Morgunblaðið - 19.01.1964, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ
Sunmráagur 19, Ján. 1964
HJALP I VIÐLOGUM
Bókin er 108 bls. að stærð með 145 myndum
og vandaðri kápu. — Kostar aðeins kr. 65,00.
Gefin út að tilhlutan Slysavarnafélags
íslands.
Heimili,. vinnustaðir, skólar,
ferðalangar, skátar!
HJALP
V IÐ L 0 G
U IVI
7. útgáfa
kemur út í dag.
Af nýju efni í þessari útgáfú má m.a. nefna:
Lífgunaraðferðir.
Bráðabirgðameðferð brunasára'
( vatnsmeðf erð ).
Notkun sárabögguls.
Axlarliðhlaup, lega sjúklings þar til
næst í lækni.
Stuðningsumbúðir til bráðabirgða
við beinbrot.
Þrýstingsumbúðir við slagæðablæðingu.
Um 40 nýjar myndir.
Úr formála síðustu útgáfu, eftir
Guðmund Thoroddsen, prófessor:
„Bókin er notuð við kennslu í hjálp í viðlögum á nám-
skeiðum hjá skátum, Slysavarnafélagi íslands, Rauða
krossi íslands og mörgum skólum. Margir hafa kennt eft-
ir henni, þó enginn jafnmörgum og höfundur hennar, en
nemendur hans skipta nú þúsundum. En höfundurinn hef
ur ekki látið sér nægja að kenna eingöngu. Hann hefur
líka haldið áfram að nema sjálfur, eins og allir góðir
kennarar, fylgzt með nýjungum þeim, sem orðið hafa, og
látið bókina njóta góðs af. Útgáfurnar hafa ekki orðið
hreinar endurprentanir, alltaf hefur meira og minna
bætzt við, og sumum hefur verið breytt, svo að betur
mætti fara“.
Lærið að hagræða slösuðum, meðvitundar-
lausum manni, svo hann kafni ekki á meðan
beðið er eftir lækni eða sjúkrabíl.
Lærið bráðabirgðameðferð við brunasár sam-
kvæmt vantsmeðferð.
Köfnun af kolsýrlingi Drukknun
66
ÞEGAR STENDUR 1 MANNI.
Það ber við, að matarbiti, svo sem kjot, epli, harð-
fiskur eða blóðmör standi i hálsi manns (kokinu)
og loki þannig loftrásinni til lungnanna. Einnig geta
aðskotahlutir, svo sem tölur, smámynt, baunir o. fl.,
hrokkið niður i barka. Sjúklingurinn blánar i and-
liti, stendur á öndinni og getur kafnað á skammri
stundu.
Beita má ólikum hjálparaðferðum
eftir aldri sjúklingsins.
Sé um 2ja—4ra ára barn. að ræða-,
er reynandi að bregða þvi um öxl sér
og slá með flötum lófanum á bak barns-
ins, eins og myndin sýnir. Loftþrýst-
ingur frá lungunum gæti þá hrifið að-
skotahlutinn með sér.
Sé um smáharn að ræða, her að hafa
& því endaskipti, halda um læri þess
og hrista barnið duglega. Við það get-
ur aðskotalilutur í koki eða barkakýlis-
opinu hrokkið frá og fram úr barninu.
A sama máta getur sú.aðferð
lijálpað, cr þessi nnndl‘ sýnir:
ið leggja sjúklinginn á grúfu á
læri sér og berja með flölum
lófa á milli herða hans.
67
Við fullorðið fólk getur það
ráð, sem sýnt er á þessari mynd,
oft komið að gagni. Gripið um
hringspalir mannsins, beygið
höfuðið vel niður, og sláið með
flötum lófa milli herðablað-
anna.
ÉEf hægt er að koma þvl við
að leggja sjúklinginn á borð eða
bekk, eins og myndin sýnir, láta
höfuð og liáls ná vcl ut fyrir
borðsröndina og slá fast milli
lierðablaða sjúklingsins, þá gæli
sú bjálp komið að gagni.
Enn er það ráð. oft notað, sé
ekki unnt að koma öðru við, að
i'ara með visifingur hægri hand-
•ar eða bæði vísifingur og löngu-
töng ofan i sjúklinginn og reyna
þannig' að ná taki á aðskota-
Iilnt, sem cr sýnilegur i koki
sjúklings.
Bóksalar, námskeið og skólai
Pantið bókina strax!
BÚKAAFGREIÐSLA
Lœrið lífgunartilraunir
ODDS BJÖRNSSONAR
Laugavegi 130. — Reykjavík. — Sími 15916.