum til og frá. Þá
hljóp Manuel inn á sviðið,
vopnlaus, og „tók í hornin á
bola“ og sneri hann út af. —
Þannig byrjaði ævintýrið. Og
fólk æpti og klappaði.
At-stjórarnir — „apoderad-
os“ — eru alltaf á höttunum
eftir ungum fullhugum, sem
vilja berjast við griðunga.
Manuel var talinn efnilegur
og nú fór hann að æfa listina
og var auglýstur á borð við
kvikmyndadís. Hann öðlaðist
ekki frægðina sofandi, því að
tólf sinnum hefur hann særzt
á sviðinu, þ.á.m. einu sinni
lífshættulega. Þá lá hann þrjá
daga í öngviti. Nú er hann orð
inn leikinn og ber sig svo
glæsilega, að fólkið ærist þeg-
ar hann kemur inn á sviðið.
En í hvert skipti biður hann
guð í hljóði um að „bægja frá
sér hræðslunni“.
Knattspyrnukapparnir í
„Atletico" og „Real“ eru hetj-
ur alþýðunnar, en komast þó
ekki í hálfkvisti við fræga
nautabana. Fyrir skömmu
hlotnaðist E1 Cordobes mesta
sæmd, sem hann telur mögu-
legt að hljóta. Hann var kjör-
inn „matadore" fæðingarborg-
ar sinnar að viðstöddum að-
dáendum víðs vegar að úr
landinu, og hinn frægi þjálfari
hans, Benvenida, „hélt hon-
um undir skírn“. Þetta var há-
tíðlegt augnablik í lífi ungs
manns, sem fyrir þremur ár-
um lapti dauðann úr skel og
kunni hvorki að lesa né skrifa.
Hann er enginn skrautritari
núna, en getur þó skrifað nafn
ið sitt undir samninga og ávís-
anir með mörgum núllum aft-
an við einhvern tölustaf. —
Manuel Benitez hefur hlotið
auð og æru fyrir að drepa
naut. En ef til vill lýkur ævin-
týrinu með því, að eitthvert
nautið drepur hann.
:
I
I
.
I
Gagnrá ðstaíanir
bitna á Dönum
Kaupmannahöfn, 13. sept. (NTB)
AÐ undanförnu hefur mikið
verið unnið að því í Danmörku
að draga úr innflutningi á vör-
um frá Suður-Afriku. Nú hafa
margir innflytjendur í Suður
Afríku svarað í sömu mynt, og
sagt upp samningum um kaup
á vörum í Danmörku.
Kaupmannahafnarblaðið In-
formation skýrir frá þessu í
dag, og hefur upplýsingar sínar
frá útflutningsskrifstofu dönsku
iðnaðarsamtakanna og utanríkis
ráðuneytinu. Hafa þessum að-
ilum borizt uplýsingar frá mörg-
um útflytjendum um að við-
skiptavinir þeirra í Suður Afríku
hafi slitið sambandi við þá.
Meðal þeirra, sem misst hafa
viðskipti við Suður Afríku er
inum. Þess vegna hika þeir
ekki við að beina hinu mikla
fjármagni og tækni, sem þjóð
þeirra hefur yfir að ráða, að
baráttunni gegn fátæktinni.
Með því að stuðla að útrým-
ingu skorts og fátæktar
hjálpa Bahdaríkin ekki að-
eins þeim þjóðum, sem við
bágindi og erfiðleika búa,
heldur stuðla þau að eigin
öryggi og friði og almennri
farsæld í heiminum.
En þótt Bandaríkjamenn
séu auðug þjóð verður sú
staðreynd ekki sniðgengin, að
þeir leggja á sig þungar byrð-
ar til þess að geta staðið und-
ir sameiginlegum vörnum
hins frjálsa heims og haldið
eigandi lyfjaverksmiðju í Dan
mörku. Eftir margra mánaða
Á FUNDI sínum sl. þriðjudag
samþykkti borgarráð að segja
upp samningum um öll erfðafestu
lönd á svæðinu milli Suðurlands-
brautar, Reykjavegar, Sundlauga
vegar, Laugarásvegar, Langholts-
vegar og_ Álfheima. En erfðafestu
höfum verður heimiluð fyrst um
sinn afnot landanna, þó þannig,
uppi stórfelldum stuðningi
við vanþróaðar og fátækar
þjóðir. Allt frá því að Banda-
ríkin urðu stórveldi hefur
þjóð þeirra lagt sig fram um
að veita öðrum þjóðum fjöl-
þætta hjálp og aðstoð. Banda-
ríkin hafa aldrei verið ný-
lenduveldi og þau hafa á síð-
ari árum veitt frelsissókn
margra ungra þjóða ómetan-
legan stuðning. Það sætir því
vissulega engri furðu, þótt
allur hin frjálsi heimur líti
til Bandaríkja Norður-Amer-
íku sem forysturíkis, sem
heimsfriðurinn og framtíð
mannkynsins bvggist í ríkum
mæli á.
viðræður tókst honum að semja
um sölu á afurðum verksmiðj-
unnar fyrir um milljón danskar
krónur til verksmiðju í Suður
Afríku. Nú hefur samningnum
verið sagt upp, og verða vörurn-
ar keyptar í Vestur ÞýzkalandL
að þeir verða að þola án sérstakr-
ar aðvörunar hverju sinni hvers
konar not landa sem borginni er
nauðsynleg. Og er þeim jafn-
framt gert skylt að uppfylla skil-
yrði um búpeningshald.
Var jafnframt samþykkt að bú-
peningshaldi verði hætt hið
fyrsta. Sauðfjárhaldi verði hætt
í haust, hrossahaldi fyrir 1. júní,
alifuglahaldi í haust, en naut-
gripahald heimilt fyrst um sinn,
þó ekki lengur en til ársins 1965.
Hvað fjáreigendur snertir, þá
getur borgarverkfræðingur veitt
frest til næsta vors, ef fjáreig-
andi óskar sérstaklega eftir og
sýnir fram á að hann geti haft
féð í algerlega öruggri vörzlu, en
frekari framlenging verði ekki
veitt.
• ÁGREININGUR í
BELGIU.
Brússel, 13. sept. (NTB)
ÆÐSTU foringjar belgiska
hersins sögðu af sér í dag
vegna ágreinings við Segera
varnarmalaráðherra landsins
um breytingar á uppbyggingu
landvarna. Eru þetta þeir
Thomas hershöfðingi, yfirmaS
ur hersins, Petitjean aðmir-
áll, yfirmaður flotans og
Henry hershöfðingL yfirmað-
ur flugliersins. ,
Snuðfjáihold bannað í Laugar-
dal í haust, hrossahald 1. júní
og alifuglarækt í haust