Morgunblaðið - 23.05.1964, Page 10
10
MORGU N BLAÐID
Laugardagur 23. maí 1964
ÞAÐ var víðar en hér á ís-
landi, sem unglingar hóp-
uðust saman með óspektir
og slagsmál um hvítasunn-
una. í Bretlandi herjuðu
flokkar ungmenna haðstaði
við suðurströndina, fólk,
sem þar ætlaði að njóta sól-
arinnar var ekki vært, og
lögreglan hafði nóg að
starfa. Alls voru handtekn-
ir 200 unglingar vegna ó-
spekta og dæmdir í sektir
og fangavist. Hæstu sekt-
irnar námu um 10 þús. ísl.
kr., en lengstu fangelsis-
dómarnir hljóðuðu upp á
níu mánuði.
Baögestir íylgjast með er „Mods‘
eítir ströndinni
elta „Hockers'
1200 unglingar handteknir í Englandi
| vegna óspekta um hvítasunnuna
ströndinni dreiít. Þá barst
leikurinn til Brighton og þar
endurtók sama sagan sig. 78
unglingar voru handteknir.
Flestir voru unglingar þessir
á aldrinum 15 til 22 ára.
Við yfirheyrslur gátu
hvorki unglingar úr hópi
„Mods eða „Rockers“ gert
grein fyrir ástæðunni til ó-
eirðanna. Það, sem greinir
flokkana fyrst og fremst í
sundur er klæðnaðurinn. —
„Rockers" klæðast leðurjökk-
um, kúrekastígvélum og galla-
buxum og ferðast um á afl-
miklum mótorhjólum, greini-
leg fyrirmynd þeirra er Marl-
on Brando eins og hann var
útbúinn í kvikmyndinni „The
Wild One.“ Þeir hlusta ennþá
með mikilli hrifningu á „Rock
’n RoIl“ lö^. „Mods“, sem áttu
upptökin að flestum óeirð-
anna um hvítasunnuna, eru
nýtízkulegri en „Rockers", að
minnsta kosti hvað dægurlög-
um viðkemur. Þeir hlusta að-
eins á „The Beatles" og þeirra
líka. „Mods“ er mjög umhug-
að um klæðaburð sinn, vilja
helzt vera í hreinum og press-
uðum fötum, en buxurnar
verða að vera þröngar og
skórnir támjóir. Margir karl-
menn í hópi „Mods“ eru eins
hégómlegir og vinkonur
þeirra, sem kallaðar eru
„Birds“ (fuglar). Sumir pilt-
anna nota augnabrúna- og
augnaháralit, augnskugga og
varalit og ganga aldrei tvær
vikur í röð með sömu hár-
greiðsluna.
Mestar voru óeirðirnar I
Margate, Brighton og Bourne-
mouth, en þar börðust tveir
fjandsamlegir flokkar ungl-
inga. Annar flokkurinn nefn-
ist „Mods“ en hinn „Rockers".
Þessum tveimur flokkum lenti
fyrst saman um páskana fyrir
tilviljun í baðstaðnum Clac-
ton á austurströnd Bretlands.
Kom þar til mikilla slagsmála
og fjöldi unglinga var hand-
tekinn. Þó virðist unglingun-
um hafa þótt mikið púður í
þessu, því að fyrir hvitasunn-
una barst sá orðrómur um
London, að gera mætti ráð
fyrir endurtekningu þessarar
„skemmtunar" í Margate. Það
hreif og þúsundum saman
flykktust unglingar frá höf-
uðborginni til Margate. Borne
mouth og Brighton fengu, sem
fyrr segir, einnig að kenna á
heimsóknum þeirra.
Til átaka milli unglingahóp-
anna kom á baðströndunum,
en þar laust fylkingunum
saman vopnuðum stólfótum,
hnífum, flöskum og leðurbelt-
um. Friðsamar fjölskyldur,
sem lágu á ströndinni í sól-
baði, flýðu í ofboði og lög-
reglan hraðaði sér á vettvang.
í Margate voru handteknir 50
unglingar og hópunum á bað-
Lögreglan handtckur unglinga í Margate
Hvorugur hópurinn virðist
neyta áfengis í óhófi og bar
lítið á ölvun meðal þessara
óeirðarseggja um hvítasunn-
una. Hins vegar voru margir
úr hópi „Mods“ í annarlegu
ástandi af völdum lyfs, sem
þeir taka inn í töflum og ger-
ir þeim kleift að sleppa úr
máltíðum og komast af án
svefns. Töflur þessar eru not-
aðar við hjartasjúkdómum og
hafa fengizt án lyfseðils, en
nú verður slík sala stöðvuð.
í upphafi réttarhalda yfir
hinum handteknu unglingum
í Brighton sagði forseti rétt-
arins m.a.: „Þessir síðhærðu,
andlega trufluðu unglingar,
eru eins og rottur. Þeir hafa
aðeins hugrekki til að leggja
til atlögu margir saman, en
ef eitthvað bjátar á, reyna
þeir að fela sig að baki fé-
laga sinna, svo ragir eru þeir.“
Lögreglan með einn
óeirðasegginn
Blöð í Bretlandi hafa rætt
mikið um óspektir ungling-
anna. „Daily Telegraph" tel-
ur, að lækna megi óeirða-
seggina með því að beita vatns
slöngum gegn þeim og dæma
þá til líkamlegra refsinga. —
„The Times“ leggur til að
hætt verði að gefa frí tvo
daga í röð á stórhátíðum. „The
„Guardian“, sem oft hefur
rætt skilningsskort hinna full-
orðnu á vandamálum ungling-
anna, t.d. vegna upplausnar
heimilanna, tekur nú í sama
streng og önnur blöð og for-
dæmir framferði ungling-
anna. Blaðið segir m.a.: „Ekk-
ert þjóðfélag getur þolað ó-
spektir eins og hafðar voru í
frammi um helgina og enginn
getur ásakað lögregluna þótt
hún grípi til róttækra aðgerða
til þess að stemma stigu við
þeim.“
Nokkrir þingmenn hafa
skýrt frá því að þeir hyggist
ræða unglingaóeirðirnar, þeg-
ar þingið kemur saman að
nýju eftir hvítasunnuleyfið.
Einn þingmaður íhaldsflokks-
ins í Brighton, Sir William
Telling, kvaðst ætla að leggja
til við forsætisráðherrann,
Sir Alec Douglas-Home, að
sett yrðu lög sem heimiluðu
að senda slagsmálahunda og
óeirðaseggi í þegnskyldu-
vinnu í kolanámunum.
=3
fÍjlllllllllllltlllllllllllHIIHIIIIIIIHIIIIIHIHIIHIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIHIIIHIIHIHIHIinilH'llllllHIHIHIIHHIHIHHIHiniHIIIHtHIIHHIHIIIIHIHHIIHIIIHHIHIHIIHIHIHIHIIIIHIHIHIIIIIHHIilliMHIHIHIHHHHIHIIIHtHIIHHIHIHIHIHHIIHHIHIHHIHIIHHIHIHIHIHIIHHIHIHIHIHIIHHIHIIIIIIIilU
Frjáls spari-
merkjakaup
í SKATTALÖGUM ákveðins
rí'kis eru þessi ákvæði, í laus-
legri þýðingu: „Þeir skattgreið-
endur sem óska eftir að leggja
til hliðar nokkra upphæð mán-
aðarlega, til að geta mætt út-
gjöldum í lok hvers gjaldárs,
geta keypt sparimerki sem seld
eru hjá pósthúsum. Ársupphæð-
in er um 4000 kr. og greiðist á
hana 3.5% vextir, merkin eru
frádráttarhæf til skatts“.
Mig langar til að vekja at-
hygli á þessu atriði, því kannske
getum við haft eitthvert gagn
af þessu eins og aðrar þjóðir.
Hér eru hin lögboðnu sparimerki
óvinsæl en í ofangreindu atriði
eru þau eftirsóknarverð. Greið-
endur geta náð upphæðinni í loik
'hvers árs eftir eigin ósk, eða í
janúar, mun það vera mörgum
kærkomin fjárhæð eftir hátíð-
arnar. Það yrði framkvæmda-
atriði hve viðtækt þetta kerfi
yrði og hve mörg hundruð miilj
ónir af hreinu eyðslufé yrði
þannig bundið, í stað þess að
auka verðbólgu og öfugþróun í
landinu.
Þegar þessari hugmynd er
komið á framfæri~hér á landi,
vona ég að hún verði abhuguð,
og framkvæmd ef fært þykir.
Viggó Oddsson.
ADEN
Aden, 21. maí NTB-AP:
• Brezkar . orrustuflugvélar
af gerðinni Hunter héldu í
dag áfram sprengjuárásum á
stöðvar uppreisnarmanna í
Radfan-fjöllunum.
Balfarafélagið
stofnar duft-
garðasjóð
BÁLFARAFÉLAG íslands hefur
afhent stjórn kirkjugarða Reykja
víkur kr. 95.337.00 til stofnunar
sjóðs er nefnist „Duftgarðasjóð-
ur“ og á að notast til að skipu-
leggja og prýða duftgarðana í
Fossvogi. Sjóðurinn skal vera í
vörzlu stjórnar kirkjugarðanna
og skal nota hann eftir því sem
stjórnin ákveður, innan þess
ramma sem sjóðnum hefur verið
settur.
Duftgarðarnir hafa þegar að
nokkru leyti verið skipulagðir og
það pláss sem þeim er ætlað suð-
austan við kirkjuna í Fossvogi er
talið að muni nægja langan tíma,
sem grafreitur fyrir jarðneskar
leyfar þeirra sem brenndir eru.
Eins og kunnugt er, lét Bálfara
félagið fyrir fáum árum reisa i
duftgarðinum líkneski af Krists-
mynd Thorvaldsens og færði
kirkjugörðunum það að gjöf.