Morgunblaðið - 01.03.1964, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.03.1964, Blaðsíða 1
32 siður og Lesböli Þessa sólskins- og sólbaðsmynmyndin er tekin um hádegisljósmyndari Mbl. vestur i Sundlaug v esturbæjar í gær- morgun. Ótrúlegt en satt, myndin er tekin um hádegisbilið síðasta dag febrúarmánaðar, hins næst hlýjasta á þessari öld. lipplýsingar, sem ollu öryggisráðstöfununum: Kúbanskur flugmaður skyldi fljúga ■ veg fyrír þotu forsetans — eða kúbönsk eldflaug granda henni Fastar flugferðir Moskva- Nicosia Nýjar tillögur ■ í Kýpurdeilunni hjá SÞ Nicosia og Ntw York, 29. febr. NTB, AP. -&• Stjórnir Kýpur og Sovétríkjanna hafa undir- ritað samning um fastar flugferðir milli Moskvu og Nicosiu, að því er tilkynnt var í morgun. Ekki fylgdu nánari upplýsingar um það hvernig ferðum þess- um yrði háttað, en fyrsta rússneska flugvélin mun væntanleg með allmarga flugmenn til Kýpur um helgina. Eiga þeir að kynna sér flugvöllinn í Nicosíu og allar aðstæður til flugs- ins. ýy Hjá Sameinuðu Þjóð- unum í New York er hald- ið áfram tilraunum til að leysa Kýpurdeiluna. — Forseti Oryggisráðsins, Carlos Bernardes frá Brasilíu, hefur ákveðið fundi með fulltrúum Breta, Grikkja, Tyrkja og Kýpur um hugsanlega málamiðlun. Þá var upp- lýst í gærkveldi, að fram hefðu komið nýjar tillög- ur um alþjóðlegt löggæzlu lið á eynni og skipan hlut- lauss sáttasemjara, er hafi forgöngu um nýjar við- ræður grísku og tyrk- nesku þjóðarbrotanna. Að sögn ,eru það hinar sjörnu aðildarþjóðir Öryggis- ráðsins, Noregur, Bolivia, Brasilía, Marokko, Filabeins- ströndin og að einhverju leyti Tékikóslóvakía, sem að tillög- unum standa. Fulltrúar þess- ara þjóða héldu fund í nótt Framhald á bls. 31 Washington, 29. febr. AP ■^ Haft er eftir áreiðanleg- um heimildum í Washington, að hinar óvenjulegu öryggis- ráðstafanir, sem gerðar voru viðvíkjandi ferð Lyndons B. Johnsons, Bandaríkjaforseta, til Flórída í gær, hafi átt ræt- ur að rekja til upplýsinga, sem handarísku leyniþjónust- unni barst fyrir réttri viku um fyrirhugað tilræði við for setann. ■fc Hermdu þessar upplýs- ingar, að kúbanskur flugmað- ur myndi freista þess að fljúga í veg fyrir þotu forset- ans — ellegar reynt yrði að skjóta þotuna niður með eld- flaug frá Kúbu. Ekki hefur fregn þessi verið staðfest af hálfu leyni- þjónustunnar, en í dag mun Johnson forseti halda sinn fyrsta sjónvarpsfund með fréttamönnum og er þá vænzt frekari upplýsinga. Johnson dvaldist í Flórída í 16 klst. og voru öryggisráðstafanir meiri og ýtarlegri en dæmi eru til í Bandaríkjunum á friðartím- um. Má m.a. nefna, að flugvélar og þyrlur, sem forsetinn ferðað- ist með voru aldrei auðkenndar og aldrei var gefinn upp brott- farar- eða komutími til hinna ýmsu staða, er forsetinn heim- sótti. Það fylgir fregninni frá Washington, að upplýsingar þær, sem leyniþjónustunni barst hafi þótt mjög tortryggilegar, en ó- verjandi hafi þótt að taka nokkra áhættu. Fiskimálaráðstefnan í London: íslendinga og Frakka greinir mest á í markaðsmáiunum London, 29. febr. (NTB) í umræðunum um mark- aðsmálin á fiskimálaráðstefn- unni í London hefur þegar komið í ljós, að sjónarmið þátttökuríkjanna eru ólíkari en svo, að auðvelt verði að brúa bilið milli þeirra. Komið bafa fram margskonar vanda- mál varðandi fiskverzlunina í Vestur-Evrópu og stangast þar harðlegast á sjónarmið Frakka og íslendinga. Skipuð hefur verið nefnd, er vinnur að gerð samnings- uppkasts um markaðsmálin og er þess vænzt, að það verði lagt fyrir allshcrjarfund síð- degis í dag, laugardag. — Að þessu sinni mun að því miðað að ná einhverju samkomulagi á víðtækum grundvelli, þann ig að á því mætti siðan hyggja frekari samningaviðræður. A allsherjarfundinum í gær var síðastur á mælendaskrá for- maður norsku sendinefndarinn- ar. Gerði hann Ijóst, að Noregur gæti ekki gerzt aðili að samkomu laginu um fiskveiðitakmörkin, en Framhald á bls. 31 Izvestija ræöir klæBaburð Rússa Moskva, 29. febr. NTB—AP • SOVÉZKA stjórnarblaðið Izvestija gerir í dag klæða- burð Rússa að umtalsefni. Telur blaðið lítt viðunandi að Sovétrikin, sem standi jafn framarlega á sviði geimvís- inda, íþrótta og listdans og raun ber vitni, skuli enn engin áhrif liafa á sviði fata- tízkunnar í heiminum. Segjr Izvestija að full ástæða sé til að hvetja Rússa til þess að vanda betur til klæðnaðar sins, enda hafi Nikita Krus jeff, forsætisráðherra oft bent á það. Leggja beri meiri áherzlu á þróun sérstæðrar rússneskr- ar fatagerðar og ryðja henm braut á heimsmarkaðinum. — Sovét-tizkan, segir blaðið, að ætti að einkennast af einfald- leika, — fötin eigi að vera hentug, frjálsleg og laus við allt tildur og prjál, sem ein- kenni tízkuna á Vesturlönd- um. Telur Izvestija einsýnt, að miða beri að því að Sovét tízkan fái sömu viðurkenn- ingu á heknsnnarkaðinum og Vínar- og Parísartízikan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.