Morgunblaðið - 02.10.1963, Page 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 2. okt. 1963
Mikið síldarmagn
enn fyrir austan
Síldveiðiskipin hætt sumarveiðum
í GÆR átti Mbl. samtal við
Jakob Jakobsson fiskifræðing
um borð I síldarleitarskipinu
Þorsteini Þorskabít þar sem
það var undan Krísuvíkur-
bergi á leið til Reykjavíkur.
Síldarleit hefir nú verið
hætt fyrir Norður- og Austur
landi, enda síldveiðiskipin
öll komin í höfn og hætt veið
um.
Jakob sagði að eitt síldveiði
skip hefði farið út á miðin i
fyrradag, Guðrún Þorkelsdótt
ir, en hefði sennilega orðið
að halda til hafnar skjótt aft-
ur sökum slæms veðurs.
— Það sem veldur að síld-
veiðunum fyrir austan er nú
hætt, eru Iélegar gæftir að
undanförnu og svo að í hönd
fer nýtt skrásetningartímabil
áhafnanna á skipunum. Hins
vegar er mikið sildarmagn
enn fyrir austan á stóru
svæði 60—80 mílur út af Aust-
fjörðum. Þar er stór rússnesk-
ur floti veiðiskipa, sem veiðir
í reknet. Þá eru og á miðun-
um þrír eða fjórir Færeying-
ar, sem veiða í herpinót með
kraftblökk, en þeir hafa ver-
ið á sömu slóðum og is-
lenzki flotinn í sumar og haft
mikið samband við okkur.
— Það er því ekki skortur
á síld sem veldur því að skip-
in hætta, sagði Jakob.
— Hvað segir þú um fram
hald síldarleitar í haust og
vetur?
— Það er allt óráðið ennþá.
Sjálfsagt verður fljótlega far-
ið að leita hér við Suður og
Vesturlandið. Ekki er að vita
nema haldið verði áfram veið-
um fyrir austan ef veður
batnar og þá einkum af heima
skipunum á Austfjörðum.
Blaðið hefir aflað sér upp-
lýsinga um að sjálfsagt sé á-
hugi fyrir að hefja hið fyrsta
veiðar hér fyrir sunnan, en
um markaðshorfur er enn
ókunnugt. Ekki er ólíklegt að
markaður verði fyrir ferska
síld upp úr ís, þegar almennt
fer að draga úr sumarsíldveið
um bæði hér og hjá nágranna-
þjóðunum, sem síldveiðar
stunda.
Líðatt drentfsins er
nú talin betri
Leiðrétt missögn í
ÁTTA ÁRA drengur, Jón Hall-
dórsson, Lyngbrekku 24, Kópa-
vogi, slasaðist lífshættulega er
hann féll af reiðhjóli og varð fyr
ir bifreið sl. föstudagskvöld. Líð
an Jóns er nú betri.
í frétt Morgunblaðsins af slys
inu var ranglega hermt, að dreng
fyrri frétt af slysi
urinn hafi hangið aftan í bifreið
inni, sem hann lenti undir.
Slysið bar þannig að höndum,
að Jón litli var að mæta bifreið,
sem á móti kom, á mjög þröngri
götu. Þegar hann fann, að hann
var að falla af hjólinu bar hann
hendurnar fyrir sig og reyndi að
ji■.....
Hafsteinn Jóhannsson á þilfari Eidingar, klæddur frosk-
mannsbúningi sínum.
— Minjagripur
Framh. af bls. 1
— Búið er að rífa möstrin.
reykháf og ofan af brúnni.
Á hliðunum eru göt, sem
gerð voru þegar hluti af olíu-
farminum var var tekin úr
því, auk gatsins, sem varð til
þess að skipið sökk.
— Ég kafaði 2—3 sinnum á
dag til að skoða skipið. Á því
er mikið af akkerum og akk-
erisfestum, sem skip hafa
misst af sér. Algengt er, að
skip festi akkeri sín á E1
Grillo.
— Milli brúar og afturþil-
fars er raðað 23 djúpsprengj-
um og svo er ein og ein hing-
að og þangað um skipið. Þeg-
ar Englendingarnir voru á
Seyðisfirði um daginn setti ég
í eina fyrir þá, svo þeir gætu
athugað hvort nokkur hætta
stafaði af þeim. En Englend-
ingarnir hættu við að draga
það upp.
— Aftur á skipinu eru 2
loftvarnarbyssur og ein fall-
byssa og loftvarnarbyssa er á
hvorum brúarvæng. Þarna
tók ég skot, 70 mm og 20 mm
í þvermál, sem minjagripi.
Þau voru í kistum á byssu-
stæðunum.
— Skotin eru eins og þau
hefðu aldrei komið í sjó. Púðr
ið í þeim er heilt, en hins veg-
ar er kveikpúðrið, sem notað
er til að koma sjálfri spreng-
ingunni af stað ónýtt.
vill ráða blaðamenn og þingfréttaritara.
Upplýsingar hjá ritstjórum blaðsins.
styðjast við bifreiðina. En það
tókst ekki.
í GÆRDAG varð 8 ára
gamall drengur á reiðhjóli
fyrir bíl á Sundlaugavegi
skammt austan Laugarnes-
vegar. Hjólaði drengurinn
þvert í veg fyrir bíl, sem
ekið var í austurátt. Kastað-
ist hann upp á vélarhlíf bíis-
ins, og braut framrúðu hans,
en féll síðan í götuna. Dreng-
unnn var fluttur í Slysavarð-
stofuna, og reyndust meiðsli
hans minni en efni virtust
standa til. Hlaut hann skrám
ur og mar.
Myndin sýnir sjúkraliða
bera drenginn af staðnum.
(Ljósm. Mbl. Sv.Þ.)
Geröist nærgöngull
— en hafði verra af
AÐFARARNÓTT sl. sunnudags
var gerð Ólraun til nauðgunar
í húsi einu hér í borg, en mál-
um lauk þannig, að tilræðismað-
urinn sat eftir með sárt enni
og allur skrámaður, en ekki sá
á konunni.
Nánari atvik voru þau, að því
er rannsóknarlögreglan upplýs-
ir, að stúlka ein fór með manni
út að skemmta sér á laugardags
kvöldið. Fóru þau á ýmsa
skemmtistaði borgarinnar, og að
því loknu heim til mannsins á-
samt fleira fólki. Var tekið til
við að hlýða á plötur, en smátt
og smátt tíndust gestir á brott
þar til stúlkan var ein eftir hjá
manninum. Gerðist hann þá nær
göngull við hana, og fór svo að
til átaka kom. Varð sambýlis-
fólk í húsinu vart við að hróp-
að var á hjálp. Er húsráðandi á
næstu hæð fyrir neðan kom upp
til að athuga hvað á seyði væri,
mætti hann stúlku á ganginum,
og sagði hún að gerð hefði verið
tilraun til að nauðga sér. Var
stúlkan sjálf svo og föt hennar,
blóðug.
Húsráðandi hringdi til lögregl
unnar, sem kom að vörmu spori,
og flutti stúlkuna á lögreglustöð
ina. í ljós kom að ekki var svo
mikið sem skráma á henni, en
þegar lögreglumenn fóru og
ræddu við gestgjafann frá því
fyrr um kvöldið, kom í ljós að
haann var klóraður mjög í fram
an, og hafði blætt úr.
Sættir hafa tekizt í málinu.
Söngskemmtun Gests
Guðmundssonar
GESTUR Guðmundsson tenor-
söngvari, sem hélt söngskemmt-
un í Gamla bíói í gærkyöldi, er
tvímælalaust efnilegur söngvari,
— ef til vill efni í mikinn söngv-
ara, meira að segja. Hann hefir
mikla rödd og blæfagra, þegar
bezt lætur, og meðferð hans á
sumum viðfangsefnunum í gær-
kvöldi virðist bera vott um ó-
svikna túlkunargáfu. En hann á
enn margt ólært. Tónmyndunin
er óörugg og röddin ójöfn: stund
um virðist hún hrökkva milli
„registra" aðeins eftir því á
hvaða sérhljóði er sungið. Óskýr
framburður sérhljóða stafar ef
til vill af því, að söngvarinn er
vitandi eða óvitandi — að reyna
að hamla gegn þessu. Óná-
kvæmni í hljóðfalli var líka
stundum til lýta. Og í sumum
viðfangsefnunum, einkum ís-
lenzku lögunum, var textinn svo
„oftúlkaður", — svo mikil á-
herzla lögð á einstök orð að
hendingar, — að heildaráhrifin
spilltust.
En hvað sem að má finna, er
vafalaust, að Gestur hefir tekið
miklum framförum, frá því að
hann lét til sín heyra hér í
janúar sl.Og þeir ágallar, sem
hér hafa verið taldir, eru þess
eðlis, þegar á þá er litið með
hliðsjón af því, sem bezt var
gert á þessum tónleikum, að
þeir munu hverfa við áframhald
andi nám hjá góðum kennurum.
Því er full ástæða til að hvetja
Gests Guðmundsson til fram-
haldsnáms í söng, — og til þess
að afla sér jafnframt sem víð-
tækastrar almennrar menntunar
í tónlist.
Þá gæti hann orðið gildur og
gegn liðsmaðuir í hinni heldur
þunnskipuðu sveit íslenzkra
tenorsöngvara.
Undirleik á þessum tónleikum
annaðist Kristinn Gestssson pían
óleikari frá Akureyri. Hann
veitti söngvaranum öruggan
stuðning, og var hlutdeild hans
í tónleikunum mikilsverð, eink-
um í lögunum eftir Beethoven.
Væri gaman að fr. heyra þennan
listfenga píanóleikara á tónleik-
um, þar sem hæfileikar hans
fengju enn betur notið sín en
hér varð.
Jón Þórarinsson.
Hjálpar
beiðni
ENN hefur eldurinn herjað á
heimili barnmargrar fjölskyldu
og lagt það í rústir.
Síðastliðina mánudagsnótt
brann húsið Selhagi í Blesugróf
til kaldra kola. Hjónin Pétur H.
Pétursson og Helga Tryggvadótt-
ir björguðust fáklædd út úr
brunanum ásamt börnum sínum,
en þau eru átta. Sum þeirra á
unga aldri.
Engu var bjargað að kalla, en
húsið og búsmunir hryggilega
lágt tryggðir.
Skaðinn er mikill og sár.
Reynslan hefur sýnt að marg-
ir rétta fúslega hjálparhönd,
þegar fólk verður fyrir svo ó-
væntu áfalli og stendur uppi alls
laust að kalla. Það mun hygg ég
enn koma hér á daginn.
Blaðið mun ásamt undirrituð-
um taka við gjöfum til hinnar
bágstöddu fjölskyldu.
Með fyrirfram þakklæti til
allra, sem eitthvað leggja að
mörkum.
30. sept. 1963.
Gunnar Árnason,
sóknarprestur.
Eldor í hlöðu
FYRIR nokkru kom upp eldur
í hlöðu á Sandi í Kjós. Margir
sveitungar komu til hjálpar og
tókst að ráða niðurlögum elds-
ins á tiltölulega skömmum tíma,
en varð að láta töluvert af heyi
út. Allmiklar skemmdir munu
hafa orðið á heyi, en hús ekki
hafa orðið fyrir skemmdum að
neinu verulegu leyti. Víðar mun
hafa hitnað í hlöðum, þótt ekki
hafi menn verið kallaðir til
hjálpar. St. G.
HAFNARFJORÐUR
Börn vantar til að bera út
til kaupcnda.
AFGREIÐSLAN
Arnarhrauni 14 — Sími 50374.