Morgunblaðið - 15.07.1964, Blaðsíða 1
24 siður
Konaroar tvær á myndinni virðast koma sér mjög vel saman, en þær eru eiginkonur Williams
Scrantons (til vinstri) og Barry Goldwaters. Myndin var tekin í San Francisco sl. föstudag. Voru
frúrnar þá að koma úr hádegisverðarboði og eiginmenn þeirra hvergi nærri.
San Francisco, 14. júlí (AP)
ENGIR morgunfundir voru á
landsþingi repúblikana í San
Francisco í morgun,. og not-
uðu fulltrúarnir tímann til
einkaviðræðna. Fundur var
boðaður í kvöld kl. 6 (klukk-
an eitt í nótt eftir ísl. tíma),
og búizt við að þar verði harð-
ar umræður um stefnuskrá
flokksins.
Barry Goldwater virðist
enn halda áfram að bæta við
sig kjörmönnum, en ekki ber
fregnum saman um fylgi
hans. Þó telja flestir hann
hafa tryggt sér nærri 800 kjör
menn, en til að ná kosningu
Mikoyan forseti Sovétríkjanna?
sem franibjóðandi þarf hann
655.
í dag átti Goldwater fund
með kjörmönnum frá Oregon,
sem lýst hafa stuðningi við fram
boð hans. Sagði hann þar m.a.
að demókratar gætu ekki gert
framboði hans' meiri skaða en
nokkrir repúblíkanar hafa þegar
gert. „Repúblikanar", sagði
hann, „hefðu átt að kappræða
um óstjórn Johnsons forseta,
ekki um það hvort Goldwater
langi til að varpa niður kjarn-
orkusprengju“. Sagði Goldwater
að svo virtist sem repúblikanar
væru að berjast gegn repúblikön
um. „En aðalhættan stafar frá
demókrataflokknum, sem sósíal-
istar hafa yfirtekið“.
Stuðningsmenn Williams
Scrantons hafa ekki lagt árar í
bát, þótt ekki séu sigurhorfum-
ar miklar. Fréttamenn spurðu
Scrantón að því í dag hvort hugs
anlegt væri, ef Goldwater bæri
sigur úr býtum á þinginu, að
Scranton yrði í framboði sem
Framhald á bls. 23
Ike enn hlutlaus 1
ers og Scrantons
New York Times um Goldwater: Hann
Íiíir í annarlegum stjórnmálaheimi
átökum Goldwat
Breytingar taldar í vændum - Adzhubei verði utanríkisráðherra
Moskvu og Kaíró, 14. júlí
- (AP) _
HAFT er eftir áreiðanlegum
heimildum í Moskvu að fram-
undan séu miklar breytingar
á stjórn Sovétríkjanna. Helzta
breytingin er sú að Leonid
Brezhnev mun láta af forseta-
embætti, en við því tekur
Anastas Mikoyan. Auk þess
er álitið sennilegt að Alexei
Adzhubei, tengdasonur Krús-
jeffs og núverandi ritstjóri
Izvestia, taki við embætti ut-
anríkisráðherra af Andrei
Gromyko.
' Ekki er talið að hér sé um nið-
urlægingu að ræða fyrir Brezh-
nev, heldur þvert á móti að með
þessu gefist honum kostur á að
helga sig frekari flokksstörfum
og jafnvel að bæta aðstöðu sína
innan miðstjórnarinnai* þar sem
í framtíðinni verður tekin á-
kvörðun um eftirmann Krúsjéffs.
En Brezhnev, sem er aðeins 57
ára, er einn þeirra, sem líklegast
ir eru taldir til að taka við for-
sætisráðherraembættinu. Hann
á sæti í Æðsta ráðinu, og í juni
í fyrra hlaut hann sæti í mið-
stjórn flokksins. Sagt er nú að
Alexei Adzhubei
Anastas Mikoyan
hann hafi einnig tekið við af
Krúsjeff, sem aðalritari flokks-
ins.
Anastas Mikoyan hefur um
langt skeið verið náinn sam-
starfsmáður Krúsjeffs og aðstoð
ar forsætisráðherra. Hefur hann
mjög komið við sögu sem sér-
stakur fulltrúi Krúsjeffs í samn-
ingum víða um heim. Hann er
nú 68 ára, og talið að hann hafi
sjálfur óskað eftir því að fá ró-
legra starf. Bent er á að skipan
Mikoyans í forsetaembættið
muni engum deilum valda, bæði
vegna aldurs hans og svo hins að
með því sé Mikoyan í rauninni
úr leik sem hugsanlegur eftir-
maður Krúsjeffs. Er því álitið að
skipan hans i forsetaembættið
verði staðfest í þessari viku á
þingi ÆSsta ráðsins, sem hófst sl.
mánudag.
Ef Mikoyan tekur við embætti
forseta, er líklegt að tvö helztu
viðfangsefni hans verði falin öðr
um. Þessi verkefni eru: í fyrsta
lagi að gegna embætti forsætis-
ráðherrans í fjarveru hans frá
Moskvu, og í öðru lagi að vera
sérstakur fulltrúi forsætisráðherr
ans á erlendum vettvangi, þegar
um sérstök vandamál.er að ræða.
Svo virðist sem Alexei Kosygin
aðstoðar forsætisráðherra, hafi
þegar tekið við fyrra viðfangsefn
inu, því að hann gegndi em-
bætti forsætisráðherra um skeið
við tvö tækifæri í sumar þegar
bæði Krúsjeff og Mikoyan voru
erlendis. Um arftaká Mikoyans í
starf sendifulltrúa Krúsjeffs er
minna vitað. Sá maður þyrfti að
sjálfsögðu að njóta fyllsta trausts
forsætisráðherrans. Er í því sam-
lllllllllllllllllllllllllllllllllllMllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllltllllllllllllKt
bandi helzt talað um Adzhubei
ritstjóra. En ef Adzhubei tekur
við embætti utanríkisráðherra,
kemur hitt varla til greina.
Alexei Adzhubei er að ýmsu
leiti vel fallinn til að gegna
hvoru embættinu sem er. Hann
hefur að undanförnu ferðast víða
um heim og rætt við ýmsa helztu
leiðtoga stórveldanna. Nú í vik-
unni fer hann enn eina ferðina,
að þessu sinni til Vestur-Þýzka-
lands til viðræðna við Ludwig
Erhard, kanzlara. Ef úr þessum
bfeytingum verður, sem senni-
lega fæst staðfest seinna í vik-
unni, munu þær hafa víðtækar af
leiðingar í för með sér, m.a. enn
fleiri nýskipanir 1 stjórnarem-
bætti, smám saman allt fram á
haust.
Warren G. Hardings.
Hún brenndi ekki bréfunum
|250 dstarbréf 28. forseta Bandaríkjanna,
1 Warren G. Hardings, fundin fyrir tilviljun
ORÐ LÉK á því, að Warren
G. Harding, 28. forseti Banda-
ríkjanna (frá 1921-1923), væri
ekki við eina fjölina felldur í
kvennamálum o,g átti vingott
við fleiri konur utan hjóna-
bands. Ekki fór orðrómur
þessi þó í hámæli eftir að
hann var orðinn forseti Banda
ríkjanna.
Nú þykjast menn hafa í
höndum sannanir fyrir kven-
hylli Hardings, þar sem fund-
izt hafa í heimabæ hans, Mar-
ion, Ohio, meira en 250 bréf
sem hann ritaði frú Carrie
James Philips, á árunum 1909
tii 1920. Af síðustu bréfunum
virðist mega álykta, að frúin
hafi farið fram á að Harding
greiddi sér fé til þess að halda
sambandi þeirra leyndu eftir
að hann var kjörinn forseta-
efni repúblikana árið 1920.
Sagnfræðingurinn Francis
Russell datt ofan á bréf þessi
fyrir tilviljun, er hann var að
viða að sér gögnum í nýja æfi-
sögu um Harding Bandaríkja-
forseta. Hafði hann heyrt því
fleygt eins og fleiri, að fórset-
inn hefði átt vingott við frú
Philips og er hann var í Mar-
ion í fyrrahaust frétti hann á
skotspónum, að lögfræðingur
nokkur þar í borg, Donald
Williamson, sem var fjár-
haldsmaður frúarinnar, hefði
fundið bréf, sem þeim hefðu
farið á milli og myndi líklega
hafa þau með höndum ennþá.
Reyndist þetta rétt vera og
kvaðst Williamson hafa fund-
ið' bréfin í skókassa i læstum
skáp á heimili frúarinnar.
Leyfði hann Russell að lesa
'þau og skrifa upp úr þeim til
þess að nota í fyrirhugaða æfi
sögu Hardings.
Bréfin voru í nokkurri
óreiðu, dálítið gulnug en ekki
skemmd að öðru leyti. Sum
voru stutt en önnur lengri,
allt að 35—40 síður þegar bezt
lét. Mörg voru þau rituð á
bréfsefni öldungadeildar
Bandaríkjaþings, sem Hard-
ing sat í áður en hann varð
forseti og mikið var af i>óst-
kortum með mynd hans 4.
Framh. á bls. 3
&|
iiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiimiiiiiimiiiiiiiiimiiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuuiiiiiiiiiimiiiiiiiuHiiiiiiiiiiimiuimiuiiimiiuiiuHiiiiiiuuiuð