Morgunblaðið - 19.01.1964, Síða 28
AugtýsingarábfTa
Utanhuss aogfrýsingar
allskonarskilti oiL
AUGLYSINGA&SKILTAGERÐIN SF
Bergþórugötu 19 Simi 23442
Lézt af
völdum
meiÖsla
í FYRRXNÓTT andaðist á Landa-
kotsspítala Magnús Jalkobsson, 67
ára að aldri, til heimilis að Sól-
eyjargötu 7. Lézt Magniús af völd
um meiðsla, er hann hlaut, er
ekið var á hann á Suðurgötu síð-
degis á föstudag. Hlaut Magnúa
lærbrot, og auk þess mikið höí-
uðhögg.
Tveir menn liggja nú í sjúkra
húsum í Reykjavík mikið meidd
ir, eftir bílslys í vikunni. í sjúkra
húsi Hvíta bandsins liggur eldri
maður, í>orlákur Guðmundsson,
Njálsgötu 80. Hann hlaut inn-
vortis meiðsli er ekið var á hann
á Njálsgötu á fimmtudagsmiorg-
un. Var hann skorinn upp sam-
dægurs vegna þessara meiðsla.
Líðan hans mun vera eftir at-
vikum.
Á Landakotsspítala liggur Karl
Laxdal, 78 ára gamall, til heim-
ilis að Mávahlíð 2. Ekið var á
Karl á Snorrabraut síðdegis á
föstudag. Hlaut hann mikið höf-
uðhögg og hefur verið meðvit-
undarlaus síðan.
Þannig var urr.horfs á slysstaðnum í gær. (Ljósm. Mbl. Sv. Þ.)
6 slasast í hörðum árekstri
Tveimur fólksbílum laust saman á Suður-
landsvegi — Orsakir slyssins ókunnar
MJÖG alvarlegt umferðar- bíll af miklu afli, að því er
virðist, með þeim afleiðing-
um að allt fólkið í báðum
bílunum, sex manns, slas-
aðist, sumt alvarlega. Bílarn
ir báðir eru gjörsamlega
ónýtir, að því er talið er. —
Hinir slösuðu voru fluttir til
Reykjavíkur í tveimur
sjúkrabílum og lögreglubíl,
og voru lagðir inn á slysa-
varðstofuna og sjúkrahús.
slys varð á Suðurlandsvegi
skammt ofan Lögbergs síð-
degis í gær. Skullu þar sam-
aa Volkswagen- og Skoda-
Fyrsta áætlunar-
ferðin til Eyja
Ragnar Jóhannesson, eigandi
Goðaness, sem áður var Gautur
I>andhelgisgæzlunnar, skýrði
Mbl. svo frá í gær, að fyrsta
áætlunarferð skipsms milli Vest
manneyja og Þorlákshafnar yrði
farin í kvöld, sunnudagskvöld, og
færi skipið frá Þorlákshöfn
M. 20. Klukkan 18,30 fer bíll frá
BSÍ tiil Þorlákshafnar. Upp frá
þessu fer Goðanes frá Vestmanna
eyjum kl. 8 á morgnana og frá
Þorlákshöfn kl. 20 á kvöldin.
£esí>dli
fylgir blaðinu í dag og er efni
hennar sem hér segir:
Bls.:
t llm notkun málfræðirannsókna
I leitinni að höfundum íslend-
ingasagna, eftir Peter Hall-
herg.
S Svipmynd: Lyndon B. Johnson.
S. Rósin, smásaga eftir Jóhönnu
Brynjólfsdóttur.
—» Við vatnið — Vid vattnet, eft-
ir Guðmund Böðvarsson. Poul
P. M. Pedersen þýddi á
sænsku.
ft. Bókmenntir: Símon Jóh.
Ágústsson skrifar um „Furður
sálarlífsins/“ eftir Harald
Schjelderup.
7. Lesbók Æskunnar:
S „Meinlausri glaðværð rekin
frá“, eftir séra Gísla Bryn-
jólfsson.
t. í fótspor pílagrímsins eftir Da-
vid Leitch.
H. Fjarðrafok.
11. — —
15. Krossgáta.
16. Flugið til tunglsins, eft.ir
George £. Muller.
Ekki er Ijó&t hvernig árekst-
ur þennan hefur borið að hönd-
um. Virðist sam Volkswagenbíll
imn R 9884 hafi verið á a-ustur-
leið, en Skodabíllinin R 3479 á
ieið til Reykjavíkur. Þar sem
bílamir rákust saman er lægð
í veiginum, og útsým gott til hæð
anna beggja vegna.
Eins og fyrr getur slö&uðust
alls sex í þessum árekstri, þar
af tvö börn. Annað barnið hand
leggsbrotnaði, hitt mun hafa
slasazt minna. Bílstjóri annars
bílsins kvartaði um þrautir fyrir
brjósti, og hitt þrennt var mikið
slasað, einkum gömul kona, sem
var farþegi í öðrum bílnium.
Er Mbl. fór í prentun í gær
höfðu ekki borizt nánari
fregnir af meiðslum fólksins, en
það var eins og fyir greinir
ýmist flutt í slysavarðstofuna
eða sjúkrahús.
Tún hvanngræn í
Vestmannaeyjum
FURÐULEGAR eru tiltektir ís-
lenzkrar náttúru. 1 júnímánuði
getur snjóað, en nú hefur svo
brugðið við í janúar, að gróður
hefur tekið að spretta á túnum
og í görðum, og í Vestmannaeyj-
um er nú svo komið að flest tún
eru iðjagræn að heita. Þakka
menn því að sumu leyti ösku-
fallinu frá Surti, sumpart hinum
óvenjulegu hlýindum, en í Eyjum
hefur nú verið ailt að 7—8 gráðu
hiti flesta daga að undanförnu.
Mbl. átti í gær tal við Jón
Magnússon, bónda að Garði í
Vestmannaeyjum. Hann kvaðst
Heildaraukning sparifjár 19,57«
Úr ársreikningi
Bún-
aðarbanka Islands
BLAÐINU hefur borizt eftirfar-
andi:
Á fundi bankaráðs Búnaðar-
banka íslands sl. fimmtudag,
lagði bankastjórnin fram reikn-
inga bankans fyrir árið 1963.
Starfsemi allra deilda bankans
hefir enn vaxið mjög á þessu ári.
Heildarvelta bankans varð 23,9
milljarðar og jóikst um 12,8%.
Aukning sparifjár varð mjög
míkil fyrstu mánuði ársins, en
stöðvaðist að mestu síðustu mán-
uðina, og var það í samræmi við
heildarþróiun í peningamálum í
landinu. Heildaraukning spari-
fjár varð á árinu 94.6 millj. kr.
eða 19.5%, en veltuinnlegg mink
uðu um 5.9 millj. kr. og varð
því heildarinnistæðuaukning
88.7 millj. kr.
Rekstrarhagnaður sparisjóðs-
deildar bankans var 1.2 millj kr.
og er það mun minna en árið
áður. Stafar það fyrst og fremst
af launahækkunum og lækkun
nu fé. Eignaaukning bankans
varð á árinu 10 millj. kr., og
eru 9 millj. af þeirri fjárhæð
eignaauki Stofnlánadeildar land-
búnaðarins. Skuldlaus eign bank
ans nemur nú 70 millj. kr.
Útibú bankans á Blönduósi tók
til starfa í byrjun ársins, og á
næstunni mun bankinn opna
útibú á Hellu á Rangárvöllum
og í Bændahöllinni í Reykjavík.
Þá er og áformað að opna úti-
bú frá bankanum á, Vesturlandi
á þessu ári. Utan Reykj avíkur
starfrækir bankinn nú útibú á
Akureyri og Egilsstöðum, auk
útibúsins á Blönduósi. Hefir orð
ið mjög hagstæð þróun hjá ölium
útibúum á árinu.
Veðdeild bankans lánaði á ár-
inu rúmar 6 millj. kr. Voru öll
þau lán veitt til jarðakaupa.
Stofnlánadeild landbúnaðarins
lánaði á árinu 1.510 lán, sam-
tals 102.9 millj. kr. Er það mikln
hærri fjárhæð og fleiri lán en
Seðlabankans á vöxtum af bund- nokkru sinni áður. Hæst var lán
að 70 miHj. kr. árið 1962 og tala
léna þá 873. Að auki gaf Stofn-
lánadeildin út sérstakt skulda-
bréfalán á árinu 48 millj. kr.,
sem endurlánað var Búnaðarfé-
Jagi íslands og Stéttarsambandi
bænda vegna byggingar Bænda-
hallarinnar.
Aðstaða banfcans gagnvart
Seðlabankanum hefir enn batnað
verulega á árinu 1963. Innistæða
í bundnum reikningi var í árs-
lok 97.1 millj. kr. og hafði auk-
izt um 25.7 millj. á árinu. Inni-
stæða á viðskiptareikningi var
í árslok 53.1 millj. kr. og hafði
hækkað um 15.3 millj. kr. Yfir-
dráttarskuld varð aldrei við
Seðlabankann á árinu. Endur-
seldir afurðavíxlar námu í árs-
lok 55.9 millj. kr. og höfðu hækk
að á árinu um 17.4 millj. kr.
Bankinn hefir ekki enn fengið
réttindi til þess að verzla með
erlendan gjaldeyri, þrátt fyrir
ítrekaðar ósikir bankastjórnar og
bankaráðs. Myndi það tvímæla-
laust styrkja enn meir viðskipta
aðstöðu bankans. ítrekaði banka
ráðið á fundi sínurn, að bank-
inn fengi sem fyrst þessi rétt-
indi.
ekki vita hvort ástæðan væri
öskufall, hlýindi eða hvort
tveggja, en víst væri að litur á
túnum í Eyjum væri nú hvann-
grænn orðinn, og þau til að sjá
líkt og um mánaðamótin apríl-
maí. Ekki væri grasið þó hátt, en
litríkt. Bætti Jón því við að sér
virtist liturinn þó ljósgrænni én
eðlilegt mætti teljast.
Jón sagði, að ýmsir menn, sem
myndu eftir Kötlugosinu á sínum
tíma, segðu þá sögu að askan
hefði haft góð áhrif á gróandann,
og væru því raddir uppi um að
öskufallið ætti sinn þátt í þessu
náttúrufyrirbrigði.
Hann bætti því við að lokum,
að hann hefði tekið eftir því, að
fé, sem haft er á gjöf en látið
út daglega, rásaði um túnin, en
virtist ekki líta við þessu græna
grasi. Hins vegar biti fé, sem
gengi úti, þetta gras, enda hefði
það ekki um annað að velja.
Ekki sagði Jón að hægt væri að
merkja þessa litarbreytingu á út-
haga, aðeins á túnum, og þá
einkum þeim, sem borið var á
síðari hluta sl. sumars.
Fimmta um-
ferð ■ dag
FJÓRÐA umferð Reykjavíkur-
mótsins í skák var tefld í gær,
en blaðið fer svo snemma í prent
un á laugardögum að við getum
ekki birt úrslitin í dag. í dag
verður 5. umferð tefld og hefst
keppnin kl. 1 e.h. Þá tefla sam-
an Ingi R. og Nona; Friðrik og
Johannesen; Ingvar og Trausti;
Magnús og Freysteinn; Gligoric
og Arinbjörn; Jón og Tal og
Wade og Guðmundur.
Sjötta umferð verður tefld ann
að kvöld og hefst kl. 7,30 e.h. Þá
eigast við: Nona og Magnús; Frið-
rik og Ingi R., Ingvar og Johann
esen; Trausti og Guðmundur;
Freysteinn og Gligoric; Arinbjörn
og Jón og Tal og Wade.