Morgunblaðið - 21.06.1964, Síða 2
2
MORGUNBLADIÐ
Sunnuclas'ur 21. júní 1964
Sólarhringsaflinn
60607 mál eystra
Heildaraflinn á síldarmiðunum
fyrir austan land si. sólarhring
var 60,670 mái. Fengu 66 skip
þennan afla. Siidin veiddist aðal-
lega í Reyðarfjarðardýpi og Hér-
aðsflóadýpi og eitthvað á svæð-
inu þar á milli, yfirleitt 20—40
mílur frá landi. Síldin er talin
sæmileg. Allar verksmiðjur á
Austurlandi norður til Raufar-
hafnar eru fullar af síld og losn-
ar hvergi þróarrými fyrr en eftir
1—2 sólarhringa.
Skipin, sem til Raufarhafnar
komu, eru þessi: Guðmundur
Péturs 1000, Eldborg 1200, Þór-
katla 650, Jón Finnsson 700,
Skírnir 900, Framnes 1150, Stein-
unn 400, Hafrún 1000, Árni Magn
ússon 1600, Helga 1600, Gísli Lóðs
450, Ma.nni 750, Grótta 1400, Faxi
1300, Sólrún 1000, Elliði 1300,
Bergur 1250, Páll Pálsson 900,
Hrafn Sveinbjarnarson II 900,
Rán ÍS 550.
Einn bátur kom til Siglufjarð-
ar með síld, Æskan með 500 mál.
Var von á flein bátum til Siglu-
fjar^ar í gærkvöldi.
f gærmorgun komu fjórir bát-
ar til Vestmannaeyja með síld
af austurmiðunum. Kristbjörg
1300 tn., Reynir 1022, Ófeigur III
500 og Huginn 400. Samtals eru
þetta 3222 tunnur. Von var á
fleiri bátum til Eyja í gær-
kvöldi.
I>á er þess að geta að á mið-
nætti á föstudagskvöld sá síldar
flugvélin tvær stórar síldartorf-
ur og nokkrar minni um 17 míi-
ur frá Bjarnarey. Engin skip
voru að veiðum þarna í fyrrinótt.
Síldin virtist þokast í norðurábt.
Neskaupstað 20. júní
Eftirtaldir bátar hafa komið
hingað í nott og í mor.gun með
síld: Gnýfari 100 mál, Fanney
300 ,Bergvík 200, Pétur Jónssoa
650, Baldvin Þorvajdsson 650.
Þorbjörn II 1400, Einar Hálfdána
700, Mímir 400, Stjarnan 700.
Akurey 900, Kópur 800.
Bræðsla gengur vel, en atlar
þrær eru fullar. Er landað jafn-
óðum og þróarrými losnar. Verk
smiðjan bræðir um 5.000 mál á
sólarhring.
Veður er nú mjög fagurt og
hlýtt, glampandi sól, Hitinn er
núná 14 stig í forsælu, en trúlega
verður hlýrra síðar í dag. í gær
komst'hitinn í 19 stig í forsælu.
— Ásgeir.
Listahátíðinni
lauk með hófi
ráðherra, frú Dóra Þórhalls-
dóttir, forsetafrú, Herra Ás-
geir Ásgeirsson, forseti, og
frú Sigrún Eiríksdóttir.
Lengst til vmstri og fremst á
myndinni er Jón Þórarinsson,
formaður Bandalags íslenzkra
Listamanna.
Á FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ var
Listahátíðinríj slitið með hófi
í Súlnasal að Hótel Sögu, og
voru meðfylgjandi myndir
teknar við það tækiíæri. Á
efri myndinni sést háborð-
ið. Þar sjásc frá vinstri: Dr.
Bjarni Benediktsson, forsætis-
í hófinu var afhentur Silfur
lampinn, sem leiklistargagn-
rýnendur blaðanna veita
jafnan fyrir beztan leik á ár-
inu. Silfurlampann hlaut að
þessu sinni Helgi Skúlason
fyrir leik sinn í hlutverki
Franz í „Föngunum í Altona“.
Myndin var tekin er Helgi
veitti Silfurlampanum við-
töku. Við hlið hans standa frá
vinstri gagnrýnendurnir Sig-
urður A. Magnússon ,Ólafur
Jónsson og Agnar Bogason.
(Ljósm. Gísli Gestssson).
Hæstaréttardóm-
arar í óreið
— vegna landamerkjamáls, sem risið
er vegna laxveiði í Kattarfossi 1 Hítará
í FYRRADAG, föstudag, gerð-
ist það að dómarar Hæstaréttar,
fóru til Snæfellsnes, stigu þar á
hestbak og riðu 8-10 km. leið
inn fyrir Kattarfoss í Hítará og
til baka. Fóru dómarar á vett-
vang til þess að kynna sér
staðhætti landamerkjamáis, sem
Hópur banda-
rískra blaðamanna
hér í boði Lof tleiða
UNDANFARNA daga hafa banda
riskir blaðamenn verið hér í boði
Loftleiða. Komu þeir 17. júní og
halda heimleiðis í dag. í för með
blaðamönnunum er sölustjóri
Loftleiða i New York.
Blaðamennirnir hafa ferðast
hér sunnanlands og farið norður
til Mývatns. Hafa þeir hitt að
máli m.a. forstjóra Ferðaskrif-
stofu ríkisins og fleiri íslenzka
frammámenn.
Sem fyrr segir fara gestirnir
heim í dag, en einn verður þó
eftir. Hann fékk botnlangakast
og var skormn upp I gærmorg-
1*0.
risið er milli eigenda eyðijarð-
arinnar Hítardalsvalla í Kol-
beinsstaðahreppi, sem er hrepp-
urinn, og Moldbrekka, og er bit-
beinið laxveiðin í umraiddum
Kattarfossi. Slíkar ferðir dóm-
ara á vettvang nefnast á laga-
máli áreið og vettvangsmál, og
tíðkuðust áður fyrr, en nú orð-
ið fara dómarar þess háttar ferð
ir ýir.ist á jeppum eða gangandi.
Er málið var fyrir héraði gengu
dómarar og málaflutningsmenn
á vettvang.
Kattarfoss er hár foss ofar-
lega í Hítará. Ekki er hann lax-
gengu.r en laxveiði er í fossin-
um. Hefur Moldbrekka haft
veiðina, en . hreppurinn á hins
vega'r eyðibýbið Hitardalsvelli
alllangt fyrir ofan fossinn sönui
megin Moldbrekku. Fór hrepp-
urinn í mál, þar sem hann taldi
sig eiga nálega 2 km spildu
niður fyrir fossinn. Landið,
sem um er deilt, mun lítils eða
einskis virði, skriður í fjalls-
hlíð, þannig að raunverul ega er
það laxveiðin, sem málið snýst
um. í héraði féll dómur á þá
leið, að Mold'brekka ætti alla
veiði í fossinu.m.
Kolbeinsstaðahreppur áfrýjaði
þessum dómi til Hæstaréttar, og
verour niálið ftutt á þríðjudag.
Flytja það sem prófmáf lög-
mennirnir Örn Þór fyrir Kol-
beinsstaða.hrepp og Stefán Pét-
ursson fyrir eigendur Mold-
brekku.
Eins og fyrr getur fóru hæsta
réttardómarar á föstudag til
Snæfellsness. Óku þeir að Brú-
arfossi, sem er við brúna yfir
Hítará, stigu þar úr bílum og
á hesfcbak. Riðu þeir síðan upp
að Kattarfossi og alla leið upp
að Hítardalsvöllum, en þetta er
8-10 km. reið hvora ieið.
KLUKKAN 9 i gær var suð-
læg átt um land allt. Víða
norðanlands var hitinn 14 til
17 stig, hlýjast 19 stig á
Staðarhóli og í Aðaidal.
Vestan til á landinu var rign-
ing eða súld mjög víða.
— Kennedy
Framh. af bls. 1
Corridan sýndu röntgenmynd-
ir, að hann var marg rifbrot-
inn og hryggbrotinn. Þó kvað
hann Kennady geta hreyft fæt
ur og hendur eðlilega og sagði
að hann væri ekki í lífshættu.
Kennedy er 32 ára.
Þetta er síður en svo fyrsta
meiri háttar áfal’lið sem hend-
ir Kennedy fjölskylduna. Er
skemmst að minnast hins
hörmulega atburðar í nóvem-
ber sl. er Kennedy forseti var
myrtur. Nokkru áður höfðu
forsetahjónin misst nýfæddan
son sinn, Patrick Bouvier.
Elzti bróðirinn Joseph P.
Kennedy féll í heimsstyrjöld-
inni síðari, 29 ára að aldri og
fjórum árum siðar fórst systir
þeirra Kathleen Kennedy
Cavendish í flugslysi í Suður
Frakklandi, 28 að aldri. Hún
hafði misst mann sinn í
styrjöldinni fjórum mánuðum
eftir giftingu þeirra. Þá má
geta þess að faðir þeirra
Kennedy-systkina, Joseph P.
Kennedy fékk hjartaslag fyrir
rúmu ári og ein systirin hefur
dvalizt á heimili fyrir van-
gefna.
Lægðin yfir sunnanverðu
Grænlandi er á hreyfingu
austur og fer dýpkandi,
þegar þetta er skrifað. Er því
Ijóst að hel.gin verður vætu-
söm og gjóstug á Suður og
Vesturlandi en því betri fyrir
norðan og austan.
Vopnafirði, 20. júní.
Frá hádegi í gær til jafnlengd-
ar í dag komu 10 skip til Vopna-
fjarðar með samtals 8200 máL
Skipin eru: Sæfaxi NK 1000,
Straumnes 700, Guðfinnur KE
600, Þráinn 1000, Sigurður 900,
Friðrik Sigurðsson 800, Rifsnes
750, Arnkell 1000, Víkingur II
450, Björn Jónsson 1000.
Þessu síldarmagni verður ekki
búið að landa fyrr en á sunnu-
dagskvöld eða mánudagsnótt, en
þá verður verksmiðjan búin að
taka á móti 46,000 málum. Hefur
hún þegar unnið úr 20,000 mál-
um og vinnslan gengur vel.
— Sigurjón.
Einu einleiks-
Iiljómleikar
Maleolms
Frager í Rvík
ANNAÐ kvöld klukkan 21 held-
nr bandariski pianósnillingur-
inn Malcolm Frager einu ein-
leikshljómleika sína í Reykja-
vík. Verða þeir í Háskólabiói. Á
efnisskránni verða verk eftir
Haydn, Brahms, Bartok og Schu
man.
Eiginkona Fragers var vænt-
anleg til landsins í gærkvöldi
og fara þau norður til Akur-
eyrar á þriðjudag. Á miðviku-
dag halda þeir Frager og Ask-
enazy saman hljómleika á Akur-
eyri og á fimmtudag leikur Frag
er i Neskaupstað.
t~~7 7 tmH H fii-rH /v. !%M. '7<7 • •**#
0/0
20
H/.l