Morgunblaðið - 02.10.1963, Qupperneq 4
4
MORCUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 2.okt. 1963
Bílamálun - Gljábrennsla
Fljót afgreiðsla— Vönduð
vinna. Merkúr hf., Hverfis-
götu 103. — Sími 11275.
Keflavík — Njarðvíkur
Vantar íbúð, 1—2 herbergi
og eldhús. Uppl. í síma
1238.
80 bassa harmonikka
til sölu að Hringbraut 51,
Hafnarfirði, frá 1—6. Uppl.
í síma 50176.
Til sölu
nýlegt borðstofuborð, kr.
1500,00 og drengjareiðhjól
með ýmsu tilheyrandi. kr.
1200.-. Bræðraborgarstíg 20
í dag og f. h. á fimmtudag.
Trésmiðir
óskast í mótasmiði. Uppl. |
í sima 16535.
Ráðskona
Óska eftir ráðskonustarfi
á fámennu heimili. Uppl. í
síma 50454.
Fiðla
Notuð fiðla óskast til I
kaups. Tilboð sendist £ j
pósthólf 1014, merkt: -
„Fiðla“.
f dag er miSvlkudagur 2. október.
275. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 5:24.
SíSdegisflæði kl. 17:50.
Næturvcrður vikuna 28. sept.
[ — 5. okt. er i Vesturbæjar-
apóteki.
Næturlæknir í Ilafnarfirði vik-
una 28. sept. — 5. okt. er Eiríkur
Björnsson.
Slysavarðstofan í Heilsuvernd-
arstöðinni. — Opinn allan sólar-
hringinn — simi 1-50-30.
Neyðarlæknir — simi: 11510 —
frá kl. 1-5 e.h. alla virka daga
nema laugardaga.
Kópavogsapótek er opið alla
virka daga kl. 9:15-8 laugardaga
frá kl. 9,15-4., helgidaga frá kl.
1-4 e.h. Sími 23100.
Holtsapótek, Garðsapóteik og
Apótek Keflavíkur eru opin alla
virka daga kl. 9-7, nema iaugar-
daga frá kl. 9-4 og helgidaga
frá kl. 1-4. e.h.
Orð lifsins svara i sima 10000.
FBÉTTASÍMAR MBL.:
— eftir lokun —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
I.O.O.F. 7. = 1451*28>4 = Sp. kv.
I.O.O.F. 9 = 11510281/2 =
! RMR-4-10-20-MT-H ±
HelgafeU /J631027. VI. 2
Stúlka
óskast til heimilissiarfa |
1—2 daga í viku. Uppl.
Mjóuhlíð 4, sími 1-1587.
Sendisvelnn
óskast strax.
Gotfred Bemhard & Co. hf. j
Sími 15112, Kirkjuhvoli.
3 herbergi og eldhús
til leigu í risi. Tilboð skil-
ist á Mbl., merkt: „íbúð •
3099“ fyrir fimmtudag.
V8 mótor óskast
í Ford 1954—1957. Uppl. í
síma 15640 eftir 7 á kvöld-
in.
Launaútreikningur
Óska að taka að mér launa-
reikning. Hef reikningsvél
og mjög góða aðstöðu. Tilb.
sendist Mbl., merkt: „Auka
vinna — 3098“ fyrir 5 okt.
Bandsög
Óska eftir að kaupa band-
sög. Uppl. í síma 23306.
Stúlka
óskast í mötuneyti. Uppl. í
síma 23851 eftir kl. 7.
Breiðfirðingar. — í kvöld byrjar
Breiðfiröingafélagið vetrarstarfsemi
sína og verður eins og undanfarin ár
byrjað með félagsvist og dansi; auk
þess ávarpar formaður félagsmenn og
gesti og skýrir nánar frá vetrarstarf-
seminni. Spilaverðlaun verða góð og
hefur verið ákveðið að þetta sé fyrsta
kvöldið 1 framhaldskeppni, sem verð-
ur betur skýrt frá á staðnum. Félags-
menn ættu því að reyna að mæta vel
og stundvíslega og sýna áhuga á fe
lagsstarfinu með nærveru sinni.
— Stjórnin.
Kennaraskólinn verður settur í nýja
húsinu við Stakkahlíð n.k. föstudag
kl. 2 e.h. Börn í æfingadeild skólans
skulu koma til viðtals sama dag, 11
og 12 ára börn kl. 9 og 9 og 10 ára
börn kl 10.
Frá styrktarfélagi vangefinna: —-
Konur í Styrktarfélagi vangefinna
halda fund 1 dagheimilinu Lyngás
fimmtudaginn 3. okt. kl. 8,30. Fundar
efni: Frú Sigríður Ingimarsdóttir segir
frá 12. þingi Norðurlanda um málefni
vangefinna. Rætt um vetrardagskrána.
— Strætisvagnar ganga frá Kalkofns-
vegi á heilum og hálfum tíma.
Leitarsföð Krabbameinsfélagsins.
Skoðanabeiðnum er veitt móttaka
daglega kl. 2—4 nema laugardaga i
síma 10269.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur vill
minna konur á bazarinn, sem á að
verða þriðjucL.ginn 8. okt. 1 Góðtempl-
arahúsinu uppi. Konur og velunnarar
félagsins eru vinsamlega beðnar að
koma gjöfum fyrir þann tíma til Jón-
ínu Guömundsdóttur, Sólvallagötu 54
(1-47-40), Guðrúnu Jónsdóttur, Skafta-
hlíð 25 ( 3-34-49), Ingu Andreassen,
Miklubraut 82 (1-52-36), Rögnu Guð-
mundsdóttur, Mávahlíð 13 (1-73-99).
hvort ekki geti verið erfitt að handsama strok-
kvartetta? ^
i i i i i i i
6 u 6 ú ó 6 ó 66 6 6
Dollarar til
StraiTidakirkju
Málfundafélagið Óðinn. Skrifstofa
félagsins i Valhöll Við Suðurgötu er
opin á föstudagskvöldum frá kl. 8V2—
10, sími 17807. Stjórn félagsms er þar
til viðtals við félagsrienn og gjald-
keri félagsms tekur við ársgjöldum
félagsmanna.
Minningarspjöld Barnahelmilissjóðs
fást 1 Bókabúð lsafoldar, Austur-
strætl 8
Kvenfélag Hafnarfjarðarkirkju held
ur bazar föstudaginn 4. okt. kl. 8,30
I í Sjálfstæðishúsinu. — Nefndin.
Morgublaðinu barst í gær
bréí, sem hafði að geyma 10
dollara seðill og reyndist fjár
hæðin verða áheit á Stranda-
kirkju frá XXX. Þetta er ekki j
í fyrsta sinn sem blaðinu ber-
ast áheit erlendis frá, einkum
frá Kanada, sem bendir til
þess að enn minnast íslenzk-
ættaðir menn í Vesturheimi
Strandarkirkju þegar syrtir í
álinn hjá þeim.
Miðvikudaginn 25. septem-
ber kom nýr bátur til Grinda-
víkur: Hrafn Sveinbjarnar-
son III GK II. Báturinn var
smíðaður í Noregi.
Eigendur Hrafns Svein-
bjarnarsonar III er Þorbjörn
h.f. Báturinn er 194 tonn og
búinn öllum nýtizku fiski-
leitartækjum af Simradgerð
og 48 mílna þilfarsradar, jap-
anskri miðunarstöð, Robinsop
talstöð og sjálfstýrara.
Vistarverur áhafnar ern hin
ar vistlegustu og mjög hagan-
lega gerðar.
Aðalvél bátsins er hollenzk
vél, Stork. Afl hennar
er 450 hestöfl og í reynsluför
var meðalhraðinn 10,3 mílur.
Hrafn Sveinbjarnarson III
er stærsta og glæsilegasta fiski
skip sem Grindvíkingar hafa
eignazt. Skipstjóri á heimsigl-
ingu var Björgvin Gunnars-
son og verður hann skipstjóri
áfram. 1. vélstjóri er Kristján
Finnbogason og hefur hann
dvalið í Noregi um 2ja mán-
aða skeið til að fylgjast með
niðursetningu á vél og öðrum
tækjum. Báturinn heldur nú á
síldveiðar.
Þetta er þriðji báturinn sem
Þorbjörn h.f. á Forstjóri þess
er Tómas Þorvaldsson.
Báturinn fékk frekar leiðin-
legt veður og mjög slæmt
þegar hann var kominn upp
undir land. Norðvestan 11—12
vindstig og reyndist báturinn
mjög vel. — G.Þ.
VATNSDALUR
ATHUGIÐ!
að borið saman við útbreiðslu
er langtum odyrara að augiysa [
i Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
„Skin vi6 sól“ í skjóli fjalla
skrauti búinn fjalladalur
þar sem fríða hlíðahalla
heiðablærinn strýkur svalur
og á bröttum hamrahjalla
hreiður byggir stoltur valur.
Dalsins grónu grundir skarta.
Gróðurflos í hlíðaslakka
fegrar útsýn. Flóðið bjarta
íriðsælt milli lágra bakka.
Ljúfur tónn frá landsins hjarta
líður um tún og hæðaklakka.
Hugdirfð vekur fjallið fríða,
fágað, sorfið tímans rúnum,
þar sem sköp og skipti tíða
skýrt má lesta und
hvössum brúnum
meðan ár og aldir líða,
ofar grónum heimatúnum.
Fjallalækir hjala og hossa
hláturmildum, léttum öidum
og í gáska gefa kossa
gróðurbökkum, steinum köldum.
Ljóðrænt hljóma hörpur íossa
á heiðum, mildum
sumarkvöldum.
Slunginn milli sléttra stranda
siliurbjartur áarstraumur,
þar sem bezt til beggja handa
bylgjast engjagrassins flaumur.
Fuglahjarðir leita landa,
ljúfur ómar söngvaglaumur.
Um hlíðar fríðar hjarðir reika,
hestar stökkva liprum fótum,
í áarstraumi laxar Jeika
listasund á straumamótum.
Fáum sýnist fegurð skeika
af fjallabrún að hlíðarrótum.
Brekkum undir býlin góðu
brosa móti sól og degi,
þegar gullna ’geislanr.óðu
greiðir vor um landsins vegi
Vötnin silfurgeiálum glóðu
glituð fram að bláum legi.
Geymir fyrir grimmd og heljum
guðahylli frjóar lendur.
Móti Norðra jörmuéljum
Jörundur á verði stendur.
Blessun veitir bæ og seljum
bjargarvættur himinsendur.
Þar til landa völvan vísa
veginn Ingimundi náði.
seinna gerði ferðar fýsa
festi byggð á Isaláði.
Gegn örlögunum ei má rísa
eða breyta þeirra ráði.
Byggð að Hofi gerði goðinn,
glæstan rann og óðalsetur,
setti góðu griðaboðin,
gætti friðar öðrum betur.
Að garði hans varð gatan troðin,
greina fornu sagnaletur.
Vatnsdæla var hróður hæztur,
höfðingsbragur öðrum meiri.
Fremstur Þorsteinn gáfnaglæstur
gæfu þar og niðjar fleiri.
Jökull vakti vígin æstur,
viknaði lítt þó flyti deyri.
Gömlu minnin geymir Saga,
grefur fremdarrún á skjöldinn,
fræðakynni fyrn daga
felast ekki bak við tjöldin,
geymdu hof og gættu laga
goðarnir, sem báru völdin.
Vatnsdals fornu vættabyggðir
vemda sögu helgidóma,
meðan lifa mennt og tryggöir
manndáð hefst í nýium blóma.
Íslendinga erfðadyggðir
ættargarðinn krýna sóma.
Höfðingsbragur hreinnar lundat
heftir ;óg og flærðir ringar.
Ganga frjáls til gleðifundar
göfug fljóð og hetjur sylngar.
Höfðingsanda Ingimundar
ennþá geyma Vatnsdælingar.
Pétur Ásmundsson.
Hann leit upp frá dagblaðinu
og mælti til vinar síns, sem sat
hinumegin við kaffiborðið.
— Ég er að lesa það hér, að
Rússar séu búnir að finna upp
nýja pyndingaraðferð, sem sé
þögn og afskiptaleysi. Ég hélt
nefnilega að það hefði verið kon-
an mín, sem fann það upp.
* * *
Umferðarprédikari nokkur í
Danmörku, Stubkjær að nafni,
fékk orð fyrir að vera fljótur að
koma fyrir sig orði. Einu sinni
hitti hann prest á götu að kvöld-
lagi, himininn var stjörnubjart-
ur og fagurt veður.
— Fagur er Guðs himinn,
sagði prestur.
— Já, víst um það, sagði Stub-
kjær, en hversu guðdómlegur
hlýtur hann ekki að vera á
réttunni, fyrst hann hefur alla
þessa fegurð til að bera á röng-
unni.
Pokatískan.
— Jæja, þá er ég orðinn í
tízku.
Afi: — Hver er vinsælasti
stráikurinn í þínum bekk?
Palli: — Hann Jón.
Afi: — Hvers vegna?
Palli: — Hann smitaði okkur
alla með mislingum.
— Konan mín segist ætla að
skilja við mig, ef ég hætti ekiu
að leika golf.
— Það er leitt að heyra.
— Já, ég mun vissaieg* sakna
hennar.
Tekið á móti
tilkynningum
frá kl. 10-12 t.h.