Morgunblaðið - 02.10.1963, Side 12
12
MORCUNBLAÐIO
Miðvikudagur 2. okt. 1963
Otgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arm Garðar Kristinsson.
(Jtbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðs.lstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Simi 22480.
Áskriftargjald kr. 80.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 4.00 eintakío.
ÞJÓÐIN HEFUR
SVARAÐ
¥ síðustu alþingiskosningum
gerðist fyrst og fremst
tvennt: íslenzkir kjósendur
lýstu í fyrsta lagi vantrausti
á hið algera úrræðaleysi
Framsóknarmanna og komm-
únista. í öðru lagi vottaði
meiri hluti þjóðarinnar
stefnu Viðreisnarstjórnarinn-
ar eindregið traust sitt.
Þetta er það sem gerðist í
alþingiskosningunum 9. júní
síðastliðinn. Þetta var svar ís-
lenzkra kjósenda við þeirri
spurningu, hvaða flokkum
þeir treystu bezt til þess að
stjórna landinu næstu fjögur
ár, og hvaða stefnu í efna-
hagsmálum þeir teldu heilla-
vænlegasta.
Það ber þess vegna vott
mikilli grunnfærni og yfir-
borðsmennsku, þegar Tíminn
belgir sig út í forystugrein
sinni í gær um að þjóðin
spyrji nú, hvað ríkisstjórnin
hyggist nú fyrir.
Meginhluti íslendinga ger-
ir sér ljóst, að sá vandi sem
riú er við að etja í íslenzkum
efnahagsmálum sprettur
fyrst og fremst af nýju kapp-
hlaupi milli kaupgjalds og
verðlags. Viðreisnarstjórnin
hefur varað þjóðina af mikl-
um alvöruþunga við þessu
kapphlaupi. Hún hefur bent
henni á reynsluna og reynt
að gera henni Ijóst, að af víxl-
hækkun kaupgjalds og verð-
lags leiðir ævinlega aukna
dýrtíð og kjaraskerðingu fyr-
ir almenning.
En hvað hefur stjórnarand-
staðan, kommúnistar og
Framsókn sagt?
Hefur hún varað þjóðina
við kauphækkunum, sem síð-
an hlytu að hafa í för með sér
hækkun verðlagsins?
Nei, sannarlega ekki. Fram
sóknarmenn og kommúnistar
hafa lagt höfuðáherzlu á það
í öllum málflutningi sínum að
ekkert væri eðlilegra en að
kaupgjald hækkaði hröðum
skrefum. Þegar svo verðlagið
hækkar á landbúnaðarafurð-
um og margskonar þjónustu
vegna kauphækkananna,
segja kommúnistar og Fram-
sóknarmenn að þetta sé ríkis-
stjórninni að kenna, og segja
að jafnvægisráðstafanir henn
ar séu einmitt orsök vaxandi
dýrtíðar!!
Allir hugsandi menn sjá í
gegnum þessar blekkingar.
★
Viðreisnarstjórnin tók við
efnahagslífinu í rústum eftir
ráðleysi vinstri stjórnarinnar.
Hún sagði þjóðinni sannleik-
ann um ástandið og hófst
handa um víðtækar ráðstaf-
anir til þess að koma jafn-
vægi á í efnahagsmálum
landsmanna. Allir íslending-
ar vita að árangur viðreisnar-
innar varð stórkostlegur. í
kjölfar hennar sigldi aukin
framleiðsla, bætt gjaldeyris-
aðstaða út á við, aukið láns-
traust þjóðarinnar, blómleg-
ur fjárhagur og almenn vel-
megun.
Það er þessi ávöxtur við-
reisnarinnar, sem kommúnist
ar og Framsóknarmenn eru í
stöðugri styrjöld við. Það er
þetta, sem Framsóknarmenn
og kommúnistar eru að reyna
að rífa niður.
Það er vissulega rétt sem
hefur verið sagt hér í blaðinu
undanfarið, og síðast í Reykja
víkurbréfi sl. sunnud. að það
er skylda Viðreisnarstjórnar-
innar og hins nýkosna Alþing
is að gera þær ráðstafanirsem
að gagni mega koma gegn
þeim vanda, sem ábyrgðar-
laust atferli stjórnarandstöð-
unnar hefur fyrst og fremst
skapað undanfarna mánuði.
Það verður að hindra að nýtt
verðbólguflóð nái að grafa
undan þeim heilbrigða grrjnd
velli, sem viðreisnarstefnunni
tókst að leggja að framförum
og uppbyggingu á íslandi.
Þær ráðstafanir munu verða
framkvæmdar, þrátt fyrir
það að hin óþjóðholla stjórn-
arandstaða Framsóknar-
manna og kommúnista ham-
ast gegn þeim af blindu of-
stæki.
ÞÝZKA BÖKA-
SÝNINGIN
ýzku bókasýningunni lauk
sl. sunnudag. Það var
allra manna mál að hún hafi
verið merkur menningarvið-
burður, sem ástæða sé til að
fagna. Um 2500 manns sóttu
þessa sýningu sem þó stóð
aðeins eina viku. Sýnir það
áhuga íslendinga á bókum,
hversu vel þeir sóttu þessa
sýningu.
íslendingar eru bókaþjóð.
Þeir hafa ekki aðeins áhuga
á fornum bókmenntaarfi
sjálfra sín. Þeir vilja fylgjast
með í heimsbókmenntunum
og njóta þeirra menningar-
strauma sem berast að strönd
um lands þeirra frá gömlum
og grónum menningarþjóð-
um. Þýzka þjóðin er ein
helzta menningarþjóð heims-
ins. Hún hefur átt marga
mikla rithöfunda og skáld,
sem borið hafa hróður henn-
ar um heim allan. Þýzk bóka-
UTAN UR HEIMI
Mynd þessi er tekin í St.
Péturskirkju í Vatikaninu
s.l. sunnudag þegar Páll páfi
VI. setti að nýju Kirkju-
þingið mikla eftir nærri árs-
hlé. Um 2.500 fulltrúar frá
öllum heimsálfum sitja þing- *]
!
„Byggt fyrir milljaröa"
IMefnist byggingariðnaðarsýning
Dana, sem ísl. arkitektar og
aðrir fjölmenna til
DAGANA 11. til 20. oktober nk.
verður efnt til mikillar og merki
legrar sýningar í sýningarhöll-
inni Forum í Kaupm'annahöfn.
Sýninguna nefna Danir „Byggeri
for Milliarder", eða „Byggt fyrir
miljarða“, en að henni standa
Byggeoentrum í samvinnu við
Forum A/S. Undirbúningur að
þessari miklu fraeðslusýningu um
byggingariðnaðinn og vandamál
hans í nútíð og framtíð, hefur
staðið lengi og vakið verðskuld-
aða athygli, ekki eingöngu í Dan
mörku, heldur víða um heirn.
sýning hlýtur þess vegna æv-
inlega að vera íslendingum
kærkominn gestur.
ÞOTUFLUG
UM ÍSLAND
¥ dag hefur ameríska flugfé-
■*■ lagið Pan American Air-
ways áætlunarflug um ísland
með þotuflugvélum. Þetta á-
ætlunarflug liggur frá New
York um Keflavík, til London
með viðkomu í Glasgow. Far-
ið verður einu sinni í viku
í hvora átt frá London og
New York.
Enda þótt þetta áætlunar-
flug hins ameríska flugfélags
með þotu þýði nokkuð aukna
samkeppni við íslenzku flug-
félögin, er það engu að síður
merkilegur atburður í ís-
lenzkum samgöngumálum.
Flugferðin með þotum frá
Keflavík til London tekur
414 klukkustund. Ferðin frá
Keflavík til New York tekur
rúmar 3 klukkustundir. ís-
land hefur enn færst nær
„nágrannalöndum“ sínum í
austri og vestri. Enn hefur
dregið úr fjarlægðunum yfir
Atlantshaf.
Sést það bezt á því, að fjölmargir
hópar erlendis frá hafa tilkynnt
kiomu sína á sýninguna, jafnvel
frá fjarlægum heimsáltfum.
Sýningin verður þrísikipt:
1. Aðailsýningin verður í sýning-
arhöllinni Forum. 2. Útisýning-
arsvæði verður fyrir utan sýning-
arhölilina, eh þó í beinu sambandi
við sjálía aðalsýninguna. 3. Sér-
stakt sýningarsvæði á Amager,
40 þúsund ferm. að stærð, þar
sem sýndar verða margs konar
vélar og tæki og meðferð þeirra
Alls mun sýningarsvæðið ná yfir
47 þúsund fermetra.
Meí sýningunni „Byggt fyrir
milljarða" verður verður reynt
að varpa ljósi á hin fjölmörgu
vandamál byggingariðnaðarins,
sem sífellt aukast með ári hverju.
Sýningin varðar jöfnum höndum
þær milljarðir manna, sem þarf-
nast h/íbýla, nútíma vinnustaða og
skóla, svo eitthvað sé nefnt, og á
hinn bóginn þær miKljarðir í
fjármagni, sem lagt er í bygg-
ingariðnaðinn, og milljarðir
vinnustunda og efnis, sem nota
þarf. Þá verður reynt að benda
á þarfir og möguleika og það
sem unrit er að g-era til að koma
til móts við kröfur um betri og
jafniframt ódýrari byggingar, en
það er veigamikið atriði í sér-
hverju þróuðu samfélagi í dag,
þar sem byggingariðnaðurinn
hefur lykilaðstöðuna.
Sýningin Forum mun varpa
ljósi á hið mjög svo umfangs-
mik'la athafnasvið byggingariðn-
aðarins í nútíma þjóðfélagi.
Enda þótt sýning sem þessi
hljóti að leggja mikla áherzlu
á að sýna þær efnistegundir,
sem eru í dag á markaðnum, þá
nær hún langt út fyrir þann
ramma. Sýningin „Byggt fyrir
milljarða" hefur eitthvað fram
að færa, sem allir hljóta að
hatfa áhuga á, sem eitthvað eru
tengdir byggingariðnaðinum,
hvort heldur sem það eru efnis-
framleiðendur, byggingarvöru-
kaupmenn, arkitektar, verkfræð-
ingar, iðnaðarmenn eða opin-
berir aðilar, sem fjalla um lána
startfsemi til byggingarfram-
kvæmda.
Höfuðmarkmið þessarar um-
fangsmiklu sýningar í Kaup-
mannahöfn í næsta mánuði er
sem sé að sýna fram á, hvaða
þarf að gláma við og leysa í
framtíðinni. Hún mun jafnframt
verða nokkur mælikvarði og
sýnishorn af því, hvað langt
menn hafa náð í þessum efnurn
í dag, og hvernig hægt er að
hagnýta frekar þá möguleika,
sem fram koma með rannsókn-
um, auikinni framleiðslu, áætl-
anagerð, stöðlun, hagnýtingu
nýrra efna, aðferða og tækm-
þróunnar.
Þar sem telja má líklegt, að
nokkur áhugi sé hérlendis fyrir
þessari sýningu, hefur Bygginga
þjónusta Arkitektafélags íslanas
í samvinnu við Ferðaskrifstof-
una Sögu, ákveðið að efna til
hópferðar til Kaupmannahafnar
í sambandi við sýninguna. Gefst
því mönnum, sem eitthvað láta
þessi mál til sín taka, tækitfæri
á hagkvæmri ferð, sem standa
mun yfir í eina viku. Séð verð-
ur um alla fyrirgreiðslu varð-
andi ferðina svo sem útvegun
hótelherbergja o.fl. Þeir sem
þess óska geta stytt dvölina í
Kaupmannahöfn um einn til tvo
daga og dvalið í Glasgow í stað-
inn þann tíma á heimleið. All-
ar nánari upplýsingar varðandi
fyrrgreinda ferð er að fá hjá:
Byggingarþjónusta A.Í.
sími 24344.
Ferðaskrifstofan Saga
sími 17600.
Ekið á grindverk
AÐFARANÓTT s.l. sunnudags
hrökk fólk í húsum við Barma-
hlíð upp af svefni við mikinn
dynk. Er að var gáð, kom á dag-
inn að rauðleitum fólksbíl hafði
verið ekið svo harkalega á grind
verk við húsin nr. 38 og 40 við
götuna, að lágur steinstólpi brotn
aði, og sverar járnpípur, sem frá
honum lágu, bognuðu. Ökumað-
urinn ók þegar á brott, en bíll-
inn hlýtur að hafa skemmzt mik-
ið við áreksturinn. Þeir, sem
kynnu að hafa veitt eftirtekt
þessum bíl umrædda nótt, eru
vinsamlega beðnir að hafa sam-
band við umferðardeild rann-
sóknarlögreglunnar. Ennfremup
er skorað á ökumanninn að
| koma til viðtals.