Morgunblaðið - 01.03.1964, Page 4
4
MORGUNBLADIÐ
Siinnudagur 1» marz 1964
Blý
Kaupi blý hæsta verði.
Ámundi Sigurðsson
Skipholt 23.
Sími 16812.
Ökukennsla
Kenni akstur og meðferð
bifreiða.
Pálmi Arason.
Sími 37416.
Lítil íbúð til leig'u
Uppl. í síma 1876, Kefla-
vík, milli kl. 7—9 e.h.
Einhleyp stúlka
óskar eftir 1—2 herbergj-
um og eldhúsi, helzt í
Austurbænum, nú þegar
eða 1. maí. Uppl. í síma
10931.
Keflavík — Njarðvík
Ungur iðnaðarmaður óskar
eftir 2—4 herbergja íbúð
til leigu. Standsetning kem
ur til greina. Uppl. í síma
2245.
Keflavík — Suðurnes
Veggfóðrun, diúika- og flísa-
lagningar.
Tómas S. Waage.
Sími 2245.
Keflavík — Njarðvík
4—5 herb. íbúð óskast sem
fyrst. Uppl. í síma 3107 og
3192 eftir kl. 5, Keflavíkur-
flugvelli.
I.edr Voorhees.
Ung hjón
sem bæði vinna úti, óska
eftir 1—2 herbergja íbúð
frá 1. maí.
Haukur Hergeirsson.
Sími 19652.
Bíll
Til sölu er Fiat 1400 B, ár-
gerð 1958. Uppl. að Hóf-
gerði 19, Kópavogi. —
Sími 40879.
Óskum eftir
2ja—3ja herbergja ílbúð. —
Tvær fullorðnar í heimili.
Upplýsingar í sima 51671.
3ja tonna dekkbátur
til sölu með eða án vélar.
Skipti á bíl korna til
greína. Uppl. í síma 15114
Húsnæði
fyrir iðnað eða verzlunar-
rekstur til leigu að Höfða-
túni 2.
Sögin hf
Höfðatúni 2. — Sími 22184.
Ung barnlaus hjón
óska eftir 1—2 herb. íbúð.
Algjör reglusemi. Til'boð
sendist afgr. blaðsins fyrir
5. næ9ta mánaðar, merkt:
„9070“.
sölu
>arnarúm og saimkvæimis-
cjóll, nr. 12. Hvorttveggja
lýtt. Uppl. í síma 20477.
I»ýzk, rósótt
brjóstahöld og magabelti í
tveimur litum. — Verzl-
unin VERA, Hafnarstr. 15.
C5
UR RIKI NATTURUNNAR:
LAXINN
0G
LAXVEIÐAR
LAX og laxveiðar eiga marga
unnendur á íslandi. Sumarið er
nú liðið og veiðitimanum lokið.
Eftir er aðeins reyktur lax og
ótal veiðisögur. Máske líka ein-
hver slatti af frystum laxí til
að nota á kalt borð í fínum
veizlum seinna ? vetur, þegar
komið er fram á þorra og góu.
Bókarkafli sá, sem hér birtist
er eftir einhverri mesta náttúru-
elskhuga hérlendis, Björn J.
Blöndal í Laugarholti í Borgar-
firði. Bækur hans; Hamingjudag
ar, Að kvöldi dags, Vinafundir,
Vatnaniður, Lundurinn helgi og
Örlagaþræðir, fjalla allar á þann
næma O'' fíngerða hátt um nátt-
úru landsins að unun er að lesa
þær og hlýtur að vekja þrá eftir
hinu frjálsa útilífi, jafnt laxveiði
manna og hinna, sem á bakkan-
um sitja. Þessi kafli er eins og
fallegt, lítið ljóð, lyriskt í ein-
faldleik sínum.
Á hljóðum kvöldum er gott
að sitja við árnar og horfa á
strauminn. I>á er eins og eilífðin
sjálf taki sálina í faðminn og
beri hana að óskalöndum. Ung-
ir menn sjá framtíðarvonir sínar
speglast í straumnum bláa, og
þeir, sem eru fullvaxta, sjá
gjarnan bernskulönd sín. í>ar eru
þyrnarnir horfnir af rósunum
rauðu, og flest er betra en það
var í raun og veru. Ekki sakar
það, því að það er af hinu
góða.
Og hafir þú valið þér góðan
stað við ána, þá má vel vera,
að þú sjáir hina silfurklæddu
hjörð á leið upp ána. Gættu
þess að styggja hana ekki. Hún
er á leið til bernskulanda sinna.
í>ú ert hættur að veiða í dag
og hefur borið bikar hamingj-
unnar að vörum þínum.
Og ef þú situr við ána um
síðkvöld, er sumri hallar, þá
má vel fara svo, að þú sjáir
laxana leika sér. Leikur þeirra
er eltingarleikur, hraður og ærsla
fullur. Ég hef horft á þennan
leik og ekki getað skilið hann.
Sumir segja, að þetta sé ástaleik-
ur laxanna. Og ég hef aðeins séð
hann leikinn nálægt hrygningar-
stöðum og jafnvel eftir að sól
var setzt.
Á leið upp ána verða margar
hættur og torfærur á vegi lax-
anna. Flestar þeirra eru af völd-
um mannanna, og skuiu þær eigi
ræddar hér. Nú er orðið fátt um
sel, en þó sést jafnan
eitthvað af selrifnum löxum.
Stundum er hægt að sjá för
eftir klær selsins á hliðum hans,
og er þá ekki um að villast.
En mörg þau sár, er sel eru
oft eignuð, geta vel verið af völd
um annarra dýra. Lúðunni virð
ist þykja lax mesta hnossgæti,
og er hann ásamt silungi talinn
mesta tálbeita, sem hægt er að
bjóð’'. henni.
Á grynningunum í ánum vak-
ir veiðibjallan, og mörgum lax-
HÖFUNDURINN.
inum hefur hún banað. Sumir
segja, að hún höggvi hann í
höfuðið, en ég ætla, að hún
höggvi hann í hjartastað rétt
við eyruggann.
Annars er það furðulegt, að
fugl ekki stærri en veiðibjalla
skuli geta drepið stóran lax. Et»
veiðibjallan er vitur fugl, og
oft munu fleiri en einn fugl
starfa að þessum veiðum og
veiða í félagi.
Það er næsta fróðlegt að sjá
veiðibjöllurnar sitja á grunnum
brotum laxánna. I>ær sitja þar
hreyfingarlausar tímum saman,
og væri vel hægt að halda, að
þær svæfu. Sennilega gera þær
það stundum, en oftast munu
þó árvökul og skyggn augu þeirra
hvíla á brotinu. Og ef blikar á
fisk í bláu vatni, lyfta þær sér
hljóðlega til flugs og athugí^
hvort veiðivon sé.
LAX
f dag sunnudag verða gefin
saman í hjónaband í Árbæjar-
kirkju af séra Jóni Thorarensen
ungfrú Edda Imsiand skrifstofu-
mær og Jón B. Baldursson, raf-
virki. Heimili þeirra verður á
Selvogsgrunni 26.
80 ára er í dag Sigurður Ólafs-
son fyrrverandi kennari, Tjam-
arbraut 3, Hafnarfirði.
Þann 26. febrúar opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Bergljót
Sigurðardóttir Bústaðarveg 69 og
Sigfús Jónsson Kirkjuteig 19.
VÍSLKORN
Vertu lífs á vegl
vinur smælingjans,
góðverk gleymast eigi
Guði kærleikans.
Leifur Auðunsson
Sunnudagsskrítlan
Árni las í blaðinu sínu: Hér
stendur að svifiugmaður hafi
flogið mörg þúsund kílómetra án
mótors. Já, er það ekki einstftkt,
hvað sumir menn eru gleymnir.
Orð spekinnar
Það er líka gleði að bíða gleð-
innar. G.E. Lessing
sd NÆST beztS
Hallgrímskirkja er mjög á dagskrá þessa dagana.
Tveix menn hittust í gær upp við Steinkudys á Skólavörðuholti
og annar segir við hinn:
Sá fyrri: Jæja, það á ekki af henni að ganga. Nú er búið að
skíra HaTlgrímskirkju upp.
Hinn: Hvað segirðu maður! Hvað á hún að heita?
Sá fyrri: Péturskirkja, iagsmaður.
Hinn: Jæja, máski það sé í höfuðið á honum Pétri föður hans
séra Hallgríms sáluga?
Sá fym. Já, en það versta er, að ég man ekki til þess, að faðir
hans Hallgrjms hafi verið neinn sérstakur trúarieiðtogL
Leyfið börnunum að koma til mín
og bannið þeim það ekki, því að slíkra
er Guðsrlkið <Mark. 10, 14).
í dag er Sunnudagur 1. marz og
er það 61. dagur ársins 1964.
Eftir lifa 305 dagar. 3. sunnudagur
í föstu. Vika af Góu.
Árdegisháflæði ki. 7:17.
Næturvörður er í Reykjavík-
urapóteki vikuna 29 febr. — 7.
marz.
Bilanatilkynningar Rafmagns-
veitu Reykjavíkur. Sími 24361
Vakt alian sólarhringinn.
Kópavogsapótek er opið alla
virka daga kl. 9:15-8 laugardaga
frá kl. 9,15-4., helgidaga fra kl.
1-4 e.h. Simi 40101.
Vikuna 22. 2. — 29. 2. eru
þessir næturlæknar í Hafnar*
29. — 2. marz Jósef Ólafsson
(sunnudag)
Slysavarðstofan í Ileilsuvernd-
arstöðinni. — Opin allan sólar-
hringinn — sími 2-12-30.
Neyðarlæknir — sími: 11510 —
frá kl. 1-5 e.h. aila virka daga
nema laugardaga.
Holtsapótek, Garðsapótek og
Apótek Keflavíkur eru opin alla
virka daga kl. 9-7, nema laugar-
daga frá kL 9-4 og helgidaga
frá kl. 1-4. e.h.
□ EDDA 5964337 — 1.
I.O.O.F. 3 = 145338 = 8)4 kv.
I.O.O.F. 10 = 145328% = K.S.
■ GIMLI 5964327 — Frl.
Orð iifsins svara I slma 1000«.
Tekið á móti
tilkynningum
í DAGBÓKINA
frá kl. 10-12 f.h.
FRÉTTASÍMAR MBL.:
— eftir lokun — 1
Erlendar fréttir: 2-24-85 |
Innlendar fréttir: 2-24-84 .