Morgunblaðið - 15.09.1963, Síða 15
Sunnudagur 15. sept. 1963
MORGUNBLAÐIÐ
15
Framh. af bls. 10
vantraustsumræðnanna 23.
ágúst stutta athugasemd um
að hann aðhyltist ekki fram-
komu stjórnarinnar í umræð-
unum, en teldi hana seka um
ýmislegt það, sem aílaga hefði
farið í Kingsbaý-námunum.
Vildi hann láta stjórnina játa
þetta. — Trygve Bull var vara
þingmaður fyrir einn ráðherr-
ann og hefur því misst sæti
sitt á þingi nú. Þykir ólíklegt
að flokkurinn ljái honum þing
sæti við næstu kosningar.
Ummæli blaða og almenn-
ings um nýju stjórnina fara
mjög eftir flokkum, bæði í
Noregi, Danmörku og Svíþjóð.
Tage Erlander hefur tekið
einna dýpzt í árinni um stjórn
málahæfni Gerhardsens og tel
ur illa hafa verið farið með
hann. Og Verkamannaflokk-
urinn í Noregi hefur tekið
falli hans með lítilli karl-
mennsku. Það er eins og hann
búist við óóran og hallæri ef
aðrir stjórna landinu en al-
þýðustjófnin sæla, og er þetta
að vísu vorkunnarmál, því að
eftir 28 ára verkamannastjórn
eru margir orðnir svo vanir
henni, að þeir geta ekki hugs-
að sér neitt annað. Þeir tala
um „alþýðufjandsamlega
Framhald á bls. 23.
'
I
»
S í Ð A N Einar Gerhardsen
baðst láusnar 24. ágúst og ný
stjórn var skipuð 27. f. m. hef-
ur að vísu mikið verið skrifað
og skrafað um stjórnmál í
Noregi. En það er spurningar-
merkið, sem öðru fremur ein-
kennir allar þessar umræður.
Norsku stjórnmálin verða um
sinn eitt allsherjar spurning-
armerki — ef til vill þangað
til næstu stórþingskosningar
fara fram, en þangað til eru
tvö ár, nema eitthvað óvænt
gerist Ef vel væri þyrfti að
rjúfa þing og efna til nýrra
kosninga til þess að hreinsa
stjórnmálaloftið, sem nú er
óneitanlega iævi blandið. Kald
hæðin forsjón hefur hagað svo
til, að tveir menn með ó-
reynda og óljósa stefnuskrá
geta vafið bæði verkamanna-
flokknum og borgaraflokkun-
um um fingur sér — leikið sér
að þeim eins og köttur að
mús.
Hvað vill meirihluti þjóð-
arinnar? Um það verður ekki
sagt að svo stöddu. Við síð-
ustu kosningar fengu þeir
fjórir flokkar, sem standa að
núverandi stjórn 47.7% atk.
en verkamannaflokkurinn
46.84%, en sósíalistar og
kommúnistar 5.3%. Þjóðar-
fylgið er því nokkurn veginn
í samræmi við þingmannatöl-
una, nema hjá síðasttöldu smá
flokkunum, sem hefðu átt að
fá 7 þingmenn í stað tveggja.
Kommúnistar fengu sem sé
engan þingmann og höfðu þó
fleiri atkvæði samtals en
%ósíalistarnir.
Sveitastjórnarkosningarnar
sem fram eiga að fara 23. sept.
munu gefa vísbendingu um
hvaðan vindurinn blæs í
stjórnmálunum núna, eftir
stjórnarskiptin. Og ekki er ó-
sennilegt, að úrslit þeirra ráði
miklu um hvort lífdagar núv.
stjórnar verða lengri eða
skemmri. Þess vegna hefur •
líklega aldrei í Noregi staðið
hatrammlegri barátta um skip
un hreppsnefnda og bæjar-
stjórna en nú. Kosningarnar
eru stórpólitískar, úrslit
þeirra lýsa trausti eða van-
trausti á því, sem gerðist í
ágúst.
Þess vegna eru nú flokks-
foriilgjarnir eins og þeyti-
spjöld út um allt land, og
Einar Gerhardsen liggur sízt
á liði sínu, svo að ekki er um
neina hvíld hjá honum að
ræða um sinn. En viðvíkjandi
því, hvort flokkur hans lýsi
vantrausti á Lyngstjórninni
.er hún leggur fram stefnu-
skrá sína 18. sept., svarar
hann jafn tvírætt og véfrétt-
in í Delfi. Þó þykir líklegra,
að verkamannaflokkurinn
beri ekki fram vantraust þá,
heldur láti það bíða þangað til
hásætisumræðurnar koma á
dagskrá í byrjun nýja þings-
ins í október. En Finn Gusav-
sen, talsmaður Sósíalista-
flokksins, hefur lofað því að
bera fram vantraust strax og
þingfundur kemur saman 18.
sept. og beri það ekki árang-
ur, þá mun hann endurtaka
leikinn í október. En hann hef
ur jafnframt ' heitstrengt
ef Verkamannaflokkurinn
bjóði fram á ný síðustu stjórn
sína óbreytta muni hann um-
svifalaust bera fram vantraust
á hana. Annars deila lögfræð-
ingar um, hvort leyfilegt sé að
tefla fram á ný stjórn sem
hlotið hefur vantraust. Halda
ýmsir því fram, að það sé ekki
að lögum. Enda er það ósenni-
legt að sama stjórnin yrði gerð
út af örkinni á ný. Hitt þykir
víst, að Verkamannaflokkur-
inn muni ekki bjóða fram nýja
stjórn án þess að höfuðið —
Gerhardsen — verði það sama
og síðast. Gerhardsen leggur
áherzlu á það á fundum sín-
um, ef flokkurinn myndi
stjórn á ný, muni hann virða
að vettugi ráðleggingar og í-
hlutun annarra flokka um
skipun í ráðherraembættin.
Svo að vera kann að Gustav-
sen eigi eftir að velta nokkr-
um stjórnum ennþá.
Sumir hafa orð á því, að
nokkur óánægja sé í Verka-
mannaflokknum út af Sval-
barðamálinu, en aðeins einn
þingmaður flokksins, Trygve
Bull, hefur látið til sín heyrs
í þeim tón. Hann gerði í lok
TAUNUS 12M
CARPINAL
Pantið strax. ^3
Framhjóladrif — V4 vél
Slétt gólf, fjögurra gíra
hljóðlaus gírkassi o. fl. o. fl.
CardinaJ er raunverutegur
5 manna bíl*
A L L U R E I
NÝJUN6
N <3Z_r><
******
*>UMB0ÐIÐ KR.KRISTJANS50N H.F
SUDURLAND5BRAUT 2 • SÍMI 3 53 00