Morgunblaðið - 02.10.1963, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 2. okt. 1963
n
-i-
Bróðurmorð?
(Der Rest ist Schweigen),
þýzk, Kópavogsbíó.
L,eikstjóri: Helmuth Káutner.
Bróðurmorð? er í rauninni
kvikmyndun á leikriti Shake-
speares Hamlet, viðfangsefni
Þjóðleikhússins á komandi vetri.
Það sem athyglisvert er við
þessa kvikmynd, er hversu vel
leikstjóranum tekst að færa Ham
let í nútíma búning og gera
kvikmyndina að sterkari og
gagnrýnandi athugun á sektar
og ábyrgðartilfinningu einstakl-
ingsins og gefa henni um leið á-
kveðna og mikla merkingu í nú-
tímanum.
Helmuth Kautner er einn af
merkustu leikstjórum Þjóðverja
eftir stríð. Hann starfaði að vísu
á valdatímum nazista, en í Im
Jenen Tagen (1946), fyrstu þýzku
kvikmyndinni sem raunverulega
vakti athygli eftir stríð, tekur
hann til meðferðar og uppgjörs
stríðsárin og sýnir þar hug sinn
gagnvart nazistum og ferli
þeirra. Á síðasta áratug gerði
hann flestar af sínum merkustu
myndum, Síðustu brúna (Die
Letzte Brúcke), Stjörnulausan
himinn (Himmel ohne Sterne),
Hershöfðingja djöfulsins (Der
Teufels General) og einnig Höf-
uðsmanninn frá Köpenick, sem
allar hafa verið sýndar hér. Á
síðari árum hefur H.K. þó sýnt
tilhneigingar til að sogast með
niður . í aumingjaskapinn sem
herjar á þýzka myndframleiðslu
um þessar mundir. Síðan hann
gerði Bróðurmorð?, hefur ekki
frá honum komið eins góð mynd
og hann hefur gefið tilefni til að
vonast eftir.
1 kvikmynd Kautners snýr
hinn ungi John Claudius (Ham-
let>. einkaerfingi Claudius-verk-
smiðianna í Ruhrhéraðinu,- til
Þýzkalands nokkru eftir stríð.
Á stríðsárunum var hann ekki
einu sinni í Þýzkalandi, þar sem
faðir hans hafði sent hann til
náms í Bandaríkjunum. Faðir
hans hafði Iátizt í stríðinu og
útför hans heiðruð af nærveru
Hitlers, þar sem hann hafði ver-
ið einn aðal stálframleiðandi
landsins og virtist handgenginn
nazistum. En í rauninni var það
bróðir hans, Paul Claudius
(Kládíus), sem stóð að baki hans
og kúgaði bróður sinn. Paul
skrifar John að faðir hans hafi
látizt af slysförum í loftvarna-
byrgi sínu, en John trúir ekki
þeirri fullyrðingu og er ákveðinn
að grafa upp sannleikann. Grun
ur hans styrkist við að móðir
hans giftist skjótt mági sínum,
Paul.
Við heimkomuna eru kveðjur
fremur kuldalegar og John lok-
ar sig inni og grúfir yfir gömul
•kjöl og bréf föður síns. Eina
manneskjan sem hann blandar
geði við, er Fee (Ófelía) dóttir
gamla heimilislæknisins Von
Pohl (Póloníus). Með hjálp
enska vinar síns, Majórs Hor-
ace (Hóraz), rannsakar John
gamlar fréttamyndir og ræður
föður sins, en þegar hann finn-
ur gamla dagbók hans, fær grun-
ur hans um að Paul hafi myrt
bróður sinn, staðfestingu. Hvern
ig John tekst að hefna föður-
morðsins, þrátt fyrir tilraunir
fjölskyldunnar að losa sig við
hann, hvernig Fee verður vit-
skert og hvernig John setur morð
föður síns á svið í ballet-formi
fyrir augum bróðurmorðingj-
sns, synir Kautner með öruggri
•tjórn og eftirminnilegum mynd
um. Leikstjórn hans og handrit,
•em einnig er eftir hann, flytur
hið gamla klassiska verk til nú-
tíðarinnar án þess að um raun-
verulega eftiröpun sé að ræða,
gefur því nýjar merkingar um
sekt og sálarstríð, með hugvit-
semi og mótar einnig nýja at-
burði og árekstra á*jafn áhrifa-
ríkan hátt.
Leikstjórn og kvikmyndun öll
er yfirleitt vönduð og jöfn. Ým-
is atriði skera sig úr, t.d. þegar
John skoðar gamlar fréttamynd-
ir frá tímum nazista, þar sem
faðir hans kemur fram, eða þeg-
ar hann fær boð frá föður sín-
um látnum, í gegnum síma. 1
síðara atriðinu eru það hljóðeff-
ektarnir sem skapa sterkustu á-
hrifin. Hardy Krúger sýnir mjög
góðan leik sem John og húlkar
vel hálfsturlun hans í seinni
hluta myndarinnar, þar sem
hann rambar á mótum geðveiki
og skarprar innsýnar. Yfirleitt
er leikurinn í myndinni fyrir
ofan það sem vanalegast er að
sjá í þýzkum myndum, sérstak-
lega hjá Adelheid Seeck (móð-
irin) og Peter van Eyck (föður-
urbróðurinn Paul). Það er óhætt
að mæla vel með þessari hreiw-
skilnu og oft á tíðum mjög vei
gerðu mynd.
Pétur Ólafssonu
Í6250 VINNINGAR!
Fjórði hvér miði vinnur að meðaltalil
Hæstu vinningar 1/2 milljón krónur,
Lægstu 1000 krónur.
Dregið 5. hvers mánaðar.
Örn Clausen hrl.
Guðrún Erlendsdóttir hdl.
Málflutningsskrifsstofa
Bankastræti 12 — Sími 18499
L I l\l K L I l\l E
8KOZKA NEVDARTALSTÖÐIN
Loks er komin á markaðinn ^
neyðartalstöð, sem hentug
er til notkunar í gúmmí-
björgunarbátum og öllum
skipum, smáum og stórum,
— nefnist hún
LIIMKLIIME
LINKLINE hefur sendi- og
viðtæki, sem stillt eru á
alþjóða talstöðvaneyðar-
bylgjuna, 2182 krið/s.
LINKLINE er svo einföld í
notkun að allir geta not-
að hana.
LINKLINE er vatnsþétt og
flýtur í sjó.
LINKLINE fær orku sína
frá 5 venjulegum vasa-
1 j ósa-r af hlöðum.
LINKLINE vegur aðeins
rúm 2 kg!
LINKLINE er komið fyrir í
sívalning, sem er aðeins
6,3 cm í þvermál og 76,2
cm á lengd.
riMKLINE er framleidd hjá
Pantið LIMKLIME sem fyrst hjá
LINKLINE hefur verið prófuð á vegum
Skipaskoðunar ríkisins, Landssíma íslands
og Landhelgisgæzlunnar, og hefur gott
talsamband náðst með henni yfir 60 sjó-
mílna vegalengd. ( Við prófanir í Eng-
landi hefur heyrzt í henni við góð skil-
yrði allt að 200 sjómílur).
♦ LINKLINE er viðurkennd
Woodsons of Aberdeen Ltd.
GRAIMDAVER H.F.
Grandagarði — Sími 14010