Morgunblaðið - 01.11.1963, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.11.1963, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 1. nóv. 1963 íslenzk grúöurlendi og framtiö þeirra eftir Ingva S>orsteinsson9 magister Á UNDANFÖRNUM árum hefur áhugi á gróðurvernd og upp- græðslu örfoka landssvæða farið vaxandi, eins og sjá má á þeim fjölda greina og erinda, sem kom ið hafa fram um þessi efni. Þetta bendir til þess, að enda þótt mik- ið hafi áunnizt í baráttunni við gróðureyðingu telji menn, að enu meiri átaka sé þörf, svo að full- nægjandi megi teljast. Umræður um þessi mál hafa ekki alltaf verið mikils virði frá fræðilegu sjónarmiði séð og oftar einkennzt af óskhyggju en staðreyndum, en hafa þó haldið gagnlegri hreyf- ingu á málinu. Og það eitt er nokkurs virði. Hér verður í stuttu máli reynt að gera grein fyrir núverandi ástandi íslenzkra gróðurlenda og draga nokkrar ályktanir um framtíð þeirra. f því skyni verður ekki hjá því komizt að fara nokkrar aldir aftur í tímann og rekja þær breytingar, sem orðið hafa á gróðurlendinu fram til okkar daga. Gróður á landnámsöld Enn þann dag í dag vitum við ekki með vissu, hver er heildar- stærð gróins lands á íslandi, og enn minni vissa ríkir að sjálf- sögðu um stærð þess, er land- námsmenn stigu hér fyrst á land. Með frjógreiningu- og öskulaga- rannsóknum og út frá söguleg- um heimildum hafa menn þó orð ið margs vísari um gróðurfar þessa tíma, og hefur meðal ann- ars komið fram sú skoðun, að að minnsta kosti 60—70% lands- ins hafi þá verið þakið gróðri. Hve ólík gróðurlendi þeirra tíma hafa verið frá núverandi gróður- lendum sést bezt á þeim ummæl- um Ara fróða, að landið hafi ver- ið viði vaxið milli fjalls og fjöru. Að vísu hefur hann senni- lega tekið nokkuð djúpt í árinni, og trúlega hefur aðeins þurr- lendi á láglendi verið klætt birki- skógi. Eftir að landnám hefst, hrakar birkiskóginum fljótlega, og er lít- ill vafi á, að þar er búsetunni um að kenna. Skógurinn var höggvinn til ýmissa nytja, hann hefur verið beittur takmarka- laust, enda má búast við, að bezti beitargróðurinn hafi verið í skóglendunum, og loks var skógurinn brenndur í þeim til- gangi að auðvelda ræktun lands- ins. Við þetta bættist svo, að versnandi loftslag, hefur flýtt fyr ir eyðingu skóganna. Og ef til vill höfðu öskugos nokkur áhrif í sömu átt. Með eyðingu skóganna hefst gróður- og jarðvegseyðing fyrir alvöru á íslandi. Trjágróður er sérlega vel til þess fallinn að binda jarðveg og vernda hann gegn eyðingu af völdum vatns og vinda, og má sjá mörg dæmi slíks hér á landi í bröttum fjalls- hlíðum og á jafnlendi, þar sem allur jarðvegur er horfinn nema þar, sem.skógurinn stendur enn. íslenzkur þurrlendisjarðvegur kefur í eðli sínu mjög lítið mót- stöðuafl gegn eyðingaröflunum; hann er grófgerður, þurr og laus í sér og sé hann ekki þakinn þéttum gróðri með djúpstæðu rótarkerfi, verður hann auðveld- lega vatni og vindum að bráð. Það er því engin furða, þótt hinn tiltölulega skyndilega eyð- ing skóganna kæmi af stað hrað- fara gróður- og jarðvegseyðingu, sem hefur haldið áfram fram á okkar daga, þótt mjög hafi dreg- ið úr henni á síðustu áratugum. Mjög hefur verið rætt um þátt sauðbeitar í eyðingu íslenzkra gróðurlenda, og því hefur jafn- vel verið haldið fram, að sauð- kindin ætti þar mestan hlut að máli. Hér er of djúpt tekið í ár- inni, því að hófleg beit. er ekki skaðleg gróðri að öðru jöfnu. Hins vegar hefur sauðfjárrækt verið byggð á beit á óræktuðu landi fram til þessa. Án efa hef- ur víða verið um ofbeit að ræða, og ofbeit ýtir mjög undir gróður- skemmdir og uppblástur. Að þeim áhrifum beitar á gróðurfar hérlendis verður vikið síðar. Aðgerðir til að hindra gróðureyðingu Allt fram undir síðustu alda- mót máttu íslendingar sín lítils í baráttunni við eyðingaröflin. Áhuginn -var fyrir hendi, en flest það skorti, sem á þurfti að halda til þess, að viðleitnin bæri nokk- urn árangur. Þau eru ótalin dags- verkin, sem þannig voru unnin í kyrrþey — en allt of oft án sýnilegs árangurs. Það var ekki fyrr en með stofnun Skógræktar ríkisins og Sandgræðslu íslands í byrjun þessarar aldar, að tekið var að vinna kerfisbundið að stöðvun gróðureyðingarinnar. Þetta var meginverkefni beggja stofnana frá upphafi, þótt báðar hafi síðar af stórhug haslað sér stærri völl. Þessar stofnanir hafa frá upp- hafi átt að skipa ágætum starfs- kröftum, og árangur þeirra er kunnari en svo, að um hann þurfi að fjölyrða. Heft hefur ver- ið sandfok á flestum stærstu og hættulegustu sandfokssvæðunum, og eru sum þeirra á góðri leið með að gróa upp að nýju. Mörg stærri skóglendin hafa verið frið- uð í þeim tilgangi að vernda trjá- gróðurinn jafnframt því, sem þau eru notuð til plöntunar á öðrum trjátegundum. Láta mun nærri, að um 100 þúsund hekt- arar lands hafi verið friðaðir af Sandgræðslunni og um 28 þús. af Skógræktinni frá upphafi. Önnur verkefni þeirra verða ekki rakin hér. Að lokum má í þessu sam- bandi minnast á rannsóknir þær, sem unnið hefur verið að á At- vinnudeild Háskólans nokkur undanfarin ár. Tilgangur þessara rannsókna er: a) að finna beitar- þol gróðurlendanna, b) finna hagkvæmar aðferðir til þess að auka og bæta gróður þeirra og jafnframt auka mótstöðuafl þeirra gegn uppblæstri, c) finna leiðir til uppgræðslu örfoka lands á láglendi og hálendi. Ingvi Þorsteinsson Hér er um ærin verkefni að ræða, sem of lengi hafa verið látin sitja á hakanum. Starfsemi þessi hefur enn sem komið er ekki markað djúp spor í ís- lenzka gróðurverndarsögu, enda ung að árum. En mikilvægi henn- ar er ótvírætt. Einn þáttur henn- ar er að gera nákvæmt kort af gróðurlendum hálendisins og er þeirri vinnu þegar lokið á há- lendinu sunnan jökla, frá Skaftá að austan að Faxaflóa að vestan. Megintilgangurinn með þessum mælingum er sá að ákvarða beit- •• •••• ••••••• ••• Sandgræðslugirðing arþol afréttanna, en auk þess gefa kortin nákvæmar upplýs- ingar um, hvar uppblástur á sér stað, og hvar uppblásturshættan er mest. Gróðurlendin í dag Hvert er svo ástand gróður- lendanna nú eftir þúsund ára eyðingu og nokkurra áratuga bar áttu gegn henni? Því miður höfðu íslendingar ekki skilning né getu til þess að grípa nógu fljótt í taumana, því að þegar það var loksins gert, hafði glat- azt rúmlega helmingur til tveir þriðju af flatarmáli þeirra gróð- urlenda, sem hér eru talin hafa verið á landnámsöld. Að vísu er ekki enn vitað nákvæmlega um núverandi stærð gróðurlenda á íslandi, en hún er talin vera um 17—25 þús. ferkm. Hafi hún verið 60—70 þús. ferkm. við land námið hafa á þessu tímabili tap- azt 40—50 þús. ferkm. eða sem svarar til nálega helmings af yfirborði landsins alls. Þetta hljómar ótrúlega, en er ekki fjarri sannleikanum, þótt nokkrum ágizkunum sé beitt með framanskráðum tölum. Auðnirn- ar á öræfum landsins og víðar, sem vafalítið hafa verið þaktar gróðri að miklu leyti áður, tala sínu máli. Og hve víða sjást ekki dæmi þess, hvernig gróður- lendi og jarðvegur, sem náttúr- an með sínu hæglæti hefur verið aldir og jafnvel árþúsundir að byggja upp, hverfur á nokkrum árum fyrir eyðingaröflunum, ef ekki er að gert. Það, sem tapast þannig, verður seint bætt. Árang- urinn af baráttunni við gróður- eyðinguna hefur verið glæsileg- ur, en samt verðum við að horf- ast í augu við þá staðreynd, að enn er árleg gróðureyðing geysi- mikil og sennilega meiri en land- vinningar okkar á þessu sviði. Óvíða er um mjög stór uppblást- urssvæði að ræða á hverjum stað. Þau stærstu hafa þegar ver- ið friðuð, en fjöldi slíkra svæða er ótölulegur. Sunnanlands á sér, -.■ííUi > Minna en fjórðungur landsins er þakinn gróðri. (Ljósm.: L Þ.). t. d. stað meiri og minni upp- blástur á öllum afréttum, sem víða teygir sig niður í byggð. Það er sárt að þurfa að viður- kenna undanhald á þessu sviði í allri tækni og framförum síð- ari tíma, en það verðum við enn að gera. En hver er ástæðan? Þeim stofnunum, sem að þessum málum vinna, verður ekki um kennt, þær hafa unnið vel, en eru, þegar á allt er litið, ungar að árum og hafa haft takmarkað starfsfé. Mér virðist ástæðan liggja í augum uppi. Á sama tíma og unnið hefur verið af alefli gegn gróðureyðingunni eru gróð- urlendin notuð til beitar af nær algeru handahófi. Slík nýting getur leitt til ofbeitar, og ofbeit hefur í för með sér gróður- skemmdir, sem flýta fyrir algerri eyðingu gróðurs. Rannsóknir Atvinnudeildar á afréttum sunnanlands benda til þess, að margir þeirra séu of- setnir af fé og hafi ef til vill verið það lengi. Ofbeitarein- kennin eru glögg: gisinn gróður, og lélegar beitarplöntur ríkjandi i gróðurlendum. Og það, sem bend ir til langvarandi ofbeitar: Beztu gróðurlendin eru að blása upp, og fallþungi fjárins hefur farið lækkandi ár frá ári. Ekki verður fullyrt hér, hve víða á landinu ástandið er þannig, úr því fæst væntanlega skorið á næstu ár- um. En rannsóknirnar hafa m.a. leitt í ljós, að góðar sumarbeitar- plöntur eru ekki ríkjandi í gróð- urlendum hérlendis. Nýtilegt upp skerumagn af flatareiningu gró- ins lands er því lítið og beitar- þolið að sama skapi. Beztu beit- argróðurlendin eru mjög við- kvæm gegn ofbeit. Af þessu er ljóst: að gróður- eyðing verður ekki stöðvuð fyrr en tryggt er, að gróðurlendin séu ekki nýtt umfram beitar- þol. Jafnframt því, sem ákvörð- un á beitarþoli gróðurlenda er þannig undirstaðan undir gróð- urvernd, er hún einnig bændun- um trygging fyrir hámarksafurð- um af búfé sínu á beit. Og búskapur okkar byggist svo mikið á nýtingu óræktaðra gróð- urlenda, að raunverulega er úti- lokað að gera framtíðaráætlanir um framleiðsluaukningu í land- búnaðinum án þess að þekkja framleiðsluþol þeirra. Framtíð gróðurlendanna Samkvæmt því, sem að framan greinir, blasa nú við augum eftir- farandi staðreyndir: a) Minna ea fjórðungur af yfirborði landsins er þakinn gróðri. b) Mikil gróð- ureyðing á sér enn stað, og er hún örari en gróðurvinningar okkar. c) Hin óræktuðu gróður- lendi eru undirstaða sauðfjár- ræktar íslendinga, en eru samt nýtt af nær algeru handahófL d) Beitarþol mikils hluta gróð- urlendanna er lítið vegna lélegra beitarplantna og viðkvæms gróð- urs, og þau eyðileggjast fljótt af ofbeit. Af þessu er ljóst, að ekki er ástæða til að líta með ánægju á ástand gróðurlendanna og með- ferð þeirra í dag. Það þarf mikið /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.