Morgunblaðið - 21.06.1964, Síða 8

Morgunblaðið - 21.06.1964, Síða 8
8 M0RGUNBLADID Sunnudagur 21. júnl 1964 Vandasamt var að flytja skipið eða flotholtitf frá Langárfossi að Hlíð'arvatni, og gefur þessi mynd nokkra hugmynd um það. Hún er tekin nær á leitfa renda, Hlíðarvatn er til hægri. þeim dregið upp á 15 metra langan dráttarvagn, og tók þá Gunnar Guðmundsson við flutningnum. Skipinu var síðan ekið að Hlíðarvatni. Var komið þang að og skipið komið á flot eftir 12 tíma, og má það teljast vel gert, því vegir eru víða mjóir á leiðinni og litt til slíkra flutning fallnir. Skipið eða flotholtið var ekki fyrr komið á leiðarenda en þeir Ingólfur Pálsson, yfir smiður, og Daníel £milsson, smiður o. fl. hófust handa um að koma fyrir yfirbygging- unni. Hafði hún verið full- smíðuð áður, og flutt i hlut- um að Hlíðarvatni, þannig að samsetningin gengur bæði fljótt og vel. Tekur skipið miklum breytingum með hverjum degi sem líður, en smiðirnir hafa unnið þarna langan og strangan vinnudag. L.jósavél skipsins er nú kom in í gang, en aðalvélin er kom in að vatninu og verður kom- ið fyrir í skipinu einhvern næstu daga. — Á vatnsbakk- anum hefur verið reist hús, þar sem smiðirnir og þeir, sem við hótelið vinna, búa, en það verður í framtíðinni notað sem birgðastöð fyrir hótelið. Ingólfur Pétursson tjáði fréttamanni Mbl. að margar pantanir um dvöl á hótelinu hefðu þegar borizt. f>ar munu komast fyrir 20 manns í einu i tveggja manna herbergjum. Kostnaður er kr. 600,00 á sólar hring á mann, auk þjónustu gjalds og skatts, en þriggja daga dvalir eru seldar í einu. í skipinu verður eldhús, mat- salur, sólþilfar á þaki, talstöð verður um borð o. fl. Hótelstjóri i sumar\verður Hörður Sigurgestsson, sem ver ið hefur hótelstjóri Stúdenta garðanna í Reykjavík undan- farin sumur. Þannig var látitf fjara undan skipinu vitf Langárfoss, og dráttarvagninum sitfan rennt undir þatf. Unnii af kappi við að fullgera Hótel Víking Hótelið komið á flot á Hiíðarvatni — Fullgert um mánaðamótin ÞESSA DAGANA vinna smitf ir að því af kappi atf innrétta og fullgera hið þegar fræga Hótel Víking, fljótandi gisti- húsitf á Hlíðarvatni á Snæfells nesi. Er alit til skipsins komitf á staðinn, hiff mikla flotholt, innréttingar, húsgogn o. s. frv. og miffar verkinu vel. Verður skipið fullbúið um næstu mán affamót, og margir hafa þegar pantað dvöl um borff í mánutf- unum júlí, ágúst og septem- ber. Fréttamaður Mbl. átti 1 sl. viku leið um Snæfellsnes, og kom þá m.a. að Hlíðarvatni til þess að kanna aðstæður og athuga fleyið. Mikil náttúru- fegurð er við vatnið og i næsta nágrenni, Gullborgar- hraun, þar sem hinn frægi dropasteinshellir er, en hann fannst fyrir nokkrum árum, og Eldborg, hinn fagri gígur, *vo eitthvað sér nefnt. Heldur er lágt í Hiíðar- vatni um þessar mundir vegna undanfarinna þurrka, en þannig mun vera ástatt um flest vötn hérlendis nú. Hins vegar hefur verið þokkaleg veiði í vatninu. Hafa smiðirn ir rennt fyrir silung og fengu t.d. 11 stykki á skömmum tíma fyrir nokkrum dögum. Er þetta bæði urriði og bleikja, frá 1—3 pund að sögn. Við tanga niður undir túni bæjarins Hlíð lá hinn óvenju legi farkostur í smíðum. — Höfðu smiðirnir aðeins unnið í 4 daga við skipið, en yfir- byggingin var þá að mestu upp komin, ljósavél komin niður og rafmagn komið. En þess ber að gæta, er meðfylgj andi myndir eru skoðaðar, að verkið var mjög skammt kom ið er þær voru teknar. Eftir var að að ganga frá byrðingn um að öllu leyti, sem skartað ur verður skjöldúm, Innrétt- ingum o. s. frv. • en verkinu lýkur um mánaðamót eins og fyrr greinir. Svo vel hittist á, að nokkrir eigendur hins nýja fyrirtækis, Víkings h.f. voru staddir við Hlíðarvatn umræddan dag til þess að athuga hvernig mið- aði. Ingólfur Pétursson, fram- kvæmdastjóri, skýrði frétta- manni Mbl. svo frá að flotholt ið mikla eða undirstaða skips ins, sem smiðað var í Reykja vík, hefði komið upp eftir 9. júní. Var það dregið af mb. Bjarna Halldórssyni upp I mynni Borgarfjarðar, en þar tók við flutningnum Páll Stef ánsson, einn af fáum mönnum sem gjörþekkja leiðina inn að Langárfossi. Þangað var flot- holtið dregið með triilu. Er taka átti skipið í land þar, urðu nokkur vandræði og tafðist það milli flóða. Var því siglt nærri landi á flóði, og tunnum komið fyrir undir því. Er út fjaraði, seig skipið niður á tunnurnar og var af Forráffamenn Víkings og smitfirnir um bortf i Hótelinu á Hlitf arvatni. Fremst frá vinstri: — Ingólfur Pálsson, yfirsmiður,Ingólfur Pétursson, Ingólfur Blöndal, Daníel Emilsson, smitfur, Hörffur SigurgOstsson, ten verffur hótelstjóri og Tryggvi Þorf innsson. — Dyrnar liggja aff gistiherbergjunum, en sem sjá má er margt ógert, vantar t.d. byrðinginn enn. — Smiðirnir höftfn atfeins unnið í fjóra daga er myndin var tekin. — (Ljósm.: Mbl.). Aðalþing norrænna bindindis- ökumanna haldið í Reykjavík DAGANA 8. og 9. júlí n.k. vertf- ur haldiff í Reykjavík aðalþing Nordisk Tlnion for Alkoholfri Trafik, sem er samband bind- indisfélaga ökumanna á Nortfur- löndum. Þingiff munu sitja 20 full trúar, þar af 13 erlendir. í sambandinu eru 6 félög, 2 í Finnlandi, 1 í Danmörku, 1 í Svíþjóð, 1 í Noregi og 1 á íslandi. Félagatala þessara félaga er nú samtals um 250 þús. Að auki eru svo í sambandinu tryggingafélög in Ansv.ar í Svíþjóð og Varde í Noregi. Nordisk Umon for Alkoholfri Trafik (NUAT) heldur þing sitt (Generalforsamling) í höfufR>org ; um Norðurlandanna til skiptis, annað hvert ár. Er nú komið að Reýkjavík og verður þingið háð 4. og 9. júií n.k. Munu út- lendu fulltrúarnir verða alls 13 en íslenzkir. fulltrúar 7, þannig að alls sitja þingið 20 fulltrúar. Er þetta mun lægri tala en venju lega, þar eð sum hinna útlendu félaga senda fáa fulltrúa, en flest ir geta þeir verið 7 frá hverju félagi, og því alls 42 ef öll fé- lögin senda fuila tölu. Auk kjör- inna fulltrúa munu konur nokk- urra þeirra koma svo og nokkur hópur af skemmtiferðafólki, en ekki er enn vitað hve margt það fólk verður. Þing NUAT fjallar um öll sam eiginleg mál innan norræna sam bandsins. Það skipar stjórn þess, og sameiginlegar starfsnefndir, leggur drög að ýmsum sameigin legum aðerðum í umferðar- og bindindismálum og samvinnu á milli fétaganna, ræðir og legguc drög að ýmsum aðgerðum á al- þjóða vettvangi, beitir sér fyrir sameiginlegum félagafríðindum o.s.frv. Geta má þess, að NUAT er í heimssamtöku'tn bindindisfélaga ökumanna, International Abstain ing Moteriste Association (IAMA) og sterkasti aðilinn ian an þessara samtaka. Hinir útlendu fulltrúar koma hingað um kvöldið 6. júlí. — Á miðvikudag kl. 10 hefst þingið í sal Slysavarnarfélags íslands á Grandagarði og lýkur því næsta dag um kl. 16. Síðari hluta mið- vikudagsins verður fulltrúum og gestum þeirra sýnd Reykjavik og nágrenni. Eftir þingslit tekur Reykjavíkurbær á móti fulltrú- um og það sama kvöLd verður rið 10 ára afmæli Bindindisfé- lags ökumanna. Eru félagar BFÖ almennt velkomnir til þessa hófs. Á föstudag og laugardag verður ferðast með fulltrúa og gesti þeirra. ' Hinir útlendu fulltrúar fara héðan á mánudagsmorgun, hinn 13. júlí. Geta má þess, að á laug ardag þ. 11. júlí verður opnað í Reykjavík bindindis- og umferð armálasýning. Að sýningu þessari standa Reykjavíkurdeild BFÖ, Abyrgð h.f. og íslenzkir ung- templarar. Hefur þannig löguð sýning verið haldin einu sinni áður, eða 1961, og vakti þá mikla athygli almennings. Framkv,- stjóri sýningarinnar er Gunnar Þorláksson, fulltrúi. Félagar í BFÖ eru nú á 3. hundrað, en stjórn þess skipa: Sigurgeir Albertsson, formaður; Helgi Hannessí>n, varaform., Ás- björn Stefánsson, ritari; Jens Hólmgeirsson, gjaldkeri; Guð- mundur Jensson, Pétur Sigurðs- son, Óðinn S. Geirdal, Akranesi, og Björn Björnsson, Höiuru í BRIDGE ................. I 5. umferð í opna flokknum á Norðurlandamótinu í bridge, sem fram fer í Osló, urðu úrslit m.a. þessi: Noregur 1 — Island 1 102:58 6—ð Sviþjóð 2 — ísland 2 69:32 5—0 í 6. umferð urðu úrslit þessi: ísland 2 — Svíþjóð 1 98:74 6—0 ísland 1 — Danmörk 1 92:79 5—1 Að 6 umferðum loknum ar staðan .þessi: 1.—2. Svíþjóð og Danmörk 48 st. 3. Noregur 33 —> 4. ísland 30 — 5. Fintvland 21 — í 4. umferð í kvennaflokki sigT aði ísl. sveitin þá finnsku með 147 stigum gegn 139 eða 4—2. — Staðan að 4 umferðum loknunt er þessi: 1. Sviþjóð 16 9t 2. Danmörk 13 — 3. FLrvnland 8 — 4. Noreg*ir 7 — S. lalamd 1 — hóf að Hótel Sógu í sambandi' Hjaltadah

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.