Morgunblaðið - 01.11.1963, Qupperneq 14
14
/
MOHGU NBLAÐIÐ
Föstudagur 1. nóv. 1963
Séð yt'ir Reykjavíkurborg og Esjan í baksýn.
vernda upprunalega náttúrufeg-
urð eins og Reykjavík hefur til
að bera.
Reykjavík má aldrei verða
snurfusuð steinsteypa, sem lögð
er samkvæmt reglustiku og
kulda leggur af. Reykjavík hlýt
ur aftur á móti að bera svipmót
af ólgandi lífi fólksins, sem borg
ina byggir, og bera vitni um
starf þess, sorg og gleði og ham-
ingjuleit.
Við vonumst til þess, að frið-
ur ríki og orku mannsins og viti
verði varið til að fegra og bæta
mannlífið. Reykvíkingar halda
þá áfram að byggja sína borg, og
borgarstjórn verður að fylgjast
með kröfum tímans og fólksina
og vera viðbúin nýjum verkefn-
úm, eigi síður á sviði lista,
mennta-, heilbrigðis- og félags-
mála en efnalegra framkvæmda.
Ég á þá ósk Morgunblaðinu
til handa á fimmtugsafmæli þess^
að blaðið megi áfram veita
stjórnendum Reykjavíkur stuða
ing og styrk til að koma fram-
faramálum í framkvæmd, frjáls-
um borgurum til handa.
í trausti þess að svo verði mun
Morgunblaðið vonandi eiga þvi
láni að fagna hér eftir sem hing-
að til að geta flutt lesendum sín-
um þau íiðindi, að borgarstjórn-
arkosningum loknum, að sigur
hafi unnizt af þeim, er blaðið
studdi.
Geir Hallgrimsson. i
rafmagn, vatn og hita jafnóð-
um og þörfin kallar, en hún mun
ifara hraðvaxandi og krefjast
geysilegrar fjárfestingar og vel
yfirvegaðrar vísinda- og verk-
fræðivinnu.
En eins og engin vatnsveita
var til, fyrr en fyrir rúmum 50
árum, engin rafmagnsveita, fyrr *
en fyrir rúmum 40 árum, engin
almenn hitaveita, fyrr en fyrir
20 árum, þá kunna næstu áratug
ir að greina frá nýjum fram-
kvæmdum og stofnunum, sem
munu marka jafnmikil og stór-
stíg tímamót í lífi borgarbúa og
þessi þrjú þjónustufyrirtæki
^ hafa gert á liðnum áratugum.
Eftir næsta áratug þykja full-
gerðar götur sjálfsagðar, og ó-
ræktuð svæði í borginni og við
hana hverfa óðfluga undir gras-
svörð, runna og jafnvel skóga.
Eitt mesta vandamálið, sem
vaxandi borg á við að glíma, er
að tengja mannvirkin landslag-
inu, hið nýja því gamla og
SERVAS
SKÓSALAIM
Laugavegi 1.
ÞYZKIR
KVENSKÓR
NÝKOMNIR
MIMOSA
AUGLÝSIR:
Höfum mikið úrval allskonar blóma. Pottablóm
afskorinblóm, plastblóm og fræ. Önnumst allar
tegundir skreytinga svo sem:
BRÚÐARVENDIR, KÖRFUR,
GJAFASKREYTINGAR, KRANSA,
KISTUSKREYTINGAR O.FL
Til sölu
5 og 6 herb. íbúðir í smíðum í 3ja hæða húsi við
Ásbraut í Kópavogi- Seljast uppsteyptar með frá-
genginni hitalögn, og með sér hitastillum, vatns-
og skolplagnir, lagðar að tækjum. Tvöfalt verk-
smiðjugler í gluggum. Sameign utanhúss og inn-
an fullfrágengin. Húsið stendur á fallegum stað
með góðu útsýni. íbúðinrar seljast með góðum
kjörum.
ÓLAFUR
þopgpímsson
hœstaréttarlögmaður
Fasfeigna og verdbréfaviöskipti
HARALDUR MAGNÚSSON
Austurstrœti 12 - 3 hœð
Sími 15332 - Heimosími 20025