Morgunblaðið - 01.11.1963, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.11.1963, Blaðsíða 32
Form. LÍV telur verkfall verzlun- arfólks n.k. mánudag ðraunhæft EINS OG kunnugt er hafa sam- tök verzlunarfólks boðað verk- fall frá og með næsta mánu- degi. í tilefni af frumvarpi ríkis- stjórnarinnar um stöðvun kaup- gjalds og verðlags, leitaði Morg- unblaðið sér upplýsinga um það, hver verða myndi afstaða verzl- unarfólks. Samkvæmt upplýsing um Sverris Hermannssonar, for- manns LÍV höfðu samtökin enn ekki fjallað um málið í gær- kvöldi, en munu halda fund um Afmælismót- taka í Sigtúni í TILEFNI af 50 ára af- mæli Morgunblaðsins á morgun, laugardag 2. nóvember, munu stjóm- endur blaðsins taka á móti vinum þess og velunnur- um í Sigtúni (Sjálfstæðis- húsiinu) milli kl. 4 og 6 síð- degis afmælisdaginn. það kl. 12 á hádegi í dag. Sverrir Hermannsson sagði að hann gæti ekkert fullyrt um Ihvort vinnustöðvun yrði, þar sem málið hefði ekki verið tek- ið fyrir á fundi. Landssambands- stjórnarinnar, en bætti við: „Ég er sannfærður um að rétt- lætiskröfur verzlunarfólks muni ná fram að ganga, enda er bein- línis gert ráð fyrir því í greinar- gerð frumvarpsins að bætt verði kjör hinna lægst launuðu“. Mbl. spurði Sverri hvort hann Stjórn ASÍ mótmælir STJÓRN Alþýðusambands ís- lands hélt fund í gærkvöldi. Var þar samþykkt að mótmæla „harð lega frumvarpi því til laga um launamál og fleira, sem ríkis- stjórnin lagði fram á Alþingi í dag“. 27 bátar með nær 27 búsund tunnur gerði ráð fyrir verkfalli meðan frumvarpið væri til meðferðar Alþingis. „Nei, ég hygg ekki. Verkfall þjónar þeim tilgangi að knýja fram ákveðna niðurstöðu um kaup og kjör. Að mínu viti mundi verkfall okkar verzlun- arfólks á mánudag ekki geta þjónað þeim tilgangi, þar sem verkfallið yrði örugglega ógilt, án kaup og kjarabóta, að örfá- um dögum liðnum með sam- þykkt frumvarpsins. Ég er að sjálfsögðu ekki ánægð ur með þessa framvindu mála. En ég treysti því að málum okkar verði sýndur fullur skiln- ingur“, sagði Sverrir að lok- um. Árni Óla með bók sína. Árni Óla skrifar endurminn- ingar blaðamanns ,Erill og ferill blabamarms hjá Morgunblaðinu i hálfa öld" í FYRRINÓTT var góður afli á síldarmiðunum út af Snæfells- nesi og fengu 27 síldarbátar sam tals 26.600 tunnur. Inn til Reykjavíkur komu í gær 7 bátar með 10.150 tunnur. Grótta með 1600, Víðir SU með 1400, Halldór Jónsson með 1500, Jón á Stapa 900, Engey 1600, Pétur Sigurðsson 1350. Éréttaritarinn á Akranesi sím- aði að þrír Akranesbátar hefðu komið inn með 3.700 tunnur. Höfrungur II með 1800 tunnur, Haraldur 1500 og Fiskaskagi með 400. Síldin var öll hraðfryst í gær, en í fyrradag voru saltaðar 1600 tunnur. Síldin er einhver sú fallegasta sem völ er á á ihaustvertíð að sögn fréttaritar- Prentaraverkfall FYRIR um það bil viku boðuðu prentarar v.erkfall ,sem hefjast skyldi á miðnætti s.l. nótt, hefðu samningar ekki tekizt fyrir þann tíma. Samkomulag í deilu þeirra við prentsmiðjueigendur hefur ekki tekizt enn. Prentarar héldu fund í Iðnó í gær um málið. Hófst fundur- inn kl. 17,30 og lauk kl. 19. Á honum var samþykkt eftirfar- andi tillaga: „Fundur í Hinu íslenzka prentarafélagi, haldinn 31. okt. 1963, kl. 5,30 í Iðnó, mót- mælir eindregið frumvarpi til laga um launamál o.fl., sem fram er komið á Alþingi og ákveður bann við frjáls- um samningum milli verka- lýðsfélaga og atvinnurekenda. Fundurinn telur slíka lög- gjöf beina árás á samninga- frelsi verkalýðsfélaganna og skorar á Alþingi að fella fram komið frumvarp. Til frekari mótmæla sam- þykkir fundurinn, að boðaðri vinnustöðvun verði ekki af- létt, nema félagið verði til þess knúið“. í samræmi við þá ályktun mun verkfall prentara, sem hófst í nótt, standa þar til frumvarp ríkisstjórnarinnar um stöðvun kaupgjalds- og verðlagshækkana hefur verið samþykkt. Koma engin blöð út á meðan. í GÆR komu út hjá ísafold endurminningar Árna Óla, ritstjóra, sem starfað hefur við Morgunblaðið frá stofn- un þess. Bókin her nafnið „EriII og ferill blaðamanns hjá Morgunblaðinu í hálfa öld“. Bókin kemur út í tilefni 50 ára afmælis Morgunblaðs- ins 2. nóvember n.k., en fyr- ir um það bil ári fór stjórn blaðsihs þess á leit við Árna Óla, að hann skrifaði end- urminningar um blaða- mennsku sína. Á fundi með fréttamönnum í gær skýrði Pétur Ólafsson, for- Brezku barsmlðaháset- arnir neita að fara út ÞRÍR hásetar á brezka togaran- um Victrix neituðu að fara út á veiðar aftur með skipinu, sem ligigur inni á ísafirði. En þessir sömu menn munu hafa staðið fyrir ólátunum um borð í tog- aranum úti á sjó og bairsmíðinni á vélstjóranum. Fer skipið út án þeirra, enda segir skipstjórinn að það sé í lagi. Hásetarnir þrír fóru meö flug- vél frá ísafirði til Reykjavíkur í gær og verða sendir utan. Nýr vélstjóri á togarann kom til ísafjarðar í gær. Fann hann eitthvað athugavert við katla togarans og vildi láta athuga það áður en togarinn færi út og er verið að því. Kirkjuþingið i Róm: Nútíma list skreyti kaþólskar kirkjur Rómaborg, 31. okt. — AP. KIRKJUÞINGIÐ í Róm sam- þykkti í dag með 1838 at- kvæðum gegn 9 að hvetja til þess að nútíma listform verði notuð til skreytinga í kirkj- um kaþólskra manna í fram- tíðinni. Samþykktinni fylgdu hinsvegar aðvörunarorð, þar sem bent er á, að ekki skuli nota við slíkar skreytingar þau Iistform, „sem að útliti til eru óskiljanleg kristnum mönnum, og trú þeirra." Samþykktin varaði einnig við of mikilli eyðslu fjár til kirkjubygginga, og of mikl- um íburði í skreytingu þeirra. Er hér um að ræða síðasta liðinn í umræðum þingsins um trú almennings. Enn er þó eftir að ræða nokkrar breytingartillögur, sem fram komu fyrr í þessum mánuði, en talið er líklegt að áætlun- in um almenningstrú í heild komi til allsherjaratkvæða- greiðslu áður en þingi verð- ur frestað 4. desember n.k. Áætlun þessi felur í sér mikl- ar umbætur og breytingar varðandi kaþólsk trúarbrögð. stjóri ísafoldar, frá útkomu bók arinnar. Hún er 450 blaðsíður að stærð, prýdd fjölda mynda af mönnum og atburðum. Skiptist hún í tvo hluta, og nær sá fyrri frá því Morgunblaðið var stofn- að 1913 til 1920, en þá varð hlé Framh. a bls. 10 m 7 dagar eru ná þar til dregið verð- ur í hinu glæsilega Skyndi- happdrætti Sjálfstæðis- flokksins. Vinningur er einkabifreið, Mercedes Benz, árgerð 1964, verð- mæti kr. 320 þúsund. Dreg ið verður 8. nóvember n.k. — Verð miðans er aðeins 100 kr. Skrifstofa happdrættis- ins í Sjálfstæðishúsinu verður opin til kl. 10 í kvöld, föstudagskvöld, og ■ þess vænzt að menn flýti sér að gera skil. Auk þess eru miðar seldir í vinningsbifreiðinni við Austurstræti. EFLIÐ SJÁLFSTÆÐIS- FLOKKINN — KAUPIÐ MIÐA STRAX í DAG! Hljóp á bíl SJÖ ára gömul telpa hljóp um kl. 3.30 í gær á bíl á Framnes- vegi, rétt sunnan við gatnamót Brekkustígs og F r aimnes v eg a r. Hljóp hún á hægri hlið bifreið- arinnar, sem var á leið suður Framnesveginn. Kvartaði hún um eymsli í ihöfði og var flutt á Slysavarðstofuna. Um 7 leytið í gærkvöldi var maður að festa upp sjónvarps- stöng á húsinu Mávahlíð 47. Skrikaði honum fótur og féll hann niður í garðinn. Koan hann standandi niður og mun ekki hafa meiðzt neitt að ráði, ea hann var fluttur á Slysavarð- stofu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.