Morgunblaðið - 01.03.1964, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.03.1964, Blaðsíða 32
Iftugaveg-i 26 simi 209 7Ö 51. tbl. — Sunnudagur 1. marz 1964 |T TVÖFALT EINANGRUNARGLER Uára reynsla hérlendis Verið er að leggja veg út á Seltjarnarnes og tengir hann Ánanaustin við hafnarsvæðið. Þessi vegur á að taka þunga- umferðina út á nesið og létta af Kaplaskjólsveginum. Byrjað var að leggja þenn- an veg fyrir 3 mánuðum, en hann er 1,3 km á lengd út að Hringbraut. Er verið að Ijúka fyllingunni og farið að púkka, en malbikun fer cftir því hve- nær fé verður fyrir hendi til hennar. Þessa mynd tók ÓI. K. M. af veginum þar sem hann er að koma saman við bæinn Eiði og liggur síðan eftir bakkan- um, þar sem Öskuhaugarnir voru. Landbúnaöarvörur hækka um 8,3% Itijólkurpotturirnn 7,20 í hyrnu FRÁ og með deginum í dag, 1. marz, hækkar verð ó öll’Uim land- búnaðarvörum vegna þeirra kaup hækkana sem launiþegar fengu í desemtbermánuði s.l. Verða ihækkanimar að meðaltali 8,3%, en mismunandi þó fyrir hinar ýmsu vörutegundir, að því er Sveinn Tryggvason tjáði Mbl. Mjólkin, sem áður kostaði í lausu máli kr. 6,00 kostar nú kr. 6,55; heilhyrnur hækka úr kr. 6,60 líterinn í kr. 7,20; rjóm- inn í lausu úr 60,00 ltr. í kr. 65,00 og smjörið úr kr. 11,30 kg. í kr. 123,00. Af kjöti hækkar t.d. súpukjötið Bóluseíl við mænuveiki FÓLKI er nú gefinn kostur á bólusetningu við mænuveiki, en síðan almenna bólusetningin var hefur það verið gert öðru hverju til að nalda við ónæminu. Verður þetta fimmta umferð- in fyrir þá sem byrjuðu bólu- setningar á sínum tíma, en tal- ið er að rétt sé að bólusetja alla fram að fertugu. Börn eru nú yfirleitt bólusett gegn mænu- veiki reglulega. Úti á landi sjá héraðslæknar um þessa bólusetningu. í Reykja vík verður byrjað á skólabörn- um, en síðar verður bólusett í Heilsuverdarstöðinni fyrir al- menning. fylgir biaðinu í dag og er efni hennar sem hér segir: Bls.: 1. Mesta hneyksli kristninnar, eftir Arthur Koestler. 2. Svipmynd: Chung Hí Park. 3. Jökulgangan, smásaga eftir Símon Grabowskí. — Lögin horfna, ljóð eftir Örn Snorrason. 4. Brot úr sögu leiklistarinnar: Indriöi Waage, leikari og leik- stjóri, eftir Val Gíslason. 5. I/istir: Elzta tónlistarhátíð Evrópu — Á 150 ára afmæli Wagners, eftir Helga B. Sæm- undsson. 7. Lesbók Æskunnar: Á nemenda móti með Verzlunarskólanem- um. 8. íslenzk heimili: Fjórir Tóm- asar — fjórir hestar. 8. Rannsóknarskipið, sem stend- ur upp á endann. 10. Fjaðrafok. 11. — — 16. Krossgáta. Janúar og febrúar hlýjustu mán. síðan mælingar hófust Febrúar næsthlýjasti mánuður á öldinni FEBRÚARMÁNUÐUR er senni- lega næst hlýjasti febrúar síðan um aldamót í Reykjavík, og þar eð janúar var hiýjasti janúar frá því mælingar hófust, eru fyrstu tveir mánuðir ársins áreiðanlega J hlýjastir sambærilegir mánuðir ’ sem skýrslur eru til um, eða frá 1847. Auk þess fylgir hlýjunni logn og góðviðri umfram það sem við eigum að venjast. Á miðnætti í fyrrinótt var meðalhitinn í febrúar í Reykja- vík orðinn 3,8 stig og hefur dag- urinn í gær áreiðanlega ekki fært hann niður. Er eftirtektar- vert að þetta fæst þrátt fyrir Rafmagnið fór við Gvendar- brunna í GÆRMORGUN varð vatnslaust á ýmsum stöðum í Reykjavík. Hafði um nóttina farið öryggi á rafmagnslínunni að Gvendar- brunnum og unnu dælurnar því ekki. Mun aðallega hafa orðið vatnslaust á Skólavörðuholti, í Hálogalandshverfi og Álftamýri, en einnig víðar. Um hádegi í gær voru menn að gera við línuna. hörkukafla fyrst í mtánuðinum, þegar frost komst niður í 12,5 stig. Meðalhiti í febrúar er -b0,1 stig, en hlýjasti febrúar á þess- ari öld var 1932 5,4 stig. í>ó ber þess að gæta að þá var mælt á þaki Landssímahússins og þar er aðeins hlýrra en á Reykja- víkturflugvelli, þar sem mælt er nú. Næsthlýjasti febrúar, þangað til núna var 1929 3,3 stig. Margir hafa kenningar um að þessi hlýja geti ekki haldizt. Eft ir svo hlýjan vetur komi ávallt kalt vor. Tölulega er ekkert hægt að segja um slíkt. Árið 1932 var hlýjast í febrúar, en þá fór hit- inn í apríl niður í 0,8 stig. Aftur á móti hélzt hlýjan 1929 alla mánuðina frá janúar til apríl og varð það samtals hlýjasti vetur- inn. Tölur liggja ekki fyrir hendi um hitann annars staðar á land- inu, en sennilega hefur verið til- tölulega hlýjast á Suðvesturlandi það sem af er árinu. Sveitafélögin ákveöa kaup húsnæðis AÐALFUNDI fulltrúaráðs Samb. ísl. sveitarfélaga lauk í gær og fékk blaðið eftirfarandi frétta- tilkynningu um fundinn: Reglulegur fundur fulltrúa- ráðs Sambands íslenzkra sveitar félaga var haldinn í salarkynn- um borgarstjórnar Reykjavíkur að Skúlatúni 2 dagana 27. og 28. febrúar s.l. Við setningu fundarins fluttu ávörp féiagsmálaráðherra Emil Jónsson, og borgarstjórinn í Reykjavík Geir Hallgrímsson. Framsöguræðu fluttu vega- málastjóri Sigurður Jóhannsson um framkvæmd vegalaganna og Valdimar Kristinsson, viðskipta- fræðingur um Þróunarsvæði: umræður fóru fram um þessi málefni. Á fundinum voru rædd félags- mál sambandsins, samþykktir árs reikningar og fjárhagsáætlun fyrir það og tímaritið Sveitar- stjórnarmál, sem sambandið gef- ur út. Merki fyrir sambandið Um félagsmál skal þess getið að samþytokit var að taka upp merki til notkunar fyrir sam- bandið. Framhald á bls. 31 Fulltrúaráð Sambands ísl. sveitarfélaga. A myndinni eru talið frá vinstri: Sitjandi eru: frú Auður Auðuns, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur, Vigfús Jónsson, Páll Líndal, Jónas Guðmundsson, Hafsteinn Baldvinsson, Hermann Eyjólfsson, öll í stjórn sambandsins, svo og séra Sigurður Hauk- dal, ritari fundarins. Standandí eru frá vinstri: Stefán Jónsson, Egiil Benediktsson, Þórður Hall- dórsson, Bjarni Þórðarson, Jón Eiríksson, Birgir Finnsson, Sigurður I. Sigurðsson, Jón Jónsson, Hermann Þórarinsson, Magnús E. Guðjónsson, Guðmundur Vigfússon, Karl Kristjánsson, Guðlaug- ur Gíslason, Ásmundur B. Ólsen, Óskar Hallgrímsson, Þórir Sæmundsson, Hálfdán Sveinsson og Unnar Stefánsson, fulltrúi hjá sambandinu. Myndin var tekin í fundarsal borgarstjórnar Rvíkur. úr kr. 46,00 í 51,20 heil læri úr kr. 53,00 í kr. 59,40; og hrygg ir úr kr. 54,65 í kr. 61,35. Það væsti ekki um þessa ungu stúlku í sólskininu og blíðviðr inu í gær. (Ljósm.: Ól.K.M.) Endurbygging Reykjanesskóla ÞÚFUM, 29. febr. — Sífellt er unnið að endurbyggingu Reykja- nessskólaans. Undanfarin sumur hefur verið unnið við heima- vist skólans og að íbúðum fyrir kennara. Nú er verið að ljúka við uppsetningu á nýrri og stórri ljósavél, 60 Kw. Caterpillarvél er mikil þörf á aukinni raforku í þarfir skólans, bæði til ljósa og annarra starfa í sambandi við smtíðakennslu, er fer fram. Er mikið bætt úr með þessum fram kvæmdum. — PP. Sæmilegur afli netabáta NETABÁTUM er alltaf að fjölga og eru síðustu bátarnir í Reykjavík að taka netiu núna. í fyrrinótt var sæmileg- ur afli hjá netabátunum. upp í 20 tonr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.