Morgunblaðið - 02.10.1963, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 02.10.1963, Blaðsíða 23
Miðvikudagur 2. okt. 1963 MORGUNBLADID 23 Indverskur munkur andlega yfirvegun í Hefur áhuga á stofnun íslandsdeildar hreyfingar sinnar — talar í Stjörnubíói í DAG er væmtanlegur hing- að til lamds indiverski hekns- spekingurinn og hugsuður- inn Maiharitshi Mahesh Yogi, og mun hann í dag tala í Stjörnubíó um hina gömilu indivesrsku Veda-menningu og tengsl hennar við nútímann. Maharishi kemur hingað frá Band.aríkjunum og Karnada, en þar hefur hamn haldið fyrirlestra að undanförnu. Hefur hann komið á fót al- þjóðlegri hreifimgu, sem mið- stöðvar hefur víða um heim. Mun hamn hafa rmikinn áhuga á að korma upp einni. sliíkri hérlendis, að því er blaða- mönnum var tjáð á fundi í gær. Hingað er þegar komið fólík frá Noregi og Sviþjóð tid að undirbúa komu Maha- rishi, og auk þess yfirmaður hreyfingarinmar í Evrópu og persónulegur fulltrúi Maha- rishi, brezkur maður að nafni Henry Nyburg, fyrrum listaverkasali, sem mú kveðst hafa helgað sig hreyfingu hans, sem nefnist ,,Endur- fæðing andlegrar hugsunár“, (Spiritual Regenaration Movement). Samkvæmit upplýsingum Mr. Nyborg og frú Astrid Steimhaug, sem veitir hreyf- ingunni forstöðu í Noregi, er stefnumark hreyfingarinnar að vinna að því að styrjaldir verði úr sögunni og friður ríki á jörðu. Áhugi Maharitshi hefði kviknað er hann dvald- ist í HimalayafjöiMum, þar hitti hann m.a. marga Evrópu menn eftir styrjöldina. Sé kenning Maharishi sú að með því að draga úr spennu miMi manna, megi draga úr spennu miili þjóða og koma á friði í heimi. Þetta sé hægt með djúpri Og einlægri hugsun. Samkvæmt þeim upplýsing- um, sem blaðamenn fengu í gær, er fólki ráðlagt að taka sér háliftóma kvölds og morgna til andlegrar yfirveg- unar. Það eru deildir hreyfingar- innar í Noregi og Svíþjóð, sem standa fyrir komu Maha- rishi hingað til lands, en svo sem fyrr greinir, hefur hann áhuga á að tofnuð verði ís- landsdeild hennar. Kváðust þeir erindrekar MaharisJhi, sem hér eru staddir, hafa átt tal við sálfræðing hér í borg, og hefði só tjáð þeim, að erfiður myndi róðurinn, því að andleg yfirvegun væri lítit í hávegum höfð á íslandi. í bæklingi, sem blaðamenn fengu. greinir frá því að Maharishi haii á sínum tíma prédikar Reykjavík lokið 'háskólaprófi í stærð- fræðiog eðlisfræði við Alla- habadháskólann í Indlandi. Hafi hann síðan studað nám í Jyothir Math í Norður-Ind- landi undir handleiðslu þá- verandi Shankaraoharya — Swámd Brahmanandra Saras- wati. Sá, sem gegnir embætti Shankaraoharya er sá, sem fróðastur er um hina gömlu indversku Veda-heknspeki, og honuim er trúað fyrir hin- uim „pratiska“ þætti heim- spekinnar, — en það eru ein- faldar, en mjög áhrifaríkar aðferðir til þess að öðlast inn sýn í hina andleg yfirvegun. í bæklingnum segir ennfrem- ur að þessar aðferðir séu svo einfaldar, að sérhver maður geti tileinkað sér þær án þess að breyta hinum daglegu lifn- aðarvenjum, og án þess að gera nokkrar kröfur á hend- ur trúar manna eða heim- spekiskoðana. „Ef þú borðar kjöt, þá borðaðu kjöt. Ef þú reykir, þá skaltu reykja. Ef þú drekk-ur — þá hugsaðu fyrst“, er böðskapur Maha- rishi. Maharishi fékk fyrir nokk- rum árum leyfi klausturs síns til þess að ferðat um og kenna fólki hinar mörg þús- und ára gömlu aðferðir til þess að tileinka sér djúpa, andlega yfirvegun. Virðist honum hafa orðið töiuvert á- Maharishi Mahesh Yogi gengt, þvtí samikvæmt upp- lýsingum fyrrgreinds bæk- lings hafa um 30,000 manns í Bvrópu numið listina af Maharishi eða lærisveinum hans, þar aif ca. 2000 á Norð- urlöndum. 10,000 áhangendur hreyfingarinnar eru sagðir í Þýzkalandi og Bretlandi hvoru fyrir sig. 20 miðstöðvar hreyfingarinnar hafa verið stofnaðar í Evrópu, og marg- ar undirdeildir. Þá mun .hreyf ingin í miklum uppgangi í Bandarikjunum og Kanada, að því er sagit er. Kl. hálf sex í dag gefst Reykvíkingum kostur á að hlýða boðskap Maharishi í Stjörnubíói. Mælir hann á enska tungu. Grænlendingarnir fara heim á morgun Segjast margt hafa lært lendingarnir komu loks til Reykjavíkur s.l. mánudagskvöld þar sem þeir dveljast þar til þeir halda heim á fimmtudag. Grænlendingarnir láta mjög vel af dvölinni hér og segjast hafa margt af henni lært. Búnaðarfélag íslands sá um Grænlendingana hér fyrir land- búnaðarráðuneytið. Veitingaskálinn v/ð Hvitárbrú Heitur matur allan daginn. Tökum á móti r.erðahópum Vinsamlegast pantið með íyr- irvara. — Simstöðin opin kl. 8-24. 18 tonna steypu- bíll iór ó hliðinu STEYPUBÍLL frá Goða í Garða- hreppi fór út af Hafnarfjarðar- veginum í Arnarnesi kl. 23.10 í gærkvöldi og lagðist þar á hlið- ina. ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, missti á honum stjórn, þegar hvellsprakk á framhjóli. Ökumaðurinn slapp ómeiddur og virðist, sem bíllinn sé lítið skemmdur. Erfitt getur orðið áð ná honum upp, því nann vegur um 18 tonn, var fullur af steypu. Sl. nótt átti að reyna áð ná bílnum upp á veginn aftur. — Málverkasýning Framh. af bls. 6 ing á málefninu, og gott starf í þágu þess. Boye Givskov er rúmlega fimm tugur að aldri. Hann á sex verk á sýningunni. Fyrst sýndi hann 1935, en hefur síðan tekið þátt í mörgum sýningum heima og erlendis. Meðal þeirra, sem keypt hafa myndir hans má nefna Carlsberg-sjóðinn, kennslu málaráðuneytið danska og Kunst foreningen. Eva Cederström er einnig rúm lega fimmtug, og nam málara- list bæði í heimalandi sínu og í París. Þar tók hún í fyrsta sinn þátt í sýningu 1938. ísland mun vera 15. landið, þar sem verk hennar eru sýnd. Verk hennar eru á listasöfnum í Atheneum, Tavastehus, auk lista safna finnska ríkisins og Hels- ingforsborgar. Eins og fyrr segir taka marg- ir íslenzkir listamenn þátt í sýn ingunni að þessu sinni, þar á meðal fimm, sem ekki hafa sýnt á Haustsýningum FÍM áður. Eru það listmálararnir Jóhannes Geir, Eggert Magnússon, Hring- ur Jóhannesson, og Björgvin Haraldsson auk myndhöggvar- ans Hallsteins Sigurðssonar. Sýningin er sölusýning og verður opin daglega til 20 okt- óber. af íslandsdvölinni Grænlendingarnir tíu, sem hér ftafa verið í boði landbún- aðarráðuneytisins, halda vænt- anlega heim á morgun, fimmtu- dag. Þeir hafa verið hér í hálf- an mánuð til að kynna sér ís- lenzkan landbúnað. Þeir hafa ferðast víða um land og láta mjög vel af dvöl sinni á íslandi. í hópnum eru fern hjón og tveir einhleypir karlmenn. Græn lendingarnir komu til Reykja- víkur miðvikudaginn 18. sept- ember. Daginn eftir fór hóp- urinn undir leiðsögn Agnars Guðnasonar og Ragnars Ásgeirs- sonar hjá Búnaðarfélaginu um Borgarfjörð, Húnavatnssýslur og Skagafjörð til Hóla. Þar var dvalizt tvær nætur, en ferðast um nágrennið á daginn. Tvenn hjón urðu eftir á Hól- Um, en síðdegis sunnudaginn 22. september fóru tvenn hjón að Hvanneyri og Hesti í Borgar- firði, þar sem þau voru nokkra daga, fóru í réttir, heimsóttu sveitabæi og sáu hið helzta í hér- eðinu. Allur hópurinn kom svo til Beykjavíkur s.l. fimmtudag og þar var dvalizt 1 tvo daga, rætt við forystumenn búnaðarmála, landnámsstjóra, yfirdýralækni og stofnanir skoðaðar, m.a. farið að Keldum. S.l. laugardag og sunnudag var farið í ferð um Suðurlandsund- irlendi undir leiðsögn. Græn- — Herlið SÞ Framh. af bls. 1 væri fyrirhugaðar neinar lækk- anir á tekjusköttum. Varðandi Suður-Afríku, sagði Krag, að Danir styddu þá tillögu að þangað yrði send nefnd á veg- um Sameinuðu þjóðanna til að reyna að finna lausn á kynþátta- vandamálinu. Afstaða Norður- landanna á Allsherjarþinginu miðaði að því að fá stjórn Suður Afríku til að samþykkja að al- þjóðasamtök SÞ hafi forgöngu um lausn málsins. Gætu þá Dan- ir átt fulltrúa í sendinefnd, sem færi á vegum samtakanna til Suður Afríku. Ráðherrann lagði áherzlu á að tilgangurinn væri að finna já- kvæðar leiðir til lausnar þeim vandamálum, sem samfara væru breyttri kynþáttastefnu í land- inu. Einnig væri áríðandi að kanna á hvern hátt Sameinuðu þjóðirnar geta tryggt jafnrétti og verndað þessi mannréttindi að því er varðar alla íbúa Suður Afriku. Þessi síðastnefndu ummæli forsætisráðherrans hafa verið túlkuð á þann veg að Danir væru því meðmæltir að herlið SÞ verði látið hafa eftirlit í Suður Afríku fyrst eftir að „Apartheid“-stefna stjórnarinnar þar hefur verið numin úr eildi. Guðjón Eyjólfsson löggiltur endurskoðandi Hverfisgötu 82 Sími 19658 — Bezt að auglýsa i Morgunblaðinu — Morgunblaðið vantar nú þegar duglega krakka, unglinga eða eldra fólk til blaðadreifingar víðs vegar í Reykjavík. í þessum hverfum í Austurbænum: BALDURSGÖTU — BARONSTIG — GRETTISGÖTU HÁTEIGSVEG - HÖFÐABORG - KJARTANSGÖTU - LAUGAVEG innanverðan — LAUFÁSVEG sunnan- verðan - LINDARGÖTU - MIKLUBRAUT - ÓÐINS- GÖTU — SJAFNARGÖTU og SKEGGJAGÖTU Ennfremur í þessi hverfi: SIGTÚN - LAUGARÁSVEG - HJALLAVEG - KLEPPSVEG - KLEIFARVEG - HÓLMGARD - HERSKÓLAKAMP við Suðurlandsbraut — BLESUGRÓF í þessi hverfi í Vesturbænum: FÁLKAGÖTU - NESVEG - HRINGBRAUT vestan- verða og SÖRLASKJÓL Talið við Morgunblaðið strax. Sími 22480.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.