Morgunblaðið - 19.01.1964, Qupperneq 27
Sunnudagur 19. ian. 1964
MORCUNBI *r>IÐ
27
£inar Sveinbjörnsson og Þorkel 1 Sigurbjörnsson við hljóðfærin
Musica nova lield-
ur tónlcíka.
MUSICA NOVA efnir til
fyrstu auka tónleika sinna á
þessu starfsári sunnudaginn 19.
þ.m. kl. 3.30 í Þjóðleikhúskjall-
aranum. Einar Sveinbjörnsson
fiðluleikari og Þorkell Sigur-
björnsson tónskáld flytja á þess-
um tónleikum rómönzu eftir dr.
Hallgrím Helgason, sónötu í G
dúr eftir Beethoven, sónötu eft-
ir Jón S. Jónsson, síðan koma
tvö ný verk Bagatellur eftir Þor
kel Sigurbjörnsson og mosaik eft
ir Leif Þórarinsson. Þeir félag-
ar eru nýkomnir úr ferðalagi til
höfuðborga allra norðurlanda
þar sem þeir hafa, gert upptökur
á ofangreindum íslenzkum verk-
um fyrir útvarpsstöðvar þessara
landa. Þessi ferð var mjög árang
ursrík til kynningar íslenkrar
tónlistar og hvarvetna rikjandi
mikill áhugi fyrir nýrri ís-
lenzkri tónlist meðal frændþjóða
okkar. Styrktarfélagar Musdca
nova fá helmings afslátt á að-
göngumiðum að aukatónleikum
félagsins.
Rælf un
London, 18. jan. (NTB)
Samveldismálaráðherra Breta,
Duncan Sandys, ræddi í dag við
fulltrúa tyrkneska þjóðarbrots-
ins á Kýpur, en í gær ræddi
hann við fulltrúa grískumælandi
manna. Sandys er í forsæti á.
ráðstefnunnj um Kýpurmálið,
sem. stendur yfir í London um
þessar mundir, en þegar fundir
eru ekki á ráðstefnunni ræðir
hann við deiluaðila til skiptis til
þess að reyna að samræma sjón-
armiðin, sem eru mjög ólík.
Malkaríos erkibiskup, forseti
Kýpur, sagði í gær í viðtali við
blað í ítaliu, ag næðist ekki
árangur á ráðstefnunni í Lond-
on, yrði að taka Kýpurmálið til
Línunni milli
Kreml og
Hvíta húss-
ins stoliÖ
Helsingfors, 18. jan. (NTB).
BLAÐIÐ Suomen Sosialdemo
kraati í Helsingfors skýrði frá
því í dag, að 9. þessa mánað-
ar hefði verið stolið sex metr
um af símalínunni, sem ligg-
ur milli Kreml og Hvíta húss-
ins. Línan liggur um Helsing-
fors til Tallin í Eistlandi og
skammt frá Helsingfors höfðu
þjófar skorið sex metra úr
henni. Gert var við línuna
strax og upp komst um þjófn-
aðinn.
i Kýpur
umræðu á breiðum grundvelli
innan Sameinuðu Þjóðanna.
Jose Rolz-Bennet, sérstakur
sendimaður U Thants, fram-
kvæmdastjóra SÞ, var væntan-
legiur til K^pur í dag til við-
ræðna við indverska hershöfð-
ingjann P. S. Gyani, en hann er
eftirlitsmaður SÞ á eyjunni.
Rolz-Bennett heldur til Kýpur
frá London, en þar hefur hann
setið stutta fundi með sendinemd
unurn á Kýpurráðstefnunni og
rætt við Butler utaríkisráðherra
Breta.'
Hafnaríjarðar-
ferðir
MBL. SNERI sér í gær til skrif-
stofu Landleiða h.f. og innti eftir
því hversu ferðum yrði hagað
milli Reykjavíkur og Hafnar-
fjarðar nú um helgina, en sem
kunnugt er stendur yfir verk-
fall bilstjóra og aka eigendur
sjálfir. Engir sáttafundir hafa
verið boðaðir og var Mbl. tjáð
að ekki væri útlit fyrir að málið
leystist á þessu stigi.
í dag, sunnudag, verða ferðir
frá Reykjavík kl 12, 13, 14, 15,
18, 19, 20 og 23. Á mánudags-
morgun verða ferðir frá Reykja
vík kl. 7, 8 og 9 en ferðir eftir
ihádegi verða auglýstar í útvarpi.
Frá Hafnarfirði verður farið
báða dagana 30 mín eftir að far-
ið er frá Reykjavík.
Skrifstofa Landleiða bað að
þess yrði getið, að einhverjar
tafir gætu orðið í einstaka til-
fellum vegna mikils álags, og
væri fólk beðið velvirðingar á
því.
- Sjálfsagi
Framh. af bls. 3
er svo krefjandi, ag það
næstum gleypir mann um
langt tímabil. Þetta gæti
engin skilið nema sá, sem
þekkir það af eigin reynd. í
stað þess að eiga í útistöðum
við konu mína, get ég rökrætt'
við hana állt það, sem mér
liggur á hjarta. Við Helga
erum mjög gagnrýnin hvort
á annars leik. Þegar við kom-
um heim á kvöldin, t. d. eftir
æfingu, minnumst við á það,
sem okkur finnst orka tví-
mælis, viðum í sameiningu-að
okkur öllum kostum þess og
göllum, vegum þá og metum,
og reynum síðan að komast
ag sameiginlegri niðurstöðu,
sem oftast er samræming
þeirra skoðana, sem fram
komu hjá hvoru um sig í
byrjun. Er þá oftast komið
fram undir morgun, því að
við hættum aldrei fyrr en
okkur finnst við hafa krufið
málið til mergjar. Þannig
vökum við yfir þroska hvors
annars.
Taugaspenna holl leikurum.
— Eini ókosturinn, sem ég
get hugsað mér, við það að
vera kvæntur leikkonu er
ástand það, sem skapast dag-
inn fyrir frumsýningu verks,
sem bæði hjónin leika í. Þá
er öllum rökræðum lokið, en
taugaspennan ræður ríkjum.
Á slíkum dögum væri kannski
nóg að hafa einn taugasjúikl-
ing á heimilinu. Sem betur
fei; hefur hvorugt okkar
Helgu týnt niður taugaspenn-
unni. Það er hættulegt að
missa hana. ■
— Hvers vegna er það
hættulegt?
Sigurvegarar innanhússmótsins i knattspyrnu. í fremri röff eru Keflvíkingar sem unnu mótið.
í miðið Högni Gunnlaugsson fyrirliði með sigurlaunin. Að baki standa Framarar A-lið, sem
léku til úrslita við Keflavík. Guðmundur Óskarsson fyrirliði liðsins heldur á bikarnum sem
var 2. verðlaun í mótinu.
Keflvíkingar unnu 2 lið
KR og Fram og mótið
Skemmtileg úrslitakeppni á innan-
hússmóti Fram
INNANHÚSSKNATTSPYRNU-
MÓTI Fram lauk á föstudags-
kvöldið og var útslitabaráttan
þetta kvöld hörð og jöfn í mörg-
um leikjum og keppnin hin
skemmtilegasta og ólíkt betri en
fyrra kvöldið.
Fyrra kvöldið komust 8 lið í
úrslitakeppnxna og urðu úrslit
/ knattspyrnu
þessi:
Fram A — Víkingur A 4—3
Fram C — Valur A 5—4
KR B — Keflavík B 8—3
Keflavík A — KR A 6—5
Stóðu þá uppi 4 lið ósigruð og
hófst nú lokabaráttan. Fram A
og Fram C-lið mættust fyrst og
þurfti íramlengdan leik til þess
að fá úrslit. A-liðið vann með
6 mörkum gegn 5.
Næst mættust Keflavík A-lið
og B-lið KR. Keflvíkingar höfðu
leikinn í hendi sér og unnu með
yfirburðum 8—3.
Úrslitaleikurinn stóð þvi milli
Keflvíkinga og Fram og var
hörð, jöfn og tvísýn, en Keflvík-
ingum tókst að trygja sigur sinn
6—5. Hlutu þeir bikar- að verð-
launum og Fram annan minni.
Afhenti Reynir Karlsson sigur-
vegurunum verðlaumn.
Hjálparsjóður
æskufólks
MAGNÚS Sigurðsson, skólastjóri
Hlíðaskóla, hefur afhent biskups-
embættinu til vörzlu kr. 100.000.
00 — eitt hundrað þúsund krón-
ur. — Er það ágóði, sem orðinn
er af sýningum kvikmyndarinn-
ar: Úr dagbók lífsins.
Með framlagi þessu hyggst
Magnús Sigurðsson stofna sjóð,
Hjálparsjóð æskufólks, er hafi
það markmið að bæta böl barna
og unglinga, sem í raunir rata og
flýta fyrir byggingu heimila fyrir
afvegaleidda æsku.
(Fréttatilkynning frá
Biskupsstofu).
— Zanzibar
Framhald af 1. síðu.
Talsmaðurinn sagði, að stjorn
Zanzibar hefði farið þess á leit
við stjórn Tanganayika, að hún
sendi nokkur hundruð lögreglu-
manna til eyjarinnar til þess að
aðstoða stjórnina við löggæzlu.
Hefði stjórn Tanganyika fallizt á
að senda 300 lögreglumenn og
hefðu þeir fyrst komið í morgun.
John Okello, sem er varnar-
málaráðherra Zanzibar, skýrði
frá því í dag, að allt erlent fólk,
sem handtekið hefði verið bylt-
ingin stóð sem hæst, væri nú
frjálst ferða sinna.
Okello sagði ennfremur, að
löndin, sem þegar hefðu viður-
kennt hina nýju stjórn Zanzibar
væru Kenya, Uganda, Eþíopía,
Chana, Kínverska Alþýðulýð-
veldið, Júgóslavía, Austur-Þýzka
land og Norður-Kórea.
— Taugaspenna er jákvæð,
þar sem hún fær leikarann
til þess að taka á öllu því,
sem hann á til. Það er algengt
um leikara, en taugaspenna
þeirra ágerist með aldrinum
og reynslu. Mér finnst t. d.
því vera svo farið um mig.
Ungir leikarar finna stundum
ekki til taugaspennu í fyrstu,
en með vaxandi skilningi á
ábyrgð sinni, fara þeir að
verða fyrir barðinu á henni.
— Hefur þú þurft að leika
veikur?
— Já, fyrir frumsýninguna
á „Tíminn og við“ hafði ég
39 stiga hita, en eftir leikinn
var ég hitalaus. Ég lék úr
mér hitann. Einbeitingin rek-
ur innfluenzuna burt. Maður
má ekkert vera að því að
sinna þessum bakteríum, svo
að þær skammast sín og
móðgast og fara.
— Horfir þú björtum aug-
um á framtíð leiklistar á fs-
landi?
— Já, mjög svo. Alvarleg
og mikilhæf leikhúsverk hafa
verið tekin til meðferðar að
undanförnu við ágæta aðsókn.
Er það góðs viti, því auðvitað
er ekki hægt að reka leikhús
með tapi til lengdar. Það er
mikilu minna hættuspil að
setja á svið gott leikrit, alvar-
legs eðlis nú en fyrir fáeinum
árum. Við vorum dálítið kvíð-
in um aðsókn að Altona, en
sá kvíði hefur reynzt ástæðu-
laus, því að alltaf er uppselt
löngu fyrir sýningu. Ég hef
þá_ bjargföstu trú, að leiklist
á íslandi sé á mjög heillavæn-
legri braut.
— Ö.
Elsku litli drengurinn okkar og bróðir
SMÁRI GUÐMUNDSSON
andaðist að Landakqtsspítala hinn 16. þessa mánaðar.
Ingibjörg Hermannsdóttir,
Guðmundur Halldórsson og bræður.