Morgunblaðið - 01.03.1964, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAOIÐ
Sunnudagur 1. marz 1964
' ■ • ■ ■ I : ■ • > i - ■ ' :
Fundu
rinn um
Hall-
grímskirkju er í dag
Höfrungur III. væntan-
legur um næstu helgi
Morgunblaðið skýrði ný-
lega frá umsögnum
norskra blaða um nýtt ís-
lenzkt fiskiskip, sem vaaitan
legt hingað um næstu helgi.
Er hér um að ræða Höfrung
III., eign Haraldar Böðvars-
sonar & Co., Akranesi. Skip
þetta, sem er 270 tonn hljóp
af stokkunum í Harstad hinn
16. janúar s.l., og vakti mikla
athygli. Sögðu blöð í Norð-
ur Noregi frá Höfrungi í stór
um forsíðufréttum. í Har-
stad Tidende var frásögn með
mynd yfir þvera forsíðuna
efst, og fyrirsögnin: „Fiski-
skipi með þremur skrúfum
hleypt af stokkunum frá
KMV (nafn á skipasmíðastöð
inni). Hið fyrsta sinnar teg-
undar í heiminum.“
Til marks um áhuga Norð-
manna á þessu nýja fiskiskipi
má nefna að með skipinu
verður blaðamaður frá einu
stærsta blaðinu í Norður
Noregi, til að fylgijast með
því hvernig það reynist.
Allur þessi gauragang-
ur stafar af því að
Höfrungur III. er bú-
inn tveimur aukaskrúfum,
sem notaðar eru til að stýra
skipinu með. Er önnur þeirra
í hólk, sem liggur þvert í
gegn um stefnið, en hin á
stýrisblöðkunni, og báðar
knúnar sérstökum rafmótor-
um. Með stafnskrúfunni má
Skrúfan, sem stýrt er með.
Stafnskrúfan
soga sjóinn gegn um hólk-
inn í hvora áttina, sem ósk-
að er, og þrýsta stefni skips-
ins ýmist á bakborða eða
stjórn. Stýrisskrúfan, eða afl
stýrið, verkar eins á skut
skipsins. Með þessum útbún-
aði má því snúa skipinu um
sjálft sig eða sigla því út á
hlið, eftir því hvort skrúfurn
ar eru látnár vinna saman
eða hvor á móti annari. Get-
ur þetta verið skipverjum ó-
metanleg aðstoð við veiðarn-
ar, ef eitthvað er að veðri,
og flýtt fyrir síldarköstum.
Verður athyglisvert að fylgj
ast með árangrinum, því hér
er um algjöra nýjung að ræða
í útbúnaði fiskiskipa, sem get
ur haft víðtæk áhrif, ef vel
reynist.
EINS og áðu hefur verið skýrt
frá verður fundurinn um Hall-
grímskirkju í dag kl. 3 e.h. í
Sj álf stæðishúsinu.
Framsöguræður um málið
flytja þeir Lúðvík Guðmunds-
son, fyrrv. skólastjóri og Pétur
Benediktsson, bankastjóri, en
fundarstjóri verður Hákon Guð-
mundsson, hæstaréttarritari. —
Fundarboðendur auk frummæl-
énda eru þeir Gunnar Gunnars-
Beygir inn á Ægissíðuna
— ekur á 100 km. hraða
Mæta ekki
Fréttatilkynning frá
byggingarnefnd
Hallgrímskirk j u:
VEGNA fundar, sem boðaður
hefur verið í dag um HALL-
GRÍMSKIRKJU þykir rétt að
taka þetta fram:
— Fundarboðendur hafa til-
kynnt í blöðum, að þeir hafi
boðið talsmönnum Hallgríms-
kirkju á fundinn. Rétt er það,
að þeim er kunnugt um fund
þennan (tveir þeirra eru raunar
erlendis, húsameistari ríkisins
og formaður byggingarnefndar
innar) — en þar eð ekkert bend-
ir til þess, að tilgangur fundar-
ins sé annar en sá að árétta
einhliða sjónarmið þeirra manna
sem að honum standa og hafa
þar framsögu, munu engir þeir
stuðningsmenn Hallgrímskirkju,
sem tilgreindir voru í umræddri
blaðagrein, sjá ástæðu til að
koma á fundinn.
Skiobrotsmenn
4
bíða togara
TOGARINN, sem átti að sækja
skipbrotsmennina af Wislok,
varð að halda beint til Póllands,
þar eð hann hafði mikinn afla,
en von er á öðrum togara, Pegaz,
til Reykjavíkur, líklega á mánu-
dag. Tekur hann skipbrotsimenn
ina heim. Fyrsti stýrimaður ligg
ur enn í sjúkrahúsi með lungna
bólgu. Lík skipverjans, sem
fórst, verður einnig flutt utan.
Lík hans var fyrst flutt í nýtt
hús í smíðum á Bakka, en ekki
fjárhús, eins og mishermt var
hér í blaðinu.
Skipstjórinn og 3 aðrir voru
í gær enn fyrir austan. Björgun
h.f. hefur tekið að sér að at-
huga hvort ekki er tiltækt að
ná togaranum á flot. Fór Krist-
inn Guðbrandsson austur með
fleiri menn á fimmtudagskvöld
og á föstudag var farið með 10
hjóla trukk og beltabíl. En ætl-
unin er að reyna að dæla *úr
togaranum og réttá hann við
með blökkum, áður en reynt er
að lá honum á flot.
Togarinn liggur mú 250—300
m. vestan við þann stað sem
hann strandaði, hefur lagzt á hlið
ina og fyllt af sjó um lestarlúg-
ur, en mun lítt brotinn nema
ofanþilja.
son, rithöfundur, Hannes Davíðs
son, arkitekt, Hörður Ágústsson,
listmálari, Sigurður Líndal, lög-
fræðingur, Jón Oddsson, stud.
jur. og Garðar Gíslason, stud.
jur. — Til fundarins hefur sér-
staklegia verið boðið helztu for-
mælendum Hallgrímskirkju, —•
þeim herra Sigurbirni Einars-
syni, biskupi, séra Jakob Jóns-
syni, séra Sigurjóni Árnasyni
Jónasi Jónssyni frá Hriflu, fyrr-
um ráðherra og Sigtryggi
Klemenzsyni, ráðuneytisstjóra.
Ennfremur Herði Bjarnasyni,
húsameistara ríkisins og Jörundi
Pálssyni, arkitekt.
Kjálkabrotinn
í FYRRINÓTT var drukkinn
maður kjálkabrotinn á bílastæði
Hótel íslands-lóðarinnar. Bkki
hefur hafzt upp á þeim sem vald
ur var að þessu og biður lög-
reglan þá sem kynnu að geta
gefið upplýsingar að gefa sig
fram.
Einar gerði brjóst-
mynd af Bjarna
frá Vogi
NÝLEGA var sagt frá því í sam-
bandi við samkeppni Bandalags
listamanna um minnismerki um
Bjarna frá Vogi, að ekki mundi
vera til nein stytta af Bjarna
nema lámynd greypt í stein í
Vogi í Daiasýslu. Þetta er ekki
rétt.
Einar Jónsson, myndhöggvari,
gerði á sínum tíma brjóstmynd
af Bjarna frá Vogi, og er hún
í safninu við Njarðargötu. Vildi
Emar mmnast Bjarna, sem hann
dáði mjög, með því að gera þessa
mynd og geyma hana í safninu,
að því er frú Anna, ekkja Einars
hefur tjáð okkur. Brjóstmyndin
er úr gipsi og hefur aldrei verið
steypt í málm.
í FYRRINÓTT þegar einn af
blaðamönnum Mbl. var á leið
heim í leigubíl frá B.S.R. heyrð-
ist allt í einu í talstöðinni frá-
sögn af eltingaleik við tvo ung-
linga á stolnum bíl. Hafði verið
stolið stöðvarbíi við Gnoðavog
og lögreglunni gert aðvart. Bil-
stjórar voru beðnir um að svipast
um eftir honum og skömmu
seinna sá leigubílstjóri frá
B.S.R. stolna bilinn, vestur í bæ.
Og þarna var hann í humátt á
eftir bílnum og var að leiðbeina
lögreglunni á staðinn.
— Nú beygir hann inn í Ægis-
síðuna. Hann er kominn á 100
km. hraða eftir Lynghaganum, . .
fer suður í Skerjáfjörð. Nei,
hann oeygir Flugvaliarvegmn. . .
Ekur inn að Flugfélags íslands
afgreiðslunni .
Nú var lögreglan komin á spor
ið og piltarnir, sem voru ungir
menn undir áhrifum, stöðvuðu
stolna bílinn og reyndu að forða
sér á hlaupum. Þeir voru hand-
samaðir, enda hefðu þeir aldrei
hlaupið langt. Lögreglubíll var
m. a. kominn til fyrirstöðu á
Njarðargötunni.
Þanníg lauk ökuferðinni.
Bridge
AÐ þremur umferðum loknum
í sveitakeppni Reykjavikux-móts
ins er staðan þessi:
1. sveit Einars Þorfinnssonar 18
2. sveít Þóris Sigurðssonar 16
3. sveit Ragnars Þorstemss. 11
4. sveit Vigdísar Guðjónsd. 8
5. sveit Jóns Stefánssonar 7
6. sveit Ingibjargar Halldórsd. 6
7. svext Óiafs Þorsteinssonar 5
8. sveit Aðalst. Snæbjörnss. 1
Fjörða umferð verður spiluð
n.k. miðvikudagskvöld í Skáta-
heimilinu við Snorrabraut og
hefst keppnin kl. 20.
Núverandi Reykjavíkurmeist-
arx er sveit Þóris Sigurðssoxxar.
| /* NA /5 hnúhr [ S'/50hr.útsr ¥ Snjóftoma • úi, ’ s'v' - V Skúr ir ~ Þ. vtnur -wr ~ 'WSÁ KutíoM H hmi j ZS HiM* i UtiJ
ÁTTIN var í gær orðin örlítið
norðlægari en áður, og mátti
það teljast til tíðinda að héla
var á grasi í Reykjavik um
morguninn. Ekki er þó
að segja að horfur séu á
breytingu.