Morgunblaðið - 21.06.1964, Page 20

Morgunblaðið - 21.06.1964, Page 20
20 MORGUNBLAÐiD Sunnudagur 21. júnx 1964 JÓltíl«CI IHÍBtningarorð Fæíid 10. febrúar 1890 Dáln 15. júni 1964 Þ'AJSTN 15. júní sl. andaðist hér á Landakotsspítala frú Jónína Bene Æktsdóttir, til heimilis hjó dóttur einni, Hamrahííð 25, eftir heldur eíutta en erfiða iegu.með krabba- ttiein í lungum. Hafði hún fyrst kennt þess í brisi i brjósti árið éður og vonuðu menn, að hún mundi sleppa, en svo varð ekki. Var fjöri hennar brugðíð við þunga veikinnar, en þó bráði af henni einn dag, er ég kom að heimsækja hana, og gerði hún þá skarpar athugasemdir við bók, sem ég færði henni. Jónina var fædd að Þorvalds- stöðum í Skriðdal 10. febrúar 1890, fyrsta barn hjónanna Bene- dikts Eyjólfssonar bónda og hxeppstjóra, og Vilborgar Jóns- dóttur prests á Klyppstað, Jóns- sonar vefara. Kona Jóns prests á Klyppstað, móðir Vilborgar, var Þórunn Magnúsdóttir prests á Eydölum af Hoffellsætt, systir Exriks Magnússonar í Cambridge. Ævisögu hans skráði, sá er þetta ritar, fyrir aldarafmæli hans 1933, en „Minningar um heimilið á Þorvaldsstöðum í Skriðdal“ í Óðni XXLX, 1933, bls. 75—79. Af börnum þeirra hjóna lifðu fjórar systur: Jónína, Sigríður (f. 1892), Þórunn (f. 1894) og Þorbjörg (f. 1897). Varð Sigríður og er enn húsfreyja á Þorvaldsstöðum, gift Friðrik Jónssyni frænda sínum. Þær systurnar Þórunn og Þor- björg fiuttu til Reykjavíkur og búa á Barónsstíg 61, Þórunn saumakona en Þorbjörg kennari við Austurbæjarbarnaskóla. Allar voru þær Þorvaldsstaða- systur greindar og vel gefnar, ekki sízt Jónína, sem var þeirra skörunngur mestur ' og kahnski skemmtilegust, enda hrókur alls íagnaðar í vinahópi, eigi aðeins á yngri árum, heldur fram á síð- ustu ár á meðan hún helt heilsu. Jónína hefur verið heitin eftir afa sínum séra Jóni á Klyppstað. Móðir hennar var systir Þóreyj- ar Jónsdóttur, sem verið hafði skóiakennari á Kvennaskólanum á Syðri-Ey í Húnavatnssýslu og gifzt 1895 Birni Árnasyni hrepp- stjóra á Syðri-Ey. Það var því ekki undarlegt þótt Jónína væri send á kvennaskóla á Blönduósi 1 námunda við móðursystur sína. Þar var hún á skólanum 1907— 1919 og þegar hjónin á Þorvalds- stöðum misstu son sinn Stefán, sem heitinn var eftir stjúpa móð- ur hans, Stefáni Einarssyni, bróð- ur séra Hjörléifs á Undirfelli, þá tóku þau Stefán Björnsson (og Þóreyjar) í fóstur. Hann er nú skrifstofustjóri í Reykjavík. Næst fór Jónína á Lýðskóla Ásgríms Magnússonar í Reykja- vík og var þar veturinn 1912— 13, en þá var Brynleifur Tobías- son forstöðumaður skólans. Þá fór Jónína á námsskeið á Askov 1 Danmörku 1913, las þar meðal annars danskar bókmenntir. Síð- »st fór hún á Kennaranámsskeið við Kennaraskóla íslands 1916, og tóku þá kennarastörfin við. Jónína var ágætur kennari. Að vísu hafði hún byrjað að kenna Kristján Tómasson, SigurhæS, Kskifirði er sjötugur í dag. Benediktsdóttir Sýning á gólfdúkum og flísum ■ næstu viku í beimasveit sinni Skriðdal eftir að hún kom úr Blönduósskóla 1909—10. Var síðan heimiliskenn ari í Tungu í Fáskrúðsfirði 1911 —12, þá kennari í Reykjarfjarð- arskólahéraði 1913—15, þá í Vallna-skólahéraði 1915—17, þá í Breiðdalsskólahéraði og heimilis- kennari hjá séra Pétri í Eydöl- um 1917—18. Þann vetur höfum við Jónína verið samtímis í Breið daJ, því ég tók stúdentspróf 1917, en var heima veturinn eftir. Ég man að við vorum líka samtímis í Reykjavík veturinn 1919—20, en á þessum árum vann hún líka fyrir sér með því að baldýra upphlutsborða, en þá list man ég að móðir mín og móðursyst- ir hennar Margrét Jónsdóttir á Höskuldsstöðum í Breiðdal, kenndi henni, meðal annars. En Jónína var forkur dugleg við það eins og annað. Eftir það varð Jónína kennari við Barnaskólann á Búðum í Fáskrúðsfirði 1921— 23. Þá var hún í skólanefnd Skriðdalshrepps um langt skeið. 26 .júní 1923 giftist Jónína mik ilhæfum bónda, Helga Finnssyni á Geirólfsstöðum í Skriðdal, syni Finns Björnssonar Antoníusson- ar frá Flugustöðum í Álftafirði, hagmæltum bónda, og Bergþóru Helgadóttur af Sandfellsætt, en dóttir þeirra og systir Helga á Geirólfsstöðum var Guðrún Helga skáldkona í Winnipeg (sjá.um Finn, Austfirzk skáld og rithöfundar, Akureyri 1964, bls. 185). Var Bergþóra annálaður skörungur. Þau hjónin bjuggu eins og aðr- ir bændur við mikil óhægindi á kreppuárunum 1930—39, án þess þó að safna skuldum, en eftir það hrundi fé þeirra úr Kirkjwkórasam- band Reyk javík- urprófastsdæmis FÖSTUD. 5. þ.m. hélt Kirkju- kórasamband Reykjavíkurpróf- astsdæmis aðalfund sinn í KFUM húsinu við Amtmannsstíg. Þang- að komu fulltrúar frá því nær öllum sambandskórunum, svo og nokkrir organleikarar, þ.á.m. Jón ísleifsson formaður Kirkju- kórasambands íslands. Nýr kirkju kór var tekinn í -sambandið á fundinum, kór Grensássóknar, og eru kórarnir þá orðnir 11 að tölu innan vébanda KSRP. Á fundinum voru tekin fyrir til umræðu ýmis félagsmál, s.s. raddþjálfun og þóknun fyrir söng við messur og aðrar athafnir. Formaður var kjörinn Baldur Pálmason, Hrefna Tynes ritari, Hálfdán Helgason gjaldkeri, Margrét Eggertsdóttir og Katr- ín Egilson meðstjórnendur. Voru þau öll endurkjörin, nema Katr- ín, sem kom í stað Torfa Magn- ússonar, er baðst undan endur- kosningu, en hann gegnir for- mennsku í launanefnd sambands- ins. Fyrir dyrum standa samn- ingar við fulltrúa frá safnaðar- stjórnum í prófastsdæminu um samræmda þóknun fyrir kirkju- söng. garnaveiki. Samt græddu þau líka á stríðinu eins og aðrir og voru yfirleitt ávalt vel bjarg- álna. Þau hjónin fluttu til Reykja víkur sumarið 1949. Þeim hjónum varð þriggja barna auðið er öll fæddust á Geirólfsstöðum I Skriðdai. Valborg var fædd 21. nóvem- ber 1924. Hún er ógift, kennari við Austurbæjarbarnaskóla og býr i Hamrahlíð 25, þar sem Jón- ína bjó og faðir hennar Heigi býr ennþá hjá henni. Þórir Finnur var fæddur 27. júní 1926. Hann er húsasmiða- meistari og býr í Kópavogi. Hann giftist 31. des. 1953 Vigdísi Björnsdóttur frá Breiðabóisstað á Álftanesi. Þau hjónin eiga börn. Guðrún Benedikta var fædd 22. desember 1932. Hún giftist 6. júlí 1957 Hreini Kristinssyni frá Bakkagerði í Jökulsárhlíð. Hann er bílstjóri. Þau búa í Mávahiíð, 33, seip'Jónína og Heigi keyptu fyrst er þau komu til Reykjavík- ur 1949. Auk þess ól Jónína upp dótt- urdóttur sína Kolbrúnu, sem hún reyndist hin bezta móðir. Var hún mjög góð öilum sín- um barnabörnum og eiga þau ágætri ömmu á bak að sjá. Verð- ur þeim öllum skarð fyrir skildi, þar sem hún er horfin. Jónína hefur orðið harmdauði öllum frændum og vinum fjær og nær, en þó einkum systrum, manni og börnum og barnabörn- um. En þó er það þakkarvert að hún skyldi ekki látast fyrr en í tiltölulega hárri eáíi og að krabbameinið tók hana á tiltölu- lega skömmum tíma þótt þungt værL — Forníeifar Framhald af bls. 13 fræðingurinn dr. Erik Moltke hefur rannsakað stafinn og segir, að á einni hlið hans séu rúnir, sem ekki hafi tekizt að lesa úr og telur, að um einhverskonar dulmál sé að ræða. Á annarri hiið er allt rúnastafrófið, en á þeirri þriðju les Moltke: „a sa sa sa, is asa sat, bibrau haitir mar su, is sitr a blan(um)“. Þetta segir Vebœk að skýra megi á eftirfarandi hátt: „í sjónum er staðurinn þar sem æsirnir eru, Bibrau heitir mærin, sem situr á hinum bláa himni (eða himinhvelf- ingunni)". Á fjórðu hlið stafs ins er klór, sem líkist rúnum, en er ólæsilegt. Form rúh- anna á stafnum sýnir ljóslega, að þær hafa verið ristar á NÆSTKOMANDI viku verður haldin sýning á gólfdúkum, flís- um og teppum írá Deutsche Iúnoleum-Werke A/G í húsa- kynnum Byggingaþjónustu A.í. Lauaveg 26. Af því tiíefni kom hr. A. Muser, framkvæmda- stjóri i útflutningsdeild DLW til landsins, og fyrir nokkrum dögum kynnti hann nokkrar nýj- ungar í plastframleiðslu verk- smiðjunnar fyrir arkitektum, blaðamönnum og öðrum gestum. Umboð fyrir DLW á íslandi hef- ur Umiboðsverzlun Árna Siem- sen, og hafa gólfdúkar og aðrar vörur verksmiðjunnar verið Luttar hingað til landsins um 35 ára skeið. . Muser sagði, að aðalfram- leíðsla verksmiðjunnar jxm langt árabil hefði verið linoleúmgólf- dúkar, sem væru búnir til úr hráefnum eins og linolíu, korki. sagi, viðarkvoðu, hampdúk og litarefnum. Gólfdúkar þessir hefðu reynzt mjög vel og væri hægt að fá þá í sex mismunandi þykktum. Með breyttum tíma hefði framleiðsla verksmiðjunnar emnig tekið breytingum og fyrir nokkrum árum hefði verksmiðj- an tekið plastefnin i sína þjón- ustu. í dag væri framleiðsla verksmiðjunnar fjórþætt: í fyrsta lagi linoleumgólf- dúkar, þeir sem fyrr um getur, í öðru lagi gólfdúkar 'og flísar úr plasti, í þriðja lagi ullarteppi og í fjórða lagi svonefndir Stra- gula-gólfdúkar, sem kalla má teppalíkingu. Þeir eru búnir til úr vænum tjörubomum ullarfilt pappa, sem síðan er málaður fyrstu áratugum 11. aldar eða nokkrum árum fyrir alda- mótin, og gæti stafurinn því hafa verið gerður aí land- námsmönnum. Við Narssaq-bæinn hafa fundizt fleiri hlutir frá fyrstu tíð Jandnemanna og eru sum- ir þeirra einstakir í sinni röð. T. d. má nefna spjótsodda af öllum gerðum, sem þekktir voru í Noregi og á Islandi. íslenzku og norsku oddarnir eru gerðir úr járni, en þeir, sem fundizt hafa á Grænlandi úr horni og beini. Fyrri forn- leifarannsóknir í landinu sýna, að þar hafa margir hlut ir verið gerðir úr horni, sem annars staðar voru gerðir úr járni. Talið er, ag þetta hafi m. a. stafað af járnskorti vegna slæmra samgangna •milli Grænlands og íslands. En nokkrir þessara hluta eru með olíulitum og plasthúð sett yfir allt saman. Sagði Muser, að stragula-gólfdúkarnir væru framleiddar í sjö mismunandi gerðum, ýmist með kork eða fjltundirlagi. Þá gat Muser þess, að vörur DLW-verksmiðjanna væru ákjós anlegar í sjúkrahús, vegna þesa hve létt væri að hreinsa dúk- ana. Af öðrum stöðum mætti nefna skóla, rannsóknarstofur, ílughafnir, v^itingahús, bað- htirbergi oig eldhús, svo eitt- hvað væri nefnt. Vegna ein- engrunareiginleika þeirra þættu þær heppilegar sem klæðning í skip otg , járnbrautaxvagna. Hvað teppunum viðkemur væru þau framleidd í sjö mis- munahdi gerðum, og ullin ýmist styrkt með perlon eða dralon. Væru þau framleidd í 71 Jit, og þættu hentug í hótel, leikhús, stóra sali o. þ. h. Að síðustu bað Muser við- stadda að líta á sýnishornin frá verksmiðjunni, sem eins og fyrr segir verður til sýnis almenningi dagana 22.—27. júní nk. n BERNSTEIN LÁTINN I.AITS Jóhannesarborg, 13. júní (NTB): ARKITEKTINN Lionel Bern- stein, sem í gær var sýknaður af ákæru um að hafa tekið þátt í áætlunum Nelson Mandela um skemmdarverk og uppreisn, mætti í dag fyrri rétti á ný sak- aður um brot á lögum um bann við starfsemi kommúnista. Að loknum yfirheyrslum var Bern- stein látinn laus gegn tryggingu. greinilega frá fyrstu tíð norr- ænu landnámsmannanna, eða síðasta hluta víkingaaldar, en þá voru samgöngur án efa greiðar milli Grænlands, ís- lands og Noregs. Norrænu ibú arnir hafa eflaust séð, að hægt var að nota horn og bein í stað járns og gert það, því að gnægð var aí hreindýrum. Meðal annarra athyglisverðra hluta, sem unnt er að rekja til fyrstu landnámsáranna, er bluti trésverðs. Getur það bæði hafa verið vefarasverð og leikfang. í lok greinar sinnar segir Vebæk, að bær no. 17a í Nars- saq sé án efa byggður á íyrstu áratugum landnáms norr- ænna manna á Grænlandi og uppgröfturinn þar og rann- sóknir á fornleifunum hafi aukið mjög þekkinguna á norrænni miðaldamenningu á GrænlandL Stafurinn með rúnaletrinu, sem um getur í greininnl Stefán Einarsson. , Þorpið Narssaq yzt í Eiriksf irði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.